Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 4
SVIÐSLJÓS Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Nefnd efnahags- og viðskiptaráð- herra um forsendur verðtryggingar á Íslandi skilaði skýrslu sinni í síð- asta mánuði. Með skýrslunni fylgdu þrjú sérálit nefndarmanna, sem eitt og sér undirstrikar það hve snúið viðfangsefnið er. Hávær krafa hefur hins vegar verið uppi, ekki síst meðal lánþega, um að verðtrygging verði „afnumin.“ Það verður hins vegar ekki gert nema boðið sé upp á óverð- tryggðan valkost. Sigurður Erlingsson, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, fagn- ar þeim ábendingum sem koma fram í skýrslunni og segir það að draga úr vægi verðtryggingar vera stóra markmiðið. Væri til að mynda hægt að bjóða 25 ára lán til fasteignakaupa segist Sigurður telja það einhverju mestu kjarabót sem hægt væri að bjóða íslenskum heimilum upp á. Stjórnin styður yfirferð málsins „Við erum lögð aðeins af stað með þessa vinnu. Þetta er verkefni sem við ætlum að skoða og sjá hvað er hægt að gera,“ segir Sigurður. „Áhugi okkar og vilji er allur til þess, og stjórnin stendur að baki því að við förum vel yfir það hvað hægt er að gera.“ Hins vegar þurfi fleira að koma til en vilji stjórnar Íbúðalána- sjóðs eða stjórnvalda. „Ég lít svolítið á þetta sem fjár- mögnunaræfingu,“ segir Sigurður. „Í rauninni getum við boðið upp á allt sem við getum fjármagnað. Þetta gengur allt út á það, þannig að við horfum til íslenska skuldabréfa- markaðarins.“ Ríkisbréf eru lang- fyrirferðarmest óverðtryggðra skuldabréfa á markaði. Sigurður segir vísbendingar á þeim markaði um að erfitt sé að fjármagna sig óverðtryggt til lengri tíma, nema á háum vöxtum. „Ef við tökum fimm ára ríkisbréf er ávöxtunarkrafan í dag í kringum 6%. Það þýddi þá að við gætum lánað í fimm ár með sirka 7% vöxtum. Þetta er það fyrsta sem við sjáum.“ „Gríðarleg kerfisbreyting“ Hinir háu vextir koma til af því að kaupandi skuldabréfanna, lánveit- andinn, leitast við að verja sig gegn verðbólgu á lánstímanum. „Núna eru hagstæðustu vextir hjá okkur 4,4%, verðtryggt. Það eru engar lík- ur á því að við getum boðið upp á lægri vexti óverðtryggt,“ segir Sig- urður. Hann segir það myndu verða „gríðarlega kerfisbreytingu“ ákvæði sjóðurinn að bjóða óverðtryggð lán, og það útheimti mikla undirbúnings- vinnu. „Þetta er verkefni sem mun taka einhverja mánuði og ég sé ekki fyrir mér að við verðum komin með skýra mynd af því hvað við getum gert, og jafnvel farið að bjóða ein- hvern valkost fyrr en einhvern tím- ann á næsta ári.“ Á meðal þess sem huga þarf að, og í raun frumforsenda fyrir lánveiting- um af þessu tagi, er fjármögnun lán- anna. „Við munum vilja vinna þetta vel með aðilum eins og Seðlabank- anum til þess að tryggja að vel takist til,“ segir Sigurður. Eins þurfi að ræða við lífeyrissjóði, sem eru einn stærsti kaupandi skuldabréfa á markaði. „Svo gætum við alveg kom- ist að þeirri niðurstöðu að það sé bara ekki raunhæft, eins og um- hverfið er í dag, að fjármagna til 25 ára óverðtryggt,“ segir Sigurður.  Framboð á óverðtryggðum fasteignalánum er háð því að stórir fjárfestar sýni óverðtryggðum skulda- bréfum áhuga  Stjórn og framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs styðja það að möguleikar séu kannaðir Fjármögnunin ræður alltaf för Morgunblaðið/Ernir Stjóri Sigurður Erlingsson, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011 – FULLT HÚS ÆVINTÝRA ellingsen.isP IP A R\ TB W A • SÍ A 3 brennarar Ryðfrítt stál Í SUMAR GRILLUM Yfirheyrslur í tengslum við rann- sókn embættis sérstaks saksóknara á lánveitingum Vátryggingafélags Íslands (VÍS) stóðu yfir í allan gærdag. Á þriðju- dag var innan við tugur yfirheyrður en fleiri bættust í þann hóp í gær. „Þetta er alltaf óvissuferð,“ sagði Ólafur Þór Hauksson, sér- stakur saksókn- ari, um rann- sóknir embættisins í samtali við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Ólafur Þór sagðist lítið geta tjáð sig um gang rannsóknarinnar sem væri á frumstigi. Aðspurður segir hann að um mörg tilvik sé að ræða og því sé að mörgu að hyggja við rannsókn málsins. Menn taki sér þann tíma sem þeir þurfi. Til rannsóknar er meðal annars fjölda lánveitinga VÍS til ýmissa fé- laga og aðila á árunum 2007 til 2009. Fjármálaeftirlitið kærði málið til saksóknara að lokinni eigin athugun. Fram hefur komið að lánveiting- arnar voru meðal annars til eigenda og starfsmanna VÍS. Guðmundur Örn Gunnarsson, sem var forstjóri VÍS frá 2008, lét af störfum í síðustu viku í kjölfar úttektar Fjármálaeftir- litsins. Ólafur hefur sagt að um verulega fjárhagslega hagsmuni sé að tefla, þeir hlaupi á milljörðum, og fjölda tilvika. Áfram yfirheyrt vegna VÍS Ólafur Þór Hauksson Saksóknari gat lítið tjáð sig um málið Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Framsóknarflokkurinn fékk liðs- auka í gær þegar Ásmundur Einar Daðason alþingismaður gekk til liðs við flokkinn. Ásmundur sagði sig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs 14. apríl. Hann hefur síðan starfað sem óháður þingmaður en er nú orðinn tíundi þingmaður Framsóknarflokksins á Alþingi. Ásmundur segir Framsókn- arflokkinn hafa tekið mjög jákvæð- um breytingum undanfarin tvö ár. „Það hafa orðið breytingar undir núverandi forystu. Það hefur átt sér stað endurnýjun og flokkurinn hef- ur haldið uppi skynsamlegum mál- flutningi á mörgum sviðum. Til- lögur þeirra til lausnar á skuldavanda heimila og fyrirtækja hafa verið raunhæfar og skyn- samlegar. Í baráttunni um Icesave- málið hnikaði flokkurinn aldrei frá grundvallarstefnu sinni sem var að Íslendingum bæri ekki að borga skuldir einkabanka. Framsókn hef- ur sýnt öflugan málflutning þegar kemur að málefnum landsbyggð- arinnar og kynnt ítarlega stefnu í atvinnumálum. Síðast en ekki síst eru það Evr- ópusambandsmálin. Framsóknar- flokkurinn breytti á síðasta flokks- þingi stefnu sinni í Evrópumálum og leggst nú alfarið gegn aðild Ís- lands að ESB og aðlögunarferlinu. Ég tel að Framsóknarflokkurinn muni taka forystu í þeim málaflokki núna og berjast í fremstu víglínu gegn ESB-aðild. Þessar áherslur eru í fullu samræmi við loforð sem ég gaf kjós- endum í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Í þessu starfi langar mig til að taka þátt og í ljósi alls þessa má segja að ég sé kominn heim,“ segir Ásmundur. Hann eigi góða samleið með Framsóknarflokknum nú. „Vinstri grænir héldu fyrir síðustu kosningar uppi mjög stífum málflutningi á þessum sviðum sem ég hef komið inn á. VG fékk góða kosningu vegna þess að menn trúðu því að það yrðu raunverulegar breytingar og staðið í lappirnar. Við þessu var öllu snúið baki og ég er sannfærður um að það mikla fylgistap sem VG er að verða fyrir núna sé vegna þess að flokk- urinn er búinn að snúa baki við svo stórum hluta kjósenda í mörgum grundvallarmálum. Ríkisstjórnin virðist vera að grafa sína eigin gröf. Í hverju málinu á fætur öðru er hún að fara á svig við þjóðarvilja og slíkt getur aldrei verið langlíft.“ Spurður hvort hann muni eiga erfitt með að berjast gegn fyrrver- andi flokkssystkinum segist Ás- mundur aldrei kvíða málefnalegum slag. „Stjórnmál snúast fyrst og fremst um málefni og ég treysti mér vel til þess að takast á við hvern sem er varðandi þau.“ Ásmundur telur Atla Gíslason og Lilju Mósesdóttur, sem sögðu sig einnig úr VG í vetur, ekki eiga eftir að feta í fótspor hans. „Atli og Lilja gengu út úr VG á öðrum tíma en ég gerði. Við erum góðir félagar en þau verða auðvitað að taka sína ákvörðun í þessu og svara fyrir hvað þau hyggjast fyrir með sína framtíð.“ „Má segja að ég sé kominn heim“  Ásmundur Einar Daðason er geng- inn til liðs við Framsóknarflokkinn Þingmenn Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi eru Gunnar Bragi Sveinsson, sem er leiðtogi flokksins í kjördæminu og þingflokksformaður, og Guð- mundur Steingrímsson. Ás- mundur Einar Daðason er ní- undi þingmaður Norðvestur- kjördæmis. Stjórn Framsóknarfélags Þingeyinga sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fé- lagið bauð Ásmund Einar velkominn í flokkinn. Í yfir- lýsingunni segir að félagið fagni því að Ásmundur Einar velji að starfa að stefnumálum flokksins landi og þjóð til heilla. Landi og þjóð til heilla NORÐVESTURKJÖRDÆMI Þó svo skilyrðin væru ekki góð var samankom- inn nokkuð stór hópur manna í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi til að freista þess að sjá deildar- myrkva á sólu í gærkvöldi. Aðstæður til að byrja með þóttu með ágætum en versnuðu mjög þegar deildarmyrkvinn sjálfur hófst, og tókst ekki að sjá hann. Deildarmyrkvinn hófst klukkan 21:14 og náði hámarki klukkan 22:01 þegar tunglið huldi um 46% af þvermáli sólar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Slæm skilyrði til að sjá deildarmyrkva

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.