Morgunblaðið - 02.06.2011, Síða 6

Morgunblaðið - 02.06.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011 Sp ör eh f. s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Ströndin við Eystrasaltið er einstök og fegurðin óviðjafnanleg. Eyjarnar Rügen og Usedom með sandsteinaklettum og strandmenningararkitektúr 19. aldarinnar voru lokaðar inn í Austur-Þýskalandi þar til járntjaldið féll fyrir 20 árum. Nú hafa þær náð sínum upprunalega ljóma og eru meðal fallegustu ferðamannastaða í Þýskalandi. Ferðin hefst á flugi til Berlínar og ökum svo í átt að Eystrasaltinu þar sem við gistum í 3 nætur í bænum Ueckermünde. Njótum strandmenningar í anda Vilhjálms keisara og förum í dagsferð til Swinoujscie og nágrennis í Póllandi. Seinni hluta ferðarinnar verður dvalið í Stralsund, fallegri borg með heildstæðan miðaldablæ sem á sér sögu samofna veldi Hansakaupmanna. Heimsækjum drottningu Hansaborganna, Lübeck, skoðum fræga borgarhliðið, förum á safn og smökkum á marsipani sem borgin er fræg fyrir. Skoðum Königsstuhl, undurfagurt klettabelti á eyjunni Rügen, veiðihöllina Göhren og Prora oflofsbúðirnar sem nasistar létu byggja fyrir 20.000 manns á fegurstu strönd eyjunnar. Ferðinni lýkur með skoðunarferð í Berlín áður en flogið er heim á leið. Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir Verð: 160.950 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu og íslensk fararstjórn. 11. - 18. ágúst SUMAR 8 HálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldarHafblær við Eystrasalt Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Tilkynnt hefur verið um 63 hópuppsagnir þessi mánaðamót en til viðbótar upplýsti hug- búnaðarfyrirtækið Teris í gær um 18 upp- sagnir. Samanlagt eru þetta því um 80 upp- sagnir sem flokkast geta undir hópuppsagnir. Vinnumálastofnun veitir ekki upplýsingar um hvaða önnur fyrirtæki þetta eru en sam- kvæmt upplýsingum blaðsins eru þetta lithá- íska byggingafyrirtækið Adakris, sem sagði upp 31 starfsmanni, Perlufiskur á Bíldudal sagði upp níu manns í landvinnslu og Já.is, sem rekur upplýsingasímann 118 og gefur út símaskrána, tilkynnti 23 uppsagnir. Er það einkum vegna lokunar starfsstöðvar á Akur- eyri, eins og fram hefur komið. Sæmundur Sæmundsson, framkvæmda- stjóri Teris, segir að það hafi orðið að bregð- ast við minnkandi verkefnum en fyrirtækið hefur veitt sparisjóðum og öðrum fjármálafyrirtækjum tölvuþjónustu. Mestu skipti núna að SpKef rann inn í Landsbank- ann og þar með missti Teris sinn næststærsta viðskiptavin. Eftir uppsagnirnar starfa um 80 manns hjá fyrirtækinu en þegar mest lét voru starfsmenn Teris og dótturfyrirtækja yfir 180 talsins í árslok 2007. Eftir hrun hefur starfs- mönnum því fækkað um 100. Einn stærsti vinnuveitandinn Perlufiskur rekur fiskvinnslu á Bíldudal og gerir út einn línubát og þrjá grásleppubáta. Öllu starfsfólki í fiskvinnslu, níu að tölu, var sagt upp. Segja þarf upp sjómönnum og beit- ingarmönnum vegna sumarstopps en alls hafa stöðugildin hjá Perlufiski, einum stærsta vinnuveitandanum á Bíldudal, verið 15 til 17. Haraldur Haraldsson hjá Perlufiski segir fyrirtækið þurfa að taka sumarstopp líkt og í fyrra. „Svona er það að hafa ekki aflaheimildir nema að litlu leyti. Það er fyrst og fremst óvissan með byggðakvóta og þessi frumvörp sjávarútvegsráðherra sem gera það að verk- um að við verðum að stoppa. Það sér hver heil- vita maður að ef við eigum að fara að leigja byggðakvótann og kannski að leigja kvóta til að uppfylla skilyrði um byggðakvóta þá geng- ur það ekkert upp,“ segir Haraldur, en ein- hver vinnsla verður áfram út júní. Er flest starfsfólk með eins til þriggja mánaða upp- sagnarfrest. Haraldur segir rekstrarumhverfið í sjávar- útvegi hafa snarversnað. „Kvótaleigan hefur snarhækkað frá því að við byrjuðum að vinna fisk á Bíldudal. Það er erfiðara að fá kvóta og byggðakvótinn hefur minnkað,“ segir Harald- ur. Alls ríflega 80 manns sagt upp  Tilkynnt um 63 hópuppsagnir um mánaðamótin  Til viðbótar 18 uppsagnir hjá Teris  Já.is segir upp 23 manns, byggingafyrirtæki segir upp 31 og Perlufiskur á Bíldudal segir upp öllu sínu starfsfólki Morgunblaðið/ÞÖK Bíldudalur Perlufiskur þarf að segja upp öllu sínu starfsfólki, 15 til 17 að tölu, í sumar. Íslendingar reiða sig meira á for- eldra sína en þeir gerðu fyrir um aldarfjórðungi. Þeir treysta hver öðrum minna en fyrir fimm árum, traust þeirra á opinberum stofn- unum eins og dómskerfinu, Al- þingi, stjórn- málamönnum og stjórnmálaflokk- um hefur minnk- að til muna frá 2005 og þeir eru virkari í sjálf- boðaliðsstarfi nú en fyrir sex árum. Þetta eru helstu niðurstöður rann- sóknar sem dr. Katarzyna Growiec, kennari við félags- og mannvís- indadeild Háskólans í Varsjá í Pól- landi, gerði og kynnti í fyrirlestri á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands í gær. Hvaða áhrif hefur efnahags- kreppan haft á félagslegt traust og félagsleg tengsl? var yfirskrift fyrirlestrarins. „Fjölskyldutengslin hafa styrkst,“ svarar Katarzyna Growiec og bendir á að mesta breytingin hafi reyndar verið frá 1984 til 2000. Mismunandi viðhorf Katarzyna Growiec hefur rann- sakað félagslegt traust og félagsleg tengsl í heimalandi sínu og vildi bera stöðuna saman við Ísland, þar sem fólk treysti hvað öðru meira en í Póllandi. Hún segir að lýðræðið sé ungt í ríkjum Austur-Evrópu og þar séu íbúarnir enn að læra á breytta mynd, en niðurstöður rann- sóknarinnar hafi að sumu leyti komið sér á óvart. Sterkari fjöl- skyldutengsl komi sérstaklega á óvart. Ísland sé nútímasamfélag og því hafi hún átt von á að þessi tengsl minnkuðu eins og í sumum nágrannalöndum en annað hafi komið á daginn. steinthor@mbl.is Ungt fólk treystir æ meira á foreldrana Katarzyna Growiec Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Brautskráning Menntaskólans við Hamrahlíð fór fram síðastliðinn laugardag og voru alls 194 stúdentar brautskráðir frá hinum ýmsu brautum. Þrír nemendur skólans, þau Sigtryggur Hauksson, Helga Margrét Þorsteinsdóttir og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, sem áður gegndi stöðu liðsstjóra liðs Menntaskólans við Hamrahlíð í Gettu betur, brautskráðust með yfir 9,5 í meðaleinkunn. Bæði Sigtryggur og Auður Tinna luku stúdents- prófi á einungis þremur árum. Útskrifaðist með 9,91 í meðaleinkunn Sigtryggur Hauksson, dúx skólans þetta árið, brautskráðist af náttúrufræðibraut með meðalein- kunnina 9,91. Að sögn Lárusar H. Bjarnasonar, rekt- ors Menntaskólans við Hamrahlíð, er árangur Sig- tryggs sá næstbesti í sögu skólans. Sigtryggur hefur að eigin sögn mikinn áhuga á raungreinum og má nefna að í fyrra fór hann til Zagreb í Króatíu á ólympíuleika í eðlisfræði þar sem hann vann til bronsverðlauna. „Í sumar mun ég ein- beita mér að undirbúningi fyrir næstu ólympíuleika í eðlisfræði sem haldnir verða í Taílandi í júlí næstkom- andi,“ segir Sigtryggur. Að þeim loknum mun hann halda upp á brautskráningu sína og fara í útskrift- arferð ásamt nokkrum vinum til Þýskalands og Austurríkis. Aðspurður hvað taki við að loknu sumri segist Sig- tryggur vera búinn að innrita sig í nám í eðlisfræði við Háskóla Íslands á komandi haustönn og staðráðinn í að halda áfram á sömu braut. Sigtryggur segir ýmislegt hafa haft áhrif á þann góða árangur sem hann náði í náminu. „Mikilvægt er að búa yfir miklum sjálfsaga en jafnframt er nauðsyn- legt að hafa áhuga og ánægju af sínu námi,“ segir hann. „Stoltur af þessu einvala liði“ Lárus H. Bjarnason, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, kveðst aldrei áður hafa skrifað undir jafn- mörg glæsileg prófskírteini og á önninni sem leið. Í ár voru tólf nemendur brautskráðir með ágætiseinkunn og er sá fjöldi nemenda óvenjumikill ef borið er saman við fyrri ár. Að sögn Lárusar er afar sjaldgæft að nemendur ljúki stúdentsprófi með yfir 9,50 í með- aleinkunn líkt og þeir þrír nemendur sem brautskráð- ust nú síðastliðinn laugardag. Lárus bendir jafnframt á að einingamet hafi fallið í ár þegar Eva Hrund Hlynsdóttir brautskráðist sam- tímis af félagsfræðabraut, málabraut og nátt- úrufræðibraut með alls 270 námseiningar. Lárus segir aðsóknina að skólaplássi hafa verið jafna og þétta í gegnum árin og að mikil eftirsókn sé eftir inngöngu í skólann. Að lokum kveðst hann vera mjög stoltur af því einvala liði sem hafi verið að ljúka stúdentsprófi á ný- liðinni önn. Dúx í MH með 9,91  Þrír nemendur voru brautskráðir með yfir 9,5 í einkunn  Nýtt skólamet var sett í einingafjölda við brautskráningu Dúxinn Sigtryggur Hauksson brautskráðist á þremur árum með 9,91 í meðaleinkunn í stúdentsprófi frá MH.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.