Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Einn yngsti þingmaðurinn á Al-þingi, Ásmundur Einar Daða-
son, bauð sig fram fyrir VG í síð-
ustu kosningum. Það var eðlilegt
mat hans þá að þar væri öruggast
skjól fyrir hugsjónir
hans og stefnu.
Þannig hugsuðu
margir og fékk
flokkurinn sína
bestu kosningu.
Það er þekkt ogviðurkennd
staðreynd að flokkar þurfa jafnan
að slá nokkuð af frá ýtrustu
stefnumálum gangi þeir til stjórn-
arsamstarfs, því af slíku verður
ekki nema tillit sé tekið til ann-
arra. Þó er sennilega óþekkt að í
stjórnarmyndunarviðræðum geri
einn flokkur þá kröfu til annars að
hann svíki fullkomlega sitt allra
helgasta stefnumál. Sé það gert þá
vita allir um leið að krafan er ein-
göngu sett fram til að slíta viðræð-
unum, sé henni haldið til streitu.
En Samfylkingin sá sér til undr-unar að Steingrímur J. var
tilbúinn til alls. Jafnvel að sam-
þykkja fráleitar kröfur sem settar
voru fram til málamynda til þess
eins að skapa stöðu í viðræðunum.
Og eftir að hann fékk flokkinnsinn til að svíkja í Evrópu-
málum var öll fyrirstaða fokin. VG
missti þá ekki aðeins allan trúverð-
ugleika í annarra augum heldur
einkum gagnvart sjálfum sér. Svik
við hugsjónir varð því jafnan fyrsti
kosturinn sem skoðaður var kæmu
ný mál upp. Þess vegna er slóði
flokksins gagnvart kjósendum sín-
um svona ljótur.
Ungur og óspilltur þingmaðurvissi að hann myndi eyði-
leggja sjálfan sig ef hann sæti
kyrr, samdauna og samábyrgur
fyrir svikunum. Þess vegna fór
hann.
Ásmundur Einar
Daðason
Ásmundur Einar
Daðason
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 6 alskýjað
Akureyri 10 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 skýjað
Vestmannaeyjar 9 léttskýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 15 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 25 heiðskírt
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 18 skýjað
Glasgow 15 skýjað
London 21 heiðskírt
París 21 heiðskírt
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 18 heiðskírt
Berlín 18 heiðskírt
Vín 23 léttskýjað
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 15 skúrir
Róm 21 léttskýjað
Aþena 23 léttskýjað
Winnipeg 13 léttskýjað
Montreal 27 léttskýjað
New York 29 heiðskírt
Chicago 22 léttskýjað
Orlando 22 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:21 23:32
ÍSAFJÖRÐUR 2:37 24:25
SIGLUFJÖRÐUR 2:18 24:11
DJÚPIVOGUR 2:40 23:12
Í dag, uppstigningardag, stend-
ur Rauði kross Íslands fyrir fata-
söfnun um allt land. Gámum
verður komið fyrir við allar
sundlaugar ÍTR í Reykjavík og
við sundstaði í Kópavogi, Hafn-
arfirði og Garðabæ. Einnig
verður gámur við hús Rauða
krossins í Mosfellsbæ, og eins
verður tekið á móti fötum á mót-
tökustöðvum Eimskips Flytj-
anda úti á landsbyggðinni. Söfn-
unin er aðeins þennan eina dag
við sundstaðina en hægt er að
gefa föt allt árið á öðrum söfn-
unarstöðvum Rauða krossins.
Fatasöfnun
EM U21-árs landsliða
í knattspyrnu fer
fram í Danmörku
11. - 25. júní.
Aron Einar
Gunnarsson er
ein af hetjum
íslenska U21
landsliðsins.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Tjónið er mikið og liggur eftir þó
að gosinu sé sem betur fer lokið.
Við finnum mikinn stuðning fyrir-
tækja í landinu,“ segir Guðni
Ágústsson, fyrrverandi landbún-
aðarráðherra og framkvæmdastjóri
Samtaka afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði, um gang fyrirtækjasöfn-
unar vegna Grímsvatnagossins.
Safnast hafa hátt í 30 milljónir
króna en söfnunin fer fram í sam-
ráði við Samtök atvinnulífsins.
Stuðningur vegna tjóns sem
tryggingar bæta ekki
Myndaður hefur verið sjóður
til að veita bændum og starfsemi á
svæðinu fjárhagslegan stuðning
eftir því sem söfnunarfé hrekkur
til og hægt er að bæta við fjár-
styrkjum.
Spurður hvernig söfnunarfénu
verður úthlutað segir Guðni að
verkefnisstjórnin eigi eftir að full-
móta þá tilhögun en áhersla verður
lögð á að styðja fólk á gossvæðinu
við það sem út af stendur hjá
Bjargráðasjóði og Viðlagatrygg-
ingu.
Guðni segir söfnunina standa
út júnímánuð og eftir það verði
vonandi fljótlega hægt að byrja út-
hlutun úr sjóðnum, í góðu samráði
við heimamenn. Miðað er við að
framlög fyrirtækja geti verið frá
100 þúsund krónum upp í eina
milljón að hámarki. Að sögn Guðna
hafa fjölmörg fyrirtæki lagt inn há-
marksfjárhæð og þátttakan al-
mennt verið góð úr öllum greinum
atvinnulífsins um land allt, hvort
sem það er í sjávarútvegi, iðnaði,
þjónustu eða öðrum greinum.
„Verkefnin eftir Eyjafjallajök-
ulsgosið sýndu að heilmikið getur
staðið út af og mikill skaði sem
enginn hjálpar til við, hvorki
tryggingar né Bjargráðasjóður.
Við finnum mikinn skilning meðal
fyrirtækja á þeim vanda sem eitt
eldgos getur valdið,“ segir Guðni.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Gos Vaskir björgunarsveitar-
menn við hreinsun á Klaustri.
Góður gangur í
fyrirtækjasöfnun
vegna eldgossins
Fyrirtækjasöfnunin
» Með Guðna Ágústssyni í
verkefnisstjórn eru Sigurgeir
Sindri Sigurgeirsson, formaður
Landssambands sauð-
fjárbænda, Sigurður Loftsson,
formaður Landssambands
kúabænda, og Hugrún Hann-
esdóttir frá Ferðaþjónustu
bænda.
» Söfnunarreikningur er í
útibúi Arion banka á Kirkjubæj-
arklaustri. Reikningsnúmer
söfnunarinnar er 317-26-2200,
kt. 470788-1199.
Þegar komnar hátt í 30 milljónir
króna og safnað verður út júnímánuð