Morgunblaðið - 02.06.2011, Side 14

Morgunblaðið - 02.06.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Þeir sem ekki kunna að elda, og eiga pening, hafa ekki þurft að kvarta undan matarskorti í höf- uðstað Norðurlands. Ég hef annað veifið nefnt nýja veitingastaði og nú heyrist að enn einn verði opnaður fljótlega – í gamla Linduhúsinu.    Svo er víst verið að opna tvær eða þrjár nýjar ísbúðir.    Á laugardaginn ætla hjúkr- unarfræðinemar við HA og fleiri að safna fyrir nýjum Simma; svoköll- uðum SimMan, hátæknikennslu- hermi. Simmi þessi er dúkka sem nýtist að sögn gríðarlega vel til kennslu á viðbrögðum við bráðaað- stæður.    Hátíð verður á planinu við Slökkvistöðina þar sem slökkviliðs- menn, lögreglan, björgunarsveit- armenn og fleiri sýna bíla og ým- iskonar búnað. Seldar verða grillaðar pylsur og drykkir og allt sem safnast rennur í söfnunarsjóð- inn fyrir Simma.    Krakkar geta látið kíkja á veikar dúkkur og bangsa á hátíðinni, og hjúkrunarfræðinemarnir koma þeim í toppform á mettíma.    Fróðlegt málþing um kannabis- efni – Bara gras? – fór fram í Hofi á þriðjudag. Nokkur hundruð manns mættu enda málefnið í brennidepli, eins og önnur lyfjanotkun, eftir fyr- irmyndar-umfjöllun Jóhannesar Kr. Kristjánssonar í Kastljósi und- anfarið. Jóhannes var á meðal frum- mælenda, einnig fulltrúi lögreglu, SÁÁ, geðlæknir og akureyrsk móðir tveggja fíkla.    Andrea Hjálmsdóttir verkefn- isstjóri og lektor við HA kynnti á málþinginu niðurstöður nýrrar sam- evrópskrar könnunar. Skv. henni er kannabisneysla í 10. bekk grunn- skóla hér hverfandi. Vonandi er það satt en sumir töldu þó best að taka niðurstöðunum ekki of bókstaflega.    Bang Gang, hljómsveit Barða Jóhannssonar, heldur tónleika á Græna hattinum annað kvöld og á laugardaginn verður Jón Jónsson þar með tónleika. Hann kemur fram með hljómsveit og bróðir Jóns, Frið- rik Dór, syngur einnig með honum.    Guðbjörg Ringsted er á leið í út- rás með hluta leikfangasýning- arinnar í Friðbjarnarhúsi. Verkefnið Í norður er unnið í samstarfi við og er unnið í samstarfi við Bókasafnið á Dalvík og Hákarlasafnið í Hrísey. „Á Dalvík hófst söfnunin hjá mér svo það er gaman að sýna þar. Ég verð með leikföng í skáp á bókasafninu í allt sumar og annan í húsi Hákarla- Jörundar í Hrísey í allt sumar.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sögustaðir Einar Falur Ingólfsson hefur opnað flotta sýningu í Hofi. Safnað fyrir Simma Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Garður er fyrsta sveitarfélag landsins sem veitir skipulega upplýsingar um aðgengi að mannvirkjum sínum á net- inu. Access Iceland afhenti sveitar- félaginu vottun um aðgengið við at- höfn í Byggðasafninu á Garðskaga í gær. Sveitarfélagið fékk Aðgengi ehf. til að fara yfir öll mannvirki sveitarfé- lagsins og koma með tillögur til úr- bóta. Jafnframt eru mannvirkin og aðgangur að þeim skráður inn í gagnagrunn fyrirtækisins. Íbúar staðarins og ferðafólk sem á við ein- hverja hömlun að stríða getur þá kynnt sér aðgengið, áður en farið er á staðinn. Aðgengi er að gera sams konar út- tektir á hótelum og gistihúsum á Akureyri og nágrenni og í menning- arhúsinu Hofi, hluta af Þingvöllum og orlofshúsum á Selfossi. Fyrirhugað er að 20 ferðamannastaðir komi inn í verkefnið á næstunni og fyrstu stofn- anirnar í Reykjavík eru komnar á dagskrá. Mikilvægt við skipulagningu Staðirnir eru flokkaðir og merktir út frá aðgengi fyrir fólk með mismun- andi hömlun, ekki einungis fólk sem notar hjólastóla. Harpa Cilia Ingólfs- dóttir, byggingarfræðingur og stjórn- andi Aðgengis ehf. sem rekur Access Iceland, segir að þarfir fólks séu mis- munandi og því mikilvægt að veita ná- kvæmar upplýsingarnar. Hún nefnir að þegar fólk er á ferð með vinum eða fjölskyldu geti það valið sér staði sem ekki eru fullkomnir. Ef það er eitt á ferð þurfi það að hafa öruggt aðgengi. Í báðum tilvikum sé lykilatriði að hafa réttar upplýsingar um gisti- og veit- ingastaði og aðgengi að náttúruperl- um. Notaður er danskur gagnagrunnur þannig að Danir sem ferðast til Ís- lands geta kannað aðgengi að stöðum sem þeir hafa áhuga á að heimsækja og Íslendingar á leið til Danmerkur geta með sama hætti skoðað aðgengi þar í landi. „Staðirnir sem skrá sig gefa fólki tækifæri til að koma. Ef þú veist ekki um aðgengið þá leitar þú ekki eftir þjónustunni. Þá auðveldar þetta kerfi ferðaskipuleggjendum að undirbúa hópferðir, ekki síst að velja gististaði,“ segir Harpa. „Það er sjálfsagt að reyna að gera fötluðu fólki aðgengið eins auðvelt og mögulegt er. Maður heldur að allt sé í lagi en er svo bent á hvað það getur ver- ið flókið fyrir fatlaðan einstakling að ferðast,“ segir Ásmundur Frið- riksson bæjarstjóri. Lykilatriði að veita upplýsingar  Aðgengi lagað í Garði og upplýsingar gerðar aðgengilegar Ljósmynd/Hilmar Bragi Aðgengi fyrir alla Fullrúar stofnana Sveitarfélagsins Garðs tóku við viðurkenningu og blómum við athöfn í gær. Allt húsnæði sveitarfélagsins hefur verið tekið út með tilliti til aðgengis allra og unnið er að úrbótum. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sjómannadagshátíðin Sjóarinn sí- káti í Grindavík stækkar ár frá ári á sama tíma og víða annars staðar er dregið úr hátíðahöldum. Hátíðin hef- ur jafnframt færst úr því að vera hefðbundin sjómannadagshátíð yfir í fjölskylduhátíð og síðustu árin með aukinni almennri þátttöku bæjar- búa, auk fjölda gesta. Hátíðin hófst í gær en aðalhátíðis- dagarnir eru föstudagur til sunnu- dags. Um 100 atriði eru á dag- skránni. Litríkar skrúðgöngur Grindvíkingar skreyta göturnar og hverfin fyrir hátíðina og hefur myndast skemmtileg stemmning í kringum það. Íbúar gatnanna gleðj- ast yfir skreytingunum síðdegis á föstudaginn og koma saman til að grilla. Þá eru fjórar skrúðgöngur úr hverfunum sem sameinast í miðbæn- um svo hersingin er æði skrautleg þegar farið er síðasta spölinn að há- tíðarsvæðinu við Kvikuna þar sem Saltfisksetrið er til húsa. Þar er kvölddagskrá. Mikið er um að vera á laugardeg- inum og á sunnudeginum bætast við hefðbundnari atriði sjómannadags- ins. „Við megum ekki gleyma þeim þætti, þetta er sjómanna- og fjöl- skylduhátíð. Við erum stolt af því að búa í sjávarútvegsbæ og viljum með þessu heiðra sjómennina sem halda þessu landi okkar á floti, líkt og áð- ur,“ segir einn af skipuleggjendum Sjóarans síkáta, Þorsteinn Gunnars- son, upplýsinga- og þróunarfulltrúi Grindavíkurbæjar. Sjóarinn verð- ur sífellt kátari  Grindvíkingar heiðra sjómennina Úr dagskrá » Skrúðgöngur úr hverfunum á föstudagskvöld. » Skemmtidagskrá á sviði á laugardag. » Hátíðahöld við höfnina á sjálfan sjómannadaginn. » Óður til Ellýjar á sunnudags- kvöld. Guðrún Gunnarsdóttir syngur lög Ellýjar Vilhjálms á tónleikum í íþróttahúsinu. „Það þurfti lítið að gera. Ég hugsa helst um það, af hverju við höfum ekki gert þetta fyrr,“ segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði. „Sumt var ótrúlega einfalt og þurfti ekki annað en að setja upp merkingar, til dæmis á bæj- arskrifstofunum, í skólanum og safninu á Garðskaga. Í íþrótta- húsinu þurfti að laga hurðir sem var of þungt að opna. Svo komu í ljós smáatriði, sem mað- ur hefur ekki hugsað um, eins og litlir þrösk- uldar sem hamla því að fólk kom- ist um í hjóla- stólum,“ segir Ásmundur. Hann segir mikilvægt að hafa aðgengi að op- inberum stofunum eins gott og mögulegt er. Af hverju ekki fyrr? BÆJARSTJÓRINN Ásmundur Friðriksson „Það myndast skemmtileg stemmn- ing við þetta, löngu áður en kemur að helginni. Fólk er að hittast og skipuleggja skreytingar. Ekkert má þó fréttast til annarra gatna fyrr en allt er komið upp,“ segir Fanný Erlingsdóttir, íbúi við Leynisbrún. Íbúar göturnnar fengu verðlaun fyrir best skreyttu götuna á síðustu sjómannadagshátíð. Ævintýraskógur var settur upp í Leynisbrún með því að ljósastaur- arnir voru gerðir að trjám. Útbúinn var óskabrunnur úr gömlu fiskikari sem smíðað var utan um. Þar voru brúður allan daginn en þegar ein- hver var að forvitnast eða átti leið hjá lifnuðu þær skyndilega við. „Það var aðalbrandarinn að sjá við- brögð fólksins,“ segir Fanný. Brúðurnar lifnuðu við þeg- ar fólk kom til að forvitnast Ljósmynd/Þorsteinn Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.