Morgunblaðið - 02.06.2011, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Aðalsaksóknari stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóð-
anna vegna afbrota í fyrrverandi lýðveldum gömlu Júgó-
slavíu (ICTY), Serge Brammertz, kynnti í gær breytta
ákæru gegn Ratko Mladic, leiðtoga herja Bosníu-Serba í
átökunum á tíunda áratugnum og hafa fjórir liðir af 15
verið felldir niður. Mladic, sem er 69 ára, kemur fyrir
réttinn á morgun.
Mladic var fluttur til Haag frá Serbíu á þriðjudag, þrátt
fyrir hávær mótmæli æstra stuðningsmanna hans sem
segja hann vera þjóðhetju og saklausan af þeim glæpum
sem honum er kennt um, þ. á m. morðum á yfir 7000
Bosníu-múslímum í Srebrenica. Hann er nú vistaður í
Scheveningen-fangelsinu, skammt frá
Haag, er samvinnufús og læknar álíta
ekki að hann þurfi sérstakrar aðhlynn-
ingar við. Lögmaður hans í Serbíu full-
yrti að Mladic væri svo heilsuveill að
ekki væri hægt að rétta yfir honum.
Dómstóllinn gaf frá árinu 1995 út
ákærur vegna meintra stríðglæpa
gegn 161 Bosníu-Serba. Eftir hand-
töku Mladic nýverið í Serbíu leikur að-
eins einn þeirra lausum hala, hinir
hafa náðst eða gefið sig sjálfir fram, að sögn norska blaðs-
ins Aftenposten. Sá síðasti er Goran Hadzic sem var póli-
tískur leiðtogi þjóðarbrots Serba í Króatíu. Hann er sak-
aður um morð og ofsóknir gegn óbreyttum borgurum.
Ákæran gegn Mladic birt
Aðeins einn af stríðsglæpamönnum Bosníu-Serba leikur enn lausum hala
Blóðugur ferill
» Ratko Mladic er ákærður
fyrir stríðsglæpi, glæpi gegn
mannkyninu og grimmd í stríði
þjóðarbrota í Bosníu-
Herzegóvínu 1992-1995.
» Um 100.000 manns féllu í
stríðnu, langflestir þeirra
óbreyttir borgarar. Bosníu-
Serbar sátu um Sarajevo og
þar féllu um 10.000.
Ratko Mladic
Varasömu salati eytt á akri í grennd við Hamborg í
Þýskalandi í gær. Spænsk stjórnvöld hóta nú skaða-
bótamáli á hendur borgaryfirvöldum í Hamborg en þau
sögðu saurgerlamengaðar gúrkur hafa komið frá
Spáni. Hamborgarmenn viðurkenndu í gær að saur-
gerlaafbrigðið, sem hefur dregið 15 til dauða í Þýska-
landi og einn í Svíþjóð, hefði ekki greinst í gúrkum. Til-
fellum fjölgar hratt og höfðu alls um 1500 veikst í gær.
Reuters
Þýsku saurgerlarnir ekki í innfluttum gúrkum
Er salatið skaðvaldurinn?
Sum dagblöð í
Svíþjóð heimtuðu
í gær að Karl
Gústaf Svíakon-
ungur léti af
völdum og Vikt-
oría krónprins-
essa tæki við.
Hann er sakaður
um að hafa
skrökvað þegar
fullyrt var að til væru af honum
ljósmyndir á vafasamri búllu með
fatafellum.
„Konungur verður að gera sér
grein fyrir því að hann getur ekki
lengur gegnt embættinu,“ sagði
Aftonbladet í forystugrein. „Að
minnsta kosti ekki ef hann vill vera
fulltrúi sameinaðrar og samstilltrar
þjóðar.“
Konungur veitti fréttastofunni
TT viðtal í vikunni og vísaði þar
m.a. á bug orðróminum um heim-
sóknir á nektarstaði. Mörgum Sví-
um þótti konungurinn ekki sann-
færandi í svörum sínum.
Blöð í Svíþjóð
krefjast afsagnar
Karls Gústafs
Karl Gústaf XVI.
Danir reykja meira, drekka meira,
alvarlegir sjúkdómar á borð við
krabbamein eru tíðari í Danmörku
en hinum norrænu ríkjunum og
Danir verða ekki jafn gamlir. Því
kemur á óvart að fjarvistir frá
vinnu vegna veikinda eru sjaldgæf-
ari þar en í hinum löndunum. Að
vísu skortir tölur yfir Ísland; Hag-
stofan tekur ekki saman tölur um
þessi efni hérlendis.
Munurinn er mikill, norskir
vinnustaðir fá t.d. helmingi fleiri
boð um veikindi starfsmanna en
þeir dönsku. En eru Danir svona fíl-
hraustir, þrátt fyrir lífernið?
Ekki er það víst. Bent er á að
meiri kröfur séu gerðar á dönskum
vinnustöðum en sænskum um að
allir starfsmenn geti skilað fullum
afköstum. Minna sé líka um að ráð-
ið sé fólk úr hópum sem vitað sé að
veikist oftar en annað fólk. Sveigj-
anleikinn sé lítill. Einnig hafi
kreppan herjað meira í Danmörku
en í hinum löndunum þrem, fólk
harki því meira af sér til að halda
vinnunni. kjon@mbl.is
Danir með óvenju-
fáa veikindadaga
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Danir eiga allmörg stórfyrirtæki
sem eru í fremstu röð á sínu sviði og
því eftir miklu að slægjast fyrir iðn-
aðarnjósnara. Fullyrt er á vefsíð-
unni metroXpress að útsendarar
Kínverja séu nú m.a. iðnir við að
stela dýrmætustu leyndarmálum
danskra fyrirtækja með útibú í Kína.
Aðferðirnar séu oft frumlegar,
stundum mæti til dæmis menn í bún-
ingi meindýraeyða og fái um-
svifalaust aðgang sem þeir noti til að
stela gögnum af öllu tagi.
„En ráðamenn grandalausra,
danskra fyrirtækja velta aldrei fyrir
sér hvort meinadýraeyðarnir séu
kannski í reynd njósnarar – eða því
hvers vegna limgerðið kringum er-
lendar verksmiðjur í Kína megi ekki
vera hærra en 130 sentimetrar,“
segir Henrik G. Jacobsen, lögfræð-
ingur og fyrrverandi yfirmaður í
leyniþjónustu danska landhersins.
Dæmi eru um að kínverskir
skiptinemar hafi reynst vera glæpa-
menn sem stálu leynilegum gögnum
frá fyrirtækjum í Danmörku.
Danska einkaleyfa- og vörumerkja-
stofnunin er farin að aðstoða menn
við að verjast athæfinu. Mestu skipt-
ir að fá einkaleyfi áður en Kínverjar
byrja að framleiða stolnu vöruna.
„Ógnin er hrikaleg,“ segir
Thomas Pattloch, alþjóðlega þekkt-
ur sérfræðingur í þessum efnum.
„Ef Kínverji heimsækir fyrirtækið
þitt bannaðu honum þá að taka með
sér myndavélarsíma inn í vöruþró-
unardeildina eða verksmiðjuna og
láttu hann aldrei yfirgefa hóp til að
fara á salernið án þess að fylgst sé
með honum.“
Bægið meindýraeyðunum
frá hátæknifyrirtækjunum!
Sérfræðingar í baráttu gegn iðnaðarnjósnum segja ráða-
menn danskra fyrirtækja sofa á verðinum
Gægjur Farsímamyndavélar koma
njósnurum að góðum notum.
Kevin Rudd, utanríkisráðherra
Ástralíu, sagði í gær að draga ætti
Bashar al-Assad Sýrlandsforseta
fyrir Alþjóðaglæpadómstólinn
vegna hrottaskapar hans í garð eigin
landa. Mál 13 ára drengs, Hamza al-
Khatib, sem sagður er hafa sætt
pyntingum af hálfu sýrlenskra ör-
yggissveita og verið síðan myrtur,
hefur valdið miklum óhug.
Um 1.000 manns hafa nú fallið í
mótmælunum í Sýrlandi, aðallega
óbreyttir borgarar. Margir velta því
nú fyrir sér hvers vegna Atlants-
hafsbandalagið, NATO, styðji ekki
sýrlenska uppreisnarmenn á sama
hátt og líbíska. Anders Fogh Rasm-
ussen, framkvæmdastjóri NATO,
svarar þeirri spurningu í Int-
ernational Herald Tribune í gær.
„Við gripum til aðgerða í Líbíu
vegna þess að við höfum sterkt um-
boð frá öryggisráðinu og öflugan
stuðning frá ríkjum á svæðinu. Þetta
er einstakt samhengi og við höfum
ekki séð það annars staðar,“ segir
Fogh Rasmussen. kjon@mbl.is
Assad fyrir
alþjóðlegan
dómstól?
Drengur pynt-
aður og myrtur
Iðnaðarnjósnir eru ekki nýtt
fyrirbæri en heimildarmenn
álíta að umfang þeirra hafi auk-
ist mjög síðustu árin. Mest er
njósnað um hátæknifyrirtæki.
Skrefið er stutt milli njósna og
spellvirkja enda ljóst að fyrir-
tæki stendur enn betur að vígi
ef það hefur ekki aðeins stolið
tækniþekkingunni heldur líka
hindrað keppinautinn í að fram-
leiða vöruna, amk. í bili.
Algengt er að vingast sé við
óánægðan starfsmann, hann
fyrst látinn afhenda léttvægar
og sakleysislegar upplýsingar.
Ef hann neitar að makka rétt
síðar er hótað að leka upplýs-
ingum um fyrra brot hans í at-
vinnuveitandann.
Finna veiku
hlekkina
MEÐ SJÓNAUKANN Á LOFTI
Svisslendingurinn Sepp Blatter var í
gær endurkjörinn forseti Alþjóða-
knattspyrnusambandsins, FIFA, á
ársþingi þess í Zürich í Sviss. Blatt-
er, sem var einn í kjöri, hlaut 186 at-
kvæði af 203. En þakkarræðu hans
var ekki vel tekið, aðeins örfáir
klöppuðu, flestir sátu steinþegjandi.
Hart hefur verið deilt á hinn 75 ára
gamla Blatter vegna spillingarásak-
ana í kjölfar þeirrar ákvörðunar
FIFA að heimsmeistaramótin 2018
og 2022 skyldu haldin í Rússlandi og
Katar við Persaflóa. Einkum er það
síðara staðarvalið sem hefur valdið
furðu þar sem erfitt er talið að halda
keppnina í landinu sakir heita lofts-
lagsins á þessum slóðum.
Flest Evrópulönd, þ. á m. Ísland,
studdu Blatter, þrátt fyrir ásakanir
á hendur honum um mútuþægni.
Enska knattspyrnusambandið vildi
að forsetakjörinu yrði frestað en til-
laga þess efnis var felld með þorra
atkvæða. Blatter, sem tók við árið
1998, hét því að berjast fyrir bættum
vinnubrögðum innan FIFA.
kjon@mbl.is
Reuters
Vinir? Blatter (t.v.) og framkvæmdastjóri FIFA, Jerome Valcke, í Zürich.
Blatter hlaut yfir-
burðakosningu