Morgunblaðið - 02.06.2011, Síða 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MÉR
SKILST AÐ ÞÚ
HAFIR STOLIÐ
BÓK
ÉG STAL EKKI
ÞESSARI KJÁNALEGU
BÓK!
ERU ÞJÓFAR VENJULEGA MEÐ
SVONA KRINGLÓTTAN HAUS?
AF HVERJU SITUR ÞÚ
ÞARNA OG BROSIR Á MEÐAN
ÉG LES BÓKINA MÍNA?
AF
ÞVÍ AÐ VIÐ
ERUM Á
STEFNUMÓTI
SEGIR
HVER?
SEGI
ÉG
BÝRÐU
Í ÞESSUM
RUSLA-
GÁMI?
NEI,
ÞESSI BÚÐAR-
KERRA ER HEIMILI
MITT
ÞESSI BEKKUR ER
RÚMIÐ MITT OG
HIMININN SJÁLFUR ER
ÞAKIÐ MITT
KANNSKI
ÆTTI EINHVER
AÐ BENDA HONUM
Á AÐ ÞAKIÐ HANS
LEKUR
ÉG FANN MUNNSTYKKI
SEM GETUR HJÁLPAÐ ÞÉR AÐ
HÆTTA AÐ HRJÓTA
HVAÐ
FANNSTU?
ÞETTA
ER
MUNNSTYKKI
SEM KEMUR
HREYFINGU Á
KJÁLKANN SVO
ÞÚ HRJÓTIR
MINNA
MÉR LÍST
EKKERT Á ÞAÐ,
ÞETTA HLJÓMAR
HRÆÐILEGA
ÓÞÆGILEGA
ÞÁ VERÐ
ÉG BARA AÐ
FLYTJA DÓTIÐ
MITT YFIR Í
GESTAHERBERGIÐ
ÞÁ
ÞAÐ
SVO ÞÚ
FÉKKST SANDMAN TIL
AÐ HJÁLPA ÞÉR VIÐ
BANKARÁNIÐ
JÁ,
ÞAÐ ER EKKI
AUÐVELT AÐ
FINNA GÓÐAN
STARFSKRAFT
ÉG VIL EKKI BERJAST
VIÐ ÞIG PADDAN ÞÍN
VÍST VILTU
ÞAÐ MARKO
ÞÚ VEIST
AF HVERJU
JÁ ÆTLI
ÞAÐ EKKI!
FYRIR-
GEFÐU,
ÞAÐ VAR
ÓVART
RÓLEGUR, ÞÚ
ÞARFT EKKI AÐ
ÖSKRA
Átt þú gamlar
myndir úr
Þingholtunum?
Ég heiti Hildur og er
meistaranemi við
Háskóla Íslands.
Þessa dagana er ég
að undirbúa uppsetn-
ingu á sýningu sem
fjallar um sögu
verslunar og þjón-
ustu í Þingholtunum
á 20. öld. Mig vantar
tilfinnanlega ljós-
myndir af verslunum
(innandyra eða utan)
sem stóðu við Bald-
ursgötu, Óðinstorg
og/eða gatnamót Freyjugötu og
Óðinsgötu, einhverntíma á öldinni
sem leið. Einnig get ég notað
myndir af lífinu á torgunum sjálf-
um. Vinsamlegast hafið samband
við mig í síma 663-7829 eða með
því að senda mér tölvupóst á net-
fangið hib1@hi.is.
Hvar er
hundurinn?
Chihuahua-
hundur hvarf
fyrir utan
heimili sitt í
Grafarholt-
inu 21. maí
síðastliðinn.
Hundurinn er ljós-
brúnn með hvítan
blett á enninu. Hann
var í rauðri peysu og
með blátt beisli utan
um sig þegar hann
hvarf. Hann er ör-
merktur og heitir
Tristan, tíu mánaða
gamall hreinrækt-
aður chihuahua-
rakki. Þrátt fyrir að
búið sé að tilkynna
hvarfið til lögreglu,
Dýraeftirlitsins og
fleiri aðila hefur
ekkert til hans
spurst. Ef einhver
verður hundsins var
eða veit eitthvað um hvarf hans
þá vinsamlega hafið samband við
Sirrý í síma 772-0604 eða 775-
4661 eða sendið upplýsingar á
netfangið sirry.siangma@gmail-
.com.
Íþróttapoki tapaðist
Svartur íþróttapoki með sundföt-
um tapaðist síðastliðinn þriðjudag
við Fossvogsskóla. Finnandi vin-
samlega hafi samband í síma 820-
7438.
Ást er…
… þegar allt gengur upp
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félagsheimilið Gjábakki | Ramma-
vefnaður kl. 9.05, handavinnustofan
opin.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Lokað í Jónshúsi. Vorferðalag kirkj-
unnar með eldri borgurum, brottför frá
Hleinum kl. 9.30, Jónshúsi kl. 9.40, Ví-
dalínskirkju kl. 10. Skráningu lokið.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Farið verður um Kjósina með
leiðsögn mánudaginn 6. júní. Lagt
verður af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum.
Skráning í síma 586-8014 frá kl. 13 til
16.
Félagsstarf Gerðubergi | Prjónakaffi
kl. 10, stafganga kl. 10.30, frá hádegi
er spilaslur opinn. Miðvikud. 15. júní er
ferðalag ,,hvar er draumalandið?“, um-
sjón hefur Jóhann Davíðsson. Uppl. í
síma 575-7720.
Hraunbær 105 | Handverkssýning kl.
13-16. Kaffiveitingar seldar.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listsýningin opin alla virka daga
kl. 9-16 til og með 3. júní. Uppl. í s.
411-2790.
Laugarneskirkja | Guðsþjónusta á
uppstigningardag sem jafnframt er
dagur aldraðra kl. 14. Umsjón sr. Bjarni
Karlsson og Sigurbjörn Þorkelsson.
Veitingar á eftir.
Skemmtifélag eldri borgara | Ferð í
Borgarfjörð miðvikudaginn 8. júní nk.
Farið verður frá Aflagranda kl. 8.30,
Vesturgötu kl. 8.35, Lækjartorgi kl.
8.40, Mjódd kl. 8.50, Hraunbæ kl.
9.00. Nánari upplýsingar í síma 775-
1340.
Vesturgata 7 | Handavinna, gler-
skurður (Tiffanýs) og ganga kl. 9.15.
Kertaskreytingar, kóræfing og leikfimi
kl. 13.
Hallmundur Kristinsson er ekkisáttur við, hversu mjög sum-
arið lætur bíða eftir sér:
Vakandi yfir vetrinum
veðurguðirnir stumra.
Maður fer nú að óttast um
andlega heilsu sumra!
Friðrik Steingrímsson var ekki
sérlega bjartsýnn:
Engin hlýnun á sér stað
ansi margra þungt er sporið,
helstu spámenn halda að
hausti snemma þetta vorið.
Sigrún Haraldsdóttir benti á að
maður yrði að laga sig að að-
stæðum:
Norðan móðan miður hlý
moldar dælir strókum,
í sólarbaði sit ég í
síðum ullarbrókum.
Hallmundur velti fyrir sér orðum
Sigrúnar:
Áðan Sigrún ylinn fann
undir sólu gullinni.
Fyrst um sinn þó frestast kann
að fari hún úr ullinni.
Þá Friðrik Steingrímsson:
Þegar loks til sólar sér
Sigrún strax úr buxum fer,
í sólbaðinu situr í
sætu ullarbikiní.
Ágúst Marinósson gat ekki á sér
setið:
Sigrún klæðir húfu haus
horfir sólu móti
bið er á að brókarlaus
birtu sunnu njóti.
Sigrún svaraði körlunum í léttum
dúr og sagði að það hefði ekki bara
verið kuldinn sem hvetti sig til að
vera vel klædd í sólbaði:
Vetrar er skýst úr skugga
og skinnið með feiti nugga
þá birtast sé öfugugga
óðar við næsta glugga.
Friðrik svaraði að bragði:
Þó að hvumpin Sigrún sért
sorglegt er að fregna,
að þú fullklædd sprangir sperrt
spéhræðslunnar vegna.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af vori, ull og sólbaði
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn