Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011 ÍListasafni Íslands má þessadagana sjá óvenjulega móð-urímynd; tröllaukna kóngulóúr bronsi. Skammt þar frá hanga afbakaðir kvenlíkamar og óræð form – fórnarlömb rándýrs- ins? Verkin eru hluti af sýningunni „Kona“ þar sem getur að líta inn- setningar, höggmyndir, málverk, teikningar og vefmyndir eftir hina bandarísku Louise Bourgeois (1911- 2010). Skírskotun til persónulegrar reynslu listamannsins, sem fæddist og ólst upp í Frakklandi, og til reynslu kvenna er meginþráður sýningarinnar. Ferill Bourgeois hófst á 4. áratug síðustu aldar, á tímum módernískra hræringa í myndlist og í sal 2 má í bronsverkum hennar greina áhrif frá skúlptúristum á borð við Bran- cusi og Giacometti, sem og frá Pi- casso og „frumstæðum“ verkum eða fornaldarskurðgoðum. Verkin voru unnin í kringum 1950 og þau einkennast af súrrealískri umbreyt- ingu forma og afstraktri stíliser- ingu. Innar í salnum eru til sýnis litlar bronsstyttur frá 2005 og þar er tjáningin frjálslegri og spuna- kenndari; líkamsform umbreytast í ógreinilegar fellingar, brjóst marg- faldast og renna saman við önnur form sem minna á barnshöfuð, húð- in sígur, fótleggir visna eða plöntur vaxa upp úr líkamanum. Bourgeois skapar tilfinningu fyrir lífrænum ferlum mannslíkamans og túlkar ekki síst reynslu kvenna af lík- amlegum breytingum við kyn- þroska, barnsburð og öldrun – ferli sem hún þekkti af eigin raun (þessi verk eru unnin af 94 ára gamalli konu) og var henni sífelld upp- spretta sköpunar. Á vegg hangir röð rauðra gvassmynda þar sem í brennidepli er sú stund er líkaminn fæðir barn; myndirnar eru heitar og kvikar hvað sem líður aldri lista- konunnar. Hún tjáir líkamsskynjun með hreinskilnum og ágengum hætti í verkinu Ofna barnið þar sem kvenbúkur liggur með nýfætt barn við voldug brjóst, og gefur jafnframt til kynna þau líkamlegu og sálrænu átök sem móta líf kvenna. Kóngulóarskúlptúrar Bour- geois tjá mótsagnir í slíkum átök- um, verk sem sum bera nafnið Maman (mamma) þar sem móðirin birtist sem máttug verndarvættur. Í sal 1 kveður við myrkari tón í verkunum Klefi (Svartir dagar) (2006) og Klefi VII (1998). Í þessum innsetningarverkum má segja að fortíðin sæki að Bougeois, minn- ingar frá æskuárunum í Frakk- landi. Klefarnir eru aflokaðir en á þeim eru glufur og rifur. Áhorfand- inn pukrast í kringum klefana og rýnir í margræða, táknræna frá- sögnina sem felst í efniviði klefanna og í bjöguðum formum og hlutum í klefunum er vísa til óljósra lík- amlegra kennda, bældra tilfinninga og ónota. Vitneskja um ævisögulega þætti, framhjáhald föðurins með kennslukonu á heimilinu, eykur á dramatíkina. Þetta eru sterk verk sem kanna skúmaskot hvatalífsins líkt og Spíralkona (2003) í sal 3 á efri hæð safnsins. Þar sést hvar kvenvera, samsett úr púðum og svörtu efni, hangir úr loftinu, vand- lega undin í spíral. Bourgeois hefur viðurkennt að hugsanir um að mis- þyrma viðhaldi hins sviksama föður hafi hvarflað að henni í æsku er hún vatt klæði í ánni – en stöndugt fjölskyldufyrirtækið framleiddi m.a. blúndur og ýmsan vefnað auk þess að gera við listvefnað frá fyrri öld- um. Kóngulóin stóra stendur ógn- andi þar hjá. Sýningin í salarkynnum Lista- safns Íslands hefur tekist vel; verk- in fá gott andrými og val þeirra gefur prýðilega mynd af mik- ilvægum þáttum á ferli Bourgeois. Rík efniskennd, lífræn form, lík- amleg nærvera og kraftmikil til- finningatjáning verka hennar hófu að blása tilraunakenndum og rót- tækum listamönnum og fræðimönn- um anda í brjóst á 7. áratugnum. Louise Bourgeois er áhrifamikill listamaður sem hefur verið sam- stiga og oft á tíðum skrefi á undan helstu listhræringum síðustu aldar – og hún veitir áfram byr inn í 21. öldina. Morgunblaðið/Eggert Áhrifamikil Kóngulóarskúlptúrar Louis Bourgeois tjá mótsagnir í þeim líkamlegu og sálrænu átökum sem móta líf kvenna. Listasafn Íslands Louise Bourgeois – Kona/Femme bbbbm Viðburður á Listahátíð. Til 11. sept- ember 2011. Opið alla daga nema mánu- daga kl. 11-17. Aðgangur 500 kr. Aðal- sýningarstjóri: Laura Bechter. ANNA JÓA MYNDLIST Undið upp á undirnar Árni Matthíasson arnim@mbl.is Nú stendur í Kópavogi Jazz- og blúshátíð sem haldin er í fjórða sinn. Í vikunni hafa verið námskeið og tónleikar fyrir eldri og yngri borg- ara, en tónleikar í Salnum á föstu- dagskvöld eru hápunktur hátíð- arinnar, þar sem fram koma ungar og aldnar blús- og djasskempur. Á tónleikunum á föstudag, sem hefjast kl. 20:00, koma fram hljóm- sveitin Kópavogsakademían, sem er skipuð Kópavogsbúunum Jóhanni Hjörleifssyni trommuleikara, Birni Thoroddsen gítarleikara, Björgvini Björgvinssyni gítarleikara, Snæ- birni Gauta Snæbjörnssyni saxófón- leikara, Jóni Rafnssyni bassaleikara og Gísla Páli Karlssyni trommuleik- ara, söngstjörnurnar Raggi Bjarna og Dagur Sigurðsson, söngvarinn Jóhann Páll Hreinsson og orgelleik- arinn Þórir Baldursson, sem er að- algestur hátíðarinnar. Aðalhvatamaður hátíðarinnar og stofnandi hennar er Björn Thor- oddsen gítarleikari, sem er og list- rænn stjórnandi hátíðarinnar. Hann segir að það sé vitanlega geggjun að hrinda af stað slíkri hátíð, en það hafi gengið bráðvel, ótrúlega vel reyndar, eins og hann orðar það. Hann segir að hátíðin hafi verið í stöðugri þróun og enn er hann að brydda upp á nýjungum. „Ég ætla að auka fjölbreytnina og þá meðal annars í aldri því á lokatónleikum hátíðarinnar syngja yngsta söng- stjarnan og sú elsta starfandi, Dag- ur Sigurðsson og Ragnar Bjarnason. Raggi er auðvitað þjóðargersemi og búinn að syngja lengi, en Dagur kom einmitt á námskeið á fyrstu blúshá- tíðinni og líka strákarnir ungu sem koma fram á föstudagskvöldið og sýna hvað þeir hafa lært á síðustu árum. Svo má ekki gleyma Hamm- ondtröllinu Þóri Baldurssyni, sem er stór partur af íslenskri tónlist- arsögu.“ Björn segir að fyrir sér sé eitt mikilvægasta hlutverk hátíðarinnar að leiða saman tónlistarmenn á mis- munandi aldri „og láta allt þetta lið spila sundur og saman og kveða í kútinn kynslóðabilið“. Kynslóðabilið kveðið í kútinn í Kópavogi Morgunblaðið/Ernir Fjölbreytni Björn Thoroddsen og blústónlistarmenn á ýmsum aldri. Kyn- slóðabilið verður brúað í Salnum annað kvöld.  Lokatónleikar Jazz- og blúshátíðar í Kópavogi á föstudag Unnið er að uppbyggingu á nýju leikhúsi á Rifi á Snæfellsnesi. Er það hópur ungs fólks úr bæjarfélag- inu með Kára Viðarsson í forsvari sem mun í sumar útbúa tvö rými svo hægt sé að setja á svið áhuga- og atvinnuleikskýningar, danssýn- ingar, tónleika og aðra sviðs- viðburði. Í fréttatilkynningu kemur fram að mörg fordæmi þess séu til að endurnýta gömul rými og beri þar helst að nefna Sláturhúsið á Egils- stöðum sem nú laði að sér listafólk allstaðar að úr heiminum með ósk um að nýta sér aðstöðuna. Markmið hópsins er að stuðla að eflingu menningar og lista á Snæ- fellsnesi og sýna fram á hversu fjöl- breytt atvinnulífið getur verið. Fólk utan af landi geti sótt sér háskóla- menntun á sviðum lista og snúið aft- ur á heimaslóðirnar til að nýta hana. Auk þess sem það hafi sýnt sig með uppsetningu hópsins á einleiknum Hetju í fyrrasumar að mögulegt sé að setja upp metnaðarfullar leiksýn- ingar á Snæfellsnesi með góðum ár- angri, en sýningarnar urðu 20 og áhorfendur ríflega 600. Listafólkið mun einnig setja upp leiksýningu í sumar byggða á sög- unni af Axlar-Birni og verður það opnunarsýning leikhússins. Frum- sýnt verður 20. ágúst og þá gefst bæjarbúum tækifæri til að berja rýmið augum fullunnið og í notkun í fyrsta skipti. Snæfellsbær er tilvalið umhverfi til sköpunar Metnaður Leikhús á Rifi tekur á sig mynd. Fyrsta frumsýning í húsinu verður 20. ágúst á leiksýningu sem byggð er á sögunni af Axlar-Birni . 568 8000 – borgarleikhus.is –midasala@borgarleikhus.is NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Fös 3/6 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Tveggja tíma hláturskast...með hléi Húsmóðirin (Nýja sviðið) Fim 2/6 kl. 20:00 20.k Mið 8/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn Fös 3/6 kl. 20:00 21.k Fös 10/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn Lau 4/6 kl. 20:00 22.k Lau 11/6 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Nýr íslenskur gleðileikur eftir Vesturport. Ósóttar pantanir seldar daglega Faust (Stóra svið) Sun 5/6 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 lokasýn Allra síðustu sýningar Klúbburinn (Litla sviðið) Fös 3/6 kl. 20:00 frumsýn Sun 5/6 kl. 18:00 3.k Mið 8/6 kl. 20:00 5.k Lau 4/6 kl. 20:00 2.k Þri 7/6 kl. 20:00 4.k Á Listahátíð - Leikhús, dans og tónlist renna saman í eina órjúfanlega heild Eldfærin (Stóra sviðið) Sun 5/6 kl. 13:00 lokasýn Síðasta sýning þessa leikárs NEI, RÁÐHERRA! – vinsælasta sýning ársins! ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Bjart með köflum (Stóra sviðið) Fös 3/6 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Allt að verða uppselt í maí. Sýningar í júní komnar í sölu. Allir synir mínir (Stóra sviðið) Sun 5/6 kl. 20:00 Aukasýn. Lau 11/6 kl. 20:00 Fjórar og hálf stjarna í Mbl. I.Þ og DV J.V.J. Sýningum að ljúka! Brák (Kúlan) Fös 3/6 kl. 20:00 Aukasýn. Aukasýning í júní komin í sölu! Verði þér að góðu (Kassinn) Fös 3/6 kl. 19:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Frumsýning 7. maí. Haze -Beijing Dance Theatre (Stóra sviðið) Fim 2/6 kl. 20:00 Á Listahátíð. Sýning sem markar tímamót í nútímadansi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.