Morgunblaðið - 03.06.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.2011, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 3. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  129. tölublað  99. árgangur  TÍSKA OG FÖRÐUN SUMARFÖRÐUN, SÓLGLERAUGU, SÓLARVÖRN, SUMARILMUR OG NÝJAR VÖRUR 32 SÍÐNA AUKABLAÐ FYLGIR BLAÐINU Í DAG Pétur Kristján Guðmundsson, sem er 25 ára gamall, var fyrir tveimur vikum útskrifaður af göngudeild Landspítalans á Grensási þar sem hann hefur verið í endurhæfingu undanfarna mánuði eftir alvarlegt slys sem hann lenti í á gamlárs- kvöld í bænum Innsbruck í Aust- urríki. Strax eftir slysið tjáðu læknar honum að 99,9% líkur væru á því að hann myndi aldrei ganga aftur. Hann hefur þegar tekið miklum framförum í endurhæfing- unni. „Ég er farinn að geta gengið svona eins og Pappírs-Pési ofan í sundlauginni á Grensási,“ segir hann hlæjandi. Pétur er kvik- myndagerðarmaður og sér fram- tíð sína fyrir sér á því sviði. Hann ætlar sér jafnframt að ganga að nýju. „Allt snýst þetta bara um vilj- ann.“ »6 Morgunblaðið/Ernir Heima Pétur Kristján Guðmundsson hefur verið í endurhæfingu eftir slys sem hann lenti í á gamlárskvöld. Hann getur nú gengið óstuddur í vatni. „Allt snýst þetta bara um viljann“  Endurhæfing gengur vel eftir slys  Í fyrrasumar leiddu þurrkar í Rússlandi til hækkunar á hveiti- verði á heimsmörkuðum. Nú glíma Kínverjar við þurrka og hefur upp- skerubresturinn sem honum fylgir enn á ný vakið umræður um stöðu matvælaframleiðslu í heiminum. Íslendingar hafa áður horft fram á verðsveiflur á matvörumörk- uðum. Nú eru hins vegar teikn á lofti um að gríðarleg eftirspurn eft- ir hrávörum frá Asíu sé að leiða til nýrrar stöðu, sem og stöðug aukn- ing í eftirspurn frá öðrum heims- hlutum þar sem fjölmennar milli- stéttir eru að verða til. Rætt er við Jón Orm Halldórsson, einn helsta sérfræðing Íslendinga í hagsögu Asíu, í Morgunblaðinu í dag. Hann bendir á að síðustu ára- tugi hafi „kaupmáttur á Vest- urlöndum ... vaxið mjög mikið út af tiltölulega lækkandi hráefnaverði og enn frekar vegna lækkandi verðs á iðnframleiðslu“. »14 Reuters Vökvað Þurrkar skapa mikil vandræði. Ísland að sigla inn í nýtt umhverfi  Icelandic Gro- up hefur gengið frá sölu á starf- semi sinni í Frakklandi og Þýskalandi. Brynjólfur Bjarnason, for- stjóri Icelandic Group, segir að með sölunni sé mikilvægt skref tekið við endurskipulagningu Ice- landic Group enda muni skuldir minnka mikið og áherslur verða skýrari. „Salan gerir okkur kleift að draga nýja víglínu og við munum núna halda áfram við að straum- línulaga reksturinn og skoða svo framhaldið.“ »8 „Gerir kleift að draga nýja víglínu“ Brynjólfur Bjarnason Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Aflaheimildir fjórtán sjávarútvegsfyrirtækja í Vestmannaeyjum skerðast um 15.500 þorskígildis- tonn á fimmtán árum, þar af 7.500 tonn strax á fyrsta ári, verði frumvörp um breytingar á fisk- veiðistjórnunarkerfinu að lögum. Aflaheimildir í Fjarðabyggð skerðast um 13.300 tonn þegar lögin verða komin að fullu til framkvæmda. Þetta eru nið- urstöður útreikninga Útvegsmannafélags Aust- fjarða og Útvegsbændafélags Vestmannaeyja sem eyjum, og um 100 starfa í Fjarðabyggð. Þá myndu kjör þeirra sem eftir yrðu væntanlega rýrna. Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka at- vinnulífsins, segir útreikningana sláandi. Innan þriggja vikna munu aðilar vinnumarkaðar meta það hvort forsendur séu til þess að staðfesta þriggja ára gildistíma nýgerðra kjarasamninga. „Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að stjórnvöld ætli að eyði- leggja frið á vinnumarkaði með svona vinnubrögð- um,“ segir Vilmundur. MFrestur er á illu bestur »4 kynntar voru í gær. Meðaltalsúthlutun aflaheimilda síðustu tuttugu árin er notuð sem viðmið, en það meðaltal er töluvert hærra en úthlutaðar aflaheim- ildir á yfirstandandi fiskveiðiári. Kemur ekki á óvart að niðurstaðan sé þessi Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður sjávarút- vegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, segir það ekki koma sér á óvart að útvegsmenn „reyni að reikna sig til þessarar niðurstöðu“. Þær niðurstöð- ur voru meðal annars settar í það samhengi að skerðingin svaraði til allt að 160 starfa í Vestmanna- Dökk mynd dregin upp  Útvegsmenn í Eyjum og Fjarðabyggð óttast afleiðingar breytts fiskveiðikerfis  Segja útreikninga sýna fram á stórminnkuð umsvif og atvinnumissi fjölda fólks Það var ekki 17. júní í gær þótt annað megi halda af þessari mynd og stemning- unni sem myndaðist á Austurvelli. Þar var haldin með pomp og prakt árleg tískusýning Hjálpræðishersins. Meðal þeirra sem gengu sýningarpallinn var borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, sem kom fyrir sjónir eins og skátaforingi. Auk hans tóku margir þjóðþekktir einstaklingar þátt í sýningunni sem á annað hundrað manns fylgdist með. Morgunblaðið/Árni Sæberg Borgarstjórinn bar fána lýðveldisins  Haraldur Briem sóttvarnalæknir býst ekki við því að kólígerlasýk- ingin berist hingað til lands. Sýk- ingin hefur orðið sautján manns að bana í Þýskalandi að undanförnu og er talið að hún komi úr hráu grænmeti. „Ég á ekki von á því að sýkingin berist hingað með mat- vælum. Hún er líka þannig að það eru litlar líkur á því að smitast frá manni til manns. Það er helst þegar um börn er að ræða, sem er lítið í þessu, þetta er mest fullorðið fólk og þá helst konur sem eru að sýkj- ast,“ segir Haraldur. » 6 og 13 Litlar líkur á að sýk- ingin berist hingað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.