Morgunblaðið - 03.06.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2011
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Talsmaður Landsbankans vísar full-
yrðingum í skýrslu Seðlabankans um
fjármálastöðugleika, um að tafir hafi
orðið á endurskipulagningu skulda
fyrirtækja í bankakerfinu meðal ann-
ars vegna skorts á sérfræðiþekkingu,
algerlega á bug. Talsmaður Arion
banka tekur í sama streng og segir að
fullyrðingin eigi ekki við um Arion.
Í nýjustu skýrslu Seðlabankans um
fjármálastöðugleikann kemur fram
býsna hörð gagnrýni á stóru við-
skiptabankana. Í kaflanum um end-
urskipulagningu útlána er meðal ann-
ars fullyrt að „skortur á þekkingu
innan fjármálafyrirtækja á endur-
skipulagningu skulda fyrirtækja eftir
langt uppgangsskeið“ sé ein af meg-
inástæðum þess að það mikilvæga
ferli hafi gengið jafn hægt og raun
ber vitni. Að sögn Kristjáns Krist-
jánssonar, talsmanns Landsbankans,
eiga forstöðumenn á sviði endur-
skipulagningar eigna hjá Landsbank-
anum, sem er það svið sem annast
skuldsett fyrirtæki, meira en 60 ára
reynslu af rekstri og framkvæmda-
stjórn fyrirtækja, að ótalinni allri
reynslu annarra starfsmanna á svið-
inu. Þá sé ekki nefnd banka- og útlán-
areynsla starfsmanna, sem sé gríðar-
lega mikil.
Áhyggjur af áherslunni
á lengingu lána
Iða Brá Benediktsdóttir, talsmað-
ur Arion, segir að fullyrðing Seðla-
bankans eigi alls ekki við. Að sögn Iðu
hefur bankinn lokið að gera þeim 470
fyrirtækjum sem falla undir „Beinu
brautina“ svokölluðu tilboð og er mál-
um um 70% þeirra lokið. Búist er við
að ljúka málum hinna fyrir lok þriðja
ársfjórðungs. Til viðbótar hafi fjöl-
mörg fyrirtæki sem ekki falla undir
samkomulag Beinu brautarinnar far-
ið í gegnum úrlausnarferli bankans.
Auk þess að kenna reynsluleysi í ís-
lensku viðskiptabönkunum um hæga-
gang í úrlausnum á skuldavanda fyr-
irtækja er vakin athygli á því í
fjármálastöðugleikaskýrslu Seðla-
bankans að úrræðin sem bankarnir
hafa boðið upp á hafi fyrst og fremst
falist í lengingu lána. Sérfræðingar
Seðlabankans segja að þetta gæti
verið áhyggjuefni þar sem slík endur-
skipulagning gagnist því aðeins til
lengdar að framtíðartekjur standi
undir greiðslubyrðinni. Kristján segir
að forsvarsmenn Landsbankans átti
sig illa á þessum staðhæfingum sem
er að finna í skýrslu SÍ. Sumt virðist
vera hreinn misskilningur og annað
byggjast á reynsluleysi. Bankar séu
allir settir undir einn hatt, án nánari
tilgreiningar, en sé þessu beint til
Landsbankans, þá sé hann ósammála
þeirri gagnrýni sem fram kemur.
Landsbanki og Arion vísa
gagnrýni Seðlabanka á bug
Seðlabanki segir skorta á þekkingu á úrvinnslu skulda Bankarnir segjast búa yfir mikilli reynslu
Morgunblaðið/Ómar
Mótmælt Meint aðgerðaleysi varðandi úrvinnslu skuldavanda heimila og fyrirtækja hefur verið hitamál.
Reynsluleysi og
lengingarárátta
» Í skýrslu Seðlabankans um
fjármálastöðugleikann segir að
reynsluleysi bankamanna af
úrvinnslu skuldamála sé meðal
annars um að kenna hæga-
gang í þeim efnum.
» Auk þess er áhersla banka á
lengingu lána við úrvinnsluna
gagnrýnd.
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Flug bandaríska flugfélagsins
Delta Air Lines milli Íslands og
Bandaríkjanna er ekki til-
raunaverkefni, heldur hefur fyrir-
tækið lagt í mikla rannsóknarvinnu
og telur að flugleiðin hafi alla burði
til að verða ábatasöm fyrir félagið,
að sögn Frank Jahangir, markaðs-
stjóra Delta í Evrópu, Afríku og
Mið-Austurlöndum.
„Við gerum okkur grein fyrir
því að það er eftirspurn meðal
Bandaríkjamanna eftir ferðum til
Íslands og við erum mjög vel stað-
sett til að bjóða þeim upp á ferðir
hingað til lands. Við fljúgum til og
frá um fimmtíu borgum í Banda-
ríkjunum og getum því boðið
bandarískum ferðamönnum hvar
sem þeir eru staddir upp á tengi-
flug til Íslands.“
Jahangir segir Bandaríkja-
menn vilja heldur fljúga með
bandarískum flugfélögum en er-
lendum, ekki síst vegna þess að
með því móti geta þeir notað ferða-
punkta, sem þeir hafa safnað í
innanlandsflugi, í flug erlendis.
Ánægður með viðbrögð
„Þetta stóra net okkar er ein
ástæða þess að við teljum þessa
flugleið geta verið arðbæra fyrir
okkur. Þá munum við eiga mjög
auðvelt með að kynna Ísland fyrir
bandarískum ferðamönnum í gegn-
um vefsíðu okkar og með öðrum
hætti. Margir vilja prófa eitthvað
nýtt og óvenjulegt og Ísland er
óneitanlega óvenjulegur áfanga-
staður. Þá gerum við ráð fyrir því
að eftir því sem fleiri bandarískir
ferðamenn koma hingað til lands
muni þeir mæra Ísland við vini sína
og það muni hafa jákvæð keðju-
verkandi áhrif.“
Jahangir segist vera mjög
ánægður með bókanir hingað til, en
gat ekki gefið upp áætlaðar tölur
um hve margir bandarískir ferða-
menn mundu koma hingað til lands
með Delta í sumar. Hann sagðist
hins vegar vera mjög ánægður með
þróun bókana það sem af er og
segir að fjölgun þeirra hafi verið
hraðari undir það síðasta. Fyrsta
vél Delta lenti á Keflavíkurflugvelli
í gærmorgun, fimmtudag, og flaug
svo aftur til New York um ell-
efuleytið í gær. Delta mun fljúga
hingað til lands fimm sinnum í viku
fram í byrjun október. Flogið verð-
ur í vél sem tekur um 170 farþega
og verði þær allar fullbókaðar gætu
farþegarnir því orðið um 15.000-
16.000 talsins í mesta lagi í sumar.
Er þetta í fyrsta sinn í fjörutíu
ár sem bandarískt flugfélag hefur
reglubundið áætlunarflug til Ís-
lands. „Ég get ekki fullyrt af
hverju bandarísk flugfélög flugu
ekki til Íslands á þessu tímabili.
Hugsanlega hafa þau verið að ein-
beita sér að innanlandsmarkaði,
enda var á þeim tíma hægt að
græða mjög vel á honum. Nú hefur
samkeppni aukist til muna innan
Bandaríkjanna, ekki síst eftir til-
komu Delta, og við leitum nú tæki-
færa annars staðar í heiminum. Við
erum sífellt að bæta við áfanga-
stöðum hjá okkur og fljúgum til
dæmis töluvert til Afríku og Suður-
Ameríku auk hefðbundnari áfanga-
staða í Evrópu og Asíu.“
Ísland er óvenjulegt
Jahangir segir að flugferðir
Delta ættu einnig að vera áhuga-
verðar fyrir Íslendinga, sem ætla
að fljúga áfram innan Bandaríkj-
anna eða annars staðar í Amerík-
unum tveimur. „Þegar þú flýgur
fleiri ferðarleggi með sama flug-
félagi er það gjarnan ódýrara og
Delta býður upp á flug til margra
áfangastaða í Norður- og Suður
Ameríku.“ Hann viðurkennir að
hann vildi gjarnan að viðbrögð ís-
lenskra ferðamanna gætu verið
meiri, en segist hafa trú á því að
með tíð og tíma muni Íslendingar
læra að meta það að fljúga með
Delta.
Jahangir segir að jákvæð áhrif
flugsins fyrir Ísland felist ekki að-
eins í fleiri ferðamönnum. „Reynsl-
an hefur sýnt að þar sem banda-
rísk flugfélög fljúga þangað fylgja
bandarískir athafnamenn í kjölfar-
ið. Þeir eru eins og aðrir Banda-
ríkjamenn að því leyti að þeir
kunna best við sig hjá bandarískum
flugfélögum. Þegar þeir geta flogið
með okkur til Íslands er allt eins
líklegt að þeir komi í leit að tæki-
færum hér á landi. Þá gerir flug-
leiðin að sama skapi íslensku at-
hafnafólki það auðveldara að fljúga
til Bandaríkjanna í leit að tækifær-
um. Áætlunarflug Delta mun því
styrkja enn betur viðskiptatengsl
Íslands og Bandaríkjanna.“
Fljúga líka með vörur
Flugvélar Delta munu ekki að-
eins flytja farþega milli Íslands og
Bandaríkjanna. Frá Íslandi munu
þær til dæmis flytja ferskar sjávar-
afurðir, eldislax og -silung og aðrar
útflutningsvörur bæði til Banda-
ríkjanna og víðar. Hingað mun
Delta flytja neytendavörur, véla-
og varahluti, ferska ávexti, græn-
meti og fleira.
Jahangir segir Delta leggja sig
fram í þjónustu við farþega bæði í
lofti og á láði. „Sætin í almennu
farrými eru leðurklædd með sjón-
varpsskjá á sætisbaki og máltíðir
og drykkjarföng eru innifalin í
miðaverðinu. Þá erum við að
breyta Business-Class farrýmum
okkar á þá leið að öll sæti verða
legusæti, sem mun gera fólki mun
auðveldara að hvílast meðan flug-
vélin er í loftinu. Til viðbótar við
það erum við að byggja núna nýja
álmu á John F. Kennedy flugvell-
inum í New York og önnur slík
verður byggð við alþjóðaflugvöllinn
í Atlanta í Georgíu.“
Hann segir að samskipti við ís-
lensk stjórnvöld og eftirlitsaðila
hafi verið góð og að Delta hafi ekki
undan neinu að kvarta í þeim efn-
um.
Flugleið Delta milli Keflavíkur
og New York verður starfrækt
fimm daga vikunnar að mánudög-
um og þriðjudögum undanskildum.
Farþegaþotan sem fer frá Keflavík-
urflugvelli kl. 10:50 að morgni lend-
ir á Kennedyflugvelli kl. 13:05 að
staðartíma. Flogið er frá New York
til Íslands klukkan 23:35 að kvöldi
að staðartíma og þotan lendir á
Keflavíkurvelli kl. 9:20 að morgni
að íslenskum tíma. Boeing 757-200
þota Delta tekur 154 farþega í al-
mennt farrými og 16 í við-
skiptafarrými.
Morgunblaðið/Kristinn
Flugrekstur Bretinn Frank Jahangir hefur starfað hjá Delta frá árinu 2006,
en hann hafði áður unnið um fimmtán ára skeið í ferðaþjónustu. Hafði hann
til dæmis unnið að markaðsmálum hjá Virgin Holidays í Bretlandi.
Fyrsta
bandaríska
flugið í 40 ár
Delta Air Lines hefur flug milli Kefla-
víkur og New York Ekki tilraunaflug
heldur afrakstur mikilla rannsókna
Um fyrirtækið
» Delta var stofnað árið
1928 í Monroe í Louisiana í
Bandaríkjunum.
» Félagið flýgur til 346
áfangastaða í 64 löndum og
eru farþegar á ári um 160 millj-
ónir talsins.
» Tekjur Delta í fyrra námu
um 3.650 milljörðum króna og
hagnaður nam um 68 millj-
örðum króna.