Morgunblaðið - 03.06.2011, Qupperneq 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
3 7
3 2 1
1 7 6
3 1 8 5
6
4 2 1
5 2
6 1
7 4 8 6 2 3
9 6
8
5 8 1 9 7
4 9
6 1 4
7 5 3
3 4
4 6 1 5
8
5 3 4 9
4 2 7 8
6 5 3
7
9 6 4
3 6
6 8 7 9
3 8
9 3 2 6
9 6 5 8 4 2 1 7 3
3 2 7 5 1 9 4 8 6
8 4 1 6 3 7 2 5 9
4 5 6 3 2 1 7 9 8
7 9 8 4 6 5 3 2 1
1 3 2 7 9 8 5 6 4
6 7 3 2 8 4 9 1 5
5 8 9 1 7 3 6 4 2
2 1 4 9 5 6 8 3 7
9 1 6 3 4 8 7 5 2
2 3 7 6 1 5 4 8 9
8 5 4 2 7 9 6 3 1
1 8 5 4 9 7 2 6 3
4 7 2 5 3 6 1 9 8
6 9 3 8 2 1 5 4 7
7 4 8 1 5 3 9 2 6
5 6 9 7 8 2 3 1 4
3 2 1 9 6 4 8 7 5
1 6 4 2 5 8 3 7 9
3 8 2 7 1 9 5 6 4
5 9 7 3 4 6 8 2 1
8 4 1 5 7 3 2 9 6
9 5 3 6 2 1 4 8 7
2 7 6 8 9 4 1 5 3
4 1 8 9 6 2 7 3 5
7 3 9 1 8 5 6 4 2
6 2 5 4 3 7 9 1 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 3. júní, 154. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Hrós til handa fótboltaliði Barce-lona þykir sumum eflaust að
bera í bakkafullan lækinn, en Víkverji
er á því að endalaust sé hægt að ræða
um afrek liðsins og einstaklinga þess,
læra af þeim og tileinka sér gleðina og
ánægjuna sem þeim fylgja.
x x x
Eftir því var tekið um liðna helgi aðAlex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri enska stórliðsins Man-
chester United, sem er í hópi bestu fé-
lagsliða heims, sagði að á um
aldarfjórðungs löngum stjórnunarferli
hjá United hefði hann aldrei mætt eins
sterku liði og nýkrýndum Spán-
armeisturum Barcelona. Ferguson
hefur sýnt að hann veit yfirleitt hvað
hann syngur og orð hans segja nánast
allt sem segja þarf um yfirburði Barca.
x x x
Úrslitaleikurinn var í einu orði sagtfrábær. Leikmenn Barcelona
fóru á kostum og sumir hefðu sagt að
leikmenn United hefðu verið best stað-
settu áhorfendurnir á Wembley. En
svo allrar sanngirni sé gætt þá mættu
þeir einfaldlega ofjörlum.
x x x
Eiður Smári Guðjohnsen var í leik-mannahópi Barca um tíma og
það segir meira en mörg orð um getu
hans. Barcelona getur nánast fengið
hvaða leikmann sem félagið vill fá og
þegar það valdi Eið Smára var það
mikill persónulegur sigur fyrir hann og
auk þess mikil viðurkenning á íslenskri
knattspyrnu.
x x x
Eiður Smári er aftur kominn í ís-lenska landsliðið og verður í
sviðsljósinu í Evrópuleiknum á móti
Dönum á Laugardalsvelli á morgun.
Eftir að hann fór frá Barcelona fékk
hann ekki almennilega að sýna sig á
vellinum þar til hann fór til Fulham.
Vonandi eru erfiðleikarnir að baki og
Víkverji trúir því að Eiður nái að
blómstra á ný með félagsliði sínu og
ekki síst íslenska landsliðinu. Engin
ástæða er til að hanga á því sem miður
hefur farið heldur minnast góðu stund-
anna og horfa með bjartsýni fram á
veginn. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 klippa til, 4
krumla, 7 gróði, 8 kvensel-
urinn, 9 kusk, 11 bára, 13
eirðarlaus, 14 snögg, 15
vandræði, 17 autt, 20 öskur,
22 eldiviðurinn, 23 tuskan,
24 illa, 25 geta neytt.
Lóðrétt | 1 snauta, 2 fast-
heldni, 3 keyrir, 4 hár-
knippi, 5 krydd, 6 ránfugls,
10 hljómar, 12 ílát, 13 títt, 15
tvístígur, 16 festi saman, 18
stórsjór, 19 mál, 20 sprota,
21 lýsisdreggjar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rangtúlka, 8 orkan, 9 listi, 10 grá, 11 norpa, 13 teigs,
15 skálk, 18 snart, 21 orm, 22 gjarn, 23 áræða, 24 rannsakar.
Lóðrétt: 2 askar, 3 gunga, 4 útlát, 5 kasti, 6 þorn, 7 eims, 12 pól,
14 ern, 15 segl, 16 álaga, 17 konan, 18 smára, 19 afæta, 20 tían.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Flottasta spilið – taka tvö.
Norður
♠109875
♥Á975
♦G
♣987
Vestur Austur
♠D42 ♠K63
♥1062 ♥K843
♦854 ♦7
♣Á1062 ♣KDG54
Suður
♠ÁG
♥DG
♦ÁKD109632
♣3
Suður spilar 5♦.
Bæði Runi Mouritzen (Færeyjum)
og Artur Malinowski (Noregi) unnu 5♦
eftir laufútspil. Við sáum það í gær. En
hinn sænski Frederic Wrang fékk út
tromp. Spilið er frá NL í Örebro og
vakti verðskuldaða athygli fyrir fjöl-
breyttar endastöður. Umsjónar-
mönnum mótsblaðsins þótti vinnings-
leið Svíans flottust.
Wrang leyfði blindum að eiga fyrsta
slaginn og notaði innkomuna til að spila
spaða á gosann. Vestur drap á ♠D og
hefði nú betur skipt yfir í hjarta, en
kaus að snúa sér að laufinu, spilaði ás
og meira. Austur hafði opnað á Prec-
ision-tígli, þannig að Wrang vissi um
hálitakóngana hans megin og setti
stefnuna á víxlþvingun. Hann kláraði
trompin og byggði upp þriggja spila
endastöðu: ♠Á og ♥DG heima, en ♠109
og ♥Á í borði. Og austur? Varnarlaus.
3. júní 1937
Flugfélag Akureyrar var
stofnað. Nafni þess var síðar
breytt í Flugfélag Íslands (hið
þriðja með því nafni). Það
sameinaðist Loftleiðum undir
nafni Flugleiða hf. árið 1973.
3. júní 1951
Séra Bjarni Jónsson dómpró-
fastur og vígslubiskup kvaddi
söfnuð Dómkirkjunnar í
Reykjavík eftir 41 árs prests-
þjónustu. Talið er að Bjarni
hafi unnið fleiri prestsverk en
nokkur annar hér á landi en
hann mun hafa jarðsungið sex
þúsund manns.
3. júní 1989
Jóhannes Páll páfi kom til Ís-
lands, en þetta var fyrsta
heimsókn trúarleiðtoga kaþ-
ólskra manna til landsins. Við
komuna sagði hann: „Íslend-
ingar hafa mikið að gefa heimi
sem þyrstir í sannleika og vill
setja réttlæti, frið og sam-
kennd allra manna í hásætið.“
Páfi tók meðal annars þátt í
samkirkjulegri athöfn á Þing-
völlum og söng messu utan við
Landakotskirkju. Þúsundir
manna sóttu messuna.
3. júní 1995
Sjö stafa símanúmer komu í
stað fimm og sex stafa númera
og ekki þurfti lengur að velja
svæðisnúmer.
3. júní 2008
Hvítabjörn var felldur í Lax-
árdal ytri á Skaga. Þrettán
dögum síðar var annar björn
felldur við Hraun á Skaga.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Lífið getur ekki verið betra,“ segir Matthías Þór
Hákonarson, veiðimaður á Akureyri, sem er 30 ára
í dag. Þá vísar hann fyrst og fremst til yndislegrar
eiginkonu og barnanna þeirra fimm, en í tilefni
tímamótanna verður slegið upp heljarinnar veislu.
„Ég er ansi hræddur um það,“ segir afmælisbarnið,
sem bíður spennt eftir næsta viðskiptahópi, sem
leggur í hann 11. júní.
Matthías Þór er Akureyringur í húð og hár. Hann
vinnur hjá Bræðrunum Ormsson á veturna en fyrir
um ári stofnaði hann fyrirtækið Iceland Fishing
Guide og lóðsar aðra veiðimenn um ýmsar lax- og silungsveiðiár lands-
ins. „Það lítur vel út með sumarið,“ segir hann og bætir við að útlend-
ingar séu í miklum meirihluta viðskiptavina sinna en að auki hafi hann
verið með námskeiðahald í fluguveiði fyrir heimamenn síðasta sumar.
„Ég er ástríðuveiðimaður,“ segir Matthías um ástæðu þess að hann
stofnaði fyrirtækið. „Mig dreymir um að geta unnið við það sem mér
finnst skemmtilegast að gera.“ Til viðbótar vinnur hann við vefsíðu-
gerð, RMS Vefhönnun, með Sigurði Sigurðssyni, bróður sínum. „Þetta
er spurning um að hafa eitthvað í gangi allt árið,“ segir hann.
steinthor@mbl.is
Matthías Þór Hákonarson veiðimaður 30 ára
Alltaf eitthvað í gangi
Hlutavelta
Gyða Björg Ás-
bjarnardóttir,
Elíana Mist Frið-
riksdóttir og Þrá-
inn Ásbjarnarson
héldu tombólu og
söfnuðu 1.465 krón-
um sem þau færðu
Barnaheillum –
Save the Children á
Íslandi.
Flóðogfjara
3. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.12 0,6 7.15 3,5 13.19 0,5 19.31 3,9 3.18 23.35
Ísafjörður 3.22 0,3 9.14 1,8 15.25 0,3 21.27 2,2 2.32 24.30
Siglufjörður 5.34 0,1 12.00 1,1 17.42 0,3 23.50 1,3 2.13 24.16
Djúpivogur 4.22 1,9 10.29 0,4 16.49 2,2 23.04 0,6 2.37 23.15
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Málefni sem tengjast vinnunni ganga
vel. Tafir og takmarkanir hafa verið regla
fremur en undantekning á síðustu vikum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er sannleikskorn í því að hálfnað er
verk þá hafið er. Kynntu þér alla málavöxtu
áður en þú grípur til aðgerða.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú veist aldrei hvernig fólk bregst
við beiðnum þínum nema þú berir þær fram.
Kannski gerir þú áætlanir um að ferðast til
áfangastaðar hinum megin á hnettinum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur áhuga á stjórnmálum, er-
lendum málefnum og trúmálum í dag. Nýttu
þér þetta og hugaðu að því sem skiptir þig
raunverulegu máli.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ástæður þínar fyrir því að gera hlutina
eru alveg skýrar – fyrir þér. Skeyttu því engu
þó aðrir telji það barnalegan hégóma.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er klókt að líta vel í kringum sig
áður en maður ákveður að kaupa einhverja
hluti. En til að geta það verðurðu að kafa
djúpt inn í sjálfan þig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur haldið nógu lengi aftur af sterk-
um tilfinningum þínum í garð manneskju sem
heillar þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það gengur ekki í augun á öllum
að spreða fé á báða bóga. Reyndu að uppfylla
eigin þrár. Taktu í útrétta hönd þeirra sem
vilja aðstoða þig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú getur ekki lengur horft
framhjá efasemdum þínum varðandi atvinn-
una. Nýjungar eiga til að rugla mann í ríminu í
fyrstu, en sjálfstraustið eykst með tímanum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það getur tekið í að kynnast siðum
og venjum framandi þjóða en þá er að mæta
þeim opnum huga.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Láttu það ekki hvarfla að þér að
kasta til höndunum við verk þín því þú færð
þau bara í hausinn aftur. Taktu hlutunum
bara með ró.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Stundum eiga menn það til að mis-
skilja góðsemi þína. Hristu af þér slenið og
vertu jákvæð/ur og þá fara hlutirnir að gerast
hjá þér.
Stjörnuspá
1. d4 d5 2. Rc3 Rf6 3. Bg5 c6 4. e3
Bf5 5. Bxf6 gxf6 6. Bd3 Bg6 7. h4 e6
8. Rge2 Rd7 9. g4 Db6 10. h5 Bxd3
11. Dxd3 c5 12. Db5 Hc8 13. Dxb6
Rxb6 14. 0-0-0 Hg8 15. Hdg1 Rc4 16.
Rd1 cxd4 17. exd4 b5 18. f4 Bb4 19.
Hh3 Ke7 20. Hd3 Hc6 21. Hg2 a5 22.
g5 f5 23. Rg1 Bd6 24. Hf2 Hgc8 25.
Hg3 b4 26. Re3
Staðan kom upp í blindskák-
arhluta Amber-mótsins sem lauk
fyrir nokkru í Mónakó. Rússinn Vla-
dimir Kramnik (2.785) hafði svart
gegn Bandaríkjamanninum Hikaru
Nakamura (2.774). 26. … Rxe3 27.
Hxe3 Bxf4! 28. Hxf4 Hxc2+ 29. Kd1
Hc1+ 30. Kd2 H8c2+ 31. Kd3 Hxb2
32. He2 Hc3 mát. Levon Aronjan
varð hlutskarpastur í blindskák-
arhluta mótsins en hann fékk 8½
vinning af 11 mögulegum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.