Morgunblaðið - 03.06.2011, Page 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
„HUNDAR
LYKTA ILLA”
OG NÚNA MUN ODDI KOMA
MEÐ MÓTRÖK
UM LEIÐ OG HANN ER BÚINN
AÐ RÚLLA SÉR UPP ÚR
HVERJU SEM ÞETTA ER
EF ÉG
FINN EKKI
BÓKINA ÞÁ
DREPA ÞEIR
MIG
SNOOPY,
ÞÚ ERT SÁ EINI SEM
SKILUR MIG
ÞÚ ERT SÁ EINI SEM
ÉG GET TALAÐ VIÐ...
MARGIR SEGJA
AÐ ÞAÐ SÉ SVO GOTT
SEM ÓMÖGULEGT Í
NÚTÍMASAMFÉLAGI AÐ
FÁ ALLA FJÖLSKYLDUNA
TIL AÐ
SETJAST NIÐUR OG
BORÐA SAMAN
ÉG VIRÐIST SAMT ALDREI LENDA
Í VANDRÆÐUM MEÐ ÞAÐ
SVO ÞÚ
SITUR BARA
HÉRNA OG GERIR
EKKERT ALLAN
DAGINN?
MAÐUR
GETUR LÆRT ÝMIS-
LEGT UM FÓLK MEÐ
ÞVÍ AÐ FYLGJAST
MEÐ ÞVÍ
MAÐUR GETUR SÉÐ
Á FÓLKI HVORT ÞAÐ
HEFUR HAGAÐ SÉR
VEL EÐA ILLA
ATLI HEFUR
ENGAN TÍMA TIL AÐ
HAGA SÉR ILLA, HANN
SEFUR ALLAN DAGINN
HÉRNA ÁSTIN MÍN, ÉG KEYPTI
HANDA ÞÉR SVONA GÓM TIL AÐ KOMA
Í VEG FYRIR AÐ ÞÚ HRJÓTIR
HANN
ÞRÝSTIR
KJÁLKANUM
FRAM
ÞÁ
ÞAÐ, ÉG
SKAL PRÓFA
ÞENNAN
GÓM
ÞÚ
HRAUST MIKLU
MINNA Í NÓTT
HLJÁ, EN
HLÉTTA EL EKKI GÓL
VALANLEG LAUÐN
ÉG SKIL EKKI AF
HVERJU ÞÚ ERT Í SLAGTOGI
MEÐ BIGSHOT OG
HANS LÍKUM
ÞAÐ ER
LÖNG
SAGA
ÉG VAR TIL NEYDDUR
Hver er
ávinningurinn?
Sem starfsmaður í
heilbrigðisþjónustu
velti ég því fyrir mér
hvernig á að útfæra
þá tillögu Sivjar Frið-
leifsdóttur um að
selja tóbak eingöngu
í apótekum. Mér
finnst það skjóta
skökku við að störf-
um hlaðið starfsfólk í
heilbrigðisgeiranum
eigi að bæta þessu
við störf sín. Í þessu
er einnig fólginn tví-
skinnungur. Á starfs-
fólk apótekanna öðrum þræði að
selja tóbakið og hins vegar að
benda á lausnir við að hætta að
reykja? Og ef þetta verður raunin
hví þá að einskorða þetta við sígar-
ettur? Væri þá ekki rökrétt að
áfengi væri einnig eingöngu selt í
apótekum?
Ég hef hvergi séð hver ávinning-
urinn af þessu á að vera. Það vita
allir að þeir sem reykja kaupa síg-
arettur þar sem þær eru seldar og
þá gildir einu hvort þarf að fara á
þennan eða hinn staðinn.
Ég hef ekkert á móti því að
reyna að stemma
stigu við reykingum,
en ég held þetta sé
ekki rétta leiðin. Mér
finnst liggja beinast
við að ríkið hætti þá
bara að flytja inn tób-
ak, þar með væri
vandamálið úr sög-
unni.
Ég skil ekki í að
þingmenn skuli eyða
tíma sínum í svona illa
ígrundaðar tillögur,
ég hefði haldið að eins
og staðan er núna
væri þeim nær að
huga að brýnni málum
til hagsbóta fyrir
landsmenn.
Guðrún.
Landsleikur í lokaðri dagskrá
Ég vil benda á að það er mikið
óréttlæti að landsleikur sé sendur
út í lokaðri dagskrá á Stöð 2. Fróð-
legt væri að vita hve mörg prósent
þjóðarinnar muni fylgjast með
þessum landsleik.
Gunnar Jakobsson.
Ást er…
… það sem veitir ykkur
innri styrk
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8-16.
Eftirlaunadeild símamanna | Sumar-
ferð deildarinnar verður 13.-17. ágúst á
Norðurland. Nánari uppl. gefur Ragnhild-
ur í síma 551-1137 eða 898-4437.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, botsía kl. 9.30, jóga kl.
10.50 og félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Farið verður um Kjósina með
leiðsögn mánudaginn 6. júní. Lagt verð-
ur af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum. Skrán-
ing í síma 586-8014 kl. 13-16.
Háteigskirkja | Brids-aðstoð kl. 13 í
Setrinu.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9-14,
fatamarkaður og tískusýning, bingó kl.
13.30.
Hraunsel | Vorsýning á handverki fé-
lagsmanna opnuð í dag kl. 13. Lokað
mánudaginn 6. júní.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16. Böð-
un fyrir hádegi, fótaaðgerðir, hársnyrt-
ing. Matur og kaffi.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listsýningin opin alla virka daga kl.
9-16 til og með 3. júní. Uppl. í s. 411-
2790.
Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður
kl. 9-12.
Skemmtifélag eldri borgara | Ferð í
Borgarfjörð miðvikudaginn 8. júní nk.
Farið verður frá Aflagranda kl. 8.30,
Vesturgötu kl. 8.35, Lækjartorgi kl. 8.40,
Mjódd kl. 8.50, Hraunbæ kl. 9.00. Nánari
upplýsingar í síma 775-1340.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/
kortagerð og enska kl. 9. Tölvukennsla
kl. 12, sungið v/flygilinn kl. 13.30, dans í
aðalsal kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin og bingó kl. 13.30. Hár-
greiðslu- og fótaaðgerðastofur opnar.
Þorleifur Konráðsson var fyrirskemmstu á gangi í sinni
blómlegu æskusveit innan um
lambfé og varð hugsað til krat-
anna, sem honum verður þó ekki
alla jafna, „sem ólmir vilja í ESB
gegn vilja bænda. Á labbinu fædd-
ist hringhenda um Samfylkinguna:
Þvælist móð um lög og láð
lúmsk með rjóðar kinnar.
Bruggar hróðug banaráð
bændum þjóðar sinnar.“
Gylfi Þorkelsson taldi ekki
skipta öllu máli fyrir bændur hvort
þeir fengju lifibrauð sitt frá ís-
lenskum skattgreiðendum ein-
göngu eða stærri hópi evrópskra
skattgreiðenda. Davíð Hjálmar
Haraldsson velti því upp hvort
ekki væri viðbúið að við fengjum
gúrkurnar frá Spáni (Hort o Fruti-
cola eða Pepino Bio Frunet) í stað
Syðri-Reykja ef við gengjum í
ESB:
Gáðu að þér, Gylfi minn,
gráðugur og svangur;
ferskum gúrkum, fluttum inn,
fylgir niðurgangur.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía
á Sandi í Aðaldal, lagði orð í belg:
„Ég hef haldið að styrkir frá ESB
verði minni en gjöldin til þeirra.
Svo að ef bændur fá styrk verði
það bara smábændur. Spurningin
er hvort við þurfum þá að styrkja
stórbændur áfram. Annars hétu
þetta niðurgreiðslur til neytenda
þegar ég var ung, en ekki styrkir.
Mér líst illa á ef landbúnaður
minnkar enn. Bæði vil ég hafa holl-
an mat, en ekki verksmiðjubúskap
með 111 meðferð á skepnum og
hormónakjöti. Svo vil ég hafa sem
mest af landinu í byggð líka. Vil
minna á að skattarnir okkar fara
að mestu suður og útflutnings-
tekjur eru mun hærri á mann af
landsbyggðinni svo hún er ekki
baggi á meirihlutanum þó hann sé
þar.“ Að lokum tekur hún fram að
hún eigi ekki hagsmuna að gæta,
því jurtavinnsla sé ekki styrkt. Og
ekki viðraði til sólarljóðs:
Úti vindur ólmur hvín
engin sól í ljóði.
Best er að kaupa brennivín
og bjarga ríkissjóði.
Ármann Þorgrímsson var sam-
mála síðasta ræðumanni:
Hagfræðin er hárrétt þín
en hagsmunirnir víða leynast.
Búa má til brennivín
blómin til þess dável reynast.
Guðmundur Stefánsson kom úr
annarri átt:
Gangi hér yfir land Evrópufár
ekki neitt kvíði ég því.
Bjóða mun öllum í brennivínstár
ef bændurnir komast í frí.
Friðrik Steingrímsson lét ekki
sitt eftir liggja:
Fylgismenn með þrotlaust þras
þramma blindir ranga veginn,
og halda að það sé grænna gras
í girðingunni hinumegin.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af ESB, bændum og gúrkum