Morgunblaðið - 04.06.2011, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.06.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2011 Íbúar Reykjavíkurborgar sem eiga sorpílát staðsett lengra en 15 metra frá götu eiga að greiða 4.800 króna ársgjald eða færa sorpílátin sjálfir. Reykjavíkurborg ítrekar nú við þá íbúa sem hafa ekki tekið afstöðu að láta vita, en aðeins um 24% íbúa hafa staðfest þjón- ustustigið sem þeir óska eftir. Fjöldi þeirra sorpíláta sem fara yfir 15 metra mörkin er breytilegur eftir hverfum. Yfir heildina eru það um það bil 29% sorp- íláta í Reykjavík sem fara yfir 15 metra mörkin. Í vesturbæ Reykjavíkur fara 47% sorpíláta yfir 15 metra mörkin en 10% sorpíláta í Norðlingaholti sem og Graf- arholti. Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri neyslu- og úrgangsmála hjá Reykjavíkurborg, segir meiri vinnu hafa skapast við þessar breytingar en búist var við í fyrstu. „Þegar ákvörðunin var tekin var talið að hagræðing yrði um 70 milljónir króna á þessu ári en sorpílátin sem fara yfir 15 metra mörkin reyndust færri en við bjuggumst við og ávinningurinn verður ekki eins mik- ill,“ segir Guðmundur. Hann segir að ekki hafi enn komið í ljós hversu mikil hagræðing verði af því að vinna á 10 daga fresti í stað 7 daga fresti áður. Starfsmenn Sorphirðu Reykjavíkur voru við sorphirðu í Melbæ í Árbænum í gær, og sækja hér tunnur sem lengra var í en 15 metrar. mep@mbl.is Sorphirða fyrir íbúa Reykjavíkurborgar Morgunblaðið/Eggert Um 24% vilja aukaþjónustu Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is „Vefsíða þessi er ekki „runnin und- an rifjum saksóknarnefndarinnar í þinginu“ heldur var lagt upp með það af minni hálfu frá upphafi að eðlilegt væri að opna vefsíðu til að almenningur og fjölmiðlafólk gæti aflað sér upplýsinga á einum stað um þetta mál sem á sér ekkert for- dæmi í réttarsögunni. Mér er alveg hulið hvernig vefsíða með almenn- um upplýsingum um tildrög máls, lagagrundvöll og tímasetningar getur talist vera áróðurskennd,“ segir Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis. Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde, gagnrýndi Sigríði í Morgunblaðinu í gær fyrir að hafa sett á laggir heimasíðu um máls- höfðunina gegn Geir og sagðist hafa miklar efasemdir um að við hæfi væri að saksóknari setti upp heimasíðu um sitt eigið mál. Hann sagðist jafnframt hafa grun um að í raun væri heimasíðan „runnin und- an rifjum“ saksóknarnefndarinnar á Alþingi. Sjónarmið verjanda velkomin Sigríður vísar þessari gagnrýni hins vegar á bug. „Saksóknari Al- þingis fer með málið af hálfu þings- ins og því er eðlilegt að verkefni sem þetta sé á hans könnu,“ segir Sigríður. Hún segir jafnframt að Andra hafi verið gefinn kostur á að koma sínum sjónarmiðum að áður en síðan var opnuð. „Verjandanum var gefinn kostur á að koma með athugasemdir og viðbætur við vefsíðuna og honum er meira en velkomið að fá þar birt efni sem varðar málið.“ Brynjar Níelsson, formaður Lög- mannafélags Íslands, segir að sér geðjist ekki að þeirri tilhugsun að saksóknari opni heimasíður um ein- stök mál. „Það er hins vegar auð- vitað ekkert athugavert við þessa vefsíðu í sjálfu sér ef inn á hana er einungis safnað saman upplýsing- um sem liggja nú þegar fyrir. Öðru máli gegndi ef inn á síðuna yrðu sett gögn sem gætu á einhvern hátt haft áhrif á stöðu sakbornings.“ Hver bendir á annan Erfiðlega gekk að leita viðbragða ráðamanna við heimasíðunni um- deildu í gær. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði málið ekki á sinni könnu og vísaði bein- ustu leið á Ástu Ragnheiði Jóhann- esdóttur, forseta Alþingis. Ásta fullyrti á hinn bóginn að málið kæmi sér ekki við og vísaði í kjölfarið á Atla Gíslason, formann saksóknarnefndar. Atli vildi ekki tjá sig um málið. Saksóknari verst verjandanum  Sigríður J. Friðjónsdóttir hafnar ásökunum um að vefsíða um málið gegn Geir Haarde stafi í raun frá saksóknarnefnd Alþingis  Formaður Lögmannafélagsins segir eðli upplýsinga á síðunni mikilvægt Brynjar Níelsson Sigríður J. Friðjónsdóttir Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra sagði í umræðum á Alþingi í gær að sjónarmið Geirs H. Haarde ættu einnig að koma fram á vefsíðu saksókn- ara Alþingis um málið. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, hafði beint til hennar fyrirspurn um hvort hún teldi síðuna nauðsynlega og sæmilega. Sjónarmið verði birt FORSÆTISRÁÐHERRA Flugfélagið Qatar Airways leitar nú að íslenskum flugfreyjum og -þjón- um til að starfa í farþegarýmum flugvéla félagsins. Móttaka á vegum flugfélagsins verður haldin á Hótel Sögu í fyrramálið þar sem áhuga- samir geta kynnt sér starfsemi þess og jafnframt lagt inn umsóknir. Að sögn Sigrúnar Jónsdóttur, for- manns Flugfreyjufélags Íslands, hefur verið nokkuð um það að ís- lenskar flugfreyjur og -þjónar leggi land undir fót og fari að starfa fyrir erlend flugfélög. „Ég hef engar tölur eða yfirlit yfir hversu margir Íslendingar starfa í farþegarýmum hjá erlendum flug- félögum en síðustu ár hefur verið eftirspurn eftir starfsmönnum héð- an,“ segir Sigrún. Hún segist jafnframt ekki vita til þess að þetta tiltekna flugfélag frá Katar hafi áður haldið slíka móttöku hér á landi. Sam- kvæmt auglýsingu er miðstöð þess í Doha í Katar. Störf í Mið- austurlöndum Íslenskar flug- freyjur og -þjónar hafa undanfarin ár farið og starfað fyrir önnur flug- félög í Miðausturlöndum og Sigrún segist meðal annars vita til þess að nokkrir hafi farið og unnið fyrir flug- félög í Dubai. Hún segir ennfremur að flugfélög frá þessum heimshluta hafi byrjað að auglýsa eftir starfskröftum hér á landi fyrir nokkrum árum. „Við byrj- uðum að taka eftir þessu fyrst fyrir um það bil þremur til fimm árum.“ haa@mbl.is Ein farþegaþotna Qatar Airways.  Leita að íslenskum flugliðum hér Atvinnutækifæri bjóðast í Katar Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar Sp ör eh f. s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R SUMAR 14 Gondólar og rómantík verða á meðal þess sem skreyta þessa glæsilegu ferð okkar um Ítalíu og Austurríki. Flogið er til Mílanó, þaðan ekið til Stresa við Lago Maggiore vatn þar sem gist verður í 3 nætur. Við siglum yfir til eyjunnar Isola Bella, þar sem höll Borromeo ættarinnar er að finna, en hana prýðir einn fallegasti blómagarður sunnan Alpafjalla. Við færum okkur yfir að Gardavatni, til Moniga del Garda og gistum þar í aðrar 3 nætur. Skoðunarferðir þaðan til Salò, Desenzano del Garda, stærsta bæjar við vatnið og Sirmione. Þá er komið að Gondólahátíðinni „Regatta“ í Feneyjum, sem er elsta hátíð þeirra eða frá 12. öld. Upphaflega var hátíðin haldin til að fagna velgengni og sigrum sjóflotans á hafi úti og má því sjá röð skreyttra gondóla og fólk klætt litríkum búningum frá 16. öld. Gistum í 3 nætur í Mestre, þaðan sem er frábært útsýni yfir til Feneyja. Síðan er haldið til Austurríkis þar sem dvalið verður í 3 nætur í Pertisau við Achensee. Förum í Gramai-Alm þjóðgarðinn í Karwendel fjöllunum og til Mayrhofen, eins aðalferðamannabæjar í hinum fagra Zillertal. Ferðinni lýkur svo með ævintýraferð með gufulest frá Zillertal yfir Inndalinn og að Achensee. Fararstjóri: Hlín Gunnarsdóttir Verð: 255.300 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu, ferja 2 daga yfir til Feneyja, gufulestarferð í Zillertal og íslensk fararstjórn. 27. ágúst - 8. september Gondólahátíð íFeneyjum Rannsókn embættis sérstaks sak- sóknara á meintum auðgunarbrotum við ráðstöfun á fjármunum Vátrygg- ingafélags Íslands, sem og brotum á lögum um vátryggingastarfsemi, verður haldið áfram eftir helgi, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sér- staks saksóknara. Hin meintu brot áttu sér stað á árunum 2007 til 2009. Yfirheyrðir í tólf klukkutíma Fyrr í vikunni var gerð húsleit í höfuðstöðvum VÍS í tengslum við rannsóknina og fjöldi fólks yfir- heyrður í kjölfarið, þeirra á meðal fyrrverandi stjórnarmenn VÍS og stjórnendur Exista. Síðarnefnda fé- lagið er móðurfélag tryggingafélags- ins, en rannsóknin beinist meðal annars, en ekki eingöngu, að lánveit- ingum til Exista, samkvæmt heim- ildum blaðsins. Ólafur sagði í kjölfar húsleitanna að um háar fjárhæðir væri að tefla og tilvikin mörg. Eins og áður segir var fjöldi fólks boðaður til yfirheyrslu, en að sögn Ólafs var gæsluvarðhalds ekki óskað yfir nein- um þeirra. Í tilfelli tveggja hafi yfir- heyrslurnar staðið í tólf klukku- stundir, en ekki fékkst uppgefið hverjir þar áttu í hlut. einarorn@mbl.is Rannsókn á VÍS haldið áfram eftir helgi  Fjöldi yfirheyrður en enginn í varðhald Hlauparar í hlaupaátakinu „meðan fæturnir bera mig“ komu í gær í Vík í Mýrdal. Börn á leikskólunum í Vík voru meðal þeirra sem tóku á móti hlaupurunum. Signý Gunn- arsdóttir hlaupari segir hlaupið hafa gengið mjög vel. Aðstæður séu mjög góðar og þau hafi verið með vindinn í bakið nær alla leiðina. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Með vindinn í bakið nær alla leiðina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.