Morgunblaðið - 04.06.2011, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.06.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2011 SNS Demokratiråd í Svíþjóð hef-ur gefið út skýrslu um völdin í ESB. Niðurstaðan kemur vafalítið háværum íslenskum áhugamönnum um aðild Íslands að ESB á óvart. Hér á landi er vinsælt að halda því fram að ítök smáríkja séu mikil inn- an ESB og að Ísland mundi hafa þar mikið að segja. Veruleikinn er annar.    Í skýrsluSNS Demo- kratiråd kem- ur fram að valdið innan Evrópu- sambandsins hafi á liðnum árum verið að þjappast enn meira saman en áður hafi verið.    Talið hafi verið að við inngönguríkjanna í Austur-Evrópu drægi úr áhrifum Þýskalands og Frakklands, en hið gagnstæða hafi átt sér stað. Völdin hafi safnast enn meir á hendur þessara ríkja og áhrif annarra minnkað að sama skapi.    Þá segir að með Lissabon-sáttmálanum hafi dregið úr vægi litlu og meðalstóru ríkjanna og að vegna hans muni vægi hinna stóru ríkja aukast enn frekar árið 2014.    Nú geta menn velt því fyrir sérhvort líklegra er að Ísland sé í hópi stóru ríkjanna, sem hafa aukið völd sín á liðnum árum og munu halda áfram að auka þau, eða hvort Ísland teljist til hins ríkjahópsins, þessa sem er að missa áhrif sín og völd.    Þeir stuðningsmenn ESB-aðildarsem telja að Ísland yrði innan ESB í hópi með Þýskalandi og Frakklandi geta haldið áfram að mæla fyrir því að staða landsins mundi styrkjast við aðild. Hinir hljóta að fara að sjá að sér. Staða smáríkjanna fer versnandi STAKSTEINAR Hæstiréttur hefur staðfest úrskurði Héraðsdóms Reykjaness um að tveir menn, sem grunaðir eru um hrotta- fengna árás á þann þriðja, sitji áfram undir lás og slá. Annar var úr- skurðaður í áframhaldandi gæslu- varðhald og hinum gert að afplána eftirstöðvar eldri dóms. Mennirnir eru félagar í vél- hjólaklúbbnum Black Pistons. Þeir voru handteknir í Hafnarfirði í maí eftir að lögreglu barst tilkynning um líkamsárás. Sá sem fyrir henni varð er karlmaður á þrítugsaldri en hann var með áverka víða á líkamanum og er m.a. nefbrotinn. Hæstiréttur staðfesti að annar mannanna skuli sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 23. júní. Hinn skal afplána 240 daga eftirstöðvar 2 ára fangelsisdóms, sem hann fékk fyrir að kveikja í húsi við Kleppsveg. Black Pistons-menn áfram í varðhaldi „Hann er bara eins og hann er vanur að vera. Hann er í góðu lagi,“ segir Gúst- af M. Ásbjörns- son, verkefnis- stjóri hjá Landgræðslunni, um ástand Álfta- versafréttar, en hann kannaði í vik- unni hvaða afleiðingar eldgosið í Grímsvötnum hefði haft á góðurfar í afréttinum. Hann segir ekki útlit fyrir að eld- gosið hafi haft neikvæð áhrif á svæðið. Talsverð aska sé hins vegar á heiðarlöndunum fyrir ofan Kirkjubæjarklaustur. „Hún er til ama en ég held að hún komi ekki til með að valda neinum gróðurskaða eins og er.“ hjorturjg@mbl.is Aska til ama en ekki útlit fyrir skaða Veður víða um heim 3.6., kl. 18.00 Reykjavík 8 skýjað Bolungarvík 8 skýjað Akureyri 9 skýjað Kirkjubæjarkl. 10 léttskýjað Vestmannaeyjar 8 skýjað Nuuk 5 heiðskírt Þórshöfn 7 skúrir Ósló 25 heiðskírt Kaupmannahöfn 20 heiðskírt Stokkhólmur 23 heiðskírt Helsinki 20 heiðskírt Lúxemborg 26 heiðskírt Brussel 26 heiðskírt Dublin 21 léttskýjað Glasgow 22 heiðskírt London 22 heiðskírt París 26 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 25 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt Vín 23 þrumuveður Moskva 22 heiðskírt Algarve 23 léttskýjað Madríd 22 léttskýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 20 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 25 léttskýjað Winnipeg 22 léttskýjað Montreal 16 léttskýjað New York 21 heiðskírt Chicago 25 alskýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:16 23:37 ÍSAFJÖRÐUR 2:28 24:35 SIGLUFJÖRÐUR 2:08 24:21 DJÚPIVOGUR 2:34 23:18 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 HRUN Samkeppniseftirlitið kynnir skýrslu sína Samkeppnin eftir hrun Hótel Hilton Nordica fimmtudaginn 9. júní nk. kl. 8:00 – 10:15. Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins er kynnt niðurstaða rannsóknar um fjárhagsstöðu og fjárhagslegar endurskipulagningar stærri fyrirtækja og eignarhald þeirra. Þá er farið yfir sjónarmið um endurskipulagningu banka á fyrirtækjum og kynntar leiðir til úrbóta. HÚS OPNAR  Kaffi og meðlæti - 8:00 - 8:30 FYRRI HLUTI SKÝRSLA SAMKEPPNISEFTIRLITSINS Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Vandi atvinnulífsins og samkeppninnar Benedikt Árnason, hagfræðingur Rannsókn Samkeppniseftirlitsins Sonja Bjarnadóttir, lögfræðingur Eftirlit með yfirtökum banka á fyrirtækjum SEINNI HLUTI HVERT SKAL STEFNT? Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ Borgartúni 26, 125 Reykjavík, www.samkeppni.is AÐGANGUR ER ÓKEYPIS Skráning á ráðstefnuna fer fram á www.samkeppni.is Fundarstjóri er Rögnvaldur J. Sæmundsson, formaður stjórnar SamkeppniseftirlitsinsDagskrá //

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.