Morgunblaðið - 04.06.2011, Síða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2011
✝ SigurðurMagnússon
stýrimaður fæddist
á Ólafsfirði 15.
febrúar 1938. Hann
lést á sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 24.
maí 2011.
Foreldrar hans
voru Magnús Jón
Guðmundsson út-
gerðarmaður á
Ólafsfirði, f. 14.
maí 1913, d. 7. febr-
úar 1980, og Jósefína Marsibil
Jóhannsdóttir, f. 12. júní 1914,
d. 28. júní 1996.
Sigurður var næstelstur fimm
systkina, en þau eru Júlíus
Magnússon, f. 8. október 1936,
Hildur Magnúsdóttir, f. 7. febr-
úar 1942, Guðrún Magnúsdóttir,
f. 15. júní 1945, og Erla Magn-
úsdóttir, f. 8. janúar 1947. Systir
þeirra, f. í júní 1939, lést stuttu
eftir fæðingu.
Í Eyjum kynntist hann eft-
irlifandi eiginkonu sinni Ernu
Sigurjónsdóttur og gengu þau í
hjónaband þann 24. maí 1969.
Erna er fædd 6. ágúst 1938 og
er dóttir hjónanna Sigurjóns
Guðjónssonar frá Raufarfelli
undir Austur-Eyjafjöllum og
Sigurbjargar Jónsdóttur frá
Ásólfsskála undir Austur-
Eyjafjöllum. Þau fluttu til Vest-
mannaeyja þegar Erna var ný-
mennsku að sínu ævistarfi. Árið
1954, þá 16 ára að aldri, gerðist
hann útgerðarmaður þegar
hann festi kaup á trébátnum
Freymundi ÓF, ásamt föður sín-
um og bróður. Báturinn hefur
alla tíð verið gerður út frá
Ólafsfirði og er enn í eigu Júl-
íusar og gerður út til veiða. Sig-
urður var á vertíðum frá Vest-
mannaeyjum frá árinu 1958 og
þaðan útskrifaðist hann sem
stýrimaður frá Stýrimannaskól-
anum árið 1971. Sigurður settist
að í Eyjum og stundaði þar sjó-
mennsku alla sína tíð, allt þar til
hann hætti sjómennsku sumarið
2005, þá nýorðinn 67 ára. Sig-
urður var á þessum tæpu 60 ár-
um til sjós á mörgum bátum. Á
sínum fyrstu árum 1959-1961 og
1970-1972 á Kristbjörgu VE hjá
Sveini Hjörleifssyni, og 1962-
1967 var hann með Kristni Páls-
syni á Berg VE. Árin 1973-1983
á Hugin VE hjá Guðmunda Inga
Guðmundssyni, og árin þar á
eftir á Guðmundi VE í eigu Ís-
félags Vestmannaeyja og á Kap
VE hjá Einari Ólafssyni. Lengst-
an tímann, eða frá 1987-2005,
var hann starfandi hjá Vinnslu-
stöðinni, fyrst á Kap VE og síðar
á Sighvati Bjarnasyni VE.
Útför Sigurðar fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
í dag, laugardaginn 4. júní, og
hefst athöfnin kl. 14.
fædd og þar fædd-
ist sonur þeirra
Ingi Sigurjónsson
þann 22. apríl 1943.
Sigurður og
Erna eignuðust tvo
syni 1) Ingi, f. 18.
desember 1968,
kvæntur Fjólu
Björk Jónsdóttur, f.
29. janúar 1971, og
börn þeirra eru;
Jón, Eva Lind og
Inga Dan, 2) Magn-
ús, f. 6. október 1974, kvæntur
Ester Sigríði Helgadóttur, f. 27.
apríl 1976, og börn þeirra eru;
Sigurður Arnar, Ragna Sara og
Heiðmar Þór. Einnig átti Erna
áður Sigurjón Pálsson, f. 24. júlí
1959, kvæntur Gunnhildi Jón-
asdóttur, f. 21. maí 1961, og
börn þeirra eru; Erna Dögg,
sambýlismaður hennar Hörður
Orri Grettisson, og dætur þeirra
Embla og Tanja, Tanja Björg,
Sigurjón Gauti, Daníel Ingi og
Andri Steinn. Dóttir Gunnhildar
og fósturdóttir Sigurjóns er
Hjördís Elsa Guðlaugsdóttir,
gift Óðni Sæbjörnssyni og börn
þeirra eru Nökkvi Snær,
Thelma Sól og Glódís Dúna.
Sigurður byrjaði á unga aldri
að fara á sjó með föður sínum og
bróður á trillu fjölskyldunnar
Guðrúnu ÓF á Ólafsfirði, og rétt
eftir fermingu gerði hann sjó-
Hann Siggi Magg er látinn.
Þessi fregn kom mörgum veru-
lega á óvart, en veikindi hans
voru almennt ekki kunn. Það
sýndi að pabbi fór vel með sín
veikindi og barðist hetjulega við
sinn sjúkdóm. Pabbi var ekki fyr-
ir að vekja athygli á sjálfum sér
og tókst því á við veikindin á sinn
hátt, að halda áfram að lifa sínu
daglega lífi sem best hann gat.
Pabbi hóf snemma að sækja sjó-
inn með föður sínum á æskuslóð-
um sínum á Ólafsfirði. Hann
gerðist fljótt útgerðarmaður þar
er hann á 16. aldursári festi kaup
á nýsmíðinni Freymundi ÓF
ásamt föður og bróður. Eftir það
varð ekki aftur snúið og sjó-
mennskan varð hans ævistarf.
Hann lagði allt sitt í það starf,
sótti sér menntun í Eyjum, sett-
ist þar að og stofnaði fjölskyldu.
Þegar pabbi hætti á sjónum
sat hann ekki auðum höndum.
Heimili hans og mömmu er
samastaður barnabarnanna og
var pabbi alltaf hæstánægður
með að umgangast þau. Hann
var oft eins og leigubílstjóri að
keyra þeim og aðstoða þau á
marga vegu. Þau sjá á eftir sín-
um besta vin en eiga góðar minn-
ingar um allar samverustundirn-
ar. Hann varð einnig
byggingastjóri hjá okkur sonun-
um enda alger forkur til vinnu er
sneri að húsbyggingum okkar
bræðra. Það var sama hvaða verk
þurfti að vinna, allt lék í hönd-
unum á honum og heimilin okkar
njóta þess í dag. Pabbi var róleg-
ur maður sem hafði sterka rétt-
lætiskennd, sem birtist í því að
hann lá ekki á skoðunum sínum.
Hann var óhræddur að takast á
við menn um skoðanir en erfði
slíkt aldrei við neinn og nánast
allir voru nefndir „vinur“ hjá
honum. Hann var mikill áhuga-
maður um íþróttir og þá sérstak-
lega knattspyrnu. Hann lék
knattspyrnu sjálfur á sínum
yngri árum, og þá var ekkert
pasta borðað fyrir leiki heldur
bara almennilegt skyr, nýkominn
beint af sjónum. Það var því ekki
skrýtið að við synirnir yrðum hel-
teknir af knattspyrnunni og það
áhugamál áttum við með pabba.
Hann var fastur gestur á leikjum
ÍBV og sl. sumar sóttum við feðg-
ar marga útileiki með ÍBV-liðinu
sem veittu honum mikla ánægju.
Við fórum saman nokkrum sinn-
um utan til að sjá liðið hans, Man.
Utd, spila. Ferðin árið 2008
stendur upp úr þegar hann og
Júlli bróðir hans fóru saman með
okkur. Það varð eina ferðin
þeirra saman og ég veit að pabbi
mat það mikils. Ferðin sem við
fórum saman sl. haust norður á
Ólafsfjörð við opnun ganganna er
mér kær, og ég veit að pabbi var
himinlifandi með ferðina.
Ég er stoltur af pabba og
þeirri fjölskyldu sem hann kom á
legg og hann elskaði mömmu af
öllu hjarta. Á sínum síðustu ævi-
dögum sást vel hve mikill karakt-
er pabbi var, hann tókst á við erf-
ið tíðindi af miklu æðruleysi og
huggaði sína fjölskyldu á erfiðum
tímum. Hann kvaddi þessa tilvist
umvafinn sínum nánustu, elskað-
ur og var sáttur við Guð og menn.
Við munum standa við allt sem
við lofuðum þér og hafa að leið-
arljósi allt sem við lærðum af þér.
Þú fórst á þann hátt sem þú vildir
fara, með reisn og laus við þján-
ingu.
Guð varðveiti þig pabbi, ég
elska þig og takk fyrir allt. Þinn
sonur kveður þig með söknuði og
orðunum „sjáumst síðar“.
Ingi.
Elsku pabbi, hér sit ég og upp
í hugann koma fjölmargar góðar
minningar um okkur saman. Síð-
ustu dagar hafa reynst mér erf-
iðir og átti ég ekki von á því að á
þessum tímapunkti væri komið
að kveðjustund. Sumarið fram-
undan og ýmislegt sem við ætl-
uðum að gera saman. En hlut-
irnir eru fljótir að breytast og
það gerðist í þínu tilfelli. Hins
vegar hugga ég mig við það að
fyrst ekkert var hægt að gera
meira fyrir þig þá fékkstu að fara
hratt og fljótt eins og þú orðaðir
það við mig. Fyrir það er ég
þakklátur, að þú þurftir ekki að
kveljast meira.
Síðustu ár höfum við unnið
mikið saman og fyrir það er ég
óendanlega þakklátur, eftir að
við byrjuðum að byggja varstu
mín stoð og stytta í öllu því verki,
réttara sagt byggingastjórinn.
Það var alveg sama hvað þurfti
að gera; smíða, slípa, pússa, flísa-
leggja, mála, tyrfa eða nefndu
það þá varst þú mættur. Það var
heldur ekki verið að gaufa við
hlutina heldur gengið vasklega til
verks, því þú varst víkingur til
vinnu. Ég man alltaf þegar við
vorum að byrja að byggja þá
komst þú labbandi í grunninn
beint af sjó og sagðir mér að þú
ætlaðir að klára vertíðina, það
væri einn túr eftir, og síðan væri
sjómennsku þinni lokið. Ég held
pabbi að þarna hafir þú séð fram
á að geta hætt á sjó og haft nóg
fyrir stafni.
Síðustu ár vorum við fjölskyld-
an dugleg að fara með þér og
mömmu í sumarfrí og fengu
krakkarnir mínir þá að njóta
skemmtilegra samvista með ykk-
ur. Við áttum sama uppáhaldsfé-
lag í enska boltanum þ.e. Man.
Utd, og þær ferðir sem við bræð-
urnir fórum með þér til Man-
chester á Old Trafford eru
ógleymanlegar. Það voru ferðir
sem þú hafðir mikla ánægju af og
þær munu lifa með okkur bræðr-
um um ókomna tíð. Eitt af því
síðasta sem við gerðum saman
var að horfa á Man. Utd taka á
móti Englandsmeistaratitlinum á
sjúkrahúsinu og sá ég að það var
mikil gleðistund fyrir þig. Þú ætl-
aðir reyndar ekki að horfa á leik-
inn því að hjúkrunarkonurnar
voru búnar að segja við þig að þú
yrðir að hvíla þig. Þannig að ég
var ekkert að kveikja á sjónvarp-
inu en þegar að liðnar voru 10
mínútur af leiknum þá spurðir þú
mig hvort ég ætlaði virkilega
ekki að kveikja á sjónvarpinu!
Það er tómlegt að koma í
Bessahraunið þegar afa vantar,
þetta upplifa börnin mín því að
þú pabbi varst mikill afi. Þú hafð-
ir mjög gaman af því að eiga osta-
köku handa litla smiðnum þínum
honum Heiðmari Þór. Ég á eftir
að sakna orða Heiðmars Þórs
þegar hann hrópaði alltaf þegar
hann sá þig koma: „Afi er að
koma, afi, afi, afi.“ Ég vil þakka
þér fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir okkur, minning um þig mun
lifa um ókomna tíð með okkur.
Ég mun minna börnin mín á þig
og rifja upp með Heiðmari Þór
þegar hann verður eldri hvað þið
gerðuð saman. Ég veit að þú
munt fylgjast með okkur og
halda áfram að mæta á alla
knattspyrnuleikina með Sigurði
Arnari og Rögnu Söru sem er að
feta sín fyrstu spor á vellinum.
Við bræðurnir munum passa
mömmu. Þau loforð sem þú tókst
af mér munu standa. Þín verður
sárt saknað.
Magnús.
Elsku Siggi þá er komið að
kveðjustund, það er sárt að
kveðja en gott að vita að þér líður
betur. Ég kom fyrst inn á heimili
ykkar Ernu fyrir 14 árum og var
mér strax tekið opnum örmum.
Meðan við Magnús bjuggum fyr-
ir norðan voru samverustundirn-
ar ekki margar en þér tókst þó að
líta nokkrum sinnum inn hjá okk-
ur þegar við vorum svo heppin að
þið lönduðuð fyrir norðan. Þegar
við fluttum svo til Eyja rétt fyrir
jólin 1999 varst þú mættur fyrst-
ur manna til að hjálpa okkur og
strax farinn að setja jólaljós í
gluggana svo það væri nú jólalegt
á fyrstu jólum nafna þíns. Þegar
við vissum að þið voruð að landa
var rúntur tekinn á bryggjuna til
að heilsa upp á þig og ekki var
hægt að sjá að neinn aldursmun-
ur væri á þér og ungu peyjunum
sem voru með þér um borð.
Þú varst alltaf boðinn og búinn
að rétta hjálparhönd þegar þú
varst í landi. Þegar þú hættir á
sjónum vorum við Magnús að
byrja að byggja og má segja að
þú hafir verið byggingastjórinn
okkar og gekkst í öll þau verk
sem þurfti að gera og eigum við
þér margt að þakka og margar
frábærar minningar um þann
tíma. Þú varst ótrúlega laghent-
ur og fannst þér alltaf eitthvað að
gera og nutum við oft góðs af og
þegar þú vissir að Magnús væri
að vinna eitthvað við húsið varst
þú mættur. Vinkonur mínar
stríddu mér á því að ég hefði
garðyrkjumann því þú komst oft
til að slá grasið, reyta arfa eða
koma plöntum til. Nú þegar vor-
aði ræddir þú við Heiðmar Þór,
„litla smiðinn“ eins og þú kallaðir
hann, hvort þið ættuð ekki að
fara að klára að smíða pallinn
saman og mátti varla sjá hvor
væri spenntari.
Elsku Siggi, þú fylgdist alltaf
vel með fréttum og öllu því sem
var að gerast í heiminum og átt-
um við mörg samtölin um það og
þá lást þú sko ekki á skoðunum
þínum. Á sumrin vorum við dug-
leg að fara saman í ferðalög og
var sérstaklega gaman að fara
norður á þínar heimaslóðir.
Börnin nutu ekki síður en við
þessara ferða enda höfðu þau þá
ömmu og afa til að stjana við sig
allan sólarhringinn.
Elsku Siggi, þú naust þess að
vera með afabörnunum þínum og
þau með þér svo nú er ansi tóm-
legt að koma í heimsókn og eng-
inn afi til að taka á móti okkur.
Þú varst mikill áhugamaður um
fótbolta og duglegur að fylgjast
með strákunum þínum keppa og
hvattir þá áfram, það var því
stoltur afastrákur sem skoraði
sigurmark fyrir afa sinn í síðasta
leik.
Elsku Siggi, þakka þér fyrir
alla umhyggjuna, ástúðina og
hjálpsemina, sem aldrei mun
gleymast. Guð veri með þér og
vaki yfir þér um alla eilífð.
Þín tengdadóttir,
Ester.
Elsku afi, við viljum kveðja þig
með þessari bæn.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Takk fyrir allt sem þú gerðir
fyrir okkur. Við söknum þín.
Sigurður Arnar, Ragna
Sara og Heiðmar Þór.
Elsku afi minn.
Þú varst alltaf svo góður og
hjálpsamur við alla, alltaf glaður
og mér leið alltaf svo vel þegar
við vorum saman og töluðum
saman. Ég vil þakka þér fyrir það
hvað þú varst góður við mig og
líka fyrir allar bílferðirnar.
Elsku yndislegi afi, ég elska
þig og veit að þú ert alltaf hjá
mér. Mundu mig og ég man þig
og ég sakna þín sárt.
Þín afastelpa,
Eva Lind.
Við viljum minnast Sigga
Magg sem verið hefur nær dag-
legur gestur í kaffistofu okkar í
Olís til margra ára.
Í honum bjó stórskemmtilegur
félagi sem ávallt hafði skoðun á
því umræðuefni sem rætt var
þann daginn. Honum þótti nú
mest um vert að ræða boltann og
pólitíkina, en í báðum efnum
hafði hann frekar ákveðnar skoð-
anir. Oftar en ekki var hann
skemmtilega orðheppinn um það
sem rætt var og alltaf sérlega
stutt í grínið. Hann mætti jafnan
aðeins á undan hinum fastagest-
unum í morgunkaffið og þar
gafst gott færi til að kynnast bet-
ur.
Undanfarnar vikur hafði heim-
sóknunum fækkað en alltaf bar
karlinn sig vel hvað varðaði veik-
indin og það sem þeim fylgdi.
Sérlega vænt þykir okkur um
þær kveðjur sem okkur bárust
síðustu dagana áður en hann
kvaddi. En fyrst og fremst verð-
ur hans sárt saknað.
Fjölskyldu Sigga sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Sæmundur og Sigurður Þór.
Sigurður Magnússon
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVERRIR RAGNAR BJARNASON,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn
28. maí.
Útförin verður gerð frá Háteigskirkju fimmtu-
daginn 9. júní kl. 13.00.
Guðrún Sverrisdóttir,
Bjarni Sverrisson, Hanna María Oddsteinsdóttir,
Árni Sverrisson,
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, Hrólfur Jónsson,
Gunnar Sverrisson, Karen Bergsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÚLÍUS S. JÚLÍUSSON
leigubílstjóri,
Þinghólsbraut 10,
Kópavogi,
andaðist á Hrafnistu Boðaþingi mánudaginn
23. maí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 7. júní kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hrafnistu Boðaþingi, þar
sem hann fékk góða umönnun.
Jón E. Júlíusson,
Stefanía Júlíusdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson,
Hörður Júlíusson, Júlía J. Puiaob,
Jóhanna Júlíusdóttir,
Sigrún Júlíusdóttir,
Trausti Júlíusson, Helga G. Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
BARBARA MARÍA SUCHANEK,
Ási,
Hrunamannahreppi,
lést á Fossheimum, Selfossi, þriðjudaginn
31. maí.
Útförin fer fram frá Hrunakirkju miðvikudaginn 8. júní kl. 14.00.
Eiríkur Steindórsson,
Helena Eiríksdóttir, Sigmundur Brynjólfsson,
Steindór Eiríksson, Lilja Ásgeirsdóttir,
Guðrún Eiríksdóttir, Birkir Böðvarsson
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GARÐAR SIGURÐSSON,
lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn
2. júní.
Útför nánar auglýst síðar.
Valgerður J. Garðarsdóttir, Svanur M. Kristvinsson,
Guðrún Garðarsdóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Bergur Garðarsson, Nína Margrét Perry,
Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ríkarður Pétursson,
barnabörn og barnabarnabarn.