Morgunblaðið - 04.06.2011, Side 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2011
Okkar ástkæra
og elskulega amma
Sína er fallin frá og hugsum við
með trega og söknuði til allra
þeirra góðu stunda sem við átt-
um með henni.
Elsku amma, við erum ævin-
lega þakklát fyrir að hafa haft
þig svona lengi í okkar lífi, en nú
er komið að leiðarlokum þínum.
Þær voru margar yndislegu
stundirnar sem við áttum á heim-
ili ykkar afa Geirs í Dvergabakk-
anum. Þar réðir þú ríkjum með
góðmennsku og gjöfuglyndi. Þar
var ýmislegt brallað og allt leyfi-
legt, við fengum að gramsa í
skápunum þínum og máta föt, þú
sagðir okkur sögur frá því í
gamla daga þegar þú varst ung,
gafst okkur opal, tópas eða annað
gotterí og svo var setið löngum
stundum og við spiluðum löngu-
vitleysu og svartapétur. Þau
voru ófá skiptin sem við fengum
hjá þér súkkulaðiköku og mjólk,
þú varst alltaf að dekra við okk-
ur. Öll bjuggum við hjá þér á
unglingsárunum og er það ómet-
anlegur tími í lífi okkar allra.
Tími sem við gætum aldrei þakk-
að nægilega fyrir.
Þú varst alltaf svo ótrúlega
hress og glöð og alltaf varstu svo
sæt og fín. Aldrei sáum við þig
öðruvísi en vel tilhafða, með vel
lakkaðar neglur og fallega krull-
að hárið. Húmorinn var aldrei
langt undan og alltaf var hægt að
hlæja og fíflast með þér. Þú varst
sérstaklega athugul og mundir
eftir ótrúlegustu hlutum.
Efst í huga okkar er minning-
in um þig amma, hversu ofboðs-
lega fallega manneskju þú hafðir
að geyma. Þú hafðir ómælda
hlýju og fallega brosið þitt og
kátína hafði svo jákvæð áhrif á
allt fólk í kringum þig. Þú sýndir
alltaf mikið æðruleysi, það var
eiginlega sama hvað á gekk.
Nægjusemina hafðirðu að leiðar-
Jónasína
Jónsdóttir
✝ Jónasína Jóns-dóttir fæddist í
Hafnarfirði 23.
ágúst 1926. Hún
lést á Sóltúni 23.
maí 2011.
Útför Jónasínu
var gerð frá Foss-
vogskirkju 3. júní
2011.
ljósi í hvívetna en
þú leyfðir þér þó
alltaf að lifa lífinu,
t.d. að ferðast eða
gera vel við þína
nánustu.
Þú varst alltaf
sjálfstæð og orku-
mikil áður en þú
veiktist fyrir um
þremur árum. Eðli-
lega var erfitt fyrir
atorkusama og
sjálfstæða manneskju að vera
svipt frelsinu svo snögglega eins
og raun bar vitni. Við og ömmu-
börnin þín nutum þess alltaf að
kíkja í heimsókn til þín niður í
Sóltún, þú varst alltaf svo áhuga-
söm að vita hvað við værum að
gera og hvernig krökkunum
gengi í skólanum o.s.frv.
Við kveðjum þig nú í hinsta
sinn, elsku amma. Þú varst orðin
84 ára og varst sátt við lífið fram
til síðasta dags, en jafnframt
varstu orðin sátt við að sofna
svefninum langa. Við munum
sakna þín sárt, elsku amma, en
minningarnar munu lifa með
okkur.
Takk, amma Sína, fyrir allt og
hvíl í friði.
Guðný Jóna, Hermann Geir
og Þóra Lind.
Elsku besta langamma. Þegar
ég frétti að þú værir dáin varð ég
rosalega leið og fór að gráta. Ég
sakna þín voðalega mikið. Stund-
um hugsa ég að þú sért dáin og
þá verð ég mjög leið og sár eins
og núna þegar ég skrifa þessar
línur. Ef ég mætti ráða mundi ég
vilja að þú værir enn hjá okkur,
en ég vona að þú sért komin á
betri stað núna. Ég var alltaf svo
spennt að koma til þín en nú get
ég það ekki lengur. Við spiluðum
mjög oft svartapétur en nú get-
um við það ekki lengur heldur.
Ég á enn bangsann sem þú gafst
mér fyrstu jólin mín. Hann heitir
Snússi og þegar ég knúsa hann
finn ég að þú ert enn hjá mér.
Ég mun aldrei gleyma því
hversu kær þú varst mér og góð.
Ég vildi bara segja þér hversu
mikið ég sakna þín og hvað þú
varst alltaf góð við mig.
Hvíl í friði, elsku langamma.
Birta Björg.
Elsku hjartans
afi minn.
Það er ólýsanlega sárt
hversu fljótt þú kvaddir þennan
heim og mér finnst eins og það
hafi verið í gær sem ég stökk í
afaholu. Ég á endalausar fal-
legar og góðar minningar um
þig sem ég mun halda fast í.
Það verður ekki eins að fara í
Litla húsið í skóginum án þín.
Þú ert yndislegur í alla staði og
hefur alltaf verið minn klettur
og verður áfram. Eins og við öll
barnabörnin vitum erum við og
verðum alltaf englarnir þínir og
finnst mér synd að þau sem á
eftir koma fái ekki að upplifa
afaholuna eins og við hin. Þín
verður sárt saknað og þú verð-
ur ávallt í hjarta mér. Ég trúi
því að þú vakir yfir mér svo
lengi sem ég lifi.
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér.
Skrítið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar,
þakklæti og trú.
Þegar eitthvað virðist þjaka mig,
þarf ég bara að sitja og hugsa
um þig
þar er eins og að losni úr
læðingi
lausnir, öllu við.
Þó ég fái ekki að snerta þig
veit ég samt að þú ert hér.
Og ég veit að þú munt elska mig
og geyma mig og gæta hjá þér.
Þó ég fengi ekki að þekkja þig
þú virðist alltaf geta huggað
mig.
Það er eins og þú sért hér
hjá mér
og leiðir mig um veg.
Þegar tími minn á jörðu hér
liðinn er og þá ég burtu fer,
þá ég veit að þú munt vísa veg
og taka á móti mér.
(Ingibjörg Gunnarsdóttir)
Elska þig.
Þín
Erna Sif.
Kær vinur er fallinn frá.
Við áttum ekki von á því að
við værum að kveðjast í hinsta
sinn, þegar við kvöddumst í
apríl sl.
Stefán starfaði bæði sem vél-
stjóri á sjó og síðar sem véla-
viðgerðarmaður í Vinnslustöð-
inni í Vestmannaeyjum. Kynni
okkar hófust fyrir alvöru þegar
við unnum saman þar. Það var
ómetanlegt að vera vinnufélagi
þinn, alltaf varstu tilbúinn að
fórna þér fyrir starfið, sama
hvort hringt var að degi eða
nóttu, alltaf klár að leysa öll
mál.
Leiðir okkar skildi í VSV og
við stofnuðum okkar eigið fyr-
irtæki, þá var oft hringt í þig að
leita ráða og fá aðstoð, þú
komst með bros á vör og lausn-
ir.
Þrátt fyrir mikla vinnu alla
Stefán Anton
Halldórsson
✝ Stefán AntonHalldórsson
fæddist á Eyr-
arbakka 14. júní
1950. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans 27.
maí 2011.
Stefán var jarð-
sunginn frá Landa-
kirkju 3. júní 2011.
tíð, hafðir þú mjög
gaman af að spila
golf, þar sýndir þú
enn og aftur hvaða
mann þú hafðir að
geyma, aldrei æs-
ingur þó að stefn-
an væri röng eða
púttið ekki í holu.
Elsku Stebbi,
við þökkum þér
fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir
okkur í leik og starfi, betri vin
er ekki hægt að hugsa sér.
Með söknuði og sorg kveðj-
um við góðan vin og vottum
Ernu, Dagmar, Friðriki, Sig-
urði og fjölskyldum þeirra okk-
ar dýpstu samúð.
Viðar Elíasson,
Guðmunda Bjarnadóttir.
Stefán Halldórsson, baader-
maðurinn okkar, er fallinn frá
langt fyrir aldur fram. Ein-
kenni Stebba Halldórs, eins og
hann var jafnan kallaður, voru
glaðværð, dugnaður og hlýja.
Gleðin og hlýjan skein úr aug-
unum þegar hann ávarpaði
mig: „Sæll frændi“, en við
fundum það út í einhverju
spjallinu að við værum fjar-
skyldir ættingjar. Eftir það
kölluðum við hvor annan
frænda.
Stebbi Halldórs unni
Vinnslustöðinni og vildi allt á
sig leggja fyrir fyrirtækið.
Hver einasta fiskvinnsluvél var
hans „baby“, hún átti að snúast
og skila fyrsta flokks flaki, vera
til reiðu hvern einasta morgun,
nýsmurð og beitt. Síldarvélarn-
ar stóðu tilbúnar og biðu eftir
fyrstu síldinni hvert haustið á
eftir öðru, hver og ein klár í
slaginn. Vélarhljóð þeirra var
fullt af gleði og krafti og allar
gengu þær eins og umsjónar-
maður þeirra óskaði eftir.
Hvert einasta viðfangsefni
nálgaðist Stebbi Halldórs með
bros á vör. Það átti jafnt við
þegar mikið lá við og verkefnin
ærin eða þegar hann kom upp á
skrifstofu til að segja mér eitt-
hvað sem honum lá á hjarta.
Erindi hans á skrifstofuna voru
ekki að óska eftir miklu fyrir
sig, heldur hvernig eitt og ann-
að mætti betur fara í starfsem-
inni. Hann fylgdi þeim erindum
eftir með hlýju en ákveðni.
Það er mikil gæfa fyrir
Vinnslustöðina að eiga og hafa
átt starfsmenn eins og Stebba
Halldórs. Starfsmenn sem
leggja metnað sinn og sál í að
hlúa að starfseminni og fram-
gangi félagsins. Félag eins og
Vinnslustöðin er ekkert annað
en árangur af eljusemi þess
fólks sem lagði grunninn að því
sem það er í dag og framtíðin
er fólgin í dugnaði og sam-
viskusemi starfsfólksins.
Höldum minningu Stebba
Halldórs hátt á lofti með því að
fara að dæmi hans og mæta
glöð og reif til verkefna dagsins
og látum nokkur létt skot fljóta
með, með hrossahlátri á eftir.
Fyrir hönd Vinnslustöðvar-
innar og samstarfsfólks votta
ég fjölskyldu Stebba Halldórs
samúð okkar. Blessuð sé minn-
ing hans.
Sigurgeir B. Kristgeirsson.
Legsteinar og fylgihlutir
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar eigin-
konu, móður, ömmu og tengdadóttur,
LILJU JÚLÍUSDÓTTUR,
Ásavegi 32,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B-2 á
Landspítalanum í Fossvogi.
Ólafur Guðmundsson,
Júlía Ólafsdóttir,
Guðmundur Ólafsson,
Helgi Ólafsson,
Birgir Rúnar Óskarsson,
Guðrún Sigurjónsdóttir.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæru
MARGRÉTAR BENEDIKTSDÓTTUR,
Ljósheimum,
áður til heimilis að Árvegi 2,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima og Kumbaravogs
fyrir einstaka umönnun.
Megi Guðs blessun fylgja ykkur öllum.
Guðrún Halldórsdóttir, Valdimar Valdimarsson,
Guðmundur Eiríksson,
Benedikt Eiríksson, Helga Haraldsdóttir,
Ingvar Daníel Eiríksson, Eygló Gunnarsdóttir,
Óli Jörundsson,
Þorbjörg Henný Eiríksdóttir, Bjarni Einarsson,
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
BERGÞÓRU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Húnabraut 7,
Blönduósi.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og umönnun-
arfólks Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi fyrir hjúkrun hinnar
látnu á liðnum árum.
Þórunn Pétursdóttir,
Kristján Rúnar Pétursson,
Pétur Arnar Pétursson, Helga Lóa Pétursdóttir,
Guðrún Soffía Pétursdóttir, Guðjón Guðjónsson,
ömmubörn, langömmubörn og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð, hlýju og vinar-
hug við andlát og útför okkar ástkæru eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SVÖVU ENGILBERTSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við yndislegu starfsfólki Heimahlynn-
ingar og starfsfólki á dag- og lyfjadeild Sjúkrahúss Akureyrar
fyrir alúð og frábæra umönnun.
Gunnar Árnason,
Elísabet Björg Gunnarsdóttir, Sigurgeir Vagnsson,
Björgvin Árni Gunnarsson, Patcharee,
Gunnar Viðar Gunnarsson, Kristín Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
MARGRÉTAR KETILSDÓTTUR,
Hjallalundi 15b,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til Heimahlynningar á Akureyri, kvenfélaga
Akureyrarkirkju og Hörgdæla og kirkjukórs Möðruvallaklausturs-
prestakalls.
Aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlý-
hug og vináttu við andlát og útför móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
AÐALHEIÐAR JÓNU
GUÐMUNDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunar-
heimilisins Eirar.
Anna Júlíana Sveinsdóttir, Rafn A. Sigurðsson,
Einar Sveinsson,
Margrét Heinreksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐMUNDU ÖGMUNDSDÓTTUR.
Starfsfólki líknardeildar á Landspítala Landa-
koti eru færðar bestu þakkir fyrir góða
umönnun.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir,
Ögmundur Gunnarsson, Rannveig Stefánsdóttir,
Gunnar Freyr Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
JENS JÓHANNESSONAR
húsasmiðs,
Löngulínu 7
í Garðabæ.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Guðrún María Harðardóttir.