Morgunblaðið - 06.06.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.06.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 6. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  131. tölublað  99. árgangur  HEIMURINN VÆRI ÖMURLEGUR ÁN KVENNA FLUG- FREYJUR Í 40 ÁR PÁLL VEIDDI FYRSTA LAXINN Í BLÖNDU ORÐIÐ VIRT ÆVISTARF 10 LAXVEIÐIN HAFIN 9BUBBI MEÐ NÝJA PLÖTU 28 Veturinn verður styttri, vorið kemur fyrr og haustin verða mildari hér á landi á komandi áratugum. Orsaka- valdurinn er hlýnandi loftslag. En það verður líka minni snjór og meiri úrkoma og oftar steypiregn þegar líður lengra á 21. öldina. Þurrum dögum mun líklega fækka. Spár gera ráð fyrir að meðaltals- hlýnun við Ísland verði rúmlega 0,2°C á áratug fram undir miðja þessa öld. Meiri óvissa er varðandi hlýnun á síðari helmingi 21. ald- arinnar en spár gera ráð fyrir 1,4°C til 2,4°C hlýnun. Meðalárshiti í Reykjavík verður tæp 7,7°C í lok þessarar aldar ef spár um hlýnun andrúmsloftsins ganga eftir. Það er nálægt því sem meðalárshiti var í Malmö í Svíþjóð frá 1981-1990. Mikið hefur hlýnað á Íslandi frá 1980 og í spá milliríkjanefndar Sam- einuðu þjóðanna um loftslagsbreyt- ingar (IPCC) er því haldið fram að hlýnun verði meiri á norðurslóðum en sunnar á hnettinum. Hlýindin hafa mikil áhrif á lífríkið, ekki síst gróðurinn. Fyrir hvert stig sem hlýnar að ársmeðaltali eykst grasspretta um nálægt 15%. Meðan menn ástunduðu vetrarbeit, einkum sauðfjár, minnkaði heyþörfin að vetri um 15% með eins stigs hita- hækkun. Hlýindin berast hingað með straumum hafs og lofts. Í greinaflokki Morgunblaðsins er í dag og næstu daga fjallað um þau hamskipti sem eru að verða á lands- lagi og lífríki Íslands vegna hlýnandi loftslags. Spáir minni snjó og meira steypiregni  Meðaltalshlýnun rúmlega 0,2°C á áratug fram undir miðja þessa öld Morgunblaðið/RAX Skeiðarárbrú Lengsta brú landsins stendur nú að mestu á þurru og er á sinn hátt táknmynd um afleiðingar hlýnandi loftslags hér á landi. Hamskipti lífríkis og landslags Í Reykjavíkurhöfn í gær var hinn glæsilegi eikarbátur, Hildur frá Húsavík, smíðaður á Akureyri árið 1974. Kvótafrumvörp stjórnvalda voru ræðu- mönnum á sjómannadegi ofarlega í huga um allt land, m.a. forseta Íslands, sjávarútvegsráðherra og útgerðarmönnum. »6 Kvótafrumvörpin skyggðu á sjómannadaginn Morgunblaðið/Árni Sæberg  Áætlaður er fundur formanna þingflokkanna í dag fyrir hádegi þar sem ræðst hvort sumarþing verður haldið eða hvort þinginu lýkur nú á fimmtudag þrátt fyrir mik- inn fjölda stórra mála sem liggja ókláruð hjá því. Þuríður Backman, formaður þingflokks Vinstri grænna, segir að af þeim tveimur frumvörpum um sjávarútvegsmál sem liggja fyrir þinginu sé ljóst að það stóra verði ekki afgreitt á vor- þinginu enda þurfi svo viðamikið frumvarp vandaða yfirferð, um- sagnir og góðan tíma til umræðna, en hún segist búast við að minna frumvarpið verði samþykkt. »2 Stóra málið ekki afgreitt á vorþingi Þuríður Backman  Dregist hefur um of að hleypa Bjargráðasjóði að málum þeirra sem urðu fyrir tjóni af völdum Grímsvatnagossins. Er það mat Sig- urðar Inga Jóhannssonar, þing- manns Framsóknarflokksins, sem beindi fyrirspurn til Jóhönnu Sig- urðardóttur forsætisráðherra síð- asta föstudag um fjárhagslegan stuðning við þá sem hann þurfa í kjölfar gossins. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra segir málefni Bjargráða- sjóðs vera í eðlilegum farvegi. »4 Stjórnvöld draga lappirnar í stuðningi Eldgos Frá öskusvæðinu undir jökli. Morgunblaðið/Eggert 1. hluti af 7 Minnisvarðinn á sandinum 13 Greinileg stígandi í hitanum 13 Óvenjuleg hlýindi á Íslandi 14 Horfur á vaxandi hlýindum… 15 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Tillaga frá efnahags- og skattanefnd Alþingis um fjármögnun almennrar vaxtaniðurgreiðslu er til skoðunar hjá Lögmannafélaginu enda mark- mið tillögunnar að margra mati að komast framhjá bannákvæði stjórn- arskrár um afturvirkni skatta. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir til- löguna forsendubrest á kjarasamn- ingunum og ganga þvert á loforð rík- isstjórnarinnar um að jafna upp á við lífeyrisréttindi félagsmanna ASÍ. Hinn 22. júní verður haldinn fundur hjá ASÍ þar sem metið verður hvort forsendubresturinn sé slíkur að kjarasamningarnir öðlist ekki gildi. Ríkisstjórnin sækir rökstuðning sinn til skattlagningar til viljayfirlýs- ingar sem gefin var út í desember af hlutaðeigandi aðilum, en hvorki fulltrúar Samtaka fjármálafyrir- tækja né ASÍ segjast hafa samþykkt skatt. Yfirlýsingin hafi falið í sér vilja ASÍ og Samtaka fjármálafyrir- tækja til að leita leiða um fjármögn- un almennrar vaxtaniðurgreiðslu. Bæði ASÍ og Samtök fjármálafyrir- tækja eru sammála um að ríkis- stjórnin hafi ekki staðið við loforð um samráð. „Ég gerði þeim grein fyrir því í nóvember að ASÍ myndi aldrei samþykkja það að lífeyrissjóð- irnir yrðu skattlagðir,“ segir Gylfi. MForsendubrestur 4 Kjarasamningar í uppnámi  Ný skattlagning lífeyrisréttinda er forsendubrestur kjarasamninga, segir Gylfi Arnbjörnsson hjá ASÍ  Samtök fjármálafyrirtækja hafa ekki samþykkt þetta Aldrei samþykkt » Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð þegar hún ákvað nýja skattlagningu á lífeyrisréttindi og fjármálafyrirtæki. » Hvorki ASÍ né Samtök fjár- málafyrirtækja samþykkja þessa nýju skattlagningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.