Morgunblaðið - 06.06.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2011
Sannkölluð ævintýraferð, þar sem farþegar skoða og fræðast um einstaklega töfrandi
svæði Tyrklands. Ferðin hefst á 4ra nátta dvöl í Bodrum. Á fimmta degi er flogið til
höfuðborgarinnar Ankara og ekið þaðan til Kappadocia í hinu einstaka landsvæði
Görene þjóðgarðsins sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Það er ævintýri líkast að
skoða þetta landsvæði þar sem meðal annars má sjá álfabyggðir, neðanjarðarþorp á
mörgum hæðum, klaustur
og kirkjur sem víða hafa
verið höggvin í mjúkt berg-
ið. Dvalið í Kappadocia og
Konya í fimm eftiminnilega
daga. Þá er ekið að einu
frægasta náttúruundri Tyrk-
lands, Pamukkale og dval-
ið þar í eina nótt.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Töfrar Tyrklands
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Bodrum - Kos - Ankara - Kappadocia - Konya - Pamukkale
Fararstjóri: Ólafur Gíslason
27. ágúst - 6. september
Netverð á mann
273.200 á mann í tvíbýli
303.100 á mann í einbýli
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3 - 4* hóteli með öllu inniföldu
í Bodrum, hálfu fæði á öðrum stöðum. Kynnisferðir samkvæmt
leiðarlýsingu. Innanlandsflug. Akstur á milli áfangastaða og
íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Sjómannadagurinn var haldinn há-
tíðlegur um land allt í gær með til-
heyrandi ræðuhöldum og skemmti-
dagskrá. Í Reykjavík var haldið upp
á Hátíð hafsins og lögðu margir leið
sína að gömlu verbúðunum þar sem
ýmislegt var um að vera ásamt fjöl-
breyttri skemmtidagskrá á hafnar-
svæðinu.
Ræður vöktu viðbrögð
Haldnar voru ræður sem að þessu
sinni einkenndust einkum af yfirvof-
andi breytingum á stjórnun fiskveiða
og ljóst þykir að sitt sýnist hverjum í
þeim efnum. Meðal ræðumanna í
Reykjavík var Ragnar Árnason, pró-
fessor í fiskihagfræði við hagfræði-
deild Háskóla Íslands, sem sagði
m.a. að þau kvótafrumvörp sem nú
bíða afgreiðslu þingsins muni koll-
varpa gildandi kerfi fiskveiða, verði
þau samþykkt. Greina mátti blendin
og hávær viðbrögð áheyrenda við
ræðu hans.
Í Grindavík var haldin sjómanna-
og fjölskylduskemmtun undir heit-
inu Sjóarinn síkáti og fullyrða má að
líf og fjör hafi verið á hátíðinni alla
helgina, enda um að ræða fjölbreytta
og líflega dagskrá.
Þrátt fyrir að veðrið hafi leikið
landsmenn misjafnlega eru hátíðar-
haldarar samhuga um að vel hafi til-
tekist með dagskrána í ár.
Hátíðarhöld í skugga óvissu
Gleði og óvissa einkenndi skemmtidagskrá landsmanna
Flestir ræðumenn lýstu yfir áhyggjum sökum frumvarpa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavík Á hafnarsvæðinu gátu börnin litið hina ýmsu furðufiska hafsins augum.
Morgunblaðið/ Kristín Ágústsdóttir
Neskaupstaður Þrautþjálfaðir björgunarsveitarmenn buðu börnum upp á siglingu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Sigurliðið í róðrakeppni sem haldin var á Pollinum á Akureyri var
að vonum kátt með árangur sinn og lét gleðin ekki á sér standa við markið.
Ljósmynd/Eyjafréttir
Vestmannaeyjar Þessir ungu menn brugðu á leik í hátíðarhöldunum í Eyjum.
Meðal ræðumanna í Reykjavík í gær var Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Í upphafi ræðu
sinnar vitnaði ráðherrann í sálm Jóns Magnússonar og
sagði daginn vera mikinn hátíðisdag þeirra sem sjávar-
útvegi tengjast sem og þjóðarinnar allrar. Ráðherrann
kom inn á þær lagabreytingar sem lagðar hafa verið
fram á Alþingi af ríkisstjórninni um breytta skipan fisk-
veiðistjórnar í landinu. Jón Bjarnason benti á í ræðu
sinni í gær að á undanförnum áratugum hefur verið í
umræðunni að íslensku sjávarplássin fari halloka fyrir
ósveigjanlegum markaðslögmálum í meðferð aflaheimilda. „Hér eiga sam-
félögin sjálf, íbúar þeirra, mikinn rétt til náttúruauðlindarinnar sem er
fólgin í fengsælum fiskimiðum fyrir strönd byggðarlagsins og þann rétt
ber okkur að virða,“ sagði Jón. Undir lok ræðu sinnar sagði ráðherrann:
„Við munum ekki afhenda fiskveiðiauðlindina, hvorki til einstakra fyrir-
tækja né ríkjasambanda.“ khj@mbl.is
Afhendum ekki fiskveiðiauðlindina
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, var
aðalræðumaður á Patreksfirði í gær. Í ræðu sinni vék
forsetinn m.a. að umræðunni um stjórnun fiskveiða og
sagði hana hvorki þurfa að vera mjög langa né flókna.
„Hvernig mun Vestfjörðum og öðrum sjávarbyggðum
vegna í nýrri skipan? Bendi svarið til verri stöðu hefur
smíði kerfisins líklega brugðist. Slíkur er í raun kjarni
málsins og vert að árétta hann á sjómannadegi,“ sagði
Ólafur Ragnar m.a.
Forsetinn benti á í ræðu sinni að sú skipan sem fest
verður í sessi þurfi að efla samstarfsvilja allra sem helga sjávarútvegi og
fiskvinnslu krafta sína og m.a. þess vegna sé áríðandi að um greinina náist
varanleg sátt til frambúðar. Sökum þess hve samofin sjómennskan hefur
verið Vestfjörðum í gegnum árin sagði herra Ólafur Ragnar að „Vestfirðir
væru prýðilegur prófsteinn á kosti og galla sérhvers kerfis fiskveiðistjórn-
unar. Sú skipan ein mun reynast farsæl til lengdar sem stuðlar að öflugum
sjávarútvegi hér fyrir vestan.“ khj@mbl.is
Verði staðan verri þá hefur kerfið brugðist
Aflaheimildir á Vestfjörðum munu skerðast um 3.700
þorskígildistonn á ári ef fyrirhuguð lög um breytingar á
fiskveiðistjórnunarkerfinu komast að fullu til fram-
kvæmda. Jafngildir þetta samanlögðum aflaheimildum
Drangsness, Bíldudals, Hólmavíkur, Tálknafjarðar,
Brjánslækjar og Suðureyrar. Ef frumvörpin verða að
lögum munu tapast um 100 störf en sjómenn á Vest-
fjörðum eru um 400 og fiskverkafólk um 460 talsins.
Þetta kemur m.a. fram í yfirlýsingu sem Útvegs-
mannafélag Vestfjarða sendi frá sér í gær í tilefni sjó-
mannadagsins og formaður félagsins, Einar Valur Kristjánsson, ritar und-
ir. Vitnar hann þar í meginniðurstöður úttektar sem félagið lét gera á
áhrifum þess að sjávarútvegsstefna stjórnvalda verði lögfest. „Kaldar
kveðjur og nístandi óvissa er sendingin úr Stjórnarráðinu fyrir sunnan í til-
efni sjómannadagsins og með fylgja loforð um að lögfesta bæði fækkun
starfsfólks og kjaraskerðingu í sjávarútvegi. Þetta er dapurlegt og sann-
arlega allt annað en atvinnulíf og launafólk á Vestfjörðum þarf á að halda
á erfiðum tímum,“ segir í yfirlýsingu vestfirskra útvegsmanna. bjb@mbl.is
Um 100 störf tapast á Vestfjörðum
Ræðuhöld voru
einnig á Akur-
eyri í gær þegar
sjómannadag-
urinn var hald-
inn þar hátíðleg-
ur. Geir Kr.
Aðalsteinsson,
forseti bæjar-
stjórnar Akur-
eyrar, flutti ávarp þar sem hann
lagði áherslu á að atvinnulíf lands-
byggðarinnar byggi yfir traustum
undirstoðum. „Snúa þarf við þeirri
þróun sem orðið hefur öll hin síðari
ár og ekki síst síðustu mánuði og
misseri að stoðunum sé kippt undan
atvinnulífi á landsbyggðinni og
störfin öll smám saman soguð á
suðvesturhornið,“ sagði Geir. Í
ræðu sinni benti hann á þau fjölda-
mörgu áföll sem þéttbýlisstaðir
víðsvegar um landið hefðu orðið
fyrir í kjölfar „þess mikla sogkrafts
sem höfuðborgarsvæðið virðist
hafa“. Brýnt sé að breyta þessu og
til þess verði allir að leggjast á eitt.
khj@mbl.is
„Sjómenn eru sómi,
sverð og skjöldur
þjóðarinnar“
Á Ólafsvík fóru jafnframt fram hátíðarhöld í tilefni dagsins og hélt Gylfi
Magnússon fiskverkandi ræðu fyrir viðstadda. Í upphafi ræðu sinnar í gær
rifjaði Gylfi upp sín yngri ár þegar hann m.a. vann við gerð veiðarfæra. Í
ræðunni kom hann jafnframt inn á fiskveiðistjórnunarkerfið og sagði að nú
væru hartnær 30 ár liðin frá þeirri ákvörðun að setja fiskveiðar í kvóta.
Gylfi benti á að sökum mikilla tækninýjunga í fiskveiðum og þróunar í
veiðarfærum hafi verið nauðsynlegt að setja veiðunum hömlur í formi
kvóta. „Það er sama hvaða kerfi hefur verið í gangi, alltaf hafa einhverjir
verið óánægðir. Nú hafa verið lögð fram ný lög á Alþingi um fiskveiði-
kerfið og ekki er útlit fyrir að meiri ánægja verði með það,“ sagði Gylfi í
ræðu sinni og bætti við að „vonandi geta sjómenn og útgerðarmenn aðlag-
ast því eins og áður.“ khj@mbl.is
Óánægja hefur alltaf verið til staðar