Morgunblaðið - 06.06.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2011
Sólin skein skært í efnahags- ogviðskiptaráðuneytinu fyrir
helgi þegar ráðherrann tilkynnti að
stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
hefði samþykkt fimmtu endur-
skoðun efnahags-
áætlunar Íslands og
AGS.
Í tilkynningunnisagði að þar með
stæði íslenskum
stjórnvöldum heil-
mikil lánafyrirgreiðsla til boða.
En hvað var sagt um endur-skoðun AGS áður en lands-
menn kusu í vor um Icesave?
Á vef stuðningshóps Icesave-samninganna var fullyrt að
samkomulag um Icesave væri „ein
af forsendum samstarfsáætlunar-
innar við AGS og fjármögnunar
vinaþjóða á henni.“
Þetta er einnig sá áróður semglumdi dagana, vikurnar og
mánuðina fyrir Icesave-kosning-
arnar í eyrum kjósenda úr stjórn-
arráðinu.
Fjöldi manna lét glepjast afáróðrinum og skyldi engan
undra. Fólk á því ekki að venjast að
stjórnvöld beiti slíkum vinnubrögð-
um við að fá sitt fram. Að ekki sé
talað um þegar unnið er að hags-
munum erlendra ríkja og gegn
hagsmunum Íslendinga.
Stjórnvöld áttu í samskiptum viðAGS, erlend matsfyrirtæki og
aðra erlenda aðila fyrir Icesave-
kosningarnar.
Þau hefðu því átt að vita betur oghljóta að ætla sér að útskýra
hvernig á því stendur að engin af
hrakspánum hefur gengið eftir.
Árni Páll Árnason
Hrakleg útreið
hrakspánna
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.6., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 6 heiðskírt
Akureyri 5 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 léttskýjað
Vestmannaeyjar 8 heiðskírt
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 25 heiðskírt
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 25 skýjað
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 11 skýjað
London 15 skúrir
París 25 léttskýjað
Amsterdam 18 skýjað
Hamborg 26 léttskýjað
Berlín 28 léttskýjað
Vín 26 léttskýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 18 skúrir
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 12 alskýjað
Montreal 17 alskýjað
New York 20 skýjað
Chicago 25 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:11 23:43
ÍSAFJÖRÐUR 2:17 24:46
SIGLUFJÖRÐUR 1:57 24:33
DJÚPIVOGUR 2:29 23:23
EM U21-árs landsliða
í knattspyrnu fer
fram í Danmörku
11. - 25. júní.
Aron Einar
Gunnarsson er
ein af hetjum
íslenska U21
landsliðsins.
Í vor hófu Byggðasafn Reykjanes-
bæjar og Fornleifafræðistofan ann-
an hluta fornleifarannsókna á land-
námsskála við Kirkjuvogskirkju í
Höfnum. Farið var í fyrsta áfangann
árið 2009 en þá kom í ljós að um
mjög áhugaverðar minjar væri að
ræða. Þær hafa verið aldursgreindar
til 8.-9. aldar. Rannsókninni lýkur
næsta föstudag. „Þessa síðustu viku
stefnum við að því að klára það sem
við höfum opnað og það er um það
bil hálfur skálinn sem bætist við
þriðjung sem þegar er klár. Við er-
um komin niður á gólfin og eigum
eftir að éta okkur í gegnum þau en
gólfin eru mjög þykk þannig að það
yrði gott ef við næðum að klára það
alveg. Á föstudaginn munum við síð-
an tyrfa yfir,“ segir dr. Bjarni F.
Einarsson fornleifafræðingur sem
stýrir rannsókninni. „Svo er það
hefðbundin skýrslugerð sem tekur
við og ég sendi sýni utan til grein-
ingar til að staðfesta þennan háa ald-
ur.“
Merkilegir gripir hafa fundist í
skálanum, m.a perlur, hnífar, bein
og heill kvarnarsteinn, efri hluti.
„Það allra merkilegasta eru hálf-
unnin búrhvalstönn og leirker sem
aldrei áður hefur fundist í vík-
ingaskála á Íslandi,“ segir Bjarni.
Hann segir rannsóknina snúast
um það að skilja betur sjálft land-
námið, hverjar voru forsendur þess.
„Vinnukenningin er sú að menn
þekktu til Íslands löngu áður en þeir
fóru að nema það.“ ingveldur@mbl.is
Tyrfa yfir rústirnar á föstudaginn
Síðasta vikan í fornleifarannsókninni í Höfnum Skilja landnámið betur
Fornleifar Frá vettvangi rann-
sóknar við Kirkjuvogskirkju.
Árlegt kvennahlaup ÍSÍ, kennt við Sjóvá, fór fram um helgina í 22. sinn.
Um 15 þúsund konur tóku þátt á 84 stöðum um allt land og á um 18 stöðum
erlendis. Um fimm þúsund konur hlupu í Garðabænum, um 1.700 í Mos-
fellsbæ, sem er fjölgun um 400 milli ára. Þá hlupu 650 konur á Akureyri og
um 400 konur erlendis. Boðið var upp á mismunandi vegalengdir, allt frá 2
km og upp í 20 km. Áður en lagt var af stað voru hlaupavöðvarnir hitaðir
upp, eins og í Mosfellsbæ þar sem ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
15 þúsund hlupu á um
100 stöðum um heim allan