Morgunblaðið - 06.06.2011, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2011
Hamskipti lífs og lands
1 Mánudagur 6. júníHitinn vex og vex
Mikið hefur hlýnað hér á landi á undanförnum
árum.Vísindamenn spá áframhaldandi hlýnun
út þessa öld. Svonefnd gróðurhúsaáhrif
bætast við náttúrulegar sveiflur í veðurfari.
Áhrifa aukinna hlýinda gætir víða í náttúrunni.
2 Þriðjudagur 7. júníViðkvæmu sílaæturnar
Varp lundans í Vestmannaeyjum hefur
misfarist mörg ár í röð og hið sama má
segja um kríuna á Snæfellsnesi. Þetta á við
víðar. Báðar tegundir reiða sig á sandsíli
við ungauppeldi.
3 Miðvikudagur 8. júníHlýnun sjávar hefur áhrif
Nýliðun sandsílis brást árin 2005 og 2006
og hefur að mestu verið lélegt síðan.
Ýmsar skýringar eru uppi um ástæður, m.a.
hækkun á sjávarhita en hann hefur hækkað
mikið frá árinu 1996.
4 Fimmtudagur 9. júníFækkar í björgunum
Niðurstöður fuglatalninga sýna að bjargfugli
hefur fækkaðmjög frá árinu 2005. Ástandið
er mismunandi eftir stofnum.Álkan er
t.d. að hverfa af Hornströndum. Stór hluti
heimsstofnana halda sig hér við land.
5 Föstudagur 10. júníJöklarnir bráðna ört
Jöklar landsins bráðna hratt í hlýindunum.
Nýtt landslag kemur undan jökulsporðunum
þegar þeir hörfa. Farvegir jökulfljóta
breytast. Breytingarnar erumjög greinilegar
til dæmis við sunnanverðanVatnajökul.
6 Laugardagur 11. júníMikill vöxtur í gróðri
Gróðurinn tekur vel við sér þegar hlýnar í
veðri. Sjálfsáið birki og víðir spretta nú upp
víða um land, þökk sé auknum hlýindum og
beitarfriðun. Með hærri hita hækka gróður-
mörk og öll ræktun skilar betri árangri.
7 Þriðjudagur 14. júníHristi af sér pöddufælni
Með hærra hitastigi batna lífsskilyrði
smádýra. Pöddur sem áður bárust hingað
og drápust úr kulda þrífast nú vel. Meðal
þeirra eru skaðvaldar. Þeir sem eru með
pöddufælni ættu að hrista hana af sér.
Gróðurhúsaáhrifin
Mönnum hefur lengi verið ljóst að
svonefndar gróðurhúsalofttegundir í
lofthjúpi jarðar hafa þau áhrif að hitastig á
jörðinni hækkar með auknum styrk þeirra.
Vísindamenn hafa lengi varað við þróuninni.
Komandi kynslóðir Íslendinga mega vænta
hlýnandi loftslags, einkum á veturna, og
fleiri úrkomudaga ef svo fer sem horfa þykir
um loftslagsbreytingar. Vetur munu stytt-
ast, vorin koma fyrr og haustin verða mild-
ari. Það mun rigna meira og snjóa minna.
Áhrifa hlýinda undanfarinna ára gætir nú
þegar í náttúrunni. Mikil gróska er í jarðar-
gróða. Sjálfsprottið birki og víðir spretta
upp á nýjum svæðum og er það m.a. rakið
til hlýnunar auk beitarfriðunar. Hlýindin hafa
líka aukið árangur af landgræðslu, skóg-
rækt og annarri ræktun. Breytingar á jökl-
um eru líka mjög áberandi.
Sjávarhiti hefur hækkað meira og örar við
Íslandsstrendur en menn bjuggust við.
Breytingar á lífríkinu í sjónum, svo sem
brestur á viðkomu sandsílis við suður- og
vesturströndina, hafa haft afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir sjófuglastofna á borð við
lunda og kríu á þeim slóðum. Sumum fugla-
tegundum hefur fjölgað mikið, t.d. gæsum,
og nýjar tegundir hafa numið land.
Smádýr af ýmsu tagi eru að sækja í sig
veðrið og ljóst að pöddum innandyra og ut-
an mun fjölga. Nýir skaðvaldar á borð við
asparglyttu og spánarsnigil eru boðberar
þess sem kann að gerast.
Morgunblaðið fjallar í dag og
næstu daga um þau hamskipti
sem eru að verða á landslagi
og lífríki Íslands vegna hlýn-
andi loftslags.
Blaðamennirnir Guðni Ein-
arsson og Rúnar Pálmason
byrja greinaflokkinn með um-
fjöllun um breytingar í lofts-
lagi og hvers má vænta í fram-
tíðinni, að mati vísindamanna.
Næstu daga verður greint
frá miklum breytingum sem
eru að verða í fuglalífi lands-
ins, auknum sjávarhita og
áhrifum hans á lífríkið í sjón-
um, mikilli grósku í jarð-
argróða landsins ekki síst
skógum landsins. Í lokin verð-
ur fjallað um miklar breyt-
ingar í smádýralífi landsins.
Lífið og
landið taka
hamskiptum
Hamskipti lífríkis og landslags
Morgunblaðið/Elín Esther