Morgunblaðið - 06.06.2011, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2011
Fjölmargir koma fram á plöt-
unni og auk þeirra sem þegar
eru nefndir í viðtali við Bubba
skal þessara getið: Ingi Björn
Ingason bassaleikari, Kristinn
Snær Agnarsson trommuleik-
ari, Jóel Pálsson, Óskar Guð-
jónsson og Ragnar Árni
Ágústsson saxófónleikarar, Ari
Bragi Kárason og Kjartan Há-
konarson trompetleikarar,
Kristjana Stefánsdóttir, Rósa
Guðrún Sveinsdóttir, Bjarki
Sigurðsson, Íris Hólm og Stef-
anía Svavarsdóttir, bakraddir,
og Eyþór Gunnarsson á slag-
verk.
Ýmsir
flytjendur
PLATAN
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Ég trúi á þig er ný plata með Bubba
Morthens, en útgáfuna ber upp á
55. afmælisdag listamannsins, 6.
júní. Tólf lög eru á plötunni og
Bubbi er höfundur bæði laga og
texta. Hann segir plötuna vera ólíka
fyrri plötum sínum. „Á þessari plötu
er svokölluð soul-tónlist en soul-
tónlistin varð til upp úr 1955 við
samruna gospel-tónlistar og rhythm
and blues-tónlistar,“ segir Bubbi. „Í
grófum dráttum er þessi plata ekki
ósvipuð þeim hljóðheimi sem var í
gangi í kringum 1955-1969. Það er
dálítið skrýtið að vera að tala árið
2011 um tónlist sem hefur kannski
ekki verið flutt hér á landi svona
hreinræktuð áður, en svona er
þetta.“
Dóttir Bubba meðal flytjenda
Spurður um flytjendur á plötunni
segir Bubbi: „Auðvitað kemur sæg-
ur af fólki að þessari plötu og bræð-
urnir Börkur og Daði sem reka
Benzin Musik/Stúdíó Sýrland sáu
um að fá mannskap til þess að flytja
tónlistina. Þeir bræður sáu um upp-
tökustjórn og hljóðblöndun, Daði
sér um hljómborðsleik og Börkur
um gítarspil. Eitt einkenni á tónlist-
inni á þessari plötu er mikil notkun
á blásturshljóðfærum, en um út-
setningu sá meistari Samúel í Jagú-
ar.“
Elsta dóttir Bubba, Gréta, sem er
átján ára syngur með honum í lagi
sem heitir Háskaleikur. „Það má
segja að þetta sé frumraun hjá
henni,“ segir Bubbi. „Ég bað hana
að syngja með mér vegna þess að
mér þykir hún hafa sérkennilega
fallega rödd. Ég er mjög glaður að
hún skyldi þora. Þetta er ekki auð-
velt að taka það skref að syngja
með pabba sínum. Aðrir söngvarar
koma einnig við sögu því engin soul-
plata er þannig að ekki séu hafðar
raddir eða kórar með. Á þessari
plötu eru margar raddir og er
Kristjana Stefánsdóttir djass-
söngkona mjög áberandi.“
Bjartsýnir textar
Um hvaða fjalla textarnir á þess-
ari plötu?
„Þeir eru meira og minna óður til
lífsins. Strangt til tekið mætti segja
að einn textinn hafi trúarlegan tón.
Hann hefur heitið Vitund þín við
vatnið. Svo kemur:
Vatnið er eins og gler
andardráttur Guðs um dalinn fer.
Fyrir ástina drottinn
ég þakka þér.
Fyrst og fremst eru þetta textar
sem eru fullir af bjartsýni og fjalla
um æsku, ást, sannleika og kær-
leika. Einn er eins konar barnagæla
til tveggja ára dóttur minnar. Ætli
ástin sé ekki leiðarstef í þessum
textum. Það eru gömul og góð sann-
indi að þegar upp er staðið þá er
ekkert merkilegra en ástin. Menn
geta þvargað um allt milli himins og
jarðar en þegar öllu er á botninn
hvolft hafa öll stærstu skáld ver-
aldar alltaf verið að fjalla um ástina,
hvort sem þau sömdu epískar skáld-
sögur eða ortu ljóð.“
Þú hefur alltaf fjallað mikið um
konur í textum þínum.
„Ég hef alltaf verið elskur að kon-
um. Mér þykja konur vera eitt
mesta undur jarðkringlunnar. Ég
get ekki annað en verið óendanlega
þakklátur æðri mætti og hlutdeild
hans í að skapa konuna. Þetta væri
alveg ömurlegur heimur ef konur
væru ekki til. Já, þvílík ömurlegheit
væru það ekki!“
Forvitnilegt að eldast
Hvernig tilhugsun er það að vera
55 ára?
„Ég trúi því ekki sjálfur að ég sé
orðinn 55 ára. Ég tel það vera
svæsna lygi en mér hefur gengið al-
veg bölvanlega að afsanna hana. Ég
verð líklega að sætta mig við það að
ég sé orðinn þetta gamall. Allavega
er ég farinn að finna fyrir því að ég
sippa ekki lengur af sama yndis-
þokka og áður.“
Sumum finnst gaman að eldast,
öðrum finnst það erfitt. Hvað finnst
þér?
„Mér þykir það forvitnilegt.
Fyrst og fremst vegna þess að ég er
að upplagi gríðarlega forvitinn. Ég
óska þess að verða allra karla elst-
ur. Ég á mér takmark: mig langar
til að verða eins og Thor Vilhjálms-
son eða Rafn Hafnfjörð, tveir menn
sem mér þótti afar vænt um og taldi
vera kunningja mína. Þeir voru báð-
ir á svipuðum aldri og ótrúlega flott-
ir andlega og líkamlega og svo fóru
þeir á stórkostlegan máta, þurftu
ekki að liggja í kör og veslast upp
heldur dóu eins og hetjur í grískum
gullaldarbókmenntum. Ef ég fæ að
eldast eins og þeir þá óttast ég ekk-
ert. Ég hef óttast að verða lasburða
gamalmenni og held reyndar að það
sé nokkuð sem allir óttist innst inni.
Þess vegna er ég svona óskaplega
duglegur við að hreyfa mig, því auð-
vitað reynir maður að setja hælinn í
svörðinn í brekkunni. Það er mikil-
vægt að fara ekki í frjálsu falli niður
heldur spyrna í.“
Morgunblaðið/Ernir
Bubbi „Ég trúi því ekki sjálfur að ég sé orðinn 55 ára. Ég tel það vera svæsna lygi en mér hefur gengið alveg bölvanlega að afsanna hana.“
Óður til lífsins
Ný plata frá Bubba Morthens Hreinræktuð soul-tónlist Ástin er leiðarstef í textunum
Dóttir Bubba syngur með honum í einu lagi Platan kemur út í dag, á afmælisdegi Bubba
„Ég hef alltaf verið elskur að konum. Mér þykja konur
vera eitt mesta undur jarðkringlunnar. Ég get ekki
annað en verið óendanlega þakklátur æðri mætti og
hlutdeild hans í að skapa konuna. Þetta væri alveg
ömurlegur heimur ef konur væru ekki til. Já, þvílík
ömurlegheit væru það ekki!“