Morgunblaðið - 06.06.2011, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 157. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Íslendingar slást í Noregi
2. Funheit Pippa hljóp 5 kílómetra
3. Dýrt fyllirí hjá Dana
4. Eiður: Skemmtilegra fyrir þá…
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fjórða plata ensku hljómsveitar-
innar Arctic Monkeys kemur út í dag
og gítarleikarinn Alex Turner segir að
hún sé ólík þeirri síðustu. Sveitin
vann plötuna í samvinnu við upp-
tökustjórann John Ford. »29
Reuters
Hafa aparnir lært
nýjar kúnstir?
Stúlknakór
Reykjavíkur hélt
um helgina í tón-
leikaferð til Berl-
ínar, Hamborgar
og Kaup-
mannahafnar.
Kórinn heldur
fimm tónleika
undir stjórn Mar-
grétar Pálmadóttur. Margrét fer síð-
an með kvennakórnum Vox feminae
til Ítalíu, m.a. til Piacenza þar sem
tónleikum kórsins verður sjónvarpað.
Margrét Pálmadóttir
gerir víðreist
Kvikmyndin Reykjavík Whale
Watching Massacre var frumsýnd í
Tókýó í Japan á laugardaginn var.
Japanska leikkonan Nae Yuki, sem
leikur stórt hlutverk í
kvikmyndinni, er
mjög þekkt í heima-
landi sínu og mynd-
in hefur því vakið
mikla athygli í
landinu, að
sögn Júlíusar
Kemp, leik-
stjóra hennar.
Hefur vakið mikla
athygli í Japan
Á þriðjudag Norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum víðast
hvar og jafnvel stöku skúrir. Hiti yfirleitt 4 til 10 stig.
Á miðvikudag Norðaustan 5-10 m/s, skýjað með köflum og stöku
skúrir norðan- og austanlands. Hiti breytist lítið.
VEÐUR
„Vissulega er möguleikinn á
HM-sæti góður eftir þennan
sigur, því er ekki að leyna,“
segir Ágúst Jóhannsson,
landsliðsþjálfari kvenna í
handknattleik, eftir 19
marka sigur á Úkraínu,
37:18, í fyrri viðureign þjóð-
anna í undankeppni heims-
meistaramótsins í gær. Yf-
irburðir íslenska liðsins
voru algjörir og Guðný
Jenný Ásmundsdóttir fór
hamförum í markinu. »2
Landslið Úkraínu
var kjöldregið
„Að enda tímabilið með jafnmörg
stig og Kiel, meistararnir frá því í
fyrra, er fyrir okkur ótrúlegur árang-
ur,“ segir Dagur Sigurðsson, þjálfari
þýska 1. deildarliðsins Füchse Berlin
en undir hans stjórn tryggði liðið sér
sæti í Meistaradeild Evrópu í
handknattleik á
næstu leiktíð í
fyrsta sinn í
sögu sinni. »7
Með Berlínarrefina í
Meistaradeildina
Landsliðsþjálfari Íslands í íshokkí,
Olaf Eller, hefur fengið þrjá íslenska
landsliðsmenn til liðs við danska fé-
lagið Amager. Liðið leikur í næstefstu
deild í Danmörku og Eller þjálfar lið-
ið. Um er að ræða þá Jón Benedikt
Gíslason, fyrirliða SA, Brynjar Þórð-
arson sem lék með Gladsaxe í Dan-
mörku og Jónas Breka Magnússon
sem snýr aftur úr ársfríi. »1
Þrír Íslendingar til liðs
við Amager í Danmörku
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kristjan H. Johannessen
khj@mbl.is
Nýverið voru veitt verðlaun fyrir
Fræ ársins 2011 og hlaut hugmynd
Rakelar Sölvadóttur og Laufeyjar
Dísar Ragnarsdóttur, „Börnin í
undralandi tölvuleikjanna,“ fyrstu
verðlaun að þessu sinni. Rakel og
Laufey eru báðar tölvunarfræðingar
að mennt og stunda nám í sálfræði við
Háskólann í Reykjavík. Að keppninni
standa Háskólinn í Reykjavík, Klak,
Össur, Samtök iðnaðarins, Lands-
virkjun og Eyrir Invest. Hugmynd
þeirra miðar að því að hanna og þróa
leiðir til að kenna börnum á fyrstu
stigum grunnskólans forritun í formi
tölvuleikja. Aðspurð hver sé upp-
spretta hugmyndarinnar sagði Rakel
hugmyndina hafa kviknað við verk-
efnagerð í þroskasálfræði þar sem
þær hafi viljað rannsaka hvort sex og
níu ára gömul börn gætu lært for-
ritun og þá einnig hvort börnin hefðu
yfirhöfuð áhuga á slíkri kennslu. Um
var að ræða 30 mínútna kennslustund
og að henni lokinni fengu börnin val
um 15 mínútur í viðbót. „Börnin
sýndu þessu mjög mikinn áhuga og
vildu alltaf fá þennan aukatíma,“ seg-
ir Rakel. Notast var við þrívíddar-
forritunarumhverfi og ómeðvitað
læra börnin hlutbundna forritun í
leiðinni.
Í undralandi tölvuleikjanna
Vilja stuðla að kennslu í forritun í formi tölvuleikja fyrir börn á grunnskólaaldri
Lagt er upp með að halda sumarnámskeið í forritun fyrir grunnskólabörn
Ljósmynd/HR
Verðlaun Laufey Dís Ragnarsdóttir
og Rakel Sölvadóttir kampakátar.
Fræ ársins 2011
» Skema er fyrirtæki sem
stofnað hefur verið til að vinna
með og þróa hugmynd Rakelar
og Laufeyjar.
» Lagt er upp með að sérhæfa
sig í rannsóknum og kennslu
barna á grunnskólaaldri.
» Unnið er með sálfræði og
tölvunarfræði að leiðarljósi.
» Stefna að því að 70%
grunnskólabarna njóti forrit-
unarkennslu innan þriggja ára.
Hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fór fram um helgina í Reiðhöll-
inni í Víðidal. Þangað var mætt með 610 hreinræktaða hunda af 77 hunda-
tegundum í dóm. Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá
ræktunarmarkmiðum og leiðbeina ræktendum þannig í vinnu sinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fallegir ferfætlingar í fegurðarsamkeppni
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað norðvestantil á landinu og úrkomulít-
ið norðantil, en léttskýjað syðra. Hiti 3 til 9 stig norðantil en 5-12
stig sunnantil, svalast nyrðra.