Morgunblaðið - 07.06.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
Íbúðalánasjóður varði yfir hálfum
milljarði í þjónustu ýmissa sérfræð-
inga á árunum 2001-2008. Lögfræði-
aðstoð var stór hluti þessa og fékk
Árni Páll Árnason, efnahags- og við-
skiptaráðherra, tugi milljóna frá
sjóðnum fyrir ráðgjöf um Evrópumál
á árunum 2004-2008. Árni Páll fékk
áfram greitt frá sjóðnum eftir að
hann var kjörinn á þing.
Á árunum 2001-2008 varði Íbúða-
lánasjóður tæpum 556 milljónum í
ýmsa sérfræðiaðstoð, m.a. arkitekta-
þjónustu, þýðingarþjónustu og ráð-
gjöf af ýmsu tagi. Lögfræðiþjónusta
var nokkuð umfangsmikill útgjalda-
liður sjóðsins á umræddu árabili, en
rúmar 69 milljónir runnu til 13 lög-
fræðinga og lögfræðistofa. Að öllu
jöfnu fóru viðskiptin ekki oftar fram
en einu sinni við hvert fyrirtæki.
Undantekning frá því eru viðskipti
Íbúðalánasjóðs við fyrirtækið Evr-
ópuráðgjöf, sem er í eigu Árna Páls
Árnasonar, efnahags- og viðskipta-
ráðherra, en sjóðurinn keypti þjón-
ustu fyrirtækisins fimm sinnum á ár-
unum 2004-2008 og að auki var í eitt
skipti greitt fyrir lögfræðiaðstoð í
nafni Árna Páls.
Alls námu greiðslurnar til Evrópu-
ráðgjafar og Árna tæpum 39 milljón-
um, sem eru um 56% alls þess sem
sjóðurinn greiddi fyrir lögfræðiþjón-
ustu á téðu tímabili.
Kaup á sérfræðiaðstoð voru rúmar
29 milljónir árin 2001 og 2002, upp-
hæðin jókst lítillega árið 2003 en jókst
síðan mikið á milli áranna 2003 og
2004, eða um rúmar 70 milljónir og
varði sjóðurinn rúmum hundrað
milljónum króna í sérfræðiaðstoð árið
2004.
Nokkur fyrirtæki fá greitt fyrir
sérfræðiaðstoð öll árin. Meðal þeirra
eru KPMG og Fjármálaeftirlitið.
Athygli vekur mikil hækkun á
eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins.
Árið 2001 greiddi sjóðurinn 526 þús-
und krónur fyrir eftirlitið, 2002 voru
greiddar 767 þúsund krónur og gjald-
ið árið 2003 var 925 þúsund krónur.
Árið 2005 hækkaði það í rúmar
fimm milljónir króna, 2006 voru
greiddar 7,8 milljónir króna og árið
2007 10 milljónir. Árið 2008 var gjald
Íbúðalánasjóðs til FME fyrir eftirlit
síðan komið í tæpar sextán milljónir
króna. annalilja@mbl.is
Háar fjárhæðir
til sérfræðinga
Sérfræðiþjónusta 550 milljónir kr.
Íbúðalánasjóður varði tugum milljóna
í Evrópuráðgjöf frá Árna Páli Árnasyni
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Viðræður verða milli fjármálaráðuneytisins og
Alþýðusambands Íslands fyrir 22. júní, um fyr-
irhugaða skattlagningu á lífeyrissjóðina til að
standa straum af sérstakri vaxtaniðurgreiðslu.
Þann dag tekur ASÍ afstöðu til gildis kjara-
samninganna frá 5. maí.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, var harðorð-
ur í Morgunblaðinu í gær og sagðist aldrei sam-
þykkja skatta á lífeyrissjóðina. Stjórnvöldum
hefði verið gerð grein fyrir því. Ekkert samráð
hefði verið haft við ASÍ, aðgerðin væri einhliða
af hálfu ríkisstjórnarinnar og til þess gerð að
skerða réttindi fólks á almennum vinnumarkaði.
Það gengi þvert á gefin loforð. Skattur á lífeyr-
issjóði jafngilti brostnum forsendum kjara-
samninga.
Samkomulag sem gæti orðið dýrkeypt
„Það stendur nú ekki til að skattleggja lífeyr-
issjóði. Við höfum verið að leita leiða til að efna
það samkomulag sem gert var um skuldaað-
gerðinar í des., að bankar og lífeyrissjóðir leggi
af mörkum í þessa aðgerð,“ segir Steingrímur
og vísar til þess að aðgerðin sé ekki varanleg.
„Þetta er náttúrlega algerlega tímabundin
ráðstöfun og það sem er í frumvarpinu núna er
bara fyrir þetta ár. [...] En við geymum okkur
bara næsta ár, að ákveða hvernig við leysum
það,“ segir Steingrímur. Þar að auki sé nú miðað
við að lífeyrissjóðir borgi aðeins 40% á móti
bönkunum. Sýndur hafi verið mikill vilji til að
koma til móts við þá. Löglegan grundvöll þurfi
undir greiðslur sjóðanna. Hann samsinnir því þó
að þetta geti orðið dýrkeypt ef það sprengir
kjarasamningana, en ítrekar að samkomulag
hafi verið um að leita leiða til fjármögnunar.
Steingrímur hafnar hins vegar ásökunum um
samráðsleysi og einhliða aðgerðir. „Ég ræddi
þetta auðvitað við lífeyrissjóði og samtök fjár-
málafyrirtækja, áður en þetta ákvæði kom fram.
Það eru jú þeir sem maður snýr sér til, en ekki
forseti ASÍ.“
Ekki víst að neinn skattur verði lagður á
En eru það ekki umbjóðendur forseta ASÍ, fé-
lagsmennirnir, sem eiga sjóðina?
„Jú, jú, en lífeyrissjóðirnir eru náttúrlega
sjálfstæðir aðilar sem koma fram fyrir sína
hönd, eðli máls samkvæmt eigum við samskipti
við samtök lífeyrissjóða um þessa hluti. Síðan
höfum við sagt að við erum alveg tilbúin til að
skoða þetta í ljósi þess hvernig önnur fjáröflun
gengur á árinu. Þannig að það er með þeim fyr-
irvara af okkar hálfu,“ segir Steingrímur. Það er
því ekki fullvíst að af skattlagningu á sjóðina
verði, segir hann. Það geti farið eftir því hvernig
tekjuöflun ríkisins gangi á árinu.
Ræða við ASÍ um lífeyrisskatt
Steingrímur hyggur á viðræður við ASÍ fyrir 22. júní, þegar tekin verður afstaða til kjarasamninga
Ekki víst að af skattlagningu á lífeyrissjóðina verði, fyrirvari um hvernig önnur tekjuöflun gangi
„Við höfum sýnt mikinn
vilja til að reyna að
lenda þessu á einhvern
þolanlegan máta.“
Steingrímur J. Sigfússon
BAKSVIÐS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Þetta er pólitísk atlaga. Fyrstu
pólitísku réttarhöldin í Íslandssög-
unni verða staðreynd. Sjálft Alþingi
Íslendinga hefur verið misnotað í
þeim tilgangi að koma höggi á einn
mann.“ Þetta sagði Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, á
blaðamannafundi í gær. Þar ræddi
hann þingfestingu máls Alþingis
sem fer fram í landsdómi í dag, þar
sem honum er gefið að sök að hafa
brotið gegn ráðherraábyrgð í að-
draganda bankahrunsins. Geir mun
fara fram á frávísun málsins og
segist sannfærður um að verða
fundinn sýkn saka. Hann hefur ým-
islegt við meðferð málsins að at-
huga og segir að ýmist sé farið eftir
ákvæðum landsdómslaga eða laga
um meðferð sakamála.
Við ofurefli að etja
Geir sagði þær tafir sem orðið
hafa á málinu leiða til mikils kostn-
aðar fyrir alla sem að málinu koma
og sagði kostnað sinn þegar vera
orðinn um níu milljónir. „Hjá sak-
sóknara Alþingis starfa tveir sak-
sóknarar, auk aðstoðarfólks. Fyrir
varnaraðilann er því við mikið ofur-
efli að etja,“ sagði Geir. Hann sagð-
ist hafa upplýsingar um að málið
gæti dregist á langinn, jafnvel fram
á næsta ár og að ekki verði hægt að
taka fyrir frávísunarkröfu hans í
dómnum fyrr en í september.
Engin rannsókn
Hann sagði málið vera höfðað á
grundvelli skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis, engin önnur
rannsókn hefði farið fram. Þá sagð-
ist Geir telja að Alþingi hefði mis-
beitt valdi sínu með því að sam-
þykkja nýlega lög þar sem umboð
tiltekinna dómara í landsdómi var
framlengt, en það átti að renna út í
vor.
Sigríður J. Friðjónsdóttir, sak-
sóknari Alþingis í málinu, segir
að ekki hafi verið gert ráð fyrir
því að fara út í rannsókn
„vegna hinnar miklu rann-
sóknar sem rannsóknar-
nefnd Alþingis var búin að
ljúka“.
„En auðvitað er þetta
óvenjulegt mál að mörgu
leyti,“ segir Sigríður.
Hún segir að málið hafi
vissulega gengið hægar en
hún hefði viljað, ástæða þess hafi
m.a. verið tímafrek gagnaöflun.
„Við þurftum að fara fyrir dómstóla
til að fá gögn, bæði vegna andmæla
Geirs, Þjóðskjalasafnsins og forsæt-
isráðuneytisins. En menn eiga rétt
á að mótmæla og bera ágreining
undir dómstóla.“
„Fyrstu pólitísku
réttarhöld Íslands“
Segir Alþingi notað í þeim tilgangi að koma höggi á sig
Geir sagði ákæruskjalið meira
og minna vera samhljóða þeirri
ályktun sem Alþingi samþykkti
sl. haust. Þá hefðu verið lagðar
fram 3700 blaðsíður af fylgi-
skjölum. „Ég skil ekki hvað
er verið að gera með
þetta, það er engin
greinargerð og því er eng-
inn rökstuðningur með
ákærunni. Það er erfitt að
verjast ákæru sem maður
veit ekki á hvaða rökum
er reist,“ sagði Geir.
Skortir
rökstuðning
ENGIN GREINARGERÐ
Geir H.
Haarde
Morgunblaðið/Kristinn
Bakþankar Geir spyr hvort einhverjir þeirra, sem ábyrgð bera á málshöfðuninni, hafi fengið bakþanka. Hann vísaði
í viðtal við Steingrím J. Sigfússon í norsku dagblaði, þar sem hann segir rangt að Geir sé einn fyrir landsdómi.
Audi A6 4.2 Quattro
Sérlega vel útbúinn umboðsbíll
Nýskráður 12.12. 2005, ekinn: 57.000 km
Ásett verð: 5.650.000 kr.
Tilboðsverð: 4.990.000 kr. stgr.
HEKLA
NOTAÐIR
BÍLAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.