Morgunblaðið - 07.06.2011, Page 8
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Það var hroðalega kalt í morgun,
norðanbál og áin ekki nema þrjár
gráður,“ sagði Bjarni Júlíusson, for-
maður Stangaveiðifélags Reykjavík-
ur, í veiðihléinu við Norðurá í gær,
þar sem stjórn félagsins hóf veiðar á
laugardag. Hann bætti við að þrátt
fyrir kuldann hefðu þrír laxar veiðst
á vaktinni og væru því átta alls
komnir á land, því fimm veiddust á
laugardag.
„Þessir þrír veiddust á Eyrinni,
Brotinu og Stokkhylsbroti og það er
svo ánægjulegt að nú hafa allir
stjórnarmennirnir fengið lax. Það er
því rífandi góð stemning í hópnum,“
sagði Bjarni.
Sólin skein í blæstrinum í gær og
vonaðist hann því til að ef vatnið
hlýnaði eitthvað héldi takan áfram.
Einn laxanna var grálúsugur sem
þýðir að fiskur er að ganga í ána.
„Það þýðir ekkert annað en að
veiða djúpt og með einhverju þungu
í þessum aðstæðum,“ sagði Bjarni.
„Árni Friðleifsson fékk áðan laxinn
á Stokkhylsbroti og hann var með
sökklínu og nánast skrapaði botn-
inn.“
Dauft og kalt
Ekki var síður kalt á veiðimönn-
unum við Blöndu í gær. Lengi fram
eftir morgunvaktinni lét lax ekkert
á sér kræla en þegar stórlax bylti
sér loksins á Breiðunni kastaði Þór-
arinn Sigþórsson tannlæknir flugu
fyrir hann og sá tók. Viðureignin
stóð í nokkra stund áður en laxinn
lak af en þá kastaði Þórarinn að nýju
og setti í annan, en sá slapp einnig
eftir nokkurt tog. Þórarinn hafði
náð laxi á laugardaginn.
Skömmu fyrir hádegi í gær óð
Stefán Sigurðsson, félagi Þórarins á
stönginni, út á Breiðuna, kastaði og
setti í lax sem hann landaði.
„Það var fyrsti smálaxinn, 67 cm
langur,“ sagði Stefán. „Það var gott
að ljúka vaktinni með fiski. Það er
búið að vera dauft og kalt hér, ekki
nema þrjár gráður og mjög kalt.“
Á laugardaginn fengu veiðimenn-
irnir við Blöndu átta laxa, fjóra á
maðk og fjóra á flugu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Lukkulegur Ásmundur Helgason var ánægður með fyrsta lax sumarsins í
Norðurá, væna hrygnu. Fyrstu laxarnir hafa verið stórir og vel haldnir.
Stjórnarmenn
deila löxum jafnt
Fyrsti smálaxinn veiðist í Blöndu
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Toyota Corolla, 7 sæta
árg. 2006, ekinn 39 þús. km
1800cc, bensín, beinsk.
Verð kr. 2.290.000
Opið virka daga
frá kl. 9-18
Kia Sportage
árg. 2005, ekinn 39 þús. km
2000cc, dísil, sjálfsk.
Verð: kr. 2.090.000
notaðra bíla
ÚRVAL
Allt að 70%
fjármögnun
Meirihluti þjóðarinnar er á mótiumsókn um aðild að ESB.
Meirihluti Alþingis er á móti aðild
að ESB, þótt sumir hafi undir póli-
tískri þvingun greitt umsókn at-
kvæði. Helmingur ríkisstjórn-
arinnar er á móti aðild.
Og þrátt fyrirþetta allt eru
Íslendingar að eyða
hundruðum milljóna
beint og óbeint í um-
sóknina.
Og þjóðir sem eru fyrir inni í ESBeru líka á móti veru sinni þar
skv. Evrópuvaktinni: „Rúmlega 70%
Austurríkismanna telja að hags-
muna þeirra sé ekki vel gætt innan
Evrópusambandsins.“ Og „aðeins
22% trúa að meiri hagur sé fyrir
Austurríkismenn að vera í ESB en
að standa fyrir utan sambandið“.
Evrópuvaktin vitnar í könnun sem
„birtist í blaðinu Krone 6. júní. Blað-
ið segir að þessi afstaða til ESB
endurspegli andstöðu almennings
við þá ákvörðun stjórnvalda að
styðja við ríki í skuldavanda eins og
Grikkland. Þá er afstaðan til
kjarnorkuvera einnig talin ráða nið-
urstöðunni og loks straumur hæl-
isleitenda frá Afríku og Litlu-Asíu.“
Í blaðinu er vitnað í sérfræðingfyrirtækisins sem könnunina
gerði, Andreas Kirschhofer, sem
segir m.a.:
„Þegar Austurríkismenn greiddu
fyrir 17 árum atkvæði aðild að ESB
töldu 59% að með henni yrði hagur
sinn og þjóðar sinnar betri en áður
en 22% voru á öndverðum meiði.
Nokkrum árum síðar var annaðhljóð komið í strokkinn, því að
árið 1999 þótti 63% Austurríkis-
manna að þeir „þyrftu um of að
dansa eftir flautu valdsmanna í
Brussel“.
En þá var of seint að iðrast.
Er of seint að iðrast?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 léttskýjað
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 6 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 skýjað
Vestmannaeyjar 7 léttskýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 25 heiðskírt
Stokkhólmur 25 heiðskírt
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 20 skýjað
Brussel 20 skýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 13 skýjað
París 17 skýjað
Amsterdam 17 skýjað
Hamborg 17 þrumuveður
Berlín 27 léttskýjað
Vín 27 léttskýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 17 þrumuveður
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 18 léttskýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 24 heiðskírt
Chicago 25 skýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:09 23:45
ÍSAFJÖRÐUR 2:12 24:52
SIGLUFJÖRÐUR 1:50 24:40
DJÚPIVOGUR 2:27 23:26
Mjög dró úr ferðakostnaði forsætis-
ráðuneytisins milli áranna 2008 og
2009 skv. svari ráðuneytisins við fyr-
irspurn á Alþingi. Í svarinu kemur
fram, að kostnaður ráðuneytisins
vegna utanlandsferða nam 17,7
milljónum árið 2007, var 22,3 millj-
ónir árið 2008, 8,2 milljónir árið 2009
og 9,8 milljónir árið 2010. Vigdís
Hauksdóttir, Framsóknarflokki,
hefur spurt öll ráðuneyti um utan-
landsferðir og kostnað. Í svari iðn-
aðarráðuneytisins kemur fram að
farin var 81 ferð til útlanda á vegum
aðalskrifstofu ráðuneytisins árið
2007 en 59 í fyrra. Kostnaðurinn var
tæpar 13 milljónir 2007 en rúmar
16,4 milljónir árið 2008.
Minni
kostnaður
Færri utanlands-
ferðir eftir hrunið