Morgunblaðið - 07.06.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
Sólskálar
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær
Sími: 554 4300 | www.solskalar.is
hf
-sælureitur innan seilingar!
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Við vorum að æfa okkur um
helgina, hjóluðum Hvalfjörðinn. Það
tók verulega á. Þetta verður því ekki
létt verk þarna úti, miklu lengra, en
það verður gaman að takast á við
það,“ segir Ívar Þrastarson, einn af
sex manna vinahópi sem ætlar að
taka þátt í reiðhjólaviðburðinum
Vatternrundan, eða Vatnahringnum
sem fram fer í Svíþjóð á íslenska
þjóðhátíðardeginum 17. júní. Þá
hjóla þátttakendur 300 kílómetra
leið sem liggur hringinn í kringum
vatnið Vattern. Ívar og tveir aðrir í
hópnum, Bergur Ólafsson og Sturla
Sigurðsson, vinna allir hjá Skýrr, en
tveir aðrir eru fyrrverandi vinnu-
félagar þeirra hjá sama fyrirtæki,
þeir Einar Ragnar Sigurðsson og
Ebenezer Böðvarsson. Sá sjötti er
Gunnar Sigurðsson, bróðir Einars.
Skiptum sjálfir ef springur
„Ebenezer er aðalkarlinn í
þessu, hann var fyrstur okkar til að
taka þátt í þessu og er núna að fara í
sjötta sinn. Ég kynntist honum úti í
Svíþjóð og hann dreif mig með sér í
annað sinn sem hann fór og við höf-
um farið árlega síðan,“ segir Bergur
og bætir við að Ívar og Sturla séu
nýgræðingarnir í hópnum, þeir séu
að fara í fyrsta skipti. En Einar og
Gunnar eru að fara í þriðja sinn.
„Við erum með markmið, ætlum að
reyna að komast þetta á 12 klukku-
tímum. Þeir sem eru harðastir reyna
að komast þetta á undir sjö tímum.
Okkur finnst raunhæft að miða við
12 tíma, við ætlum að reyna að halda
30 kílómetra meðalhraða og stoppa
nokkrum sinnum á leiðinni, til að
Söfnum svefni
og étum kolvetni
Þeir veifa ekki blöðrum og fánum á rölti í rólegheitum á þjóðhátíðardaginn í næstu
viku, heldur verða þeir sveittir á hjólum úti í Svíþjóð þar sem þeir ætla að leggja
300 kílómetra að baki og markmiðið er að ljúka ferðinni á tólf klukkutímum.
Ljósmynd/Einar Ragnar Sigurðsson
Vesen Það getur verið ergilegt þegar springur. Hér er Ebenezer að gera
við dekk á hjólinu sínu á leiðinni til Berlínar í fyrra og ekki sérlega kátur.
Morgunblaðið/Eggert
Til í slaginn Hér eru fimm af hjólagörpunum sem fara til Svíþjóðar, Sturla,
Bergur, Einar Ragnar, Ebenezer og Ívar. Gunnar var vant við látinn.
Náttúruperlur Íslands eru margar og
þær má finna um allt land. Það land-
svæði sem hefur orðið svolítið út-
undan í umfjöllun eru Vestfirðirnir.
Allt of margir Íslendingar hafa
hreinlega ekki séð það stórbrotna
landslag sem Vestfjarðakjálkinn hef-
ur upp á að bjóða. Ferðaskrifstofan
Vesturferðir býður upp á spennandi
úrval ferða um Vestfirðina. s.s. báts-
ferðir, gönguferðir, kajakferðir og
fjölbreyttar dagsferðir. Þá bjóða
Vesturferðir upp á gríðarlega
skemmtilegar ferðir á Hornstrandir.
Góður kostur við Ísafjörð og nágrenni
er hversu auðvelt það er að ferðast
þar um á hjóli, svo hægt er að skoða
allt hjólandi, hvort sem farið er eftir
þjóðveginum, eftir vegslóðum eða
gömlum fjallvegum. Vesturferðir hafa
hjólaleigu á sínum snærum með vel
útbúnum fjallahjólum. Hvort sem
maður skoðar Vestfirði í gegnum
ferðaskrifstofuna Vesturferðir eða
ekki verður enginn svikinn af því að
koma til Vestfjarða.
Vefsíðan www.vesturferdir.is
Morgunblaðið/RAX
Selur Það er margt að sjá á Vestfjörðum og dýralífið er fjölbreytt.
Njótið stórbrotinnar náttúru-
fegurðar Vestfjarða
Þann 12. júní nk. fer fram hin ár-
lega Bláalónsþraut á fjallahjóli í
sextánda skipti. Keppnin, sem
haldin er af Hjólreiðafélagi
Reykjavíkur, fór fyrst fram árið
1996 og voru þátttakendur þá um
15 talsins. Keppnin hefur stækkað
gríðarlega síðan þá, og er um-
gjörð keppninnar með glæsileg-
asta móti í ár. Búist er við ríflega
360 þátttakendum í ár, en þeir
voru um 330 í fyrra. Leiðin sem
Vex með hverju árinu
Búist við metþátttöku í ár
í Bláalónsþrautinni
Fjölmenni Í fyrra tóku um 330 manns þátt og búist er við að í ár fjölgi enn frekar þátttakendum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
kona hans, sem var af skoskum ætt-
um, að nafni Esja. Þaðan fær fjallið
nafn sitt. Esjan er innan borgarmarka
og er viðráðanlega há og því tilvalið
útivistarsvæði.
Algengast er að menn gangi á Þver-
fellshorn og er sú ganga fjölbreytt og
reynir, með víðtækum hætti, á líkam-
ann. Göngustígur er frá bílastæði al-
veg upp að Þverfellshorni og er gang-
an um 8 kílómetrar. Fullkomlega
öruggt er að ganga þessa gönguleið
og til að undirstrika það hefur Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur útbúið þar til
gerð skilti, við gönguleiðina, þar sem
má finna upplýsingar um staðsetn-
ingu, ef óhöpp skyldu henda. Sex
stöðvar eru á leiðinni upp að Þverfells-
horni. Fyrstu þrjár stöðvarnar eru auð-
veldasti hluti göngunnar. Erfiðasti
hlutinn er frá stöð sem kallast Göngu-
brúin og að Þverfellshorni. Þannig get-
ur hver og einn hagað sinni göngu eft-
ir hentugleikum og ekki er skylda að
fara alla leið á toppinn.
Við Esjurætur stendur Esjustofa,
sem er hlýlegt veitinga- og kaffihús.
Esjustofa er ætluð göngufólki sem og
öðrum er leið eiga hjá. Í Esjustofu er
bæði góð aðstaða fyrir fundahöld og
veislur, stórar sem smáar.
Esjuganga er auðveld, skemmtileg
og góð líkamsrækt sem allir borgar-
búar ættu að nýta sér.
Esjan rís tignarleg upp úr Kjalarnesi
og gnæfir yfir borgina og er jafnframt
eitt af einkennum hennar. Í Kjalnes-
ingasögu er talað um bæinn Esjuberg,
en þar bjuggu Örlygur Hrappsson og
Göngugarpsins Esja
Morgunblaðið/Einar Falur
Náttúrufegurð Það er fallegt um að litast við Esjuna og útsýnið er einstakt.
Skemmtileg líkamsrækt