Morgunblaðið - 07.06.2011, Qupperneq 15
15Hamskipti lífríkis og landslags
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
Hvergi í heiminum er lundabyggð
jafnstór og í Vestmannaeyjum en
þar verpir um helmingur allra
lunda á Íslandi. Fyrir sex árum
varð viðkomuhrun sem hefur end-
urtekið sig á hverju sumri síðan
þá. „Fari lundinn ekki að framleiða
unga á næstu fimm árum verður
stofninn bara svipur hjá sjón,“
segir Erpur Snær Hansen líffræð-
ingur, sem hefur tekið þátt í rann-
sóknum á lunda frá árinu 2007.
„Stofninn er í lóðréttu falli og
hann þolir ekki mörg svona ár í
viðbót,“ segir Erpur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
veruleg fækkun verður í lunda-
stofninum. Gamlar veiðitölur sýna
að á árunum 1930-1960 minnkaði
veiðin og hélst fækkunin í hendur
við hlýnandi sjó eða svokallaða
AMO-sveiflu, hitasveiflu í hafinu.
Fækkunin varð hins vegar ekki
eins mikil.
Fyrsti viðkomubresturinn var
árið 2005 en ástandið var verst í
fyrrasumar. Samt hafði aldrei orp-
ið stærri hluti stofnsins í Eyjum
en einmitt í fyrra, a.m.k. ekki frá
því skipuleg vöktun á varpinu
hófst.
Agalegt að horfa upp á þetta
Erpur segir að í fyrrasumar hafi
hugsanlega utanaðkomandi fuglar
sótt til Eyja, væntanlega vegna
gæftaleysis á heimaslóð. „Þetta
var skrítið, við vissum aldrei hvað
fuglunum gekk til. Þessir fuglar
sem bættust við urpu rosalega
seint. Þetta var einhver örvænting.
Það er eins og þeir hafi skriðið inn
í holu, orpið og flogið í burtu, að
þeir hafi aldrei ætlað sér að sitja
á,“ segir Erpur. Þeir sem þó klökt-
ust úr eggjunum (17,3%) drápust
allir úr hungri með tölu. „Það var
agalegt að horfa upp á þetta. Ég
hef aldrei séð það svona slæmt
enda verður það ekkert verra en
þetta, þegar allt drepst og ekkert
kemst upp.“
Þessi viðkomubrestur sex ár í
röð hefur eytt geldfuglastofninum,
sem var stór. Í fyrra var áætlað að
um 830.000 varppör hefðu orpið í
Eyjum. Hins vegar vantar að
mestu þessa sex árganga sem end-
urnýja eiga stofninn næstu sex ár-
in og mun varpstofninn því dragast
hratt saman.
Skýringin á hruninu í varpi
lundans, eins og fleiri sjófugla, er
rakin til skorts á sandsíli en ungar
lundans í Vestmannaeyjum reiða
sig algjörlega á það. „Það kemur
ekkert í staðinn fyrir sandsílið.
Lundastofninn í Eyjum étur gríð-
arlegt magn af sandsíli, eitthvað
um 35.000 tonn á sumri, og hefur
töluverð áhrif á stofnstærð sílisins
í eðlilegu árferði, en svæðið sem
hann sækir það á er ekkert svo
stórt, nær kannski um 50 km frá
eyjunum,“ segir Erpur. Fyrir
norðan hafa lundar getað étið inn-
fjarðaloðnu og fært ungunum.
Þessar tegundir eru hins vegar
ekki við suðurströndina á sumrin
heldur halda þær sig norðar, í
kaldari sjó. Eftir að sandsílið
hrundi hefur það þó komið á miðin
við Eyjar en í litlum mæli og mjög
seint eða fyrri hluta ágúst. „Það
hefur bjargað þeim pysjum sem þó
hafa verið þá enn á lífi í holunum.
En þetta eru ekki síli héðan, held-
ur rekin hingað að austan. Þetta
rek brást svo í fyrra og skýrir al-
dauðann,“ segir Erpur.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Lundaleit Erpur Snær Hansen (t.v.) og Marinó Sigursteinsson kíktu í lundaholur í Stórhöfða í Vestmannaeyjum á sunnudag með hjálp holumyndavélar. Í
venjulegu árferði hefði brekkan átt að vera þéttsetin lunda og varp verið hafið. Nú voru lundarnir ekki orpnir og ekkert líf að sjá í lundabrekkunum.
Lundinn í lóðréttu falli
og þolir ekki miklu meira
Ungaframleiðslan verður að taka við sér á næstu fimm árum „Verður ekki verra“
Líkt og verpt hafi verið í örvæntingu Ungar sem klöktust út í fyrrasumar drápust allir
Lundi verpir aðeins einu eggi á ári. Í
meðalárferði er talið að um 60%
varppara komi upp ungum. Þeir
verða kynþroska um fimm ára og
verða um tuttugu ára gamlir. Nú
hefur varp misfarist sex ár í röð og á
meðan heltast þeir eldri úr lestinni.
„Þetta er stofn sem fjölgar sér mjög
hægt, eða hliðstætt stórhvelum.
Eina ástæðan fyrir að hægt var að
veiða þá er að það var svo brjál-
æðislega mikið af þeim, fjórði hver
fugl á Íslandi er lundi!“ segir Erpur.
Í ljósi bágs ástands stofnsins er
hálfótrúlegt að hugsa til þess að að-
eins eru liðin 13 ár frá því lundaveiði
síðustu aldar náði hámarki í Vest-
mannaeyjum 1998. Þá voru veiddir
yfir 145.000 fuglar. Í fyrra voru
veiddir 123 lundar, skv. skráningu.
Brugðist var við hruninu sumarið
2008 með því að fækka leyfilegum
veiðidögum, fyrst úr 45 í 20 og loks í
fimm daga árið 2009 og 2010. Erpur
vill að lundaveiðar verði alveg bann-
aðar í Vestmannaeyjum og telur að
flestir veiðimenn séu honum sam-
mála. Öðru máli gegni um aðra
varpstaði lundans, einkum fyrir
Norðurlandi og Vestfjörðum. Þar
hafi sóknin fremur aukist, m.a. til að
svara eftirspurn frá Vestmanna-
eyjum. Erpur telur lundann þurfa
friðun í Eyjum, um ótilgreindan
tíma. Ungaframleiðslan verði að
komast í gang og þurfi helst að
ganga í þrjú ár áður en menn geta
byrjað takmarkaðar veiðar. Að
menn gefi stofninum frið þangað til
hann tekur aftur við sér. „Ef hann
tekur við sér,“ er Erpur fljótur að
bæta við.
Sama máli gegni um aðra sjófugla
sem eiga í vök að verjast, menn eigi
að hætta skotveiðum og eggjatöku,
m.a. hjá langvíunni sem reiðir sig
einnig á sandsílið. „Þetta eru ekki
lengur sjálfbærar veiðar. Þegar
stofnar eru í rénun verða allar veið-
ar ósjálfbærar,“ segir Erpur.
Lundi fjölgar sér
hægt, eins
og stórhveli
Veiðar verði bannaðar
Hungur Allar pysjur drápust í fyrra.
Marinó Sigursteinsson með myndavél sem
notuð er til að skoða ofan í lundaholur.
Skannaðu kóðann
til að lesa um
AMO-sveifluna
sem lundinn fylgir
eins og skugginn.
„Mér finnst óskaplega tómlegt að
sjá ekki einn einasta lunda yfir há-
sumarið, líkt og var í fyrra. Þá
voru fleiri dagar í júlímánuði sem
maður sá ekki einn einasta. Þetta
eru óskaplega mikil viðbrigði,
segir Óskar Sigurðsson, vitavörð-
ur í Stórhöfða.
Áður fyrr, þegar ungfuglarnir
fóru af stað og vindur var hæfileg-
ur, hafi lundahóparnir stundum
verið svo þéttir að þeir mynduðu
hálfgildings ský.
Óskar hefur merkt gríðarlega
margar pysjur í gegnum tíðina,
oft 100-200 á dag og hann hefur
náð að merkja yfir 1.000 á einu
hausti. Í fyrra náði hann alls engri
pysju til að merkja en það hafði
aldrei gerst áður.
Um árið 1995-96 fór Óskar að
taka eftir því að
viðkoma lund-
ans í Eyjum var
lélegri annað
hvert ár. Pysj-
urnar hafi þá
verið seinna á
ferðinni, oft í
byrjun sept-
ember. Síðan
breyttist þetta
árið 2005 og viðkoman hafi síðan
verið léleg á hverju ári. Eftir á að
hyggja telur hann að eitthvað hafi
verið byrjað að gerast strax um
árið 1995.
Óskar lagði snemma til að menn
hættu að veiða lunda, á meðan illa
áraði, og beðið yrði eftir að varpið
næði sér á strik. Lítt var tekið
undir þá tillögu.
„Óskaplega tómlegt að
sjá ekki einn einasta lunda“
Óskar Sigurðsson
Hitinn í sjónum hefur hækkað og
það hefur áhrif. Nýliðun sandsílis
brást árin 2005 og 2006 og hefur
verið léleg síðan. Hvað veldur?
Á morgun
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Fortíð Hin fjöruga pysjuleit er nú liðin tíð. Þessi mynd var tekin árið 1988.
Kristján Egilsson, fyrrverandi safnstjóri Náttúrugripasafnsins í Eyjum, segir
ekki óalgengt að 5-6.000 pysjur hafi komið í bæinn fyrir 10-15 árum en nú
sjást þær varla. Fólk hafi komið sérstaklega frá útlöndum til að fylgjast með
þessu. „Manni finnst þetta svolítið sorglegt,“ segir hann.
Til lítils að fara til pysjuleitar