Morgunblaðið - 07.06.2011, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Samkvæmt skýrslu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins vegna fimmtu endur-
skoðunar efnahagsáætlunar sjóðsins
og stjórnvalda nemur kostnaður
stjórnvalda vegna nýgerðra kjara-
samninga um 0,5% af væntri lands-
framleiðslu í ár. Sjóðurinn telur að
þessi kostnaður muni ekki hafa áhrif
á hvort markmið fjárlaga náist, með-
al annars vegna þess að hægt verður
að nota fimm milljarða sjóð sem er
eyrnamerktur óvæntum útgjöldum.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði á blaðamanna-
fundi um nýgerða kjarasamninga 5.
maí síðastliðinn að áætlað sé að
kostnaður ríkisins vegna kjarasamn-
inganna í ár yrði um 10 milljarðar
króna.
Þessi kostnaður skiptir máli ef
takast á að ná markmiðum fjárlaga
þessa árs en þau gera ráð fyrir að
hallinn á rekstri ríkisins verði um 36
milljarðar og að frumjöfnuður, það
er að segja jöfnuður án vaxtatekna
og vaxtagjalda, verði jákvæður í ár.
Fram kemur í skýrslu AGS að
sérfræðingar sjóðsins telji enn að
raunhæft sé að ná þessu markmiði,
þó svo að þeir sjái ákveðna hættu
stafa af kostnaði vegna kjarasamn-
inganna.
Hinsvegar kemur fram í skýrsl-
unni að stjórnvöld hafi lýst því yfir
að þau séu reiðubúin til þess að nota
sjóð sem hafi verið eyrnamerktur á
fjárlögum fyrir ófyrirséð útgjöld til
þess að mæta kostnaði vegna kjara-
samninganna og þar af leiðandi telur
sjóðurinn að hægt verði að ná mark-
miðum fjárlaga. Þessi sjóður, eins og
í raun er getið í skýrslu AGS, nemur
hinsvegar ekki nema fimm milljörð-
um króna þannig að fjármagnið
þyrfti því að koma annars staðar frá
ef kostnaðarmat stjórnvalda vegna
kjarasamninganna stendur.
Hagvaxtarmerki sjáanleg
en óvissan enn mikil
AGS býst við að landsframleiðslan
aukist lítillega í ár, þó sé ekki á vísan
að róa í þeim efnum.
Það helsta sem gæti grafið undan
hagvexti að mati sérfræðinga AGS
er ef töf verður á fjárfestingaverk-
efnum á næstunni. Að sama skapi
benda þeir á í skýrslunni að hæga-
gangur í úrlausnum á skuldavanda
heimila og fyrirtækja gæti einnig
hægt á vexti sem og viðvarandi at-
vinnuleysi.
Í skýrslunni er gert ráð fyrir að
hagvöxtur hér á landi verði 2% á
þessu ári og 2,3% á því næsta. Sjóð-
urinn gerir ráð fyrir að atvinnuleysi
muni mælast 7,5% í ár og lækka svo
niður í 6,5% á því næsta. Á sama
tíma er gert ráð fyrir stórfelldri
aukningu fjárfestingar og nemur
aukningin um tæp 17% í ár frá því í
fyrra og svo er gert ráð fyrir 18,5%
aukningu á næsta ári.
Ekki áhyggjur
af útgjöldum
Morgunblaðið/Eggert
Skiptar skoðanir Ekki eru allir hrifnir af efnahagsáætlun íslenskra stjórn-
valda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem rennur sitt skeið á enda í haust.
AGS telur að markmið fjárlaga náist
Það hefur alltaf verið ljóst að bein er-
lend fjármunaeign innlánsstofnana í
slitameðferð eigi að teljast með eign-
um þeirra, að sögn Seðlabanka Ís-
lands.
Í svari Seðlabankans við fyrir-
spurnum Morgunblaðsins segir að
haldbærar upplýsingar um erlendar
eignir þeirra hafi hins vegar ekki leg-
ið fyrir fyrr en á síðari hluta síðasta
árs og hafi þær komið fram í birtingu
Seðlabankans á erlendri stöðu þjóð-
arbúsins í desember síðastliðnum.
„Vegna flókins utanumhalds um
erlendar fjárfestingar var ekki unnt
að birta beina erlenda fjármunaeign
þeirra fyrr en nú. Í febrúar síðast-
liðnum birti Seðlabankinn grein
nokkurra sérfræðinga bankans um
erlenda skuldastöðu þjóðarbúsins þar
sem lagt var mat á erlenda stöðu
þjóðarbúsins þegar innlendar og er-
lendar eignir þrotabúa hafa verið
seldar og tekið hefur verið tillit til
annarra þátta sem brengla opinber
gögn um skuldir og eignir, þar á með-
al beina fjármunaeign innlánsstofn-
ana í slitameðferð.
Þar er komist að þeirri niðurstöðu
að uppgjör þrotabúa banka og
eignarhaldsfélaga muni þegar upp er
staðið fela í sér skuld innlendra aðila
við erlenda er næmi 45% landsfram-
leiðslu, er bætist að lokum við hreina
stöðu þjóðarbúsins án fyrirtækja í
slitameðferð. Að nokkru leyti endur-
speglar breytingin á framsetningu
uppgjörsins það ferli, þ.e.a.s krafa
þrotabús á innlend fyrirtæki er gerð
upp með því að búið leysir til sín und-
irliggjandi eignir, sem síðan eru seld-
ar og andvirðinu ráðstafað til er-
lendra og innlendra kröfuhafa. En
eins og ávallt hefur verið lögð mikil
áhersla á er útkoma þessa ferlis enn
mjög óviss,“ segir í svari bankans.
Óvissan
alltaf verið
mikil
STUTTAR FRÉTTIR ...
● Skuldabréfavísi-
tala GAMMA
hækkaði örlítið í
gær, eða um 0,03
prósent. Verð-
tryggði hluti vísitöl-
unnar hækkaði um
0,16 prósent og sá
óverðtryggði lækk-
aði um 0,30 pró-
sent. Velta á
skuldabréfamarkaði í gær nam rúm-
um tólf milljörðum króna.
Frá áramótum hefur vísitalan hækk-
að um 2,69 prósent og áfram heldur
bilið að breikka milli undirvísitalnanna
tveggja. Frá áramótum hefur verð-
tryggði hlutinn hækkað um 5,83 pró-
sent á meðan sá óverðtryggði hefur
lækkað um 4,73 prósent.
Bilið breikkar milli
undirvísitalna GAMMA
Kauphöll Íslands.
Ef frumvarp ríkisstjórnarinnar um
breytingar á gjaldeyrislögum verð-
ur samþykkt er verið að senda skýr
skilaboð um að höftin séu komin til
að vera og þar af leiðandi gæti ver-
ið um að ræða ein alvarlegustu
hagstjórnarmistök Íslandssög-
unnar. Þetta er álit minnihlutans í
efnahags- og skattanefnd.
Fram kemur í áliti minnihluta
efnahags- og skattanefndar á
breytingu á lögum um gjaldeyris-
mál að frumvarpið beri vott um ein-
beittan vilja stjórnvalda til að við-
halda gjaldeyrishöftum.
Frumvarpið beri vott um algjöra
uppgjöf fyrir verkefninu og vilji
stjórnvalda til þess að viðhalda
höftunum sé að mestu órökstuddur
og byggi á hræðsluáróðri. Það eru
Tryggvi Þór Herbertsson og Pétur
Blöndal, þing-
menn Sjálfstæð-
isflokksins, sem
skrifa undir
minnihlutaálitið
en það var lagt
fram á þingi í
gær. Í umsögn-
inni kemur fram
að ekki verður
séð að í tengslum við gerð frum-
varpsins hafi aðrar leiðir verið
kannaðar en núverandi fyrirkomu-
lag gjaldeyrishafta, þrátt fyrir að
slíkar leiðir gætu haft í för með sér
mun minni kostnað fyrir hagkerfið.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar er að
mati minnihlutans ekki áætlun um
afnám gjaldeyrishafta heldur áætl-
un um að festa þau í sessi til langs
tíma. ornarnar@mbl.is
Frumvarpið meirihátt-
ar hagstjórnarmistök
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Fjölmenni var í sal 1 í Hæstarétti í
gær þar sem tekið var fyrir mál
nýja Landsbankans gegn þrotabúi
Motormax ehf. Tekist er á um
hvort 150 milljóna króna lán
Landsbankans til Motormax hafi
verið löglegt erlent lán eða ólög-
legt gengistryggt lán. Hæstiréttur
var fullskipaður í fyrsta sinn í sjö
ár, en það þýðir að dómarar eru
sjö talsins en ekki þrír eða fimm
eins og venjulegt er. Málflutningur
hafði áður farið fram, en hann
verður endurfluttur fyrir fullskip-
uðum rétti. Það að rétturinn er
fullskipaður er merki um alvar-
leika málsins, en dómurinn mun
hafa fordæmisgildi fyrir fjölda
sambærilegra lánasamninga og eru
gríðarlegar fjárhæðir í húfi. Lög-
menn beggja aðila vísuðu ítrekað
til lánasamningsins, afhendingar
lánsins og afborgana Motormax til
bankans og komust að þveröfugum
niðurstöðum af þessum sönnunar-
gögnum.
Deilt um erlendar myntir
Lögmaður bankans segir að
þrátt fyrir að lánasamningurinn sé
tilgreindur í íslenskum krónum, sé
það einungis vegna þess að áður en
Landsbankinn gat farið í að kaupa
gjaldeyrinn þurfti Motormax að
skuldbinda sig með undirritun
lánasamningsins. Þegar það hafi
verið gert hafi hinn erlendi gjald-
eyrir verið keyptur, honum skipt í
íslenskar krónur og þær krónur
lagðar inn á reikning Motormax.
Lögmaður þrotabúsins segir að
færslur innan bankans skipti ekki
máli í þessu sambandi. Lánið sé
tilgreint í krónum í samningnum
og Motormax hafi fengið íslenskar
krónur afhendar. Þá sé greinilegt
af lestri samningsins að miðað sé
við gengi gjaldmiðlakörfu, en Mot-
ormax hafi aldrei fengið erlenda
gjaldeyrinn afhentan.
Lögmaður bankans segir varð-
andi afborganir á láninu að í
nokkrum tilfellum hafi Motormax
greitt af því með erlendum gjald-
eyri beint og í önnur skipti keypt
gjaldeyri af bankanum og notað
hann svo til að greiða af láninu.
Lögmaður þrotabúsins segir hins
vegar að í þeim tilvikum sem er-
lendur gjaldeyrir var notaður til að
greiða af láninu hafi það ekki verið
í þeim hlutföllum eða þeim gjald-
miðlum sem tilgreindir voru í
samningnum. Þá skipti ekki máli
hvort bankinn hafi litið svo á að
hann væri að skipta krónum Mot-
ormax fyrir erlendan gjaldeyri
sem svo hafi verið notaður til að
greiða niður lánið. Frá bæjardyr-
um Motormax hafi fyrirtækið ein-
faldlega notað íslenskar krónur í
langflestum tilfellum til þess að
greiða niður lánið.
Tekist á um lánasamning
Fullskipaður Hæstiréttur hlýddi í annað sinn á málflutning í Motormax-málinu
svokallaða í gær Deilt um hvort lán Landsbankans sé löglegt eða ólöglegt
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+0/-+1
++2-//
33-3+2
3+-+.
+0-,04
+,2-2.
+-.+/0
+03-/4
+/2-/2
++,-1,
+0/-/3
++/
33-30
3+-353
+0-..,
+,2-43
+-.354
+0,-3,
+//-++
335-//30
++.
+01-51
++/-,.
33-,.2
3+-3/.
+0-.41
+,/-,
+-.32
+0,-11
+//-21