Morgunblaðið - 07.06.2011, Page 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
KATTASTÖÐIN
KYNNIR...
„HEIMS-
MEISTARAMÓT
KATTA Í
RÆKJUÁTI”
HVAÐ ERTU AÐ
HORFA Á?
EKKERT
SEM ÉG GET
EKKI TOPPAÐ
FANNSTU
BÓKINA ÞÍNA
KALLI
BJARNA?
NEI HVAÐ HELD-
URÐU AÐ GERIST?
ÉG VEIT ÞAÐ EKKI... EN
ÞEGAR EINSTAKLINGURINN
TEKST Á VIÐ HEILA
STOFNUN ÞÁ TAPAR
HANN OFTAST
HVAÐ
ER
AÐ?
ÞETTA ER
HRÆÐILEGT
EN SATT
GÆTI ÉG BEÐIÐ YKKUR UM AÐ
VALDA SEM MINNSTUM SKEMMDUM Á
SJÁLFUM KASTALANUM?
AF
HVERJU?
ÉG ER EKKI
TRYGGÐUR FYRIR
RÁNI OG RUPPLI
HVERNIG
FÓRUM VIÐ AÐ
ÞVÍ AÐ VERÐA
OKKUR ÚT UM MAT
ÁÐUR EN
BIFREIÐIN VAR
FUNDIN UPP?
ÉG ER
ÁNÆGÐ MEÐ AÐ VIÐ
GÁTUM LAGAÐ
HROTURNAR ÞÍNAR
EF ÞÚ
ERT ÁNÆGÐ
ÞÁ ER ÉG
ÁNÆGÐUR
GÓÐA
NÓTT!
GÓÐA
NÓTT!
*ANDVARP*
ÞAÐ ER SANDUR ALL-
STAÐAR, ÉG GET EKKI ANDAÐ
ÉR ER AÐ MISSA
MEÐVITUND...
ÉG GAT
EKKI ANNAÐ
GERT...
...DÓTTUR
MINNAR
VEGNA
SNAV!
Er stjórnlagaráð
viljalaust verk-
færi Samfylking-
arinnar? – Full-
veldisframsal
Það virðist allt
benda til að hið um-
boðslausa stjórnlag-
aráð sé ekkert annað
en viljalaust verk-
færi Samfylking-
arinnar og þeirra
sem keyra vilja Ís-
land inn í Evrópu-
sambandið. En nú er
það einmitt komið á
daginn sem margir
óttuðust að væri aðaltilgangur
Samfylkingarinnar með stjórn-
lagaþingi. Að koma ótakmörkuðu
fullveldisframsali inn í stjórn-
arskrána svo Ísland geti gerst
aðili að ESB. En svokölluð C-
nefnd stjórnlagaráðs hefur nú
ályktað í þá veru. Þvert á nið-
urstöðu þjóðfundar um að stjórn-
arskráin sé sáttmáli „sem tryggi
fullveldi og sjálfstæði Íslendinga,
og sé skrifuð fyrir fólkið í land-
inu“. En einherra hluta vegna
virðist stjórnlaganefnd, sem með-
tók ályktun þjóðfundar til úr-
vinnslu fyrir stjórnlagaþing, nú
stjórnlagaráð, hafa að eigin geð-
þótta hent þessari mikilvægu
ályktun út. Sem er ótrúlegur
skandall og hneyksli. En hvernig
mátti þetta gerast? Hvað með
alla þá sem kosnir voru á stjórn-
lagaþing, og sem
nú sitja í stjórnlag-
aráði, og höfðu gef-
ið út það loforð að
standa vörð um
fullveldi Íslands í
stjórnarskrá? Hvar
hefur andstaða
þeirra við þessa
vítaverðu fullveldis-
framsalsályktun
komið fram?
Svo virðist sem
þetta stjórnlagaráð
sé í algjöru skötu-
líki. Hvorki fugl né
fiskur sem ekkert
mark er takandi á.
Eins og með að
álykta að herskylda sé bönnuð í
stjórnarskrá á Íslandi. En hvergi
í veröldinni hefur fullvalda og
sjálfstæð þjóð slíkt rugl í sinni
stjórnarskrá, sem í raun bannar
ríkinu að verja land sitt og þjóð í
neyð. Skandall!
Sem betur fer hafa Alþingi og
þjóðin síðasta orðið um nið-
urstöðu stjórnlagaráðs. Þessa
umboðslausa stjórnlagaráðs sem
enginn tekur mark á og því síður
ber virðingu fyrir, eftir að full-
veldisframsalshugmynd þess kom
fram.
Guðm. Jónas Kristjánsson.
Ást er…
… sagan sem býr að baki
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíði og útskurður kl.
9, botsía kl. 9.45, handavinna kl. 13.
Opinn púttvöllur.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9,
félagsvist kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8-16.
Vöfflukaffi.
Félagsheimilið Boðinn | Róleg
ganga kl. 13, tai-chi-leikfimi kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, jóga kl. 10.50 og
hádegisverður.
Félagsstarf eldri borgara, Garða-
bæ | Qi-gong kl. 8.10, spila- og
vinnustofur opnar, Bónusrúta kl.
14.45.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9-
16.30, m.a. stafganga kl. 10.30. Uppl.
á staðnum og síma 575-7720.
Hraunbær 105 | Boccia kl. 10.30,
Bónusbíll kl. 12.15, kaffi.
Hraunsel | Leikfimi í Bjarkarhúsi kl.
11.30, brids kl. 12.30.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16.
Matur og kaffi. Helgistund kl. 14, sr.
Ólafur Jóhannsson.
Hæðargarður 31 | Við hringborðið
kl. 8.50, listasmiðja kl. 9, félagsvist á
mánud., bíó á föstud. og bókabíllinn,
Bónus á þriðjud.. Matur og kaffi virka
daga. Hárgreiðslustofa og fótaað-
gerðir. Uppl. í síma 411-2790.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl.
13 er opið hús á Korpúlfsstöðum.
Ýmisleg vinna í gangi.
Skemmtifélag eldriborgara | Ferð í
Borgarfjörð á morgun, 8. júní. Farið
frá Aflagranda kl. 8.30, Vesturgötu
kl. 8.35, Lækjartorgi kl. 8.40, Mjódd
kl. 8.50, Hraunbæ kl. 9. Uppl. í síma
775-1340.
Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun,
handavinna kl. 9.15. Spurt og spjall-
að, leshópur og spil kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Félagsvist
kl. 14. Hárgreiðslu- og fótaaðgerð-
arst. opnar. Þingvallaferð fimm. 9.
júní, veitingar í Básnum Ölfusi. Lagt
af stað kl. 13, heimkoma kl. 17.30.
Uppl. í síma 535-2760.
Bati“ er yfirskrift fallegsljóðs eftir Björn Ingólfsson:
Heiðið blátt
og bærist hvergi
bára á sjó,
ég bý mig út
með broddstaf minn
og bestu skó.
Eftir kalt
og illskeytt vor
er ómæld fró
að finna aftur
angan lyngs
og ilm úr mó.
Pétur Pétursson frá Höllu-
stöðum og Hálfdán sonur hans
litu við í Kotabyggð hjá hjón-
unum hagmæltu Árna Jónssyni
og Petru. Voru þeir að æfa
söngatriði fyrir komandi brúð-
kaup sonar og bróður, Péturs
Péturssonar yngri, sem búsett-
ur er í Svíþjóð. Að æfingu lok-
inni kvaddi Árni þann gamla:
Á beggja raddir ber ég skyn
þó betur þekki Pétur.
Er nú reyndar ekki kyn
þó afkvæmið syngi betur.
Hjálmar Freysteinsson orti
undir kvöldfréttunum:
Allt er að fara til Helvítis hér,
hrikaleg þjóðfélagsmeinin,
kannski er þó verst hve orðið nú
er
erfitt að komast í steininn.
Að lokum er rétt að geta
þess, að Landsmót hagyrðinga,
Bragaþing 2011, verður haldið
á Hótel Stykkishólmi laug-
ardaginn 3. september. Um
taumana heldur Hermann Jó-
hannesson og verður dagskráin
auglýst síðar.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af angan lyngs og
brúðkaupi