Morgunblaðið - 07.06.2011, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
Forlagið hefur gefið þýðingu
Karls Ísfelds á Ævintýrum
Góða dátans Svejks í heims-
styrjöldinni eftir tékkneska rit-
höfundinn Jaroslav Hašek.
Bókin kom fyrst út í Tékkó-
slóvakíu á árunum 1920-23 en
Hašek dó úr berklum áður en
honum auðnaðist að ljúka verk-
inu. Þýðing Karls Ísfeld kom
út á árunum 1942-43.
Góði dátinn Svejk hefst þar
sem erkihertoginn Franz Ferdinand hefur verið
myrtur í Sarajevo, en það morð hratt af stað
heimsstyrjöldinni fyrri, og segir frá hermanninum
Jósef Svejk sem ber enga virðingu fyrir valdi, ger-
ir aldrei það sem honum er sagt.
Bækur
Góði dátinn Svejk
kemur út í kilju
Ævintýri góða
dátans Svejks.
Á miðvikudag hefst að nýju
tónleikaröðin Sumartónar í
Elliðaárdal í Fella- og Hóla-
kirkju með tónleikum kórs
kirkjunnar. Á efnisskrá er
verkið Aesop’s Fables eftir
Bob Chilcott, þekktar ítalskar
aríur og íslensk einsöngslög.
Jafnframt mun kórinn flytja
íslenska kirkjutónlist við texta
eftir Sigurbjörn Einarsson.
Einsöngvarar á tónleikunum
eru úr röðum kórfélaga; sópransöngkonurnar Ás-
dís Arnalds og Una Dóra Þorbjörnsdóttir, Elfa
Dröfn Stefánsdóttir mezzó-sópran og Reynir Þor-
mar Þórisson tenór. Píanóleikari er Guðríður St.
Sigurðardóttir og stjórnandi Guðný Einarsdóttir.
Tónlist
Sumartónar í Ell-
iðaárdal að nýju
Bob
Chilcott
Ellen Júlíusdóttir sýnir nú í
Listhúsi Ófeigs á Skólavörðu-
stíg myndir sem unnar eru
með blandaðri tækni. Sýn-
inguna nefnir hún Vatnaskil.
Ellen hóf nám við Myndlista-
skólann í Reykjavík 1994 og
nam þar teiknun, olíumálun,
módelteikningu og módel-
málun.
Hún lauk námi við Mynd-
listaskólann 2002 og hóf síðan
nám við Myndlistaskólann í Kópavogi 2005 og
lagði þar áherslu á vatnslitun og módelmálun, en
kynntist einnig olíupastellitum. Hún lauk námi
þar 2010. Sýningin er opnin á verslunartíma og
stendur til 22. júní.
Myndlist
Ellen Júlíusdóttir
í Listhúsi Ófeigs
Ein mynda Ellenar
Júlíusdóttur.
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Fyrir stuttu gaf Crymogea út bókina Bílar í
ám / Cars in rivers með verkinu Cars in rivers eft-
ir Ólaf Elíasson. Verkið, sem er í eigu Listasafns
Íslands, er byggt á myndum sem Ólafur fékk
sendar og notaði í sýningunni
Limbólandi sem var sett upp í
i8 gallerí vorið 2009.
Halldór Björn Runólfsson,
safnstjóri Listasafns Íslands,
ritar formála að bókinni. Hann
segist hafa séð vísi að verkinu á
Limbólandi og um líkt leyti hafi
Ólafur nefnt það við sig að hann
hygðist vinna hugmyndina
frekar, bæta við fleiri myndum
og gefa svo þjóðinni. „Hann
hafði lengi langað til að gera verk um þennan fak-
tor, þetta atriði í íslenskri menningu. Hann var
alltaf hér á sumrin sem barn, var mikið í Holt-
unum og varð snemma mikill áhugamaður um há-
lendisferðir, fór í jeppaferðir og fer enn,“ segir
Halldór og bætir við að þótt sú skýring hafi heyrst
að verkið eigi að vera táknrænt fyrir efnahags-
hrunið, að menn sitji fastir úti í á á jeppanum sín-
um, hafi það verið unnið fyrir hrun og sé í raun og
veru óður um Íslendinga. „Ólafur skynjar þá orku
landsins sem er í fólki og ég held að upphaflega
hugmyndin hjá honum hafi verið óður til þjóð-
arinnar.“
Óþekkti ævintýramaðurinn
Í formálanum nefnir Halldór óþekkta ævintýra-
manninn í nafnlausu ökutæki í ókunnu fallvatni, en
verkið hefur væntanlega allt aðra skírskotun til út-
lendinga en okkar sem höfum mörg orðið vitni að
því þegar menn festu bíl í á eða höfum jafnvel setið
föst í bíl í á. Halldór tekur undir það og beðinn
um að rekja eigin reynslu af því
að fara á bíl út í á nefnir hann að
hann hafi átt tvo eldri bræður og
þeir gamlan Dodge Weapon frá
Kóreustríðinu, árgerð 1952 eða 53.
„Við vorum alltaf að flandra á
hálendinu og svo er ég líka útlærð-
ur leiðsögumaður og fór í hálend-
isferðir með útlendinga fyrir svona
15 árum eða svo. Erlendir ferða-
menn eru líka farnir að haga sér eins
og Íslendingar. Ég var oft með
Frakka og Spánverja og Ítali og
maður þurfti stundum að passa upp á
þá, þeir höguðu sér eins og kýrnar á vorin og
gerðu sér enga grein fyrir hættunum. Landið er
svo ólíkt Evrópu þar sem allt er vegalagt og hver
fersentimetri skipulagður.“
Orka Ein myndanna úr verki Ólafs Elíassonar Cars in Rivers.
Nafnlaust ökutæki
í ókunnu fallvatni
Crymogea hefur gefið út á bók verkið Cars in rivers eftir Ólaf Elíasson
Halldór Björn
Runólfsson
Trínidadísk-breski rithöfundurinn
Vidiadhar Surajprasad Naipaul, sem
er af indversku bergi brotinn, fékk
bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir tíu
árum og var þá lofaður um heim all-
an fyrir bækur sínar og innsýn í
mannlega tilveru. Upp frá því má
segja að molnað hafi úr glansmynd-
inni og ýmsir hafa farið hörðum orð-
um um skáldið fyrir síngirni, sjálfs-
elsku, ofbeldishneigð og kynþátta-
fordóma og Naipaul sjálfur verið
iðinn við glannalegar yfirlýsingar og
hann hefur þannig meðal annars
gert lítið úr blökkumönnum, mús-
limum, hindúum, Indverjum og íbú-
um Afríku eins og þeir leggja sig. Í
viðtali um verk hans sem tekið var
við hann á fimmtudag notaði hann
svo tækifærið og fór háðulegum orð-
um um konur og rithæfni þeirra,
sagði meðal annars að engin kona
væri jafnoki hans að ritsnilld og
gagnrýndi Jane Austen sérstaklega.
„Ég get lesið texta og eftir eina eða
tvær setningar veit ég hvort höfund-
urinn er kona eða karl,“ sagði hann
og bætti við að tilfinningasemi
kvenna gegnsýrði verk þeirra og
þær hefðu þröngt sjónarhorn á
heiminn. „Konur ráða ekki á heim-
ilinu og það skilar sér í skrif
þeirra … Útgefandi minn, sem
reyndist mér svo vel sem ritstjóri og
ráðgjafi, fór að skrifa bækur sjálf og
þær voru eintómt kvenlegt blaður,
en það má ekki skilja þetta svo að ég
sé að gera lítið úr henni.“
Konur
geta ekki
skrifað
V.S. Naipaul yfirlýs-
ingaglaður að vanda
Fordómar Rithöfundurinn Vidiadh-
ar Surajprasad Naipaul.
Já hann, hann er einn
af bestu sellóspil-
urum landsins, hann er
örugglega góður í rúminu 32
»
Út er komin
hljóðbókin
Bakkabræður og
kímnisögur þar
sem þeir Ársæll
Níelsson og Elfar
Logi Hannesson
lesa sögur úr
þjóðsagnasafni
Jóns Árnasonar.
Kómedíuleik-
húsið gefur hljóð-
bókina út.
Alls eru í bókinni, sem gefin er út
á geisladisk, fjórtán sögur af bræðr-
unum á Bakka og tuttugu og fjórar
kímnisögur úr þjóðsagnasafni Jóns
Árnasonar.
Bakkabræður
og kímnisögur
á hljóðbók
Bakkabræður og
kímnisögur
Á sýningunni Limbólandi notaði Ólaf-
ur myndir af bílum í ám sem hann
hafði fengið sendar. Á meðan á sýn-
ingunni stóð fékk hann fleiri myndir
sendar og notaði svo í verkið Cars in
rivers sem hann gaf Listasafni Ís-
lands og sýnt var þar 16. september
til 7. nóvember 2010.
Í bókinni Bílar í ám / Cars in riv-
ers er verkið birt á bók í svokölluðu
svissnesku broti. Bókin er gefin út
hjá Crymogeu í samstarfi við
Listasafn Íslands og dreift í Evr-
ópu, Asíu og Norður- og Suður-
Ameríku.
Eins og getið er ritar Halldór Björn
Runólfsson formála að bókinni og Hjálmar
Sveinsson inngang. Útlit bókarinnar var í
höndum Vinnustofu Atla Hilmarssonar.
Verkið í eigu
Listasafns Íslands
MYNDIR ÚR LIMBÓLANDI