Morgunblaðið - 08.06.2011, Page 1

Morgunblaðið - 08.06.2011, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  133. tölublað  99. árgangur  BANNAÐ AÐ TÝNA GLEÐINNI OG SLASA SIG VERÐSKYNIÐ VANTAR FJÖLHÆFUR OG FRJÓR HÖNNUÐUR ÍÞRÓTTASKÓR DÝRIR 18 HENRIK VIBSKOV 32HANDBÓK UM ÚTIVIST 10 Fréttaskýring um verðlag eftir Baldur Arnarson Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd fundaði um svokallað litla frumvarp um stjórn fiskveiða í gærkvöldi. Meirihlutinn lagði til tilslakanir á efni frumvarpsins. „Það var farið yfir hugmyndir stjórnarmeirihlutans í nefndinni um hvað mætti gera til að liðka fyrir þinglokum,“ sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður nefndarinn- ar, í gærkvöldi. Hún segist hafa lagt fram efnislegar tilslakanir á efni frumvarpsins. „Við vorum með til- slakanir, ef þær mættu verða til þess að liðka fyrir samningum um þing- lok,“ segir Lilja Rafney og vildi að öðru leyti ekki tjá sig um tillögurnar. „Það var engin efnisleg niðurstaða á þessum fundi,“ segir Einar K. Guð- finnsson, Sjálfstæðisflokki, sem situr í nefndinni. „Það voru lagðar fram nokkrar hugmyndir. Sumar eru til bóta, aðrar ganga ekki upp. Við gát- um ekki rætt þær efnislega á fund- inum,“ segir Einar og segist ekki geta tjáð sig um efni tillagna Lilju Rafneyjar, en hann segir að að ein- hverju leyti sé verið að koma til móts við þá gagnrýni sem hann hefur sett fram. Þetta staðfesti Sigurður Ingi Jóhannsson, fulltrúi Framsóknar- flokks. Hann segir mörgum spurn- ingum ósvarað og að ekki hafi gefist nægur tími til vinnu í nefndinni. M„Maður skilur ekki »4 Tilboð um tilslakanir  Meirihlutinn lagði fram tilslakanir á litla fiskveiðifrumvarpinu í gær  Ekki hefur náðst samkomulag um þinglok  Áfram fundað í dag um stjórn fiskveiða Þinglok ekki ákveðin » Ekki hefur náðst sam- komulag um þinglok og því er óvíst hvenær þingi lýkur. » Fiskveiðifrumvarpið er ein helsta ástæða þess að ekki hefur náðst samkomulag, að sögn Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis.  Allt útlit var í gærkvöldi fyrir að vinnustöðvun flugvirkja hæfist klukkan sex nú í morgun og á hún að standa til kl. tíu. Upp úr viðræðum Flugvirkjafélags Ís- lands og Icelandair slitnaði síð- degis í gær. „Það er boðuð vinnu- stöðvun 8., 9. og 10. júní, fjóra tíma í senn, ef ekki nást samn- ingar. Þetta eru heilir þrír sólar- hringar og við getum vonandi náð saman á þeim tíma,“ segir Óskar Einarsson, formaður Fé- lags flugvirkja. Vinnustöðvunin kemur til með að hafa seinkanir í för með sér á flugi Icelandair til Evrópu í morgunsárið. Vinnustöðvun flug- virkja seinkar flugi Morgunblaðið/Ernir „Ég þakka ykkur fyrir að sýna mér stuðning í því óheillamáli sem hófst í landsdómi í dag,“ sagði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, við þéttskipaðan sal stuðningsmanna sinna í Hörpu í gær. Hann vísaði öllum sakarefnum á bug fyrir dómnum í gær. „Við ætlum að hafa sigur í þessu máli.“ Geir sagðist finna stuðning víða að, en á fundinum voru bæði pólitískir samherjar og andstæðingar hans. »12 Þéttskipað á stuðningsmannafundi Geirs Morgunblaðið/Kristinn  Meðalgengið í fyrsta gjaldeyr- isútboði Seðla- bankans í tengslum við áætlun um afnám haftanna nam tæpum 219 krón- um gagnvart evru. Í útboðinu keypti bankinn aflandskrónur fyrir tæplega 14 milljarða í gjaldeyri. Alls bárust til- boð fyrir ríflega 61 milljarð króna í útboðinu. Opinbert seðlabanka- gengi gagnvart evru nemur tæpum 167 krónum. »16 Meðalgengið 219 kr. gagnvart evru Útboði lauk í gær. Arnar Sigurmundsson, formaður Landssambands lífeyrissjóða, segir greinilegt að stjórnvöld séu að heykj- ast á skattlagningu á lífeyrissjóði og kveðst hann fagna því. „Við sögðum strax að skattlagning kæmi aldrei til greina,“ sagði Arnar í gær. Arnar bendir á að viðræður við stjórnvöld í desember í fyrra hafi fyrst og fremst snúist um að leita leiða til að fjármagna þá tímabundnu vaxtalækkun sem ríkisstjórnin vildi beita sér fyrir og það þyrfti að semja um skiptingu kostnaðar á milli lífeyr- issjóðanna og bankanna. Hann kveðst telja að eðlileg skipting væri 25% kostnaðarþátttaka lífeyrissjóðanna og 75% lendi hjá bönkum og fjármála- fyrirtækjum. agnes@mbl.is »4 Heykjast á skattinum Skattar Áformin mæta mótstöðu.  Telja eðlilega skiptingu að lífeyrissjóðir taki á sig 25% og 75% lendi hjá bönkum  Af þeim rúmlega 500 bátum, sem í ár hafa landað afla í strand- veiðikerfinu er 191 bátur í eigu að- ila sem einhvern tímann hafa átt skip sem einhvern tímann hefur flutt frá sér aflaheimildir, skv. upp- lýsingum Fiskistofu. Í skýrslu sem Háskólasetur Vest- fjarða vann fyrir sjávarútvegsráðu- neytið að loknu fyrsta sumri strandveiða 2009 kemur fram að 24% útgerðarmanna sögðust ein- hvern tímann hafa selt allan sinn kvóta. aij@mbl.is »6 Tæp 40% hafa selt frá sér heimildir  Greiðslukortanotkun Íslendinga tók stakkaskiptum við bankahrun- ið. Notkun kreditkorta minnkaði mikið á meðan debetkortin – og reiðufé – sóttu á. Á undanförnum mánuðum virðast Íslendingar hins vegar vera að sækja í sama farið og fyrir hrun, að sögn Viðars Þorkels- sonar, forstjóra Valitors. „Sjálfs- traustið virðist vera komið aftur og fólk er tilbúið að nota kreditkortið meira.“ »2 Kortanotkun í sama far og fyrir hrun Hitastig sjávar í kringum Ísland hefur aldrei orðið hærra en í fyrrasumar síðan Hafrann- sóknastofnun hóf mælingar á hita og seltu sjávar árið 1970. Hitastig- ið byrjaði að hækka ört eftir 1996. Mest hefur hitastig sjávar hækkað við Suður- og Vesturland. Fyrir norðan land hlýnaði sjórinn seinna en hækkun á grunnsævi fyrir Norðurlandi er engu að síður svip- uð og við Suður- og Vesturland. Seltan í sjónum hefur aukist á sama tíma en seltan segir að nokkru til um hvaðan sjórinn kem- ur. „Við fáum nú sterkari hlýsjó en áður. Tilgátan er að hann komi í meira magni úr hafinu sunnan- og austanverðu,“ segir Héðinn Valdimarsson haffræðingur. Heitari og saltari sjór í kringum Ísland Hafa enga ástæðu til bjartsýni 14 Frávikið varð að stöðugri hlýnun 15 Ýsa tók við sér en er aftur … 15 3. hluti af 7 Hamskipti lífríkis og landslags

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.