Morgunblaðið - 08.06.2011, Blaðsíða 4
hissa á því, þar sem við töldum að
þessi sérstaka ráðstöfun ætti að
byggjast á tímabundnu samkomulagi,
sem ekki þyrfti að festa í lög.
Þá var boðið upp á það að bara ann-
að árið yrði sett í lög og gert sam-
komulag um hitt árið. Við höfum allan
tímann verið hörð á því að það komi
ekki til greina að skattleggja lífeyris-
sjóðina og við það stendur.“
Arnar segir að ef efna eigi vilja-
yfirlýsinguna frá í desember verði að
semja um skiptinguna á milli banka
og lífeyrissjóða. „Við erum með rúma
170 milljarða króna í útlánum, en
bankarnir rúma 500 milljarða króna.
Þá erum við með um 25% en bank-
arnir 75% og kostnaðarskipt-
ingin hlýtur því að verða í
þeim hlutföllum. Það er
eðlilegra að nota útlánin
sem grunn heldur en
niðurstöður efnahags,
en miðað við slíkan
grunn væru hlutföllin
eitthvað um 37% hjá
lífeyrissjóð-
um og 63%
hjá bönk-
unum.“
Arnar bendir á að lífeyrissjóð-
irnir hafi boðist til þess að
kaupa eignir af ríkinu, ef það
mætti duga, en því hafi verið
hafnað. Þá hafi lífeyrissjóð-
irnir boðist til þess að endur-
taka viðskiptin frá því í fyrra,
með kaupum á svokölluðum
Avens-skuldabréfum í Lúxem-
borg, en því hafi ríkisstjórnin
ekki enn svarað. Í þriðja lagi
segir Arnar að sjóðirnir hafi
boðist til þess að nota svo-
kallaðan umframhagnað, ef
það yrðu viðskipti með af-
landskrónur, og lífeyrissjóð-
irnir væru tilbúnir til
þátttöku ef slík við-
skipti væru hag-
felld.
Buðu upp á
ólíkar leiðir
LÍFEYRISSJÓÐIRNIR
Steingrímur
J. Sigfússon
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
Einbeitingin skín úr svip Álfrúnar Freyju Geir-
dal sem mundar hér hamarinn af mikilli list og
leggur grunn að kofa sem hún ætlar að smíða í
sumar. Eflaust verður það glæsihýsi mikið sem
mun gagnast vel í hinum ýmsu leikjum.
Smíðavellir Íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur hófu starfsemi sína á mánudaginn
og starfa í þrjár til fimm vikur. Átta smíðavellir
eru starfræktir í borginni en þeir eru fyrir börn
á aldrinum 9 til 13 ára og verða við Ársel, Rima-
skóla, Hólmasel, Miðberg, Breiðholtsskóla, Há-
teigsskóla, Melaskóla og Álftamýrarskóla.
Morgunblaðið/Eggert
Neglt og sagað á smíðavelli
„Það er mikill
baráttuhugur í
stéttinni og hún
sættir sig ekki
við það tilboð
sem við fengum,“
segir Haraldur
F. Gíslason, for-
maður Félags
leikskólakenn-
ara. Atkvæða-
greiðsla um boðun verkfalls fé-
lagsmanna sem starfa hjá
sveitarfélögum hefst í dag kl. 9.
Greitt er atkvæði um að verkfall
hefjist 22. ágúst, en Haraldur segist
vona að samningar náist.
„Það er erfitt að meta hvort þetta
sé að þokast í samkomulagsátt. Við
erum í sáttahug, en við sækjum
hart þessa leiðréttingu.“ Á borðinu
er samningur sem er sambærilegur
því sem samið var um á almennum
markaði. Félag leikskólakennara
fer hins vegar fram á 10% leiðrétt-
ingu til að jafna kjör við viðmið-
unarstéttir.
„Leikskólinn verður ekki sam-
keppnishæfur á markaði ef fram
heldur sem horfir. Kröfur okkar
eru sanngjarnar og við erum tilbúin
að fara alla leið ef því er að skipta.“
Atkvæðagreiðslu lýkur 14. júní.
Leikskólakennarar
greiða atkvæði um
boðun verkfalls
Haraldur Gíslason
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Við vorum beðin um umsögn um frumvarpið á
föstudagskvöldið, þá kom póstur frá sjávarút-
vegsnefnd. Umsögninni átti síðan að skila á
mánudagkvöldið,“ segir Signý Jóhannesdóttir,
varaforseti Alþýðusambands Íslands, sem er
ósátt við þá hraðferð sem litla frumvarpið svo-
nefnt um breytingar á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu hefur verið sett í.
Signý mætti ásamt Ólafi Darra Andrasyni,
hagfræðingi ASÍ, á fund sjávarútvegs- og land-
búnaðarnefndar Alþingis í gærmorgun til þess
að koma á framfæri sjónarmiðum sambandsins
varðandi frumvarpið. Leggur ASÍ til að það
verði lagt til hliðar og í framhaldinu verði stað-
ið faglegar að málinu, meðal annars með því að
hafa almennilegt samráð við hagsmunaaðila,
einkum þá sem raunverulega starfa í greininni,
þá ekki síst sjómenn og landverkafólk.
Snöggsoðin kynning
Signý segir að fulltrúar ASÍ hafi verið boð-
aðir á fund með Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, fyrir um hálfum
mánuði þar sem þeir hafi fengið mjög „snögg-
soðna kynningu“ á frumvarpinu og síðan í
framhaldinu takmörkuð svör þegar þeir
reyndu að leggja fram spurningar.
„Þetta eru auðvitað ekki vinnubrögð sem á
að viðhafa í einhverju stærsta hagsmunamáli
þjóðarinnar,“ segir Signý og bætir ennfremur
við að umfjöllunin um málið hafi öll verið í
skötulíki. „Maður skilur ekki þennan asa. Það
er ekki eins og að fiskurinn sé eitthvað að
hverfa.“
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
fengu aðrir þeir sem óskað var eftir umsögn
frá ekki meiri tíma en ASÍ til þess að skila
henni inn. Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasamtaka Íslands, segir að samtökin hafi
þurft að skila sinni umsögn inn fyrr eða á
mánudagsmorgun.
„Það er kannski ekki erfitt að semja slíka
umsögn en það þarf auðvitað að bera málið
undir stjórn,“ segir Sævar. Hann segir það
hreinlega dónaskap að veita ekki meiri tíma til
umsagnar um svo stórt mál.
Í umsögn sinni gagnrýna Sjómannasamtök-
in frumvarpið harðlega og leggja til að það
verði ekki að lögum.
„Maður skilur ekki þennan asa“
Alþýðusamband Íslands vill að litla frumvarpið um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu verði lagt
til hliðar Formaður Sjómannasamtakanna segir það dónaskap að veita ekki meiri tíma til umsagnar
„Þetta eru auðvitað ekki
vinnubrögð sem á að við-
hafa í einhverju stærsta
hagsmunamáli þjóð-
arinnar.“
Signý Jóhannesdóttir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Arnar Sigurmundsson, formaður
Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að
skattlagning lífeyrissjóða komi aldrei
til greina. Arnar sagði þetta í samtali
við Morgunblaðið í gær, í tilefni af
ummælum Steingríms J. Sigfússonar
í Morgunblaðinu í gær um tíma-
bundna ráðstöfun í bandorminum um
að fjármálastofnanir og lífeyrissjóðir
standi straum af kostnaði á
vaxtaniðurgreiðslum sem ákveðnar
voru í tengslum við ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar vegna skuldastöðu
heimila í desember í fyrra.
„Það er greinilegt af orðum fjár-
málaráðherra, að stjórnvöld eru að
heykjast á skattlagningu á lífeyris-
sjóði og ég lýsi ánægju með það. Nú
vona ég að menn komi til baka og
reyni að leita leiða fyrir 22. júní, hvort
það sé hægt að ljúka þessu með sam-
komulagi milli aðila.
Það var snemma í desember í fyrra
sem aðilar áttuðu sig á því, að það
væri stór hópur skuldsetts fólks sem
myndi einskis njóta í þeim aðgerðum
sem ríkisstjórnin var með í undirbún-
ingi. Þá var farið að leita leiða til þess
að koma til móts við það fólk og þá
varð til þessi hugmynd hjá stjórn-
völdum að vera með tímabundna
vaxtalækkun upp á 0,5%, sem myndi
gilda í tvö ár. Af því tilefni ræddu
stjórnvöld við okkur hjá lífeyrissjóð-
unum og bönkunum,“ sagði Arnar.
Hann sagði að strax hefði verið
spurt um aðkomu Íbúðalánasjóðs,
sem væri stærstur á lánamarkaðnum,
en stjórnvöld hefðu strax sagt að ÍLS
hefði enga möguleika á því. Sjóðurinn
þyrfti á sérstökum stuðningi að halda.
„Þá sátum við eftir, lífeyrissjóðirn-
ir, bankar og fjármálafyrirtæki. Sam-
ræður við stjórnvöld á þessum tíma
snerust fyrst og fremst um að leita
leiða til þess að fjármagna þessa tíma-
bundnu vaxtalækkun. Orðið „fjár-
magna“ merkir ekki skattur og við
sögðum strax í þessum viðræðum að
það þyrfti að semja um þessa skipt-
ingu á milli okkar og bankanna,“
sagði Arnar.
Viðskipti með aflandskrónur
„Við sögðum strax að skattlagning
kæmi aldrei til greina og ég hygg að
bankarnir hafi sagt slíkt hið sama,“
sagði Arnar. Hann segir að í vetur
hafi tveir sameiginlegir fundir verið
haldnir með lífeyrissjóðunum, bönk-
unum og fjármálaráðuneytinu. Líf-
eyrissjóðirnir hafi beðið eftir því að
viðskipti með aflandskrónur myndu
eiga sér stað, en þau hafi dregist á
langinn. Arnar heldur áfram: „Svo er
okkur bara tilkynnt núna þegar kom-
ið er fram í maí að það sé meiningin að
þessi hluti verði í bandorminum, sem
er hluti aðgerða til þess að efna kjara-
samningana frá 5. maí. Við urðum
Skattlagning kom aldrei til greina
Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir kostnaðarskiptingu eiga að vera
25% hjá lífeyrissjóðunum á móti 75% hjá bönkunum Telur brýnt að ná samkomulagi fyrir 22. júní
Morgunblaðið/Ernir
Lífeyrissjóðir Arnar Sigurmunds-
son eftir fund með stjórnvöldum.