Morgunblaðið - 08.06.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
Svo heppilega vill til fyrir íslensk-an almenning að á nokkurra ára
tímabili, árin 2001-2008, rann meiri-
hluti lögfræðikostnaðar Íbúðalána-
sjóðs í vasa Árna Páls Árnasonar.
Árni Páll fékk til að myndagreiddar hátt í
40 milljónir króna á
þriggja ára tímabili,
eða um eina milljón
króna á mánuði að
meðaltali.
Aðspurður sagðiÁrni Páll að hann hefði ekki
verið í fullu starfi við lögfræðiráð-
gjöfina, aðeins verið lögmaður sjóðs-
ins og sinnt ákveðnum verkefnum.
Ég vann alltaf á mjög lágumtaxta og fyrir þessu öllu eru ít-
arlegar tímaskýrslur,“ sagði Árni
Páll, svo að enginn þurfi að láta sér
detta í hug að hann hafi verið að
mjólka þessa opinberu stofnun.
Auðvitað verður það að teljastmikil gæfa fyrir þjóðina að
Árni Páll skyldi vera tilbúinn að
taka að sér þetta hlutastarf á „mjög
lágum taxta“ og fá fyrir það aðeins
eina milljón króna á mánuði.
Vissulega er það þakkarvert aðslíkur lögspekingur skuli hafa
verið reiðubúinn til að fórna hluta af
dýrmætum tíma sínum í almanna-
þágu og hafi varla þegið fyrir það
nokkra þóknun svo heitið geti.
Og það má ekki síður teljast mikilgæfa fyrir þjóðina að jafnaðar-
maður sem er í svo nánum tengslum
við veruleika almennra launataxta-
manna skuli fallast á að gegna ráð-
herraembætti.
Sannarlega einstök fórnfýsi.
Árni Páll Árnason
Lágmarkstaxti
ráðherrans
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 7.6., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 6 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 skúrir
Vestmannaeyjar 7 skýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 15 þrumuveður
London 17 heiðskírt
París 16 skýjað
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 25 léttskýjað
Vín 27 skýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 26 skýjað
Winnipeg 11 skúrir
Montreal 22 skýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 31 heiðskírt
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:07 23:47
ÍSAFJÖRÐUR 2:06 24:59
SIGLUFJÖRÐUR 1:43 24:47
DJÚPIVOGUR 2:25 23:29
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Krabbameinsfélag Íslands fagnar 60
ára afmæli sínu um þessar mundir
og í tilefni af því verður haldið
Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins í
tuttugasta sinn í dag. Hlaupið hefst
við hús Krabbameinsfélagsins í
Skógarhlíð 8 í Reykjavík og hefst
það klukkan 19 í kvöld. Um klukku-
stund fyrir sjálft Heilsuhlaupið
verður skemmtun í boði fyrir alla
fjölskylduna sem og afhending
hlaupanúmera. Hlaupurum er frjálst
að velja um tvær vegalengdir í ár.
Annars vegar er um að ræða þriggja
kílómetra skokk- eða gönguleið frá
Skógarhlíð að Öskjuhlíð og til baka.
Hins vegar er um að ræða lengri
hring, 10 kílómetra hlaup frá
Skógarhlíð og suður fyrir Reykja-
víkurflugvöll og til baka. Mæld verð-
ur tímataka hjá öllum þátttakendum
og verða úrslit birt eftir aldurs-
flokkum hlaupara. Hlauparar fæddir
á stofnári Krabbameinsfélagsins,
1951, fá þátttökugjald fellt niður en
það nemur krónum 1000. Vert er að
geta þess að allir sem þátt taka í
hlaupinu hljóta verðlaunapening og
að sama skapi fá fyrstu ein-
staklingar af hvoru kyni í báðum
vegalengdum vegleg verðlaun. Að
auki eru fjölmörg útdráttarverðlaun
í boði. Styrktaraðilar í ár eru Arion
banki og Asics.
Hlaupið og gengið í nafni heilsu í dag
Krabbameinsfélagið 60 ára og hvet-
ur til Heilsuhlaups í kvöld í 20. sinn
Morgunblaðið/Golli
Heilsuhlaup Hefst kl. 19 í kvöld.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Tíðarfar fyrstu fimm mánuði árs-
ins hefur verið nokkuð frábrugðið
því sem við eigum að venjast. Sé
litið til hitafars og úrkomu má sjá
að í báðum tilfellum mælist það yf-
ir meðallagi og til marks um það
hefur úrkoma t.a.m. mælst um átta
prósentustigum umfram meðallag í
Reykjavík og á Akureyri er um að
ræða 45 prósentustiga aukningu.
Sé litið til tíðarfars í maímánuði má
segja að skipta megi veðráttunni í
tvennt. Mánuðurinn hófst með
fremur mildu veðri þegar horft er
til landsins í heild en um miðbik
hans breyttist veðrið til muna.
Mikið norðanáhlaup gerði dagana
23. og 24. með talsverðri ofankomu
í formi snjós, m.a. með þeim afleið-
ingum að fjallvegir lokuðust og
ófærð myndaðist í byggð, einkum
Austanlands. Til marks um hversu
mikil ofankoman var má nefna að
mest mældist hún 25 cm á Gríms-
stöðum á Fjöllum og 21 cm á Há-
nefsstöðum í Seyðisfirði. Sólar-
hringsúrkomumet í maímánuði í
Reykjavík var slegið hinn 1. maí
þegar 38,8 mm af regni féllu á
höfuðborgarsvæðinu, eða rúmlega
helmingur allrar úrkomu í Reykja-
vík þann mánuð. Á Brúarjökli féll
hitastig hvað mest á landinu í maí-
mánuði og mældist -13,8 stig en
sama dag, hinn 25., mældist jafn-
framt lægsti hiti í byggð -8,2 gráð-
ur á Grímsstöðum á Fjöllum.
Hæsta hitastig var á Þingvöllum,
18,4 stig, áttunda dag mánaðarins.
Í Reykjavík mældust sólskins-
stundir 228,7 sem er 37 stundum
yfir meðallagi en á Akureyri mæld-
ust þær 120,7, 53 stundum undir
meðallagi.
Úrkomumet í
Reykjavík slegið
Biðin eftir sumarveðri reynist löng
Snjór í spákortunum
» Á fimmtudag: NA 8-15 m/s
og víða rigning en snjór til
fjalla. Hiti 2-8 stig.
» Á föstudag: NA 5-10 m/s og
hvasst norðvestantil. Vætu-
samt í veðri, þó úrkomulítið
suðvestantil.
» Um helgina og mánudag:
Austlæg átt með vætu um
landið, hlýnandi veður.
Jóhann Óli Hilmarsson
Stokkseyri | Nú stendur yfir í
Menningarverstöðinni Hólmaröst
sýning þriggja listamanna, þriggja
ættliða, og vinna þau öll í mismun-
andi efni. Ættfaðirinn Elfar Guðni
sýnir í vinnustofu sinni Svarta-
kletti málverk, sem hann hefur
unnið á síðasta ári, sem og eldri
verk. Þetta er 49. einkasýning Elf-
ars sem er borinn og barnfæddur
Stokkseyringur. Dóttir hans, Val-
gerður Þóra, er einnig með vinnu-
stofu í Menningarverstöðinni og
sýnir hún mósaíkverk, en hún not-
ar mikið spegla í verkum sínum,
svo og myndir unnar á rekavið.
Sonur hennar og jafnframt yngsti
meðlimur þessarar listfengu fjöl-
skyldu, Ívar Kvaran, sýnir blýants-
teikningar af lands- og heims-
kunnu fólki.
Sýningin er opin alla daga frá
14-18 og lýkur henni um hvíta-
sunnuna, 13. júní.
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Sýning Listfeng fjölskylda við sýnishorn verkanna, ættfaðirinn Elfar Guðni,
Ívar, yngsti meðlimur fjölskyldunnar og Valgerður Þóra, móðir hans.
Þrír ættliðir sýna
Listfeng fjölskylda á Stokkseyri