Morgunblaðið - 08.06.2011, Blaðsíða 11
Tjaldsvæði
„Ég er að
íhuga það að
skella mér á
serbneska
lúðrasveita-
mótið
GÚGA,
sem haldið
verður í
endaðan
ágúst.
Þetta er
brjálæðisleg
tónlistarhátíð,
sem ég ætla að
njóta sem gest-
ur,“ segir Stein-
grímur og bætir við
að stefnan sé að spila
á erlendri grundu á
næstunni.
Varsjárbandalagið spilar mest
tónlist ættaða frá Austur-Evrópu,
svokallaða balkantónlist. Enda er
sannkallaður Balkanskagablær yfir
tónlistinni og e.t.v. ekki síst yfir
fatavali hljómsveitarmeðlima, sem
eru klæddir í samræmi við tónlist-
ina.
Hljómsveitina skipa þeir Hallur
Guðmundsson (bassi), Steingrímur
Guðmundsson (trommur), Karl
Testka (fiðla), Sigríður Ásta (harm-
onikka), Jón Torfi (gítar) og Magn-
ús Pálsson (klarínett).
Færeyska plötufyrirtækið Tutl
sér um útgáfu plötunnar og er
áætlað að hún komi á Evrópu-
markað innan skamms.
Í tilefni útgáfunnar ætlar hljóm-
sveitin að halda tónleika annað
kvöld í Tjarnarbíói. Skemmtunin
byrjar klukkan 20:00 og kostar
1.200 kr inn.
Áhugi á hverskonar handverki fer sívaxandi og þeir
sem mestan hafa áhugann flakka á milli landa sér-
staklega til að kynna sér það sem aðrir eru að gera í
þeim málum. Fyrir þá sem eru með brennandi áhuga á
bútasaum ætti að vera fagnaðarefni að í haust ætla
ÍT-ferðir að bjóða upp á bútasaumsferð til Bandaríkj-
anna. Guðrún Erla Gísladóttir verður faglegur farar-
stjóri, en hún er búsett í Minneapolis og hefur haldið
nokkur vinsæl bútasaumsnámskeið hér á landi.
Þetta verður 7 daga ferð til Minneapolis og Ne-
braska og mun Guðrún halda námskeið í versluninni
Quilted Treasures, þar sem kennsla, námsgögn og að-
gangur að saumavélum verður innifalið. Einnig verða
bútasaumshönnuðirnir Linda Hohag frá Brandywine
og Heather Mulder frá Anka’s Treasures með sýni-
kennslu, sýna teppin sín og árita bækur. Farið verður í
skoðunarferðir og bútasaumsbúðir heimsóttar. Einn-
ig verður stoppað í tilraunagörðunum í University of
Iowa en þeir eru frægir fyrir blóm sín. Skoðað verður
hið fræga International Quilt Study Center. Tekið skal
fram að lágmarksþátttaka til að ferð verði farin er 20
manns.
Guðrún Erla fer fyrir hópnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bútasaumur Er mjög vinsæll um heim allan.
Bútasaumsferð til
Bandaríkjanna
reiknar með. Búast við því versta, en
vona það besta.“
Skór nú eins og
hestar hér áður
Eftir nokkrar umræður ákveða
þær að setja góða gönguskó í þriðja
sæti. „Góðir gönguskór eru jafn
mikilvægir og góður hestur var í
gamla daga,“ segir Helen. „Ef við
hugsum ekki vel
um fæturna
okkar
getum
sénsa þegar íslenska veðrið er annars
vegar. Jafnvel þó maður þurfi auðvit-
að ekki að lenda í lífsháska í hvert
skipti sem maður lendir í skítaveðri,
þá minnkar ánægjan af ferða-
mennskunni töluvert við það að þurfa
að húka rennblautur undir steini,
klukkutímum saman. Það er meira að
marka íslenskar veðurspár en margir
halda, og ef maður stefnir í fjallgöngu
ætti maður líka að hafa í huga að
veðrabreytingar verða oft
fyrr til fjalla og að öfgar í
veðrinu verða meiri. Að
þessu sögðu er rétt að
taka fram að þú ættir
alltaf að miða út-
búnað við það að
veðrið geti orðið
verra en þú
næsta nágrenni. Hvort sem þú hefur
kallað á hjálp eða ekki, er alltaf auð-
veldara að finna einhvern sem heldur
kyrru fyrir en einhvern sem er á
hreyfingu,“ segir Elín og leggur
áherslu á að fólk reyni að láta sér líða
sem best meðan það bíður eftir hjálp.
„Þú átt að drekka, borða, reyna að
halda á þér hita og stuðla að jákvæðu
hugarfari í hópnum. Láttu sjást til
þín, til dæmis með ljósi eða veifum.
Það er líka gott að muna að bílar og
skálar sjást mun fyrr úr lofti en gang-
andi fólk.“
Bannað að týna gleðinni
Að endingu vilja þær stöllur
brýna fyrir fólki að muna að brosa á
fjöllum. „Þegar við komumst á flug
með allt öryggistalið gæti einhver
við ekki ætlast til þess að þeir komi
okkur á leiðarenda. Góðir skór geta
kostað töluvert, en þeir endast líka í
mörg ár ef vel er farið með þá. Við er-
um hrifnastar af leðurskóm sem eru
með fáa sauma og gúmmirönd upp á
skóinn sjálfan. Millistífir skór henta
flestum í alhliða ferðamennsku og
sólinn ætti að vera grófur og úr góðu
gúmmíi.“
Best að halda kyrru fyrir
„Og af því að við erum mjög lit-
aðar af starfi okkar í björgunarsveit
eru rétt viðbrögð þegar í óefni er
komið í fjórða sæti,“ segir Elín. „Ef
þú villist skaltu halda kyrru fyrir,
svo framarlega sem þú sért ekki í
bráðri hættu á þeim stað eða
vitir um betra skjól í
Úti í náttúrunni Elín og Helen veita í bók sinni mörg góð ráð fyrir ferðafólk og segja mesta misskilning að það þurfi að vera kalt að sofa í tjaldi.
haldið að fjallgöngur og ferðalög
væru stórhættuleg og ekki fyrir
hvern sem er. Hið sanna er auðvitað
að góður dagur á fjöllum er eins og
fullur tankur af orku fyrir sálina og
því er mikilvægt að muna að vera í já-
kvæðu fötunum þegar maður fer úr
bænum,“ segir Helen og brosir. „Það
verður allt svo mikið auðveldara og
skemmtilegra, og ef eitthvað kemur
upp sem maður átti ekki von á, er
glaður heili mikið fljótari að leysa það
en fýldur heili. Þegar við vorum á
fjallamennskunámskeiðum í björg-
unarsveitinni okkar var okkur sagt
að á fjöllum væru tvær reglur: bann-
að að týna gleðinni og bannað að
slasa sig. Þetta hljómar kannski
undarlega, en þrælvirkar. Ef maður
fer eftir þeim,“ bætir Helen við.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
Góða ferð er yfirgripsmikil
handbók fyrir alla útivistariðk-
endur. Bókinni er skipt niður í
10 kafla og um 150 undirkafla,
svo handhægt er að nota hana
sem uppflettirit.
Meðal þeirra sem lásu efnið
yfir og gáfu góð ráð eru fjalla-
björgunarfólk, fjallaleiðsögu-
menn, leiðbeinendur í fyrstu
hjálp, næringarfræðingur, land-
fræðingur, ferðamálafræðingur,
sérfræðingur í útieldun og þaul-
vant ferða- og björgunarsveit-
arfólk.
Alfræðirit
ferðafólks
HANDBÓK UM ÚTIVIST
Gríptu tækifærið
og græjaðu þig
upp fyrir bústaðinn.
Magnaðir miðvikudagar!
4GB minnislykill
fylgir öllum
netlyklaáskriftum
í dag
Á m
eð
an
bir
gð
ir
en
da
st
Næsta helgi er fyrsta útileguhelgi sumarsins
(hvítasunnuhelgin). Er þá ekki tilvalið að skella
sér út á land í tjaldferðalag? Ef maður er ekki viss
hvert skal halda er alltaf gott að skoða camp-
ing.is. Á síðunni er að finna sæg upplýsinga um
staðsetningu og verð tjaldsvæða á landinu. Þar
eru einnig upplýsingar um skemmtileg og áhuga-
verð kennileiti í grennd við hvert tjaldsvæði. Önn-
ur góð síða í tengslum við tjaldferðalög er tjalda-
.is en sú síða er svipuðum eiginleikum gædd og
sú fyrrnefnda
Áður en haldið er í tjaldferðalög er betra að
hafa á hreinu hvernig viðrar. Bæði á mbl.is og
vedur.is er að finna gríðarlega góðar og yfirgrips-
miklar upplýsingar um veður og veðurspár fram í
tíman. Góða skemmtun í útilegunni!
Útilegur
Morgunblaðið/RAX
Tjaldútilega Fátt er skemmtilegra á sumrin.