Morgunblaðið - 08.06.2011, Blaðsíða 17
Mikið mannfall
» Vel á annað þúsund manns
hefur fallið í mótmælunum í
Sýrlandi. Langflestir þeirra
voru óbreyttir borgarar, þ.á m.
75 börn, að sögn alþjóðlegra
mannréttindasamtaka.
» Sýrlenska ríkissjónvarpið
fullyrti að hundruð vígamanna
hefðu lagt undir sig Jisr al-
Shughour og fjöldi borgarbúa
hefði flúið.
» Frakkar og fleiri V-Evrópuríki
vilja að öryggisráð SÞ fordæmi
hrottaskap ríkisstjórnar al-
Assads.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Íbúar Jisr al-Shughour í norðan-
verðu Sýrlandi bjuggu sig í gær und-
ir áhlaup stjórnarhermanna en ráða-
menn í Damaskus fullyrtu að um 120
manns, hermenn og lögreglumenn,
hefðu fallið í átökum við „vopnaða
glæpaflokka“ í borginni á sunnudag.
Ibrahim Shaar innanríkisráðherra
sagði að tekið yrði „hart og ákveðið“
á árásarmönnunum.
Orðrómur var á kreiki síðdegis í
gær um að skriðdrekar og brynvarð-
ir liðsflutningabílar, studdir þyrlum,
væru á leiðinni til Jisr al-Shughour.
Komið hefur verið á fót varðstöðv-
um íbúa á götunum til að reyna að
fylgjast með ferðum öryggissveita.
Borgarbúar hafa sett skilaboð á fés-
bókarsíður sínar um að þeir óttist
blóðbað og hvetja umheiminn til að
koma sér til hjálpar.
Einnig var hvatt til þess að fólk
reyndi að stöðva umferð inn í borg-
ina með því að reisa vegatálma úr
brennandi hjólbörðum, grjóti og
trjábolum.
Óljóst er hvað raunverulega gerð-
ist á sunnudag, erlendir fréttamenn
fá ekki að starfa í landinu. Baráttu-
menn fyrir lýðræði sem hafa efnt til
mótmæla gegn stjórn Bashar al-As-
sads forseta síðustu mánuði segja að
ef til vill hafi komið til uppreisnar
stjórnarhermanna sem hafi neitað að
skjóta á óbreytta borgara. Vitað sé
að til einhverra átaka hafi komið
milli óeinkennisklæddra liðsmanna
öryggissveita og hermanna í Jisr al-
Shughour um helgina en ekki svo al-
varlegra að þau skýri þessar háu töl-
ur um mannfall.
Uppreisnarmenn segjast ekki
ráða yfir vopnum. Menn velta fyrir
sér hvort um sé að ræða ýkjur um
mannfall stjórnarliða sem eigi að
nota sem afsökun fyrir því að gera
stórfellda árás á Jisr al-Shughour
sem er um 20 km frá tyrknesku
landamærunum. Sýrlendingar, sem
særst hafa í mótmælum, hafa margir
leitað sér hjálpar í Tyrklandi.
Uppreisnarmönnum hótað
Ráðamenn í Sýrlandi segja að komið verði á lögum og reglu í Jisr al-Shughour
120 lögreglu- og hermenn hafi fallið í árásum „vopnaðra glæpaflokka“
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
Geysilegir skógareldar hafa herjað í Arizona í rúma
viku og hafa íbúar nokkurra smáborga verið fluttir á
brott, hér sést eldbjarminn frá borginni Luna í sam-
bandsríkinu Nýju Mexíkó. Um 2.300 slökkviliðsmenn
frá mörgum sambandsríkjum berjast við eldana sem
hafa þegar eytt nærri þúsund ferkílómetra svæði.
Reuters
Miklir eldar í Arizona
Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri
í Massachusetts, fær mest fylgi í
nýrri könnun Washington Post og
ABC-sjónvarpsstöðvarinnar þar
sem spurt var hver ætti að verða for-
seti. Romney var með sama hlutfall
og Barack Obama forseti, báðir voru
með 47% fylgi, en ef aðeins voru
teknir með skráðir kjósendur var
Romney öflugri, með 49% en Obama
46%.
Stuðningur við Obama hefur dvín-
að mjög að undanförnu. Óánægja
kjósenda með ástand efnahagsmál-
anna hefur grafið undan forsetanum
sem naut mikillar hylli fyrst eftir fall
Osama bin Ladens.
Sarah Palin, fyrrverandi ríkis-
stjóri í Alaska, er með minnst fylgi
af hugsanlegum frambjóðendum
repúblikana. Tveir af hverjum þrem
segjast ekki munu kjósa hana undir
neinum kringumstæðum.
kjon@mbl.is
Romney
skákar
Obama
Öflugri meðal
skráðra kjósenda
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins vill að ESB-ríkin verji 150
milljónum evra, um 26 milljörðum
króna, til að greiða grænmetis-
bændum bætur vegna saurgerils,
E.coli, sem greinst hefur í græn-
meti. Mengunin hefur banað 23 auk
þess sem yfir 2.000 hafa veikst.
Sala á grænmeti hefur dregist
verulega saman en óljóst er hvar
mengunin kom upp og í hvaða gerð
grænmetis. Dacian Ciolos, sem fer
með landbúnaðarmál í fram-
kvæmdastjórn ESB, hvatti yfirvöld
í Þýskalandi til að komast fyrir rót
vandans en veikin kom að líkindum
upp í norðanverðu Þýskalandi.
Grænmetisbændur í
ESB fái bætur vegna
saurgerilsmengunar
Stjórn Muamm-
ars Gaddafis í
Líbíu fullyrðir
að loftárásir
Atlantshafs-
bandalagsins
hafi valdið stór-
tjóni á íbúðar-
húsum þótt fá
merki sjáist um
það. Einnig hafi
fjölmargir óbreyttir borgarar
fallið, þ. á m. lítil stúlka í Tripoli.
En nú hefur komið í ljós að
barnið fórst í bílslysi. Óþekktur
starfsmaður sjúkrahúss laumaði
miða með þessum upplýsingum að
erlendum fréttamönnum sem
stjórnvöld höfðu kallað á vett-
vang.
Falskar upplýsingar
um manntjón
Muammar Gaddafi
Gosaska frá eldfjallinu Puyehue í
Síle truflar nú flug í Argentínu og
var ferðum til og frá alþjóðavell-
inum í Buenos Aires frestað í gær.
Flugvellir í sunnanverðri Argent-
ínu hafa verið lokaðir síðan gosið
hófst á laugardag.
Í Síle hafa um 4.000 manns þurft
að yfirgefa heimili sín í grennd við
eldfjallið. Engin virkni hafði verið í
eldfjallinu frá árinu 1960. Vindar
frá norðvestri hafa flutt öskuna frá
Síle og yfir S-Argentínu.
Síle er eitt af mestu eld-
fjallalöndum heims, þau eru um
2000, aðeins í Indónesíu eru þau
fleiri. Vitað er um 50-60 eldfjöll í
Síle sem hafa gosið en hugsanlegt
að allt að 500 séu enn virk.
Gosaska truflar
flugumferð
Frægasti sauður Nýja-Sjálands,
Skrekkur, var aflífaður um helgina
enda orðinn 16 ára og afar lasburða
að sögn eigandans, Johns Perriams.
Skrekkur varð víðfrægur árið 2004
þegar hann var loksins handsam-
aður og rúinn í beinni sjónvarps-
útsendingu eftir að hafa falið sig í
sex ár í hellum á Suðureynni. Ullin
af merinó-sauðnum vó nærri 27 kíló.
Skrekkur varð eftirlæti allra,
hann fékk að hitta þáverandi for-
sætisráðherra, Helen Clark, var um-
fjöllunarefni í barnabókum og kom
fram á góðgerðarsamkomum. „Hann
var einstakur persónuleiki, elskaði
börn og var afskaplega góður við
fólk á elliheimilum,“ segir Perriam.
Reuters
Vel dúðaður Skrekkur á góðgerðasamkomu í bænum Cromwell árið 2004,
hann þótti einstaklega góð auglýsing þegar safnað var fé.
Loðin hetja fallin í
valinn á Nýja-Sjálandi
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Mál manna er að framboðið á þekkt-
um stjórnmálakörlum sem haga sér
eins og flón eða fantar sé óvenjumik-
ið þessa mánuðina. Bandaríski full-
trúadeildarþingmaðurinn Anthony
Weiner frá New York gafst loks upp
á að skrökva, hann viðurkenndi iðr-
andi og allt að því tárfellandi á
blaðamannafundi í beinni útsend-
ingu á mánudag að hann hefði sent
klámfengna ljósmynd af neðri parti
sínum, nánar tiltekið áberandi
þrútnum nærbuxunum, með aðstoð
twitter til 21 árs gamallar konu.
Áður hafði Weiner, sem er 46
ára, margsinnis fullyrt að einhver
óþokki hefði svindlað myndinni inn í
sendinguna.
„Ég skal tala skýrt, myndin var
af mér og ég sendi hana,“ sagði
Weiner. Hann harmaði dómgreind-
arleysi sitt og sársaukann sem hann
hefði valdið eiginkonu sinni og öðr-
um með þessu framferði sem hann
sagði hafa átt að vera „brandara“.
Hann viðurkenndi að hafa átt í kyn-
ferðislegu netsambandi við sex kon-
ur eftir að hann giftist en aldrei hitt
neina þeirra og aldrei haldið fram
hjá. Og ekki brotið lög.
Weiner mun hafa ætlað að
senda konunni einni en sendi óvart
56.000 manns tístið með myndinni!
Aðrir demókratar lítt hrifnir
Þingmaðurinn svaraði fyrstu
dagana með þjósti og sagði að verið
væri að hindra sig í að sinna alvar-
legum stjórnmálum með þessari
árás tölvuþrjóta. Weiner var álitinn
líklegur til frama og rætt um hann
sem verðandi borgarstjóra í New
York þótt eftirnafnið hafi oft vakið
hlátur. Í framburði hljómar það eins
og algengt slang yfir typpi.
Hann segist að vísu taka ábyrgð
á mistökunum en ætlar sitja áfram á
þingi en Weiner hefur gegnt emb-
ættinu í 13 ár. Ísköld þögn flestra fé-
laga hans í demókrataflokknum seg-
ir meira en nokkur orð, játning
Weiners var of seint á ferðinni.
Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata-
minnihlutans í fulltrúadeildinni í
Washington, hvetur til þess að siða-
nefnd deildarinnar rannsaki málið.
Hugsaði þingmaðurinn
nógu stíft með heilanum?
Weiner viðurkennir að hafa logið um klámfengna mynd
Hver, ég? Anthony Weiner er til
vinstri í demókrataflokknum.
Skannaðu kóðann
til að lesa meira
um Sýrland.