Morgunblaðið - 08.06.2011, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
✝ Sigrún HrefnaGuðmunds-
dóttir fæddist í
Reykjavík 29. apríl
1947. Hún varð
bráðkvödd á heimili
sínu í Reykjavík 25.
maí 2011. Foreldrar
Sigrúnar voru hjón-
in Guðmundur Ingv-
ar Ágústsson kaup-
maður í Reykjavík,
f. 13.3. 1917, d. 26.3.
1978, og Guðfinna Sigrún Ólafs-
dóttir, kaupkona í Reykjavík, f.
2.7. 1918, d. 17.3. 2009.
Sigrún var önnur í röð fjögurra
systkina. Þau eru: 1) Maja Þur-
ingameistara. Börn þeirra eru
Kjartan Freyr, f. 9.10. 1992, og
Arnþór Ingvi, f. 15.6. 1995. 2)
Hrefna Sigríður Briem, viðskipta-
fræðingur, f. 12.10. 1969, maki
Bjarni Þór Þórólfsson, viðskipta-
fræðingur. Börn þeirra eru Ásdís
Karen, f. 1.9. 1990, Bjarney María,
f. 4.12. 1996, og Þór Daníel, f.
25.11. 1996. 3) Guðbjörg Forberg,
vaktstjóri, f. 15.9. 1977.
Sigrún ólst upp í Vogahverfinu
í Reykjavík og gekk í Langholts-
skóla. Á unglingsárum vann hún í
verslun foreldra sinna. Hún lærði
hárgreiðslu í Iðnskólanum í
Reykjavík og hlaut starfsréttindi
á því sviði. Eftir að hún lauk námi
setti hún upp eigin hárgreiðslu-
stofu í Rauðagerði í Reykjavík.
Hún rak hárgreiðslustofuna í
skamman tíma, eða þar til hún
veiktist um tvítugt.
Útför Sigrúnar fór fram frá
Fossvogskirkju í gær, 7. júní 2011.
íður, f. 1.5. 1941,
húsmóðir í Reykja-
vík, gift Hafliða Erni
Björnssyni. 2) Ólöf
Hafdís, f. 17.10.
1949, d. 12.10. 2003,
gift Sigurjóni Guð-
mundsyni, d. 15.11.
2010. 3) Kristján
Arnfjörð, kaup-
maður og bifreiða-
stjóri, f. 30.10. 1951.
4) I. Linda, hús-
móðir, f. 1.4. 1956.
Dætur Sigrúnar eru þrjár: 1)
Guðfinna Sif Sveinbjörnsdóttir,
ljósmóðir, f. 1.8. 1966, gift Kjart-
ani Ó. Kjartanssyni, pípulagn-
Elsku mamma var hæfileika-
rík og ljúf manneskja og ætlaðist
ekki til eins eða neins af öðru
fólki. Hún var glæsileg á sínum
yngri árum, mikil dama, smekk-
leg og vildi alla tíð vera fín í
tauinu enda hafði hún ánægju af
því að kaupa sér föt. Hún var ljúf,
velviljuð og vakandi fyrir fólki og
umhverfi. Hún hafði falleg brún
augu og fallegt bros. Hún var
alltaf sönn í því sem hún tók sér
fyrir hendur og gat verið föst fyr-
ir ef því var að skipta. Hún var
hannyrðakona og til marks um
það eru fallegar útsaumsmyndir
hennar. Hún var mikil húsmóðir í
sér þegar hún hafði heilsu til og
var þá dugleg að baka og elda
mat. Veikindin tóku sinn toll en
hún sýndi æðruleysi í lífi sínu
þrátt fyrir allt andstreymið.
Hún fékk því miður ekki að
njóta sinna góðu hæfileka sem
skyldi. Lífið hafði brosað við
þessari fallegu og lífsglöðu
stúlku þegar allt breyttist til hins
verra í kjölfar veikinda hennar.
Hún dvaldist lengi í Arnarholti
og í Hæðargarði í Reykjavík, en
hafði dvalið í nokkra mánuði á
sambýli á Dalbraut 23 er hún
lést.
Elsku mamma er nú laus úr
viðjum síns sjúkdóms, takk fyrir
allt sem þú veittir okkur. Viljum
við systur þakka því góða fólki
sem kom að því að gera líf henn-
ar léttbærara í gegnum tíðina.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Guðfinna, Hrefna og
Guðbjörg.
Lýs, milda ljós, í gegnum þennan
geim,
mig glepur sýn,
því nú er nótt, og harla langt er
heim.
Ó, hjálpin mín,
styð þú minn fót; þótt fetin nái
skammt,
ég feginn verð, ef áfram miðar
samt.
(Matthías Jochumsson)
Kæra frænka, nú ert þú farin
af þessu jarðlífi. Við hittumst
alltaf reglulega þegar við vorum
börn heima hjá Maíendínu ömmu
og Ágústi afa á Laugavegi 42.
Föðursystkin okkar voru mjög
samhent og í þá daga voru fjöl-
skylduboð til skiptis heima hjá
þeim. Þetta voru skemmtilegar
stundir sem við búum að í dag.
Fjölskyldumeðlimir sýndu hver
öðrum virðingu og fjölskyldu-
rækni og eru þetta í minningunni
dýrmætar stundir.
Kæra Sigrún, þú óxt úr grasi
og lærðir hárgreiðslu, eignaðist
þrjár yndislegar dætur. Þú varst
falleg blómarós en örlögin hög-
uðu því þannig að þú fékkst ekki
að njóta lífs og blóma þinna.
Foreldrar þínir voru vökul fyr-
ir hagsmunum þínum alla tíð en
því miður misstir þú föður þinn
langt um aldur fram.
Kæra Sigrún. Síðast þegar við
hittumst, í janúar síðastliðnum,
varst þú á leiðinni inn á Dalbraut
sem var þinn hinsti staður. Dáð-
ist ég að æðruleysi þínu þar sem
við spjölluðum saman og þú
spurðir mig um mína hagi og
systkina minna.
Elsku frænka okkar, þú varst
alltaf ljúf og brosandi, megir þú
eiga góðar móttökur hinum meg-
in.
Dætrum þínum, tengsdason-
um og barnabörnum óskum við
velfarnaðar.
Megi líf ykkar verða umvafið
ljósi.
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá, sem barn ég þekkti
fyrr.
(Matthías Jochumsson)
Þínar frænkur,
Sigríður Jóna og Erla
Friðriksdætur.
Sigrún Hrefna
Guðmundsdóttir
✝ Barbara MaríaSuchanek
fæddist í Póllandi
28. júlí 1945. Hún
lést á Fossheimum,
Selfossi 31. maí
2011.
Foreldrar henn-
ar voru Pawel
Suchanek náma-
verkamaður, f.
27.6. 1914, d. 1.1.
1986, og Helena
Suchanek húsmóðir, f. 17.3.
1920, d. 28.7. 1980.
Systkini Barböru eru: Ginter,
f. 1.1. 1938, d. 2010, María, f.
Eiríks eru: 1) Helena, f. 8.1.
1968, maki Sigmundur Brynj-
ólfsson. Þau eiga þrjú börn. 2)
Steindór, f. 28.8. 1970, maki
Lilja Ásgeirsdóttir. Þau eiga
tvö börn. 3) Guðrún, f. 7.11.
1974, maki Birkir Böðvarsson.
Þau eiga þrjú börn.
Barbara ólst upp í borginni
Bytom í Póllandi. Hún kom til
Íslands árið 1965 og hóf þá
störf í eldhúsi St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði. Árið 1967 flutti
hún að Ási í Hrunamanna-
hreppi þar sem hún bjó eftir
það. Hún starfaði við búskap
við hlið manns síns og tók þátt
í ýmsu félagsstarfi í hreppnum.
Barbara verður jarðsungin
frá Hrunakirkju í dag, 8. júní
2011, og hefst athöfnin kl. 14.
Kaþólsk minningarmessa
verður í Landakotskirkju föstu-
daginn 10. júní kl. 18.
20.4. 1939, Werner,
f. 18.6. 1941, d.
1997, Manfred, f.
1.10. 1942, og
Piotr, f. 25.1. 1944,
d. 2007.
Hinn 27. mars
1967 gekk Barbara
að eiga Eirík
Steindórsson,
bónda í Ási í
Hrunamanna-
hreppi. Foreldrar
hans voru Steindór Eiríksson, f.
24.6. 1884, d. 5.9. 1967, og Guð-
rún Stefánsdóttir, f. 11.6. 1885,
d. 19.6. 1982. Börn Barböru og
Mig langar í fáum orðum að
minnast móður minnar sem féll
frá hinn 31. maí síðastliðinn.
Mamma, þú varst alltaf ákaflega
lífsglöð manneskja, ætíð bros-
mild og lítið þurfti til að koma þér
til að hlæja. Það duldist ekki
nokkrum ef þú varst nærri, þú
talaðir hátt og skýrt, varst ákveð-
in og lást ekki á skoðunum þín-
um. Þú varst ástrík og vinmörg.
Hjálpsemi og dugnaður var þér
mjög í blóð borinn og stundum
held ég að þú hafir gengið aðeins
of langt í þeim efnum, a.m.k. fór
ég varla að flysja kartöflur eða
smyrja brauð fyrr en ég flutti að
heiman. Þegar ég fór á fjall eða í
hestaferðir varst þú ávallt búin
að útbúa nesti og þvo fötin mín án
þess að um það hefði verið beðið.
Pabbi hefur margoft sagt að án
þín hefði sennilega lítið verið
byggt upp í Ási; jafnvel þó að
pabbi hafi alltaf verið dugnaður-
forkur varst það ávallt þú sem
sannfærðir hann um í hvað skyldi
ráðast og mikilvægi þess. Þegar
ég eignaðist börnin mín var það
sama upp á teningnum; alltaf
varstu boðin og búin að hjálpa ef
á þurfti að halda, þeir eru ófáir
drekkhlöðnu pönnukökudiskarn-
ir og kræsingarnar sem þú komst
með til okkar í barnaafmælin.
Það var líka alltaf mikið tilhlökk-
unarefni hjá Helgu Maríu að
komast í piparkökubaksturinn
með þér fyrir jólin. Því miður
fórst þú að veikjast fyrir nokkr-
um árum, minnið fór æ oftar að
bregðast þér og ýmis einkenni
veikinda þinna fóru að koma í
ljós, þótt við gerðum okkur ekki
grein fyrir því þá. Í raun fórstu
smátt og smátt að fjarlægjast þá
persónu sem þú varst alla tíð.
Þetta var erfiður tími bæði fyrir
þig og okkur en ekkert í mann-
legu valdi getur ráðið bót á slík-
um sjúkdómi. Eftir að þú varst
fyrst lögð inn á sjúkrahús vorum
við dauðhrædd um að þú kæmist
ekki heim aftur. Sem betur fer
náðir þú að koma töluvert til
baka og þú komst heim að Ási til
pabba þar sem hann hugsaði um
þig í tvö ár þar til þú þurftir aftur
að fara inn á sjúkrahús. Það var
ákaflega dýrmætur tími fyrir
okkur öll. Nú hefur þú kvatt okk-
ur, alltof fljótt, en ég er viss um
að þú sért komin á góðan stað.
Minningin um þig lifir, Guð
geymi þig elsku mamma mín.
Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Þinn sonur,
Steindór.
Mamma fæddist í lok síðari
heimsstyrjaldarinnar í borginni
Bytom sem þá var komin undir
pólskan fána. Fyrstu ár ævinnar
mótuðust af fátækt og veikind-
um. Lífsbaráttan var hörð þar
sem styrjöldin hafði leikið þenn-
an heimshluta afar illa. Afi og
bræður mömmu unnu allir í kola-
námum myrkranna á milli. Móðir
hennar ræktaði grænmeti og hélt
svín og hænsni á litlum landskika
sem fjölskyldan átti. Mamma fór
strax að grunnnámi loknu að
vinna, m.a. á leikskóla.
1965 bauðst henni vinna í eld-
húsi St. Jósefsspítala í Hafnar-
firði. Þrátt fyrir andmæli föður
síns hélt hún á vit örlaganna. Í
Hafnarfirði kynntist hún mörg-
um stúlkum á svipuðu reki sem
síðar áttu eftir að verða hennar
bestu og traustustu vinkonur,
þótt flestar þeirra flyttu aftur til
sinna heimalanda.
Eftir að hún flutti að Ási starf-
aði hún alla tíð við hlið pabba í
búskapnum. Af mikilli röggsemi
byggðu þau upp jörðina. Fyrst
var byggt yfir kýrnar, svo kind-
urnar og að lokum rættist
draumur hennar 1978 en þá flutti
fjölskyldan í nýtt íbúðarhús.
Mamma var mikil húsmóðir,
alltaf var heimilið tandurhreint
og oft mátti finna ilminn af ný-
bökuðum kökum út á hlað. Í
hvert sinn sem gesti bar að garði
var pönnukökupannan dregin
fram og á örskotsstund var hún
búin að töfra fram heilt fjall af
dýrindis pönnsum.
Mamma hafði alltaf mjög gam-
an af því að ferðast og naut þess
einkar vel að heimsækja ættingja
sína í Póllandi og ekki síður naut
hún þess að heimsækja vinkon-
urnar í Þýskalandi. Eftir að við
börnin stækkuðum gat pabbi að-
eins farið með henni í þessar
ferðir.
Hún var einnig virk í fé-
lagsstarfi í Hrunamannahreppi.
Til margra ára starfaði hún í
kvenfélaginu og á seinni árum
tók hún ásamt pabba virkan þátt
í félagsstarfi aldraðra í hreppn-
um.
Síðustu árin voru mömmu erf-
ið. Fyrir rúmum þremur árum
greindist hún með heilabilun sem
nú hefur lagt hana að velli.
Við systkinin þökkum mömmu
fyrir allt það sem hún gerði fyrir
okkur og kveðjum hana með
söknuð í hjarta.
Helena, Guðrún
og fjölskyldur.
Er ég sá þig í síðasta sinn vissi
ég að þú ættir ekki langt eftir hér
hjá okkur. Það fyrsta sem ég
fann fyrir var þegar tárin byrj-
uðu að brjóta sér leið og mikill
kökkur myndaðist í hálsinum á
mér. Sú amma sem ég þekkti var
farin og ég vissi að hún myndi
aldrei koma aftur. Nú þegar þú
hefur kvatt okkur hugsa ég um
þær góðu stundir sem við áttum
saman og það eru margar góðar
minningarnar sem koma upp í
hugann í hvert sinn sem ég hugsa
til þín. Þegar ég fékk þær fréttir
að þú værir farin var eins og ein-
hverju beittu hefði verið stungið í
gegnum hjarta mitt. Ég fann fyr-
ir svo mikilli sorg, hafði ekki upp-
lifað neitt slíkt áður. Þó fann ég
fyrir vissum létti, ég vissi að þú
varst farin á betri staðinn eftir að
hafa barist í þrjú ár við þennan
hrottalega sjúkdóm sem hafði
tekið allt frá þér. En ég vil ekki
muna þig eins og þú varst rétt áð-
ur en þú fórst, ég vil muna þig
eins og þú varst áður en þú veikt-
ist þegar við vorum vanar að
baka og elda saman. Í þá daga
var það fyrsta sem ég gerði þegar
ég kom upp í sveit til þín og afa að
setja upp svuntuna og við skellt-
um í pönnsur eða eitthvað annað
ljúffengt. Ég man að þegar þú
stóðst inni í eldhúsi að baka eða
elda var ég alltaf á vappi í kring-
um þig, var alltaf sama ráðskon-
an sem þú hafðir svo gaman af.
Þetta er nokkuð sem ég vil alltaf
muna og ég veit að þú ert núna
líklega byrjuð að baka brauð
guðs og núna ertu ekki veik leng-
ur. En það sem við áttum var sér-
stakt og því mun ég aldrei
gleyma og ég vil að þú vitir að ég
elskaði þig afar mikið.
Þín
Helga María.
Barbara María
Suchanek
Sigurður Sigurðsson, fyrrver-
andi lögregluvarðstjóri, eða Siggi
Sig., eins og flestir kölluðu hann
sem til hans þekktu, er fallinn
frá, eftir erfið veikindi. Mín
fyrstu kynni af Sigga voru þegar
ég sótti um héraðslögreglustarf
hjá lögreglunni á Blönduósi árið
1982. Ég fór heim til Sigga og
spurði hann hvort það kæmi til
greina að ég fengi vinnu. Siggi
hvatti mig til að sækja um, sem
og ég gerði og hef starfað sem
lögreglumaður hjá lögreglunni á
Blönduósi síðan, fyrst sem hér-
aðslögreglumaður en síðar sem
fastur starfsmaður. Við Siggi
urðum því vinnufélagar hátt í 20
ár og stóðum marga vaktina sam-
an. Mér varð strax ljóst hversu
mikið snyrtimenni Siggi var og
bar heimili þeirra Sigga og Ásu
þess vott, bæði á Garðveginum og
svo á Hjallaveginum þar sem þau
hafa átt heimili síðustu ár.
Siggi var mikið ljúfmenni og
nákvæmur í sínum störfum.
Hann bað oft um álit samstarfs-
manna sinna á ákvörðunum, sem
hann þurfti að taka, og spurði þá
gjarnan: „Hvað finnst þér?“
Þetta gerði hann, held ég, til að
geta verið sáttur við sína ákvörð-
un. Siggi gegndi trúnaðarstörf-
Sigurður
Sigurðsson
✝ Sigurður Sig-urðsson fædd-
ist 1. ágúst 1932 í
Reykjavík. Hann
andaðist á Heil-
brigðisstofnuninni
á Hvammstanga 20.
maí 2011.
Útför Sigurðar
fór fram frá
Hvammstanga-
kirkju 3. júní 2011.
um fyrir lögregluna
og var m.a. einn af
stofnendum Lög-
reglufélags Norður-
lands vestra og
gegndi trúnaðar-
störfum fyrir það fé-
lag. Þar kom ná-
kvæmnin berlega í
ljós hjá Sigga, allt
vel fram sett og frá-
gangur allur til fyr-
irmyndar. Því mátti
treysta, að það sem Sigga var fal-
ið að gera gerði hann af mikilli
nákvæmni og trúmennsku.
Siggi og Ása voru dugleg að
taka þátt í skemmtiferðum, sem
farnar voru á vegum lögreglunn-
ar á Blönduósi, bæði innanlands
og erlendis, og eigum við hjónin
góðar minningar frá þessum
ferðum. Laxveiði var Sigga ofar-
lega í huga. Gjarnan þegar við
vorum á ferð um umdæmið okkar
og nálguðumst einhverja ána að
sumri til, t.d. Laxá á Ásum, Víði-
dalsá eða Miðfjarðará, lifnaði
hann allur við og brosið færðist
um allt andlitið er hann tjáði mér
að hann ætti veiðidaga í einhverri
ánni tiltekinn dag. Honum þótti
betra að það rigndi, er nær dró
þeim degi er veiða skyldi í ánni,
því þá væri meiri veiðivon. Ef lít-
ið hafði rignt um sumarið og stutt
var í veiðidag hjá honum var
hann ekki ánægður og hafði oft á
orði „hún rennur varla“, átti hann
þá við að það væri mjög lítið
vatnsrennsli í ánni.
Um leið og ég kveð góðan
dreng og fyrrverandi samstarfs-
félaga votta ég Ásu, Gúnda, Halli
og fjölskyldum þeirra innilega
samúð.
Hermann Ívarsson.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar
Legsteinar og fylgihlutir
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista