Morgunblaðið - 08.06.2011, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
✝ ÞórhildurHalldórsdóttir
fæddist í Þór-
isholti í Mýrdal 5.
desember 1928.
Hún lést á líkn-
ardeild Landa-
kotsspítala 30. maí
2011. Foreldar
hennar voru hjón-
in Katrín Sigurð-
ardóttir, f. 1906,
d. 1998, og Hall-
dór Sölvason kennari, f. 1897,
d. 1971. Systur Þórhildar eru:
Ingiríður, f. 1926, d. 2001,
Signý, f. 1932, Sigrún, f. 1934,
og Oddný Dóra, f. 1948, d.
2002. Þær voru allar kennarar
að mennt.
Þórhildur giftist 26. sept-
ember 1958 Jóni Árnasyni,
skólastjóra, f. 23. desember
1928, d. 8. mars 2000. Hann
var sonur hjónanna Árna
Jónssonar, f. 1895, d. 1962, og
Guðbjargar Guðmundsdóttur,
f. 1904, d. 1999. Börn Þórhild-
ar og Jóns eru: 1) Halldór,
læknir, f. 30. apríl 1951,
víkur 1948 og hann gerðist
kennari við Laugarnesskólann.
Eftir nám við Flensborg-
arskólann stundaði Þórhildur
nám við Kennaraskóla Íslands
og lauk þaðan kennaraprófi
1949. Hún stundaði framhalds-
nám í bókasafnsfræðum við
Háskóla Íslands 1981-1983.
Þórhildur var kennari við
Melaskóla í Reykjavík 1949-
1950, Laugarnesskóla í
Reykjavík 1950-1952 og Lang-
holtsskóla í Reykjavík með
hléum frá 1952 til starfsloka.
Ásamt kennslu- og húsmóð-
urstörfum tók Þórhildur virk-
an þátt í starfi kvenfélags
Langholtskirkju um margra
ára skeið. Þórhildur hafði
gaman af söng og var m.a. í
kirkjukór Íslendingakirkj-
unnar í Kaupmannahöfn. Auk
þess hafði hún brennandi
áhuga á ættfræði. Þórhildur
bjó með eiginmanni sínum og
börnum í mörg ár í Efstasundi
45. Einnig bjuggu þau um
tíma í Kaupmannahöfn. Síð-
ustu fjörutíu árin bjó hún í
Skeiðarvogi 125, þar af síð-
ustu ellefu árin ein eftir að
eiginmaður hennar lést.
Útför Þórhildar fer fram
frá Langholtskirkju í dag, 8.
júní 2011, og hefst athöfnin kl.
15.
kvæntur Dagmar
Völu Hjörleifs-
dóttur, dýralækni,
f. 25. mars 1951.
Börn þeirra eru:
a) Hjörleifur,
verkfræðingur,
fyrrverandi eig-
inkona Kristín
Stefánsdóttir, iðju-
þjálfi, börn: Stefán
og Dagmar Vala,
b) Þórhildur,
læknir, eiginmaður Þórður Þ.
Þórðarson, læknir, börn:
Arína Vala og Þórður Logi, c)
Sigurþór, líffræðingur. 2)
Guðbjörg, lífeindafræðingur,
f. 31. desember 1959, gift
Trausta Leifssyni, tölv-
unarfræðingi, f. 18. október
1959, synir: a) Jón Árni,
stærðfræðingur, b) Bjarki,
eðlisfræðinemi, c) Bergþór,
nemi.
Þórhildur ólst upp í Mýrdal
og Fljótshlíð en Halldór faðir
hennar var kennari og skóla-
stjóri á þessum stöðum áður
en fjölskyldan flutti til Reykja-
Fyrir tæpum 35 árum
kynntist ég Þórhildi tengda-
móður minni og það hefur ver-
ið ómetanlegt að vera sam-
ferða henni þennan tíma.
Ég var ennþá bara ungling-
ur í menntaskóla þegar ég tók
að venja komur mínar í Skeið-
arvoginn en þau hjónin Þór-
hildur og Jón tóku mér opnum
örmum, töluðu við mig sem
jafningja og vin.
Fljótlega fann ég að það var
Þórhildi bókstaflega í blóð
borið að gera allt fyrir fjöl-
skylduna og færa fólkinu sínu
gjafir þegar minnst varði.
Það var fátt skemmtilegra
en að ferðast með tengda-
mömmu, hún hafði brennandi
áhuga á náttúrunni og sögu
landsins og alltaf vildi hún
fræða okkur og þá sérstaklega
ömmubörnin. Hún var lífsglöð
og með góða nærveru, snögg í
hreyfingum með leiftrandi
húmor og blik í augum. Hún
kom oft skemmtilega á óvart
með tilsvörum sínum og við-
horfum til lífs og tilveru.
Þórhildur fylgdist vel með
okkur án þess að skipta sér of
mikið af, en var alltaf til taks.
Tengdamamma kunni ekki
að kvarta og þótt hún væri
fársjúk uppi á spítala skömmu
fyrir síðustu ferðina, þá var
ekkert að henni, bara smáleti.
Þórhildur var mér alltaf hin
besta tengdamóðir, þar dró ég
ekki stutta stráið.
Takk fyrir allt, megir þú
hvíla í friði.
Trausti Leifsson.
Þórhildur var rétt um fer-
tugt þegar við kynntumst. Ég
man ennþá hvað ég kveið fyrir
að fara heim til kærastans og
hitta foreldra hans í fyrsta
sinn. Þegar Þórhildur heilsaði
mér hvarf sá kvíði þó strax.
Hún var áreiðanlega jafn kvíð-
in og ég og hlýjan frá henni
róaði okkur báðar. Betri
tengdamóður gat ég ekki feng-
ið. Það sannaðist þau 43 ár
sem við áttum samleið.
Þórhildur var af þeirri kyn-
slóð kvenna sem fyrstar fóru
út á vinnumarkaðinn. Stríðs-
árakonurnar sem tóku fullan
þátt í uppbyggingu þjóðfélags-
ins á eftirstríðsárunum við
hlið eiginmanna sinna. Einnig
sáu þær um börnin og heimilið
svona eins og alltaf hafði ver-
ið. Þórhildur var einmitt þann-
ig kona. Hún var kennari frá
Kennaraskóla Íslands en þar
kynntist hún eiginmanni sín-
um Jóni Árnasyni. Hún vann
sem kennari í Langholtsskóla
og hélt því áfram þótt börnin
kæmu fljótt. Halldór fæddist
þegar hún var 22 ára og Guð-
björg svo átta árum seinna.
Álagið var því heilmikið að
vera í fullri vinnu og sjá um
börn og bú. Heimilið var alltaf
óaðfinnanlegt og sérlega
smekklegt en það var í Skeið-
arvoginum þegar við kynnt-
umst. Jólakökuilmur lá iðulega
í loftinu en hún gerði þær
bestu jólakökur sem ég hef
smakkað. Á sunnudögum var
boðið í steik. Þá safnaðist fjöl-
skyldan saman í hrygg eða
læri í borðstofunni. Það eru
yndislegar minningar. Á
haustin var sultað og soðin
kæfa og tekið slátur fyrir vet-
urinn. Frystikistan fyllt og við
litlu hjúin nutum góðs af því
þegar við hófum búskap í
kjallaranum í Skeiðarvoginum
1971. Þegar smástund gafst
yfir sjónvarpinu á kvöldin
prjónaði Þórhildur lopapeysur
og áttu allir í fjölskyldunni
handprjónaðar lopapeysur frá
henni.
Elsta barnið og fyrsta
barnabarn þeirra hjóna Hjör-
leifur fæddist 1972 og bjó
fyrstu þrjú árin undir vernd-
arvæng afa og ömmu í litlu
kjallaraíbúðinni. Mamma Þór-
hildar Katrín hljóp einnig und-
ir bagga og passaði fyrir okk-
ur. Þegar við héldum utan til
framhaldsnáms komu Jón og
Þórhildur með hluta af búslóð-
inni með sér í farangrinum.
Þórhildur var með ryksuguna í
handfarangri svo að hún
skemmdist ekki. Fjölskyldan
var alltaf með til að hjálpa
okkur hvar sem við vorum í
heiminum. Meira að segja
systir Þórhildar Sigrún og
maður hennar Birgir komu til
Svíþjóðar til að hjálpa okkur
við að ferja búslóðina frá skipi
í Helsingjaborg til Uppsala.
Það var mikill heiður 1979
að fá að skíra einkadótturina
Þórhildi í höfuðið á henni.
Mikil breyting varð á högum
Þórhildar þegar Jón lést árið
2000. Þórhildur hélt samt
áfram að passa öll barnabörn-
in hvenær sem var. Hún gaf
alltaf kærleika til allra sem
voru í kring um hana og alltaf
var hún létt í skapi og stutt í
brosið. Yngsti sonurinn Sig-
urþór naut góðs af umhyggju
hennar þegar við fluttum heim
2003 eftir fimm ára dvöl í Afr-
íku en þá fórum við aftur í
gömlu blokkina eins nálægt
henni og hægt var. Eftir flutn-
ing í Fossvoginn fjölgaði heim-
ilisdýrunum. Þau elskuðu hana
og hlupu í fang hennar hvenær
sem hún kom í heimsókn.
Betri tengdamóður var ekki
hægt að óska sér.
Dagmar Vala
Hjörleifsdóttir.
Það eru forréttindi að hafa
átt ömmu Þórhildi og að eiga
minningar um hana sem eru
dýrmætari en nokkuð annað.
Sama hvar eða hvenær hitt
var á ömmu hún var alltaf kát,
alltaf hress og alltaf í góðu
skapi. Það var sama hvar hún
var stödd, alltaf var kátt í höll-
inni. Eins ótrúlega og það
hljómar þá skeytti amma aldr-
ei skapi sínu á okkur heldur
tók öllum bernskubrekum með
sínu einlæga jafnaðargeði,
leiðrétti okkur þegar við fór-
um með fleipur og hughreysti
okkur þegar eitthvað bjátaði á.
Alltaf var hægt að leita til
ömmu, hún hafði svör á
reiðum höndum.
Það er ekki hægt að hugsa
til ömmu án þess gleðjast yfir
einhverju sem hún sagði eða
gerði, hún var ávallt hnyttin
til svars, sagði sínar skoðanir
óhrædd og tæpitungulaust.
Hvort sem það voru ný gler-
augu, rauður bolur eða kuld-
inn í Svíþjóð – amma sagði
sína skoðun.
Þegar síga fór á seinni hlut-
ann kom líka betur og betur í
ljós hvern mann amma
geymdi, tók öllu vel og var
þakklát fyrir allt. Amma var
best.
Takk fyrir allt elsku amma.
Jón Árni, Bjarki
og Bergþór.
Heimilið hennar ömmu í
Skeiðarvogi 125 er í huga okk-
ar systkinanna tákn um kær-
leika og stöðugleika. Það var
hægt að ganga að því vísu að
amma tæki á móti okkur sem
og öllum öðrum gestum með
opnum örmum og kærleika.
Kærleikur hennar og gjafmildi
var mikil og það var lágmark
að maður þæði að minnsta
kosti jólaköku- eða möndlu-
kökusneið, eða ljúffengar
pönnukökur og kaffi. Þó svo að
það ætti að stoppa stutt var
ekki hægt að neita slíku boði.
Það voru ófáar stundir sem við
systkinin áttum í eldhúsinu
hjá ömmu, þáðum veitingar og
hlustuðum á hátt stillt útvarp-
ið. Það virtist vera óendanleg-
ur kraftur í ömmu og sat hún
aldrei iðjulaus, var sífellt á
hlaupum að sinna gestum og
sá til þess að allir væru mettir
og glaðir.
Hún var mikill grallari og
hafði mikið fyrir því að
skemmta og leika við okkur
systkinin þegar við vorum lítil,
og síðar meir einnig barna-
barnabörnin. Glaðlyndið smit-
aði út frá sér og skemmtum
við okkur mikið saman. Þegar
við urðum eldri var allt milli
himins og jarðar rætt, og hún
hafði skoðanir á flestu. Hún lá
aldrei á skoðunum sínum og
var hreinskilni hennar dásam-
leg og hitti vanalega beint í
mark.
Amma var mjög heimakær.
Þrátt fyrir það var ávallt mik-
ill ferðahugur í ömmu og afa.
Þær voru ófáar veiðiferðirnar
og tjaldferðalögin til Þing-
valla. Leiðsögumaðurinn afi
Jón, ásamt ömmu, glaðlyndri
og gjafmildri, gerði þessar
ferðir ógleymanlegar.
Hún var einnig mikill dýra-
vinur. Fyrir utan gárann Pása
voru þeir ófáir kettirnir sem
bjuggu hjá ömmu í gegnum
tíðina, og enn fleiri sem voru
reglulegir gestir á tröppunum
þar sem amma gaf þeim jafn-
vel ýsu eða aðrar kræsingar.
Fuglarnir fengu líka sinn
skammt yfir veturinn. Hún las
alla tíð mikið og ósjaldan
margar bækur samtímis.
Það var gaman að koma til
hennar þegar hún vann hjá
Langholtsskóla sem kennari
og bókasafnsvörður, þar sýndi
hún okkur allt það sem var
mest spennandi, og fengum við
jafnvel að taka með okkur eina
bók heim að láni.
Amma og heimili hennar var
á vissan hátt sameiningartákn
fjölskyldunnar og ræktaði hún
fjölskylduna vel, með símtöl-
um og heimsóknum. Á síðari
árum skapaðist sú góða hefð
að stórfjölskyldan sameinaðist
í jólastressinu í árlegri afmæl-
isveislu hennar á Hótel Loft-
leiðum og átti þar góðar
stundir saman. Þær stundir
verða enn dýrmætari í minn-
ingunni nú.
Við systkinin erum þakklát
fyrir allan kærleikann og leið-
sögnina sem hún hefur veitt
okkur í lífinu.
Hjörleifur Hall-
dórsson, Þórhildur
Halldórsdóttir og
Sigurþór
Halldórsson.
Þórhildur
Halldórsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Þórhildi Halldórs-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Merktu gæludýrið
Fyrir gæludýr. Merki með hlekk,
nafni dýrsins og símanúmeri eiganda.
Verð 2000 kr. Fannar, Smiðjuvegi 6,
Kóp. Rauð gata. Sími 551-6488.
fannar@fannar.is
Garðar
Er mosinn að eyðileggja
grasflötinn?
Erum með góðar lausnir við því.
Eiríkur, s. 669 0011.
Garðaþjónusta Reykjavíkur
20% afsláttur fyrir eldri borgara
Öll almenn garðvinna á einum stað
fyrir garðinn þinn. Trjáklippingar,
beðahreinsanir, trjáfellingar, garða-
úðun, þökulagnir, sláttur, hellulagnir
o.fl. Fagleg vinnubrögð og sanngjarnt
verð. Eiríkur, s. 669 0011.
Þórhallur, s. 772 0864.
Tómstundir
Fjarstýrðar innanhússþyrlur
í úrvali
Erum með fjarstýrðar innanhússþyrlur
frá Syma. Mikið úrval og gott verð.
Kíktu á netsíðuna okkar Tactical.is
fyrir nánari upplýsingar. S. 517-8878.
Til sölu
Ódýr gæðablekhylki og tonerar
í prentarann þinn. Öll blekhylki
framleidd af ORINK.
Blekhylki.is Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517 0150
8.25 x 22.5 og 9.00 x 22.5
Nýjar vörubílafelgur til sölu.
Kaldasel ehf.
Dalvegi 16 b, 201
Kópavogi, s. 544 4333.
Kristals-hreinsisprey
Hreinsisprey fyrir kristalsljósakrónur
og kristal.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Lagersala Kauptúni 3 Garðabæ
Til sölu; Stálvaskar, blöndunartæki,
kvenfatnaður (500 og 1000 kr.)
húsgögn og fleira. Opið miðvd. 8. jún.
til föstud. 10. jún. kl. 13-18 og
laugard. 11. jún. kl. 13-17.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Laga ryðbletti á þökum.
Hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk.
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com.
Málarar
Íslandsmálarar ehf.
Þakmálun - Þakmálun!!
Húsfélög - Húseigendur
Þarf að huga að viðhaldi á þakinu?
Við sérhæfum okkur í málun og
viðgerðum á þökum.
Gerum tilboð ykkur að kostnaðar-
lausu.
Löggiltur málarameistari.
Grétar, s. 899 2008.
islandsmalarar@gmail.com
Íslandsmálarar ehf.
Húsfélög - Húseigendur
Þarf að huga að viðhaldi á húsinu?
Er kominn tími á að mála?
Við tökum að okkur málun,
múrviðgerðir, flotun og flísalagnir.
Gerum tilboð ykkur að kostnaðar-
lausu.
Elías Raben
múrarameistari,
s. 770 3686.
eliasraben@gmail.com
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð
CC.BÍLALEIGA S: 8612319
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is – s. 551-6488.
Auglýsingasími Morgunblaðsins 569 1100