Morgunblaðið - 08.06.2011, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
Fersteinn heldur
tónleika á Café
Flóru í Grasa-
garðinum í
Laugardal í dag
kl. 20:30. Aðgang-
ur er ókeypis.
Fersteinn er
kvartett skipaður
þeim Báru Sig-
urjónsdóttur,
Guðmundi Steini
Gunnarssyni, Lárusi H. Grímssyni
og Páli Ivan Pálssyni. Fersteinn
leikur verk eftir Guðmund Stein
Gunnarsson. Tilefni tónleikanna er
útgáfa geislaplötunnar Horpma.
Tónlist
Fersteinn í
Grasagarði
Guðmundur Steinn
Gunnarsson
Í gær hófst í Vín-
arborg alþjóðlegt
tónskáldaþing,
International
Rostrum of
Composers eða
IRC. Á tónskálda-
þinginu verða
kynnt þrjú íslensk
tónverk sem RÚV
tilnefndi; Mardi-
posa eftir Guð-
mund Stein Gunnarsson, Bow to
String eftir Daníel Bjarnason og
Febrúardagur eftir Hafdísi Bjarna-
dóttur. Tónskáldaþingið stendur til
10. júní.
Tónlist
Íslensk tón-
verk í Vín
Hafdís
Bjarnadóttir
Norski rithöfundurinn Beate
Grimsrud verður gestur á höf-
undakvöldi í Norræna húsinu ann-
að kvöld kl. 20:00. Kynnir er Tiril
Myklebost, sendikennari í norsku
við Háskóla Íslands. Beate Grims-
rud var tilnefnd til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs 2011
fyrir skáldsöguna En dåre fri.
Beate fæddist 1963 í Bærum í
Noregi en fluttist ung að aldri til
Svíþjóðar og býr í Stokkhólmi. Hún
var tilnefnd til Bókmenntaverð-
launanna nú af Svíum og Norð-
mönnum fyrir En dåre fri, en bókin
er skrifuð á norsku og sænsku.
Bókin er sjálfsævisöguleg og fjallar
m.a. um geðhvarfasýki, lesblindu
og eiturlyfjafíkn höfundar. Það hef-
ur ekki gerst áður að tvær þjóðir
tilnefni sama rithöfund. Beate kem-
ur hingað í boði norska sendiráðs-
ins og sænska sendiráðsins.
Fyrsta skáldsaga hennar var
Continental heaven en áður hafði
hún gefið út smásagnasafn. Alls
hefur hún gefið út níu bækur, þar
af þrjár barnabækur, skrifað leikrit
og kvikmyndahandrit. Hún var til-
nefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs fyrir bókina Å
smyge forbi árið 2000.
Gestur Norsk-sænski rithöfund-
urinn Beate Grimsrud.
Höfunda-
kvöld með
Beate
Beate Grimsrud gest-
ur í Norræna húsinu
Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Há-
skóla Íslands bjóða upp á gönguferð
um Grjótaþorpið og gamla Vest-
urbæinn með Helga Þorlákssyni
sagnfræðingi. Þar verður saga tón-
listar, hljómlistarmanna, söngvara,
kóra og tónskálda rakin.
Gengið verður um Grjótaþorp og
áfram um Vesturbæinn og stað-
næmst við heimili frumkvöðla á um-
ræddu sviði, skoðaðar ljósmyndir
sem tengjast þessari sögu, hlýtt á
tónlist og lagið tekið. Gangan tekur
um hálfan annan tíma en lagt verður
af stað klukkan 20:00 frá Ljós-
myndasafni Reykjavíkur í Gróf-
arhúsi, Tryggvagötu 15.
Helgi Þorláksson kennir sagn-
fræði við Háskóla Íslands og hefur
fjallað töluvert um sögu Reykjavík-
ur í kennslu sinni. Hann ólst upp
vestast í Vesturbænum og hefur áð-
ur veitt hópum leiðsögn um sögu
hans, m.a. í samvinnu við Ljós-
myndasafn Reykjavíkur og haft það-
an myndir meðferðis.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Magnús Ólafsson
Frumherjar Hljómsveit Oscars Johansens í Bárunni, sennilega 1912.
Gengið um
tónlistarslóðir
Tónlistarsagan rakin í Grjóta-
þorpinu og gamla Vesturbænum
Díana Rós A. Rivera
diana@mbl.is
Myndlistarhátíðin Æringur verður
haldin í annað skiptið í sumar, að
þessu sinni í Bolungarvík. Þátttak-
endur eru átján, flestir íslenskir
auk nokkurra erlendra listamanna.
Skipuleggjendur hátíðarinnar eru
myndlistakonurnar Kolbrún Ýr
Einarsdóttir og Þorgerður Ólafs-
dóttir. „Þorgerður hafði áhuga á
að halda farandhátíð fyrir lista-
menn, við bara fórum af stað og
þetta er útkoman,“ segir Kolbrún
Ýr.
Listahátíðin fer fram á lands-
byggðinni ár hvert í óháðum rým-
um á nýjum stað hverju sinni. Að
sögn Kolbrúnar Ýrar koma allir
listamennirnir á staðinn og vinna í
viku til tíu daga fyrir opnun svo
verkin á sýningunni tengist öll
bænum á einhvern hátt. Að vinnu-
tímanum loknum er sett upp sýn-
ing í bænum sem stendur í mánuð.
Kolbrún Ýr segir hátíðinni hafa
verið vel tekið í fyrrasumar og hún
sé meiri um sig í ár. „Í fyrra var
þetta hrárra, ungir listamenn sem
sáu um allt sjálfir. Núna stofn-
uðum við félag um hátíðina og fólk
sótti um. Við höfum mjög góðan
grunn til að halda hátíðina í ár.“
Sýningin Æringur verður opnuð
laugardaginn 2. júlí. Heimasíða há-
tíðarinnar er www. aeringur.word-
press.com.
Umhverfið nýtt til
listsköpunar á Æringi
Morgunblaðið/Eggert
Æringjar Listakonurnar Kolbrún Ýr Einarsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir
Farandhátíð fyrir listamenn haldin í Bolungarvík
...örlátur á fjölda-
morðssenur í teikni-
myndastíl og erótískum sen-
um31
»
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI RÁÐHERRA! – HHHH IB, Mbl
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Tveggja tíma hláturskast...með hléi. Síðustu sýningar þessa leikárs
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Mið 8/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn
Fös 10/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn
Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega
Faust (Stóra svið)
Fim 9/6 kl. 20:00 lokasýn
Allra síðustu sýningar
Klúbburinn (Litla sviðið)
Mið 8/6 kl. 20:00 5.k
Á Listahátíð - Leikhús, dans og tónlist renna saman í eina órjúfanlega heild
Helstu bókmenntaverðlaun Ástralíu
eru kennd við rithöfundinn Miles
Franklin, sem var kona, Stella
Maria Sarah Miles Franklin, og
skrifaði sínar helstu bækur í upp-
hafi tuttugustu aldarinnar. Hún
veitti mikið fé til stuðnings ástr-
ölskum rithöfundum og lagði svo
fyrir í erfðaskrá sinni að árlega
yrðu veitt áströlsk bókmenntaverð-
laun sem bera myndu nafn hennar.
Hún lést 1954 og fyrstu Miles
Franklin-verðlaunin hlaut Patrick
White fyrir bókina Voss 1957.
Þó verðlaunin séu þannig sprottin
af dánargjöf kvenrithöfundar hafa
konur hreppt fæst Miles Franklin-
verðlaunanna; í þau fimmtíu skipti
sem verðlaunin hafa verið veitt hafa
konur aðeins hlotið þau þrettán
sinnum og síðasta áratuginn hafa
bækur kvenna aðeins verið verð-
launaðar tvívegis og eftir því var
tekið að á stuttlista undanfarinna
þriggja ára hefur engin bók verið
eftir konu.
Við svo búið má ekki standa að
mati margra ástralskra kvenrithöf-
unda og þær hafa bundist samtök-
um um að koma á fót kvennabók-
menntaverðlaunum áþekkum þeim
sem kallast Orange-verðlaunin í
Bretlandi, en sambærileg verðlaun
kallast Fjöruverðlaunin hér á landi.
Í undirbúningsnefnd verðlaunanna
eru meðal annarra rithöfundurinn
og útgefandinn Sophie Cunning-
ham, gagnrýnandinn Kerryn Golds-
worthy, sem setið hefur í dómnefnd
Miles Franklin-verðlaunanna, og
rithöfundurinn Kirsten Tranter,
sem komist hefur á langlista verð-
launanna. Ekki er ljóst hvenær
fyrstu kvennaverðlaunin verða veitt,
en stefnt að því að það verði 2012, ef
allt gengur eftir. Yfirlýst markmið
verðlaunanna er að auka lestur
bóka eftir konur og einnig umfjöllun
um þær bækur.
Þess má geta að niðurstaða dóm-
nefndar Miles Franklin-verðlaun-
anna 2011 verður kynnt 22. júní
næstkomandi og þá kemur í ljós
hver karlanna Chris Womersley
(Bereft), Kims Scott (That Dead-
mace Dance) eða Rogers McDonald
(When Colts Ran) fær verðlaunin.
arnim@mbl.is
Ný bókmennta-
verðlaun kvenna
Hugsjónakonur Rithöfundurinn Stella Maria Sarah Miles Franklin og fem-
ínistinn og súffragettan Vida Jane Mary Goldstein.