Morgunblaðið - 08.06.2011, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Nokkrir aðalleikarar Reykjavík
Whale Watching Massacre
(RWWM) eru japanskir. Nae er
þeirra frægust en hún nýtur mik-
illa vinsælda í heimalandi sínu og
frumsýning myndarinnar fékk
mikla athygli í Tókýó um helgina
vegna hennar.
Eftir að hafa skoðað fjölda við-
tala japanskra fjölmiðla við Nae
þar sem fjallað er, að því er
Google-translate segir mér, lofsam-
lega um Ísland þá veltir maður fyr-
ir sér hvort þeir sem starfa að
landkynningu eigi ekki bara að
setja allt sitt fé í íslenska kvik-
myndagerð?
Að sögn Ingvars Þórðarsonar og
Júlíusar Kemp sem fylgja myndinni
eftir úti í Japan hafa viðtökurnar
verið mjög góðar. „Japanarnir
skilja húmorinn í myndinni, hún
steinliggur hérna,“ segir Ingvar í
samtali við Morgunblaðið, en hann
er einn framleiðenda myndarinnar.
Myndin sem fékk misjafna dóma
hér á Íslandi og litla aðsókn virðist
eiga auðveldara með að eignast
aðdáendur þegar út er komið.
Gagnrýni í Japan
Í Japan er sterkur kúltúr fyrir
hryllingsmyndum og er gagnrýni
þegar farin að birtast í blöðunum. Í
Nifty Movie segir að RWWM sé
besta hryllingsmyndin sem enn er
komin á árinu. „Þessi mynd mun
öðlast sess í kvikmyndasögunni,
enda um ekta költ mynd að ræða.“
Í Enterjam segir að flestar hryll-
ingsmyndir falla í tvo flokka, þær
sem fá áhorfendur til að öskra af
ótta og ógeði og svo þær sem fá
áhorfendur til að hlæja. Þessi
mynd falli í seinni flokkinn. Þar
segir líka; „Leikstjórinn Júlíus
Kemp er örlátur á fjöldamorðs-
senur í teiknimyndastíl og erótísk-
um senum.“
Gleði Júlíus, Nae og Ingvar í góðu glensi í heimalandi leikkonunnar.
Japanir fíla hvala-
morðin í ræmur
Reykjavík Whale Watching Massacre á flugi í Japan
X-men er afskaplega velgerð Hollywood-mynd,með engar langanir til aðvera eitthvað annað en
dýr ævintýramynd með fínu
formúluhandriti og flottum og dýr-
um brellum. Það er afbragð að vita
hvað maður er að kaupa. Ég er eng-
inn aðdáandi svona mynda, en þessi
er bara fín og nákvæmlega eins og
hún gefur sig út fyrir að vera.
Formúlu-handritsgerðin er klassísk.
Öllum reglum Campbells og Vog-
lers er fylgt við framþróun atburða-
rásar og undirbyggingu karaktera.
Ekkert kemur á óvart, þetta er
frumframleiðsla og sýning sem
maður á að sjá á tjaldi, því í sjón-
varpi gæti hún dottið óþægilega ná-
lægt hverri annari fjöldaframleiðslu
frá Hollywood. Miklir peningar eru
settir í myndina og maður fær flug-
eldasýningu. Þessi mynd byrjar í
útrýmingarbúðum nasista og ég
þurfti að taka miðann úr vasanum
til að athuga hvort ég væri ekki í
réttum bíósal en svo kom töfra-
raunsæið inní útrýmingarbúðirnar
og ég róaðist. Það er verið að fjalla
um upphaf þeirra ofurmanna sem
X-menn eru. X-menn-myndirnar
eru byggðar á teiknimyndasögum
og hafa þættir og bíómyndir verið
gerðar um hetjurnar. X-menn eru
manneskjur sem eru með stökk-
breytta ofureiginleika og sumir
þeirra flokka sig ekki lengur sem
menn. Þessi mynd fjallar um upp-
runa þeirra. En aðal-andstæður
þessara sagna eru Prófessor X og
Magneto en í þessari mynd eru þeir
vinir og berjast gegn sameig-
inlegum óvini, Sebastian Shaw, sem
safnar til liðs við sig fjölda stökk-
breyttra ofurhetja í heiminum og
vill koma á stríði. Gegn honum berj-
ast prófessor X og Magneto en hvor
á sínum forsendum því Magneto er
eiginlega sammála skoðunum Shaws
en á óuppgerðar sakir við hann.
Raunverulegir atburðir í mannkyns-
sögunni, eins og fyrirlitlegar læknis-
rannsóknir nasista og Kúbudeilan
milli Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna, eru notaðir sem bakgrunnur
sögunnar. Það er lítið sem ekkert
spilað á húmor í myndinni og ákveð-
ið ástríðuleysi hrjáir hana, þannig
að á stundum er hún við það að
verða að leiðindum fyrir mann sem
hefur séð margar formúlumyndir,
en milljón dollara brellur og litasýn-
ingin heldur henni innan réttra
marka. Michael Fassbinder sem
hefur átt misheppnaða aðkomu að
verkum einsog Centurion en einnig
sýnt glæsilega frammistöðu í mynd-
um eins og Fish Tank og Inglorious
Basterds, kemst vel frá hlutverki
sínu sem Magneto, rétt eins og
James McAvoy sem kemst skamm-
arlaust frá sínu hlutverki án þess að
gera neinar rósir, en hann hefur
svosem aldrei gert þær. Kevin Ba-
con leikur illmennið og þótt fram-
burður hans á þýsku sé ekki sann-
færandi er annað í leik hans fínt.
Vinavígi Charles Xavier (James McAvoy) og Magneto (Fassbinder).
Flottir X-gaurar
X-Men: First Class Leikstjóri: Matthew Vaughn. Leikarar:
James McAvoy, Michael Fassbinder,
Rose Byrne og Kevin Bacon.
BÖRKUR
GUNNARSSON
KVIKMYNDIR
Kvikmyndin Human Centipede sem kom út í fyrra var
svakaleg hrollvekja. Framhald myndarinnar, Human
Centipede II, hefur verið hafnað af the British Board
of Film Classification, sem sér um að ákveða aldurs-
takmörk fyrir bíómyndir. Félagið hefur ákveðið að
hafna alveg umræddri mynd þar sem hún er talin vera
of ofbeldisfull, klámfengin og ruddaleg. Þetta þýðir að
ekki verði einu sinni hægt að nálgast myndina á DVD.
Tom Six leikstjóri myndanna er ekki par sáttur við
þessa ákvörðun BBFC og svaraði henni með harðorðu
bréfi. Í bréfinu notar hann F-orðið og talar um að
myndin sé ekki raunveruleg heldur sé hún list. Myndin
fjallar í stuttu máli um mann sem örvast kynferðislega
við að horfa á fyrri myndina, Human Centipede.
Hryllingi í
Human Centipede
II hafnað
Geðveikur Læknirinn óhugnanlegi sem vildi búa til
mennska margfætlu í fyrri myndinni.
Skannaðu kóðann
til að sjá brot úr
myndinni
FRÁBÆR ÞRÍVÍDD MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%
NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
“BESTA ‘PIRATES’ MYNDIN”
- M.P FOX TV P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
NÁNARI UPPLÝSINGAR
OG MIÐASALA Á
BRIDESMAIDS KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
X-MEN: FIRST CLASS KL. 5.40 - 8 - 10.30 12
LOKAÐ
STÓRKOSTLEG ÞRÍVÍDDARÆVINTÝRAMYND
UPPLIFÐU STUNDINA SEM Á EFTIR AÐ BREYTA HEIMINUM!
BRIDESMAIDS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
BRIDESMAIDS Í LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
X-MEN: FIRST CLASS KL. 5.15 - 8 - 10.45 12
KUNG FU PANDA 2 ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.40 - 5.50 L
KUNG FU PANDA 2 ENSKT TAL 3D KL. 8 L
PIRATES 4 3D KL. 5 - 8 - 10 10
FRÁ HÖFUNDUNUM
SEM FÆRÐU OKKUR
BOX OFFICE MAGAZINE
90/100
VARIETY
90/100
THE HOLLYWOOD
REPORTER
JACK BLACK,
ANGELINA JOLIE,
DUSTIN HOFFMAN,
JACKIE CHAN,
SETH ROGEN,
LUCY LIU, JEAN-CLAUDE
VAN DAMME
OG GARY OLDMAN
6. - 8. JÚNÍ
EIN SKEMMTILEGASTA OG FLOTTASTA
GAMANMYND SUMARSINS!
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
BRIDESMAIDS Sýnd kl. 4, 6:30 og 9
X-MEN: FIRST CLASS Sýnd kl. 7 og 10:10
KUNG FU PANDA 2 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 og 6
KUNG FU P 2 3D ENSK TAL (ÓTEXTUÐ) Sýnd kl. 4
PAUL Sýnd kl. 8
FAST & FURIOUS 5 Sýnd kl. 10
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
„Djarfasta og best skrifaða
X-Men-myndin til þessa.”
-T.V., Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt
„Þetta er sannarlega fyrsta
flokks ofurhetjumynd!“
-Þ.Þ., Fréttatíminn
ÞRÍVÍDD EINS OG
HÚN GERIST BEST
- BOX OFFICE MAGAZINE
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
“Besta gamanmyndin sem ég hef hingað til séð á
árinu... Fyndin, trúverðug og vandræðaleg á besta hátt.
Strákar munu fíla hana, konur munu elska hana!”
T.V. - Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt
„BETRI EN THE HANGOVER”
cosmopolitan
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SUPERBAD,
KNOCKED UP, OG THE 40-YEAR-OLD VIRGIN
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is