Morgunblaðið - 08.06.2011, Blaðsíða 32
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Danski fatahönnuðurinn Henrik Vibskov
hlýtur stærstu hönnunarverðlaun í heimi,
sænsku Torsten och Wanja Söderberg-
verðlaunin, í ár. Verðlaunaupphæðin nem-
ur 18,5 milljónum íslenskra króna, eða
einni milljón sænskra króna. Þess má geta
að Steinunn Sigurðardóttir hlaut þessi
verðlaun árið 2008, fyrst fatahönnuða.
Verk hans verða sýnd í
Röhsska-safninu í Gautaborg frá
5. nóvember 2011 til febrúarloka
2012. Verðlaunin verða hins veg-
ar formlega afhent 4. nóvember.
„Fatahönnun hans virkar vel
fyrir krefjandi hóp við-
skiptavina úr hópi unga fólks-
ins,“ sagði meðal annars í til-
kynningu dómnefndarinnar,
sem leggur líka áherslu á
framúrstefnu og fjölhæfi
hönnuðarins en tískusýningar
hans eru mjög listrænar.
Vibskov hefur ennfremur
staðfest þátttöku sína í Nor-
ræna tískutvíæringnum
(Nordic Fashion Biennale),
sem haldinn verður í Seattle í
haust.
Vibskov útskrifaðist úr hin-
um virta listaháskóla Central
Saint Martins í London árið
2001. „Hann er þekktur fyrir
listræna framsetningu á hönn-
un sinni og hefur tekið þátt í
fjölbreyttum viðburðum s.s. hinni
íslensku LungA-listahátíð á Seyð-
isfirði. Vibskov hannar bæði fyrir kon-
ur og menn og eru vörur hans seldar í
völdum búðum víðsvegar um heiminn.
Nýverið opnaði hann sína eigin verslun
í hjarta Soho, New York, en hann rekur
einnig eigin verslun í Kaupmannahöfn.
Vibskov er einnig trommari hjá Trente-
møller og hefur túrað um heiminn með
honum,“ segir í tilkynningu frá Norræna
húsinu um tískutvíæringinn.
Hönnun Vibskov einkennist af hug-
myndaflugi og litagleði eins og meðfylgj-
andi myndir sanna, en þær eru frá síðustu
þremur sýningum hans á tískuvikunni í
Kaupmannahöfn.
Peysa Vibskov er þekktur fyrir skraut-
legar og síðar peysur.
Leggings Þessar buxur eru frekar
fyrir listaspírur en skrifstofumenn.
Copenhagen Fashion Week®
Hönnuður-
inn sjálfur
Vibskov hef-
ur margoft
heimsótt Ís-
land.
Samstætt Dásamlegt fyrir döm-
urnar úr næstu vetrarlínu.
Doppur Allt er vænt
sem vel er doppótt.
Skraut
Þessar sokka-
buxur setja
skemmtilegan
svip notaðar við
svartan fatnað.
Sumar
Ekki dæmigerður
en samt mjög
skemmtilegur og
eflaust þægilegur
sumarfatnaður.
Vetur
Þægilegar
prjónabuxur
úr næstu
vetrarlínu
Vibskov.
Fjölhæfur og framúrstefnulegur
Óhefðbundið Engin
venjuleg jakkaföt.
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2011