Morgunblaðið - 08.06.2011, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Súkkulaði frá Jóa Fel innkallað
2. Rhodri sendir son sinn í DNA
3. Vel smurt á tölvuleiki, myndavélar
4. Eldstöðin í Grímsvötnum eftir gos
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Útidúr leggur land
undir fót núna í júní, en leiðin liggur
til Þýskalands þar sem sveitin mun
fara í lítið tónleikaferðalag um
landið. Eru þetta samtals fernir
tónleikar og hefst ferðalagið 22. júní
í München.
Útidúr í tónleikaferð
til Þýskalands
Rapparinn
Emmsjé Gauti
fagnar sinni
fyrstu plötu,
BARA ÉG, með
útgáfutónleikum
í Þjóðleik-
húskjallaranum
á morgun. Með-
al þeirra sem
fram koma má nefna BlazRoca, Frið-
rik Dór, Berndsen, Intr0beats og
fleiri. Húsið verður opnað klukkan
21:30 og kostar 1.000 krónur inn.
Drykkur fylgir fyrstu hundrað mið-
unum.
Emmsjé Gauti gefur
út sína fyrstu plötu
Haukur Viðar Alfreðsson, söngvari
og gítarleikari eðalsveitarinnar Morð-
ingjarnir, hefur nýlokið við að skrifa
sína fyrstu bók. Hann birtir tilkynn-
ingu þessa efnis á
Fésbókarsíðu
sinni. Fer hún í
prentun í dag og
verður gefin út
skömmu síðar. Efni
bókarinnar er
þó enn sem
komið er á
huldu.
Haukur Morðingi
gefur út bók!
Á fimmtudag Norðaustan 8-15 m/s og víða rigning, einkum
norðan- og austantil, en snjókoma til fjalla. Hiti 2 til 8 stig.
Á föstudag Norðaustlæg átt 5-10 m/s. Rigning með köflum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s, en hvassara síð-
degis. Skýjað með köflum og stöku skúrir eða él, einkum norð-
austantil. Hiti 2-8 stig nyrðra og eystra, en 5-12 stig syðra.
VEÐUR
„Við erum í ákveðnum erf-
iðleikum því að báðir miðju-
mennirnir okkar eru meiddir.
Snorri vaknaði mjög slæmur
í bakinu og við vitum ekki
hvort hann getur spilað, en
Aron hefur ekkert getað tek-
ið þátt í æfingum og er far-
inn til Íslands. Þetta gerir
okkur mjög erfitt fyrir,“
sagði Guðmundur Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, en Ísland
mætir Lettlandi í kvöld. »1
Erum í ákveðnum
erfiðleikum
Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í
handknattleik, segist spenntur fyrir
því að ganga til liðs við pólska liðið
Kielce en hann skrifaði í gær undir
tveggja ára samning við félagið.
Þórir hefur spilað með Lübb-
ecke í Þýska-
landi síðustu
sex árin
við góðan
orðstír. »1
Þórir spenntur fyrir því
að spila með Kielce
KR-ingar fögnuðu langþráðum
sigri gegn FH-ingum á heimavelli
þegar liðin áttust við í stórleik 7.
umferðar Pepsi-deildar karla í
knattspyrnu í gærkvöld. Þórsarar
höfðu betur gegn Eyjamönnum
fyrir norðan og á Kópavogsvelli
skildu Breiðablik og Fram jöfn og
Framarar hafa því enn ekki unnið
leik í deildinni í sumar. »2-4
Langþráður sigur KR-
inga gegn FH-ingum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þeir taka á því kastararnir á æf-
ingavellinum í Laugardal enda mik-
ið í húfi, sjálft Norðurlandameist-
aramótið í frjálsíþróttum 35 ára og
eldri, sem verður í Finnlandi að
þessu sinni og hefst í lok mánaðar-
ins.
Gert er ráð fyrir að 10-12 kepp-
endur fari héðan á NM. Kastararnir
taka keppnina alvarlega, æfðu inni í
vetur en mæta nú með áhöld sín í
Laugardalinn klukkan eitt að
minnsta kosti alla virka daga. Þar
æfa þeir sleggjukast, kúluvarp,
kringlukast, lóðakast og spjótkast.
Þeir lærðu handtökin á unga aldri,
sneru sér síðan að öðru eins og fjöl-
skyldu og vinnu og tóku svo upp
þráðinn á ný áratugum síðar.
Á sex gull að verja
„Ég var hættur að vinna og hafði
ekkert betra að gera,“ segir aldurs-
forsetinn Sigurður Haraldsson, sem
er 82 ára og var einn af stofn-
endum Leiknis á Fáskrúðsfirði
fyrir um 70 árum, en æfingar
hans lágu niðri í um 40 ár.
„Þetta er mitt félag og ég hef keppt
fyrir það alla tíð,“ heldur þessi elsti
keppandi Leiknis áfram. „Ég á líka
nóg af gulli,“ bætir hann við, en
fyrir tveimur árum varð hann
heimsmeistari í lóðakasti auk
þess sem hann á sex gull að verja
frá síðasta Norðurlandameist-
aramóti. Á mótinu þar á undan
vann hann til fernra gull-
verðlauna.
ÍR-ingurinn Jón Magnússon
er reyndastur kastaranna,
hefur keppt á þessum vett-
vangi í 45 ár og fagnað sigri á
mörgum Íslandsmótum,
tekið þátt í 13 Evrópu-
meistaramótum, 13
Norðurlandameist-
aramótum og þremur
heimsmeistaramótum. „Bestu grein-
ar mínar eru sleggjukast og lóða-
kast,“ segir hann en Jón keppir í 75-
79 ára flokki.
Sigurður Jónsson, fótboltakappi
úr Val, keppir í 60-64 ára flokki fyrir
HSH og var yngstur á æfingunni í
gær. Hann keppti fyrst í spjótkasti
13 ára og 17 ára setti hann héraðs-
met. Hann er að fara á alþjóðlegt
mót í fyrsta sinn og keppir í spjót-
kasti og kúluvarpi í Finnlandi. „Að-
alatriðið er að vera með,“ segir Sig-
urður og minnir á boðskap og
hugsjón Ólympíuleikanna.
Árni Einarsson tekur í sama
streng. „Ég er ekki afreksmaður í
neinni grein en þátttakan gefur mér
allt og það er aldrei of seint að byrja
að æfa og keppa.“
Hraðar, hærra, lengra …
Búa sig undir
NM öldunga í
frjálsíþróttum
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Kastarar á æfingu Árni Einarsson, Jón Magnússon, Sigurður Jónsson og Sigurður Haraldsson.
HSK útnefndi Árna Ein-
arsson úr Umf. Selfoss
sem öðling ársins 2010.
„Ég er mjög stoltur af
þessari viðurkenn-
ingu,“ segir Árni sem
verður áttræður í haust.
Hann ólst upp í Kaldárholti í
Holtum, kynntist frjálsíþróttum
á Selfossi um 1950 en lagði
köstin til hliðar þegar hann
flutti til Reykjavíkur 1957. Þeg-
ar kona hans féll frá byrjaði hann
aftur að æfa eftir 51 árs hlé og hef-
ur tekið þátt í öllum helstu öld-
ungamótum síðan, meðal annars
Norðurlandameistaramóti öldunga
í Svíþjóð 2009 og heimsmeistara-
mótinu í Ungverjalandi í fyrra.
„Þetta er gaman og það er mikil
næring að fara á svona mót,“ segir
Árni, sem tekur þátt í öllum kast-
greinunum en heldur mest upp á
kringluna.
Mikil næring í keppninni
ÁRNI EINARSSON ÖÐLINGUR ÁRSINS HJÁ HSK 2010
Árni
Einarsson