Morgunblaðið - 09.06.2011, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 9. J Ú N Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 134. tölublað 99. árgangur
ER DREIFT
MEÐfinni Í DAG
- nýr auglýsingamiðill
FRAMLEIÐA
ÓLÍFUOLÍU OG
VÍN Á ÍTALÍU
SEÐLABANKINN
GAGNRÝNDUR
EAGLES MEÐ
TÓNLEIKA Í
HÖLLINNI
FINNUR.IS OG VIÐSKIPTI ERNIRNIR LENTIR 36ÚT FYRIR RAMMANN 10
Fréttaskýring eftir
Bjarna Ólafsson
„Við erum að skoða varpárangurinn
hjá skrofunni í Elliðaey og bera
hann saman við ástandið í Ystakletti
á Heimaey en þar er langstærsta
varpið. Þar hefur varpið sennilega
minnkað um 70% frá 1991 til 2009.
En þar eru kettir, rottur og mýs, öf-
ugt við Elliðaey sem er laus við
spendýr,“ segir Erpur Snær Han-
sen, sviðsstjóri vistfræðirannsókna
hjá Náttúrustofu Suðurlands í Vest-
mannaeyjum.
Ætlunin er m.a. að kanna hvort
dýrin eigi verulegan þátt í hruni
stofna skrofu og lunda. Skrofan
verpir í holur eins og lundinn en er
skyld fýlnum, hún lifir að nokkru
leyti á sandsíli eins og lundinn.
Þeir Erpur Snær og Ingvar Atli
Sigurðsson, forstöðumaður Nátt-
úrustofunnar, tóku með sér sér-
hannaða holumyndavél á þriðjudag
með innrauðu ljósi til að valda ekki
styggð hjá varpfuglunum í holunum.
Og til að finna holur með fuglum í
notuðu þeir MP3-spilara með
skrofuhljóðum. Karlfuglar svöruðu
nær alltaf gargi úr karlfuglum en
kvenfuglinn sjaldan. Hins vegar
svaraði kvenfuglinn oftast kynsystr-
um sínum. kjon@mbl.is
Gengið á gargið þegar skrofan svarar
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Rannsóknir Ingvar Atli Sigurðsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands,
með skrofu í Elliðaey á þriðjudag, t.h. er Erpur Snær með myndavélina.
Náttúrufræðingar beita MP3 til að
kanna ástand skrofustofnsins í Elliðaey
Um þrjú hundruð manns tóku þátt í Heilsuhlaupi
Krabbameinsfélags Íslands sem haldið var í tilefni
af 60 ára afmæli félagsins í gærkvöldi. Fólk á öllum
aldri tók þátt og hin 9 ára Daðey Ásta Hálfdáns-
dóttir sigraði í 3 km hlaupinu. Ragnheiður Haralds-
dóttir, forstjóri félagsins, segir þessa miklu þátt-
töku einstaklega ánægjulega og að það sé engin
spurning að hlaupið verði nú haldið árlega.
Morgunblaðið/Golli
Einstaklega margir þátttakendur
Kona liggur hryggbrotin á bækl-
unardeild Landspítalans í Fossvogi
eftir að hafa dottið við sprang í
Spröngunni í Vestmannaeyjum á
uppstigningardag. Hún segir að
merkingar á staðnum hefðu mátt
vera betri, en leggur áherslu á að
við engan sé að sakast, þetta hafi
einfaldlega verið slys, en ekki hafi
verið gengið rétt frá á staðnum.
Konan hefur verið í samráði við
bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum
um að bæta merkingar við Spröng-
una. Allt útlit er fyrir að hún nái
fullri heilsu eftir slysið, en að
sjúkrahúsdvöl lokinni tekur við
endurhæfing. »4
Hryggbrotnaði
við sprang í Eyjum
Slys Bæta á merkingar við Sprönguna.
Samkvæmt nýj-
um tölum frá Hag-
stofu Íslands nam
hagvöxtur fyrstu
þrjá mánuði árs-
ins 2% miðað við
fjórðunginn á
undan.
Helstu drif-
kraftar hagvaxtar
á borð við fjárfest-
ingu og einkaneyslu gáfu verulega
eftir en hagvöxtur mældist nánast
eingöngu vegna aukinnar birgða-
söfnunar í tengslum við vetrar-
vertíð í sjávarútveginum.
Greiningardeild Arion varar við
því að hætta sé á að einkaneyslan,
sem stendur undir helmingi
landsframleiðslunnar, kunni að
dragast saman á ný á næstu miss-
erum. »Viðskipti
Vetrarvertíðin stóð
undir hagvextinum
Loðnuvertíðin dró
vagninn.
Baldur Arnarson
Kristján Jónsson
Allt var enn í lausu lofti varðandi þinglok í gær-
kvöldi, samkomulag var ekki enn í augsýn milli
stjórnar og stjórnarandstöðu. Ekki er búið að
afgreiða nokkur stórmál, þ. á m. litla kvóta-
frumvarpið svonefnda, einnig bandorminn í
tengslum við kjarasamningana og loks gjald-
eyrisfrumvarpið. Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, forseti Alþingis, sagði að ekki hefði
náðst endanlegt samkomulag um frestun þings
en áfram yrði unnið að því í dag.
Skv. heimildum felst málamiðlun sem fram-
sóknarmenn hafa lagt fram varðandi kvótann í
því að veiðigjald lækkar um 30% miðað við
frumvarpið og helmingi minna fer í svonefnda
byggða- og strandveiðipotta. Er forsendan að
sátt náist í gjaldeyrismálum og umræðum um
bandorminn.
Spurður hvort sjálfstæðismenn hefðu séð til-
lögurnar, sagði Einar K. Guðfinnsson þá hafa
skoðað hugmyndir sem hafi verið settar fram í
þessum efnum. „Við höfum hins vegar ekki
tekið afstöðu til þeirra,“ sagði Einar og bætti
því við að það væri „ekki í myndinni“ að af-
greiða litla frumvarpið fyrir hádegi í dag, líkt
og heimildarmaður blaðsins innan Framsókn-
ar taldi möguleika á.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
segir að þingið verði að klára stóru málin jafn-
vel þótt þinghald verði að vera fram yfir 17.
júní. „Breytingarnar sem krafist er á gjaldeyr-
isfrumvarpinu myndu veikja stöðu Íslands
gagnvart aflandskrónueigendum sem væru
kannski reiðubúnir að selja krónurnar á ívið
skárra verði en ella vegna haftanna.“
MMunurinn mikill »2 og 12
Stærstu
málin í
lausu lofti
Ekkert samkomulag
um þinglok í gærkvöldi
Sjófuglum fækkar hrikalega og
óvænt í stóru fuglabjörgunum 14
Sumir færa sig í aðrar byggðir 15
4. hluti af 7
Hamskipti lífríkis og landslags