Morgunblaðið - 09.06.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011
Fyrirhuguð skattlagning lífeyr-issjóða og banka vegna sér-
stakrar vaxtaniðurgreiðslu, sem
gert er ráð fyrir í bandormi fjár-
málaráðherra um ráðstafanir í
ríkisfjármálum,
vekur upp spurn-
ingar um sann-
sögli.
Í greinargerðráðherrans með
frumvarpinu segir
að nú liggi fyrir
samkomulag um að lífeyrissjóðir
og bankar greiði þennan nýja
skatt.
Þessari fullyrðingu ráðherranshefur verið mótmælt kröft-
uglega af öllum aðilum máls öðr-
um en ráðherranum.
Formaður Landssamtaka líf-eyrissjóða segir að samtökin
hafi sagt „strax að skattlagning
kæmi aldrei til greina.“
Um sama mál segir forseti ASÍ:„Ég gerði þeim grein fyrir
því í nóvember að ASÍ myndi
aldrei samþykkja það að lífeyr-
issjóðirnir yrðu skattlagðir.“
Framkvæmdastjóri Samtakafjármálafyrirtækja segir að
ekkert samráð hafi verið haft og
að ekkert samþykki lægi fyrir um
skattlagningu.
Fjármálaráðherra heldur þvíhins vegar fram að hann hafi
rætt málið við samtök fjármála-
fyrirtækja og lífeyrissjóði.
Hér virðist komið enn eitt til-efnið til að setja á fót rann-
sóknarnefnd og bera fullyrðingar
fjármálaráðherra saman við veru-
leikann.
Steingrímur J.
Sigfússon
Fullyrðingarnar
og veruleikinn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.6., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 5 léttskýjað
Akureyri 4 slydda
Kirkjubæjarkl. 9 skýjað
Vestmannaeyjar 4 skúrir
Nuuk 11 skýjað
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló 21 skúrir
Kaupmannahöfn 22 skýjað
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 15 skýjað
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 13 skýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 17 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 skúrir
Berlín 22 skúrir
Vín 25 skýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 27 skýjað
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 27 léttskýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 30 léttskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:06 23:49
ÍSAFJÖRÐUR 1:59 25:06
SIGLUFJÖRÐUR 1:34 24:56
DJÚPIVOGUR 2:22 23:31
Guðmundur Sv. Hermannsson,
Halldór Armand Ásgeirsson
og Kristel Finnbogadóttir
Aflamark á þorski verður aukið á
næsta fiskveiðiári, úr 160 þúsund
tonnum í 177 þúsund tonn, ef miðað
er við aflareglu síðustu ára, að því er
lagt er til í nýrri skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar um nytjastofna sjáv-
ar. Leggur stofnunin jafnframt m.a.
til að gefinn verði út minni kvóti fyrir
ýsu og ufsa á fiskveiðiárinu.
Skýrslan var kynnt í gær og kom
við það tilefni fram í máli Jóhanns
Sigurjónssonar, forstjóra stofnunar-
innar, að hrygningarstofn þorsks
hafi verið að vaxa, eins og stefnt hafi
verið að með aðgerðum stofnunar-
innar, og aldursbreiddin sömuleiðis.
„Að öllum líkindum munum við fá,
þegar fram líða stundir, röð af sterk-
ari árgöngum,“ sagði Jóhann á
blaðamannafundi um skýrsluna og
bætti því við að hlutfall stærri fisks í
stofninum hefði vaxið verulega.
Ekki lægri síðan 1960
Fram kom á fundinum að veiði-
hlutfall hefði lækkað úr 40% af veiði-
stofni árið 2000 í 20% á síðasta ári og
hefði veiðidánartala ekki verið lægri
síðan 1960. Þetta gerði það að verk-
um að árgangar entust lengur í
stofninum og hlutfall eldri fisks í afla
fari vaxandi. Haldi þessi þróun
áfram og miðað verði við 20% afla-
reglu eins og nú er gert, séu líkur á
að aflamarkið gæti orðið 220-250
þúsund tonn árið 2016.
Þá sagði Jóhann greinilegt, að
fiskurinn hefði nóg að éta og hann
þyngdist vel. Þetta helgaðist
væntanlega af því að úr meiri fæðu
væri að spila fyrir þorskinn.
Sem fyrr segir leggur stofnunin
hins vegar til að ýsukvóti verði
minnkaður, úr 50 þúsund tonnum í
37 þúsund tonn, og ufsakvótinn
sömuleiðis, þ.e. úr 50.000 tonnum á
yfirstandandi fiskveiðiári niður í 40
þúsund tonn á því næsta.
Inntur eftir verðmæti aflaaukn-
ingarinnar á þorski segir Sveinn
Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur
LÍÚ, að aukning á þorskkvóta um 17
þúsund tonn sé metinn á um 7 millj-
arða. Er miðað við að útflutnings-
verðmæti sé rúmar 400 kr. kílóið.
Vegur á móti aukningunni
Sveinn Hjörtur telur tillögur
stofnunarinnar um að draga úr veið-
um á öðrum tegundum hins vegar
vega upp á móti þessari hækkun.
Miðað við ofangreindar forsendur –
og meðal annars minni veiðar á
steinbít – sé ljóst að útflutningsverð-
mætið muni lækka sem nemur 422
milljónum kr. á milli fiskveiðiára.
En stofnunin leggur til að stein-
bítsaflinn miðist við hámarks-
afrakstur eða sem samsvarar 7.500
tonna heildarafla næsta fiskveiðiár.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands Íslands, kveðst að-
spurður mundu hafa viljað sjá meiri
aukningu í þorskinum. „Auðvitað
fögnum við því að ráðgjöfin kveði á
um aukningu í þorski en hins vegar
eru það vonbrigði að hún hafi ekki
verið meiri. Þetta hefði helst þurft að
vera 20 þúsund tonnum meira.“
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, er einnig gagn-
rýninn á tillögurnar. „Það er jákvætt
að þorskstofninn sé í miklum vexti.
Hins vegar skyggir á ánægjuna að
nú er til meðferðar hjá Alþingi frum-
varp þar sem þeir sem tóku skerð-
ingar til að byggja upp stofninn fá
ekki að njóta aukningarinnar,“ segir
Friðrik og víkur að ýsunni:
„Það er mjög slæmt að sjá slaka
nýliðun í ýsustofninum en við verð-
um að haga okkur eftir náttúrunni.“
Ráðherra fagnar aukningunni
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, telur aukn-
inguna í þorski fagnaðarefni.
„Það er ekkert alvarlegt að gerast
með neina fiskitegund og virðist vera
gott jafnvægi almennt í sjónum.
Aukningin í þorski er sérstakt
ánægjuefni og það hefur verið stefnt
að því á síðustu árum að ná þessari
aukningu með því að takmarka sókn-
ina í þorskinn,“ segir Jón og vísar
svo til þess að ljóst hafi verið að ýsu-
stofninn væri á niðurleið.
Ráðherrann boðar jafnframt, að
leitað verði álits hagsmunaaðila á til-
lögum Hafró áður en reglugerð um
aflamark verður gefin út fyrir næsta
fiskveiðiár og að þeirri vinnu verði
hraðað eins og kostur er.
Í greiningu sinni leggur Hafrann-
sóknastofnun mikla áherslu á, að
ekki verði hvikað frá aflareglunni.
Um það segir Jón, að aflareglu
hafi verið fylgt í þorskinum og að því
sé eðlilegast að fylgja henni áfram.
Allt að 740 þúsund lestir
Loðnuverðtíðin framundan er
einnig að skýrast.
Þannig lagði Hafró til að upphafs-
kvóti loðnuvertíðar verði 366 þúsund
lestir. Verður stofninn mældur aftur
í haust og í kjölfarið tekin ákvörðun
um endanlegan kvóta. Vísbendingu
um frekari aukningu er að finna í áð-
urnefndri skýrslu Hafró um ástand
nytjastofna en þar segir, að tillagan
sé um 50% af reiknuðum kvóta og að
því megi gera ráð fyrir að heildar-
kvótinn verði um 740 þúsund lestir.
En forsenda þeirrar aukningar er sú
að mælingar í haust staðfesti mæl-
ingarnar í vetur.
Þorskstofninn á uppleið
Hafrannsóknastofnun leggur til að þorskkvóti verði aukinn um 17.000 tonn
Hagfræðingur LÍÚ telur tillögur um samdrátt í öðrum stofnum vega þyngra
Morgunblaðið/Kristinn
Gert að þorskflökum Vinnslusalur dótturfyrirtækis Eskju í Hafnarfirði.
Heimahöfn Eskju er á Eskifirði. Útlit er fyrir meiri þorskveiði næstu ár.
Fimmtungur
» Sjávarútvegsráðherra segir
mjög ánægjulegt að sjá þá
aukningu á aflamarki þorsks,
sem aflaregla segir til um.
» Samkvæmt reglunni er
gert ráð fyrir að aflamark
verði 20% af veiðistofni.
» Hafró leggur jafnframt til
10 þúsund tonna upphafs-
kvóta á íslensku vorgotssíld-
inni.
» Til samanburðar var aflinn
44 þúsund lestir á síðustu
fiskveiðivertíð.
» Vísbendingar eru um, að
sýking í síldarstofninum sé í
rénun.