Morgunblaðið - 09.06.2011, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Opið virka daga
frá kl. 9-18
Hyundai Santa Fe
árg. 2007, ekinn 40 þús. km
2700cc, bensín, sjálfsk.
Verð: kr. 3.290.000
Eigum nokkur eintök af vel með
förnum Kia Sorento, frá 1.850.000
- 3.690.000 kr. - bensín eða dísil.
Verð frá kr. 1.850.000
Mercedes-Benz ML 63 AMG
árg. 2007, ekinn 78 þús. km
6200cc, bensín, sjálfsk.
Verð: kr. 9.990.000
Ford Escape
árg. 2008, ekinn 64 þús. km
3000cc, bensín, sjálfsk.
Verð: kr. 3.290.000
Mercedes-Benz E 200 Kompressor
árg. 2007, ekinn 98 þús. km
1800cc, bensín, sjálfsk.
Verð: kr. 3.990.000
Subaru Forester 4x4
árg. 2009, ekinn 25 þús. km
2000cc, bensín, beinsk.
Verð: kr. 3.690.000
VW Passat EcoFuel
árg. 2010, ekinn 8 þús. km
1400cc, metan/bensín, beinsk.
Verð: kr. 4.290.000
Toyota Corolla, 7 sæta
árg. 2006, ekinn 39 þús. km
1800cc, bensín, beinsk.
Verð: kr. 2.290.000
Toyota Landcruiser
árg. 2005, ekinn 98 þús. km
3000cc, dísil, sjálfsk.
Verð: kr. 5.550.000
Volkswagen Passat
árg. 2007, ekinn 64 þús. km
2000cc, dísil, sjálfsk.
Verð: kr. 2.890.000
Mercedes-Benz GL 320 CDI
árg. 2007, ekinn 64 þús. km
3000cc, dísil, sjálfsk.
Verð: kr. 9.900.000
Honda Jazz
árg. 2008, ekinn 51 þús. km
1300cc, bensín, sjálfsk.
Verð: kr. 1.890.000
notaðra bílaÚRVAL
Allt að 70%
fjármögnun
TILBO
ÐSBÍ
LL!
Áður
3.250
.000
TILBO
ÐSBÍ
LL!
Áður
4.400
.000
Góð
kaup
!
Góð
kaup
!
TILBO
ÐSBÍ
LL!
Áður
3.790
.000
HLAÐ
INN
AUKA
BÚNA
ÐI! HLA
ÐINN
AUKA
BÚNA
ÐI!
Hundruð Sýrlendinga flúðu yfir
landamærin til Tyrklands í gær af
ótta við árásir öryggissveita sem
reynt hafa að binda enda á mótmæli
gegn einræðisstjórn Bashars al-Ass-
ads, forseta Sýrlands.
Margir flóttamannanna sögðust
koma frá borginni Jisr al-Shughour
þar sem búist er við áhlaupi sýr-
lenskra öryggissveita. Ráðamenn-
irnir höfðu fullyrt að 120 manns, her-
og lögreglumenn, hefðu fallið í átök-
um við „vopnaða glæpaflokka“ í
borginni. Talið er að ráðamennirnir
hafi ýkt mannfallið til að nota það
sem afsökun fyrir því að gera stór-
fellda árás á borgina.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna sögðust hafa miklar áhyggjur
af afdrifum flóttafólksins í Sýrlandi.
Ríkisstjórn Tyrklands kvaðst ekki
ætla að loka landamærunum og
skoraði á stjórn Assads að koma á
lýðræðislegum umbótum.
Yfir 1.100 manns hafa beðið bana í
árásunum í Sýrlandi, þeirra á meðal
75 börn, frá því að mótmælin gegn
stjórninni hófust í mars.
Hundruð manna flýja
ofbeldið í Sýrlandi
Reuters
Ólga Stuðningsmenn Bashars al-Assads halda á mynd af honum á útifundi í Damaskus, höfuðborg Sýrlands.
Erlendum
vændiskonum
hefur fjölgað í
Kaupmannahöfn,
samkvæmt nýrri
rannsókn. Hún
bendir til þess að
12-15 danskar
konur stundi
vændi á götum
borgarinnar en erlendu vændis-
konunum hafi fjölgað í um 600.
Margar þessara kvenna eru álitnar
fórnarlömb mansals, að sögn Dorit
Otzen, leiðtoga Reden Inter-
national, samtaka sem berjast gegn
mansali.
„Margar kvennanna eru fluttar
hingað með fölsuð skilríki. Þegar
þær mæta hinu opinbera í Dan-
mörku er litið á þær sem lögbrjóta,
þeim er stungið í fangelsi og vísað
úr landi,“ hefur fréttavefur danska
ríkisútvarpsins eftir Otzen.
Erlendum vændis-
konum fjölgar í
Kaupmannahöfn
Umhverfisverndarsamtökin Green-
peace saka Mattel, fyrirtækið sem
framleiðir Barbie-brúðurnar, um
að stuðla að eyðileggingu skóga í
Indónesíu og ógna heimkynnum
dýrategunda í útrýmingarhættu,
þeirra á meðal fágætra tígrisdýra,
fíla og apa.
Samtökin segja að umbúðir, sem
notaðar eru í pökkun á Barbie-
brúðunum, innihaldi afurðir frá
fyrirtækinu Asia Pulp and Paper.
Segja samtökin að fyrirtækið sé
þekkt fyrir aðild að eyðileggingu
skóga.
„Barbie eyðileggur náttúrulega
skóga og ógnar dýrategundum í út-
rýmingarhættu,“ sagði Bustar
Maitar, talsmaður Greenpeace.
„Mattel verður að hætta að pakka
frægasta leikfangi heimsins inn í
regnskóga sem eru að hverfa.“
Asia Pulp and Paper sagði að
ásakanirnar kæmu á óvart og neit-
aði að framleiðsluaðferðir þess
ógnuðu á einhvern hátt skógum eða
dýrategundum. Fyrirtækið kvaðst
yfirleitt reyna að nota sjálfbærar
afurðir sem birgjar fyrirtækisins
mæltu með.
Herferð Greenpeace gegn Mattel
er í takt við aðrar herferðir um-
hverfisverndarsamtakanna gegn
fyrirtækjum á borð við Walmart,
Carefor og Tesco.
Segja Barbie
eyða regn-
skógum
Reuters
Í slæmum félagsskap Barbie er
bendluð við vafasamt fyrirtæki.