Morgunblaðið - 10.06.2011, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2011
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Vogunarsjóðir hafa keypt risastór landsvæði í
Afríku til að hagnast á framleiðslu matvæla og
lífræns eldsneytis, að sögn bandarísku rann-
sóknastofnunarinnar Oakland Institute. Hún tel-
ur kaupin stuðla að hækkunum á matvælaverði í
heiminum og ógna matvælaöryggi í
Afríkulöndum.
Oakland Institute rannsakaði stórfelld
jarðakaup vestrænna vogunarsjóða og fleiri fjár-
festa í nokkrum Afríkulöndum á síðustu árum og
komst að þeirri niðurstöðu að þeir hefðu sölsað
undir sig risastór landsvæði í álfunni, oft með
vafasömum samningum. Milljónir smábænda
hefðu flosnað upp frá jörðum sínum af þeim sök-
um.
Matvælaframleiðslan minnkar
Í skýrslu Oakland Institute segir að eitt af
markmiðunum með jarðakaupunum sé að
styrkja stöðu vogunarsjóða á matvælamörkuðum
heimsins. Þeir noti þó einnig jarð-
irnar til að framleiða lífrænt elds-
neyti og blóm til útflutnings. Kaup-
in verði þannig til þess að
matvælaframleiðslan minnki í álf-
unni.
„Sömu fjármálafyrirtæki ollu
kreppu í öllum heiminum með því
að þenja út fasteignabóluna með
áhættusömu braski og þau eru nú
að gera það sama við mat-
vælamarkaðina,“ sagði Anuradha
Mittal, framkvæmdastjóri Oakland
Institute.
Skýrsluhöfundarnir segja að
jarðakaup vogunarsjóðanna fjölgi
þeim sem líði hungur og stuðli að þjóðfélagslegri
ólgu sem geti stefnt heiminum í meiri hættu en
alþjóðleg vandamál á borð við hryðjuverka-
starfsemi.
Samningamenn vogunarsjóðanna eru sak-
aðir um að múta spilltum embættismönnum og
höfðingjum fátækra ættbálka. „Rannsóknin af-
hjúpaði fjárfesta sem sögðu að auð-
velt væri að ná samningum um
jarðakaup – þeir gætu yfirleitt feng-
ið það sem þeir vildu með því að gefa
fátækum ættbálkshöfðingja flösku af
Johnny Walker,“ sagði Mittall. „Þeg-
ar fjárfestarnir lofa höfðingjunum
framförum og störfum hljómar það
vel – en hængurinn er sá að þeir efna
ekki loforðin, þannig að engar fram-
farir verða og fólkið flosnar upp.“
Á meðal fjárfestanna á bak við
sjóðina eru nokkrir stórir háskólar í
Bandaríkjunum, þeirra á meðal Har-
vard, að sögn rannsóknastofnunar-
innar.
Nokkur fjárfestingarfyrirtæki, sem nefnd
eru í skýrslunni, hafa neitað því að þau hafi söls-
að undir sig jarðir með vafasömum samningum.
Eitt þeirra sagði að Afríkumenn nytu einnig góðs
af fjárfestingunum, til að mynda væru laun
starfsmanna fyrirtækisins í Mósambík 40%
hærri en meðallaunin í landinu.
Sölsa undir sig risastór landflæmi
Vogunarsjóðir sagðir stuðla að auknu hungri í Afríkulöndum með stórfelldum jarðakaupum
Milljónir manna hafa flosnað upp Varað við ólgu sem gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar
Líf Margir bændur hafa
flosnað upp í Afríku.
Í vasa spilltra leiðtoga
» Á árinu 2009 keyptu vog-
unarsjóðirnir nær 60 milljónir
hektara í Afríku, svæði á stærð
við Frakkland. Samingunum
fylgja oft skattaívilnanir og
réttindi til að nýta auðlindir á
borð við vatn og skóga.
» „Enginn ætti að trúa því
að þessir fjárfestar séu þarna
til að fæða sveltandi Afríkubúa,
skapa atvinnu eða auka mat-
vælaöryggi,“ sagði Obang
Metho, talsmaður samtaka
sem berjast gegn fátækt í Eþí-
ópíu. „Þessir samningar færa
aðeins peninga í vasa spilltra
leiðtoga og erlendra fjárfesta.“
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Yfirsaksóknari Alþjóðasakamála-
dómstólsins segir að fram hafi komið
vísbendingar um að Muammar
Gaddafi, einræðisherra í Líbíu, hafi
fyrirskipað liðsmönnum öryggis-
sveita að nauðga hundruðum
kvenna. Gaddafi er sagður hafa látið
kaupa „heilu gámana“ af stinningar-
lyfjum handa hermönnum til að
hvetja þá til að nauðga konum í því
skyni að refsa uppreisnarmönnum
sem hafa náð stórum hluta Líbíu á
sitt vald.
Yfirsaksóknarinn Luis Moreno-
Ocampo sagði líklegt að Gaddafi yrði
ákærður fyrir að fyrirskipa nauðg-
anir og þeirri sakargift yrði bætt við
ákærur á hendur einræðisherranum
fyrir glæpi gegn mannkyninu.
„Við höfum nú fengið upplýsingar
um að Gaddafi hafi sjálfur fyrirskip-
að nauðganir og það er nýtt,“ sagði
Moreno-Ocampo við fréttamenn í
New York. Hann sagði að skýrt hefði
verið frá því að hundruðum kvenna
hefði verið nauðgað á nokkrum
svæðum í Líbíu. Fram hefðu komið
vísbendingar um að ráðamennirnir í
Líbíu hefðu látið kaupa stinningarlyf
á borð við Viagra handa hermönn-
um. „Þeir keyptu heilu farmana til að
auka möguleikann á nauðgunum.“
Moreno-Ocampo gaf út handtöku-
tilskipun í síðasta mánuði á hendur
Gaddafi, syni hans Saif al-Islam og
yfirmanni líbísku leyniþjónustunnar,
Abdullah al-Sanussi. Búist er við að
dómarar Alþjóðasakamáladómstóls-
ins tilkynni á næstu dögum hvort
þeir fallist á ákærurnar.
Líbísk kona, Iman al-Obeidi, vakti
mikla athygli í mars þegar hún fór
inn í hótel fréttamanna í Trípólí og
sakaði hermenn um að hafa nauðgað
sér. Hún var handtekin en henni
tókst að flýja frá Líbíu. Hún fór til
Katar en yfirvöld þar vísuðu henni
úr landi og hún var flutt á yfirráða-
svæði uppreisnarmanna í austur-
hluta Líbíu. Hún dvelur nú í flótta-
mannamiðstöð í Rúmeníu, að sögn
fréttaveitunnar AFP.
Lofa fjárhagsaðstoð
Utanríkisráðherrar yfir 20 ríkja,
auk fulltrúa Sameinuðu þjóðanna,
Arababandalagsins og samtaka
múslímaríkja, komu saman í Abu
Dhabi í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum í gær til að ræða átökin í
Líbíu. Hillary Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að dagar
Gaddafis sem leiðtoga Líbíu væru
taldir og unnið væri að því að tryggja
lýðræði í landinu.
Fulltrúar Frakklands, Ítalíu og
Kúveit lofuðu á fundinum að veita
byltingarráði uppreisnarmanna í
Líbíu verulega fjárhagsaðstoð.
Sakaður um fjöldanauðganir í Líbíu
Gaddafi sagður hafa beitt nauðgunum sem vopni gegn
uppreisnarmönnum Hundruðum kvenna nauðgað
100 km
ÁTÖKIN Í LÍBÍU Í gær
Trípólí
Herþotur
NATO
gerðu
árásir á
borgina
Gadamis
Uppreisnarmenn
segja að öryggis-
sveitir Gaddafis
haldi íbúum
bæjarins í gíslingu
Yafran, Kalaa
Liðsmenn
Gaddafis
skutu
sprengjum
á bæi
Misrata
Þúsundir hermanna
Gaddafis sóttu að
borginni úr þremur
áttum og gerðu
sprengjuárásir
Saksóknarar Alþjóðasakamáladómstólsins segjast hafa fundið vísbendingar um
að Gaddafi hafi fyrirskipað hermönnum sínum að nauðga hundruðum kvenna
Miðjarðarhaf
Benghazi
Ajdabiya
Misrata
Tobruk
Gadamis
Herþotur NATO
framfylgja flugbanni
Heimildir: Fréttir fjölmiðla, criticalthreats.org
uppreisnarmannastjórnar GaddafisLandsvæði á valdi:
Zintan
Yafran
T
Ú
N
IS
L Í B Í A
A
LS
ÍR
Sirte
Kona gengur framhjá stórum mótmælaborða á
torgi í miðborg Madrídar, Puerta del Sol, þar
sem þúsundir manna hafa tekið þátt í mótmælum
gegn aðgerðum spænskra stjórnvalda vegna
efnahagskreppunnar á Spáni. Mótmælin hafa
staðið frá 15. maí og leitt til svipaðra aðgerða í
fleiri borgum Evrópu. Á borðanum stendur:
„Dimmasta stund næturinnar er nákvæmlega
mínútu áður en sólin rís.“
Reuters
Dimmasta stundin mínútu fyrir sólarupprás
Á ári hverju slas-
ast hundruð þús-
unda Banda-
ríkjamanna í
baðherbergjum,
samkvæmt rann-
sókn bandarískr-
ar lýðheilsu-
stofnunar.
Rannsóknin er
liður í opinberri
herferð til að
vekja athygli almennings á hættum
baðherbergisins.
Rannsóknin leiddi í ljós að á
árinu 2008 fóru 234.090 manns yfir
15 ára aldri á sjúkrahús vestra eftir
að hafa slasað sig í baðherbergi.
Flestir þeirra slösuðust í baðkarinu
eða í sturtu og nær 85% þeirra, sem
slösuðust þar, voru á aldrinum 15-
24 ára. Rúm 50% þeirra sem slös-
uðust á eða nálægt salerninu voru
yfir 84 ára aldri.
Aðeins 0,5% baðherbergismeiðsl-
anna voru banvæn.
Hættur bað-
herbergisins
afhjúpaðar
Baðkörin sögð sér-
lega viðsjárverð
Bað Hætturnar
leynast mjög víða.