Morgunblaðið - 10.06.2011, Síða 33
10. júní 1789
Jarðskjálftahrina hófst á Suð-
urlandi, frá Selvogi til Þing-
valla. Í heila viku voru skjálft-
ar með allt að tíu mínútna
millibili. „Land seig norðan
Þingvallavatns milli Almanna-
gjár og Hrafnagjár um rúma
60 sentimetra, vellirnir urðu
að mýrlendi og mun það meðal
annars hafa orðið átylla til að
leggja þinghald þar niður árið
1800,“ sagði í bókinni Náttúra
Íslands.
10. júní 1958
Útvarpsþátturinn „Lög unga
fólksins“ hóf göngu sína. Þátt-
urinn var á dagskrá á þriðju-
dögum og var einn vinsælasti
tónlistarþátturinn í marga
áratugi.
10. júní 1986
Fimm þúsund króna seðill var
settur í umferð. Á honum er
mynd af Ragnheiði Jónsdóttur
(f. 1646, d. 1715), en hún var
kona tveggja Hólabiskupa og
annáluð hannyrðakona.
10. júní 1993
Steinboginn yfir Ófærufoss í
Eldgjá var brotinn þegar er-
lendir ferðamenn komu að
honum. Boginn hafði verið
heill tveimur vikum áður.
10. júní 2001
Konur fluttu ávörp í fyrsta
sinn við hátíðahöld Sjó-
mannadagsins í Reykjavík, en
sjávarútvegsráðherra og
fulltrúum útgerðarmanna var
ekki boðin þátttaka vegna
setningar bráðabirgðalaga á
kjaradeilu sjómanna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
DAGBÓK 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
9 4 3 8 5
6 1 9 3 2
3 2 8
2 6
8 4 5 9
5 1 4
4 6
8 9
9
5 8
1 5
7 5 6 9
3 8 7
3
1 2 8 6
9 1 7
3 5
2 1
8 6 7
3 5 2
8 9 4
2 8
6 5 3 7
9
7 6
9 8 4
7 3
6 8 5 9 1 4 3 7 2
9 2 3 5 7 6 8 1 4
7 1 4 2 3 8 5 6 9
5 4 6 1 2 3 7 9 8
1 9 7 8 4 5 6 2 3
8 3 2 7 6 9 1 4 5
3 5 1 6 9 2 4 8 7
2 6 8 4 5 7 9 3 1
4 7 9 3 8 1 2 5 6
6 7 1 5 8 2 9 3 4
9 2 3 1 4 6 5 8 7
5 4 8 9 7 3 1 6 2
4 3 5 2 1 8 7 9 6
1 9 2 7 6 5 8 4 3
7 8 6 4 3 9 2 5 1
3 1 4 8 5 7 6 2 9
2 5 7 6 9 4 3 1 8
8 6 9 3 2 1 4 7 5
7 5 2 6 8 4 1 3 9
1 9 3 5 7 2 8 6 4
4 8 6 1 3 9 7 2 5
8 2 9 7 1 5 6 4 3
6 3 1 4 2 8 9 5 7
5 7 4 3 9 6 2 1 8
3 1 8 2 5 7 4 9 6
9 6 5 8 4 1 3 7 2
2 4 7 9 6 3 5 8 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 10. júní, 161. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6,
14.)
Samkvæmt lögum má íslenskurferðamaður ekki kaupa erlend-
an gjaldeyri vegna utanfarar fyrr en
mánuður eða minna er í brottför.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp efna-
hags- og viðskiptaráðherra um
breytingu á lögum um gjaldeyrismál
og gengur hugmyndin út á að
þrengja enn frekar að almenningi.
x x x
Þegar Víkverji fer í frí til útlandagerir hann ráðstafanir tím-
anlega og kaupir farseðil og skot-
silfur á ríkjandi gengi, þegar ferðin
er ákveðin. Þetta hefur aldrei verið
vandamál þó meira en mánuður hafi
verið í brottför, þar til í gær. Vík-
verji keypti farseðil til útlanda fyrir
nær tveimur mánuðum og er brott-
för í síðari hluta júlí. Þegar hann
ætlaði að kaupa 2.000 danskar krón-
ur í Landsbankanum, sem jafngilda
um 45.000 íslenskum krónum, benti
starfsstúlkan á lagagrein sem bann-
aði henni að afgreiða Víkverja þar
sem meira en mánuður var í brott-
för. Danska krónan hefur hækkað
síðan Víkverji keypti farseðilinn og á
eflaust eftir að hækka meira næstu
tvær vikurnar. Ferð Víkverja verður
dýrari sem því nemur vegna þess að
einhver pappírspési í ráðuneyti þarf
að vera með puttana í málinu.
x x x
Annars verður Víkverji að passasig á því að kaupa ekki of mik-
inn erlendan gjaldeyri því verði hug-
myndir ráðherra að veruleika á Vík-
verji á hættu að vera dæmdur í
tveggja ára fangelsi fyrir að skila
ekki dönsku krónunum, sem hann
eyðir ekki í sumarfríinu. Samkvæmt
tillögum ráðherra skal ferðamaður
skila erlendum gjaldeyri innan
tveggja vikna frá komu til landsins
en verða dæmdur maður ella. Vík-
verji er sparsamur og kemur örugg-
lega til með að eiga nokkrar danskar
krónur eftir – á til dæmis 20 krónu
seðil frá síðustu ferð til Danmerkur
– en hann sér ekki að hann komist í
banka fyrr en þremur vikum eftir
komu. En það verður of seint, verði
frumvarp ráðherrans að lögum, og
þá er það væntanlega Kvíabryggja
næst. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kenja, 4 mergð, 7
svífum, 8 rögum, 9 reið, 11
sterk, 13 bor, 14 heiðarleg,
15 öl, 17 hugboð, 20 mann,
22 hland, 23 dugnaðurinn,
24 sparsöm, 25 áma.
Lóðrétt | 1 farartæki, 2 tor-
tímum, 3 heiður, 4 spýta, 5
krók, 6 fellir dóm, 10 lúra, 12
stúlka, 13 nöldur, 15 ritið, 16
daunn, 18 tuskan, 19 starfs-
vilji, 20 fornafn, 21 farmur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 meykonung, 8 kakan, 9 skyld, 10 get, 11 týndi, 13 at-
aði, 15 byggs, 18 spöng, 21 urt, 22 siðug, 23 aular, 24 hólm-
ganga.
Lóðrétt: 2 eikin, 3 kyngi, 4 nísta, 5 neyta, 6 skot, 7 Oddi, 12 dug,
14 tæp, 15 bósi, 16 geðró, 17 sugum, 18 staka, 19 öflug, 20 gæra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Lykillinn að árangri. N-NS.
Norður
♠Á83
♥K92
♦D6
♣ÁG754
Vestur Austur
♠9762 ♠K105
♥864 ♥10
♦97 ♦KG108432
♣10863 ♣K2
Suður
♠DG4
♥ÁDG753
♦Á5
♣D9
Suður spilar 6♥.
Sumir halda því fram að árangur við
spilaborðið ráðist mest af meldingum –
að úrspil og vörn séu afgangsstærðir:
„Bridge is a Bidders Game,“ er oft sagt
á alþjóðamálinu. Er þetta rétt?
Mike Passell er tæknilegur afburða-
spilari í vörn og sókn. En hann vinnur
sjaldan. Í landsliðskeppninni marg-
umræddu var Passell í suður á móti
Grue og Lall. Norður vakti á 1G og
Lall í austur stökk í 3♦. Hvað á suður
að gera?
Passell datt ekkert betra í hug en
langstökk í 6♥. Tígull út og steindautt
spil. Eftir sömu byrjun á hinu borðinu
yfirfærði Wooldridge í hjarta með 4♦.
Spurði svo um lykilspil og sagði
slemmuna, sem Hurd í norður stýrði.
Út kom tromp. Hurd hitti á að spila
litlu laufi að drottningunni og þá var
eftirleikurinn auðveldur.
„Það er nú bara hefðbundinn vinnudagur í dag.
En svo ætlum við fjölskyldan að fara upp í bústað
seinnipartinn og eyða helginni þar. Taka því bara
rólega,“ segir Gísli Freyr Valdórsson, blaðamaður
og stjórnmálafræðingur, sem er 31 árs í dag. Hann
fagnaði þrítugsafmælinu sínu með veglegri veislu
í fyrra og segist hafa klárað kvótann þá í bili. Það
verði því lögð áhersla á rólegheit í ár.
„Ég er enginn sérstakur áhugamaður um að
halda upp á afmælið mitt en konan mín hefur
skipulagt þetta fyrir mig,“ segir Gísli. Þegar hann
varð 26 ára skipulagði konan hans, Rakel Lúðvíks-
dóttir, óvænta veislu fyrir hann sem tókst mjög vel. Hann hafi ekkert
grunað hvað stæði til. Þegar hann síðan kom heim úr þáverandi vinnu
sinni á Hótel Sögu hafi íbúðin verið full af fólki.
„Við ætluðum að fá vinafólk okkar í grillmat og þegar ég var að
koma heim sá ég Rakel úti á svölunum að grilla. Þegar ég kom síðan
upp var bara fullt af fólki mætt á staðinn og kökur tilbúnar og svona,“
segir Gísli. Hann segir gestina hafa lagt bílum sínum nokkru frá hús-
inu þannig að hann hafi ekki tekið eftir neinu óvenjulegu þegar hann
kom heim. Þetta hafi allt heppnast mjög vel. hjorturjg@mbl.is
Gísli Freyr Valdórsson er 31 árs í dag
Veislukvótinn búinn í bili
Hlutavelta
Emilía Rán
Benediktsdóttir
og Katrín Ósk
Einarsdóttir
héldu tombólu
fyrir utan Nóa-
tún við Aust-
urver. Þær söfn-
uðu 5.152 kr.
sem þær færðu
Rauða krossi Ís-
lands.
Flóðogfjara
10. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.39 3,3 7.01 0,9 13.22 3,2 19.38 1,0 3.04 23.52
Ísafjörður 2.31 1,9 9.05 0,5 15.26 1,7 21.42 0,6 1.50 25.15
Siglufjörður 4.54 1,1 11.14 0,2 17.46 1,1 23.46 0,3 1.16 25.16
Djúpivogur 3.58 0,7 10.19 1,9 16.38 0,7 22.49 1,8 2.20 23.34
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Forðastu að hrekja aðra út í horn.
Landið liggur þannig, að þú getur vel gefið
þér góðan tíma til að kanna það sem í boði
er.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er nauðsynlegt að eiga einhvern til
þess að deila með gleði og sorg því það er
engum hollt að byrgja allt inni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Reyndu að hemja löngun þína til að
vanda um við aðra. Geymdu það í nokkra
daga þangað til þú ert kominn í betra form.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gerðu áætlanir varðandi starfsframa
þinn. Takist þér það mun það veita þér mikla
gleði. Fjölskyldan er uppspretta mikillar gleði.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Á tilfinningaþrungnu augnabliki gæti
reynst rétt að greiða götu einhvers, gefa mik-
ið þjórfé eða lifa hátt. Gerðu það sem í þínu
valdi stendur til að láta þér líða sem best.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ný tækni eða tækjabúnaður gæti verið
tekinn í notkun á vinnustað. Kannski ertu
orðin leið á rússíbana rómantíkurinnar og vilt
fara úr vagninum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú átt núna mjög gott með að láta þig
dreyma og sjá hlutina fyrir þér. Breyttu í
engu háttum þínum. Hikaðu ekki við að
leggja líka til málanna.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Óvæntar gjafir eða skyndileg
innkaup fyrir heimilið gleðja þig um þessar
mundir. Markið sem þú setur fyrir þig og aðra
er hátt, en mundu gildi þolinmæði og um-
burðarlyndis.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú munt ná takmarki þínu ef þér
tekst að virkja annað fólk til að bera sinn
hluta byrðarinnar. Ástvinir og makar eru þér
mikilvægari en venjulega í dag.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Einhver gamall kunningi lætur í
sér heyra og skilaboðin koma róti á hug þinn.
Leggðu áherslu á að þér líði sem best og
þeim sem í kringum þig eru.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er engin ástæða til þess að
fela allar sínar tilfinningar. Mikilvæg persóna
bíður eftir að þú hafir samband við sig.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú virðist vera að sigla inn á lygnan
sjó og átt svo sem fyrir því að eiga rólegar
stundir. Tafir eru óumflýjanlegar.
Stjörnuspá
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. De2 a6
5. Ba4 Be7 6. c3 d6 7. 0-0 0-0 8. d4 Bd7
9. d5 Rb8 10. Bxd7 Rbxd7 11. c4 g6 12.
Rc3 Rh5 13. Hb1 Rg7 14. b4 f5 15. Be3
Hb8 16. Hfd1 De8 17. a4 f4 18. Bd2 g5
19. h3 h5 20. Rh2 Dg6 21. f3 Re8 22.
Hdc1 Ref6 23. Kf1 Kf7 24. Ke1 g4 25.
Kd1 gxh3 26. gxh3 Hg8 27. Kc2 Dg2
28. Hh1 Dxe2 29. Rxe2 Hg2 30. Kd3
Rb6 31. Hbg1 Hbg8 32. Hxg2 Hxg2 33.
a5
Staðan kom upp í atskákhluta Am-
ber-mótsins sem lauk fyrir nokkru í
Mónakó. Magnus Carlsen (2.815) hafði
svart gegn heimsmeistaranum Visw-
anathan Anand (2.817). 33. … Rxc4!
34. Bc1 b5 35. axb6 Rxb6 36. Rf1 Rh7
37. h4 Rf8 38. Bd2 Rg6 39. Be1 Ra4
40. Hg1 Hxg1 41. Rxg1 Bxh4 42. Bd2
Ke7 43. Rh3 Kd7 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.