Morgunblaðið - 10.06.2011, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2011
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslenskudeild Manitobaháskóla í
Winnipeg í Kanada hefur verið starf-
rækt í 60 ár og af því tilefni verður
blásið til veislu sem hefst með ljós-
myndasýningu Jóhanns Páls Valdi-
marssonar, útgáfustjóra JPV-útgáfu,
í Safni íslenskrar menningar-
arfleifðar á Gimli (New Iceland Her-
itage Museum).
„Ljósmyndasýningin hringir inn
afmælisárið og með henni vottum við
íslenskum skáldum og gamla landinu
virðingu okkar,“ segir dr. Birna
Bjarnadóttir, forstöðumaður ís-
lenskudeildarinnar. „Þetta gerum við
í minningu þeirra sem stofnuðu deild-
ina og allra þeirra sem hafa stutt
hana með ráðum og dáð í gegnum tíð-
ina.“
Á sýningunni verða myndir af
skáldum og landslagsmyndir frá Ís-
landi og verður hún í safninu í allt
sumar.
Fjölbreytt dagskrá í haust
Í september verða síðan tvennir
tónleikar, afmælisfyrirlestur, kvik-
myndasýningar og önnur ljós-
myndasýning.
Helga Brekkan sýnir tvær heim-
ildamyndir, aðra um Guðberg Bergs-
son og hina um sköpunina, sem verð-
ur síðan sýnd á bókamessunni í
Frankfurt í október.
Blásarasveit Sigurðar Ingva
Snorrasonar kemur fram og Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Diddú, syngur með
sveitinni. Annars vegar er um kirkju-
tónleika að ræða þar sem flutt verður
klassísk tónlist og hins vegar tónleika
þar sem frumflutt verður tónlist eftir
íslensk tónskáld vestanhafs.
Guðni Þorbjarnarson, ljósmyndari
og grafískur hönnuður, sýnir ljós-
myndir frá Vestfjörðum á sýningu
sem verður opnuð á Gimli.
Guðbergur Bergsson flytur síðan
fyrirlestur í tilefni tímamótanna.
Leiðtogar
„Þetta er okkar hlutverk,“ segir
Birna um dagskrána, en hún var ráð-
in yfirmaður íslenskudeildarinnar
sumarið 2006 eftir að hafa kennt við
hana frá því haustið 2003. Fyrirrenn-
ari hennar frá 1999 var David Arna-
son, Kirsten Wolf var á undan honum
frá 1988, Haraldur Bessason stjórn-
aði deildinni frá 1956 til þess tíma og
Finnbogi Guðmundsson tók fyrstu
skrefin með deildina 1951 til 1956.
Birna hefur látið mikið að sér
kveða í Winnipeg og í liðnum mánuði
fékk hún sérstaka viðurkenningu
(The YMCA-YWCA Women of Dist-
inction Awards) fyrir menningarstörf
sín í Manitoba. Mikil gróska hefur
verið í deildinni síðan Birna tók við og
í ár útskrifar hún til dæmis fimm
framhaldsnema en einn þeirra byrjar
í doktorsnámi við Háskóla Íslands í
haust. Um 70 nemendur stunduðu
nám við deildina í vetur en auk Birnu
kenndu tveir kennarar við deildina.
Veisluhöld í Winnipeg
Ljósmyndasýning Jóhanns Páls Valdimarssonar hringir
inn 60 ára afmæli íslenskudeildar Manitobaháskóla
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Sköpun Birna Bjarnadóttir, for-
stöðumaður við Manitoba-háskóla.
Hin árlega tónlistarhátíð IsNord
verður haldin dagana 10.-12. júní í
Borgarfirði. Á heimasíðu hátíð-
arinnar segir að markmiðið sé að
gera ungum tónskáldum skil auk
þess að flytja sígild verk eldri tón-
skálda sem mættu heyrast oftar.
Lögð er áhersla á norræna tónlist
og leikin verk íslenskra tónskálda í
bland við verk frá hinum Norð-
urlandaþjóðunum til að gera þann-
ig sameiginlegan tónlistararf að-
gengilegan almenningi. Áhersla er
á að í hópi flytjenda og tónskálda
séu listamenn búsettir í Borgarfirði
eða ættaðir þaðan.
Þrennir tónleikar eru á dagskrá;
í Borgarnesi, Reykholtskirkju og
Stefánshelli. Hátíðin hefst á föstu-
dag kl. 20.30 í Borgarneskirkju
með tónleikunum „Er sumarið kom
yfir sæinn“ en þeir eru helgaðir
tónlist Sigfúsar Halldórssonar.
Kynnir verður sonur hans, Gunn-
laugur, og mun hann fræða gesti
nánar um tónskáldið og verk hans.
Auk þess koma fram Guðrún Ingi-
mars sópran, Bergþór Pálsson bari-
tón og Jónína Erna Arnardóttir pí-
anóleikari.
Á laugardag kl. 16.00 verður Ást-
ríður Alda píanóleikari með ein-
leikstónleika í Reykholtskirkju og á
sunnudag kl. 16.00 mun sönghóp-
urinn Voces Thules flytja miðalda-
tónlist í Stefánshelli.
Listrænn stjórnandi hátíðarinnar
er Jónína Erna Arnardóttir og með-
stjórnandi Margrét Guðjónsdóttir.
Hægt er að panta miða í gegnum is-
nord@isnord.is og eru áhorfendur
hvattir til að mæta vel skóaðir og í
hlýjum fatnaði. diana@mbl.is
Norræn stemning á
IsNord í Borgarfirði
IsNord/Remke Spijkers
Norrænt Meðal atriða á IsNord í Borgarfirði er að sönghópurinn Voces
Thules mun flytja miðaldatónlist í Stefánshelli.
Fjórða og síðasta
ljósmyndakaffi
Ljósmyndasafns
Reykjavíkur verð-
ur haldið í dag kl.
12:00 til 13:00.
Bára K. Kristins-
dóttir ljósmyndari
sest í sófann á
safninu og segir
frá ljósmyndaferli
sínum, ræðir listræna ljósmyndun,
sýningahald og fleira. Bára setti upp
sína fyrstu ljósmyndasýningu í Gall-
eríi Sævars Karls 1995 og vakti mikla
athygli, fyrir það að myndefnið þótti
erótískt. Bára mun sýna þessar um-
deildu myndir í kaffinu og ræða frek-
ar ásamt öðrum myndum sem hún
hefur tekið í gegnum tíðina. Guð-
mundur Ingólfsson, Leifur Þor-
steinsson og Sissa munu einnig setj-
ast í sófann og spjalla við Báru.
Í ljósmynda-
kaffi hjá Báru
Bára K.
Kristinsdóttir
Kattarkvikindið hann De-wey, varð mér oft á aðhugsa á kvöldin þegarmér varð ljóst að hann
væri sá sem ég yrði að fara með í
rúmið. Það gerist ekki oft að það sé
mér hálfgerð pína að lesa bækur en
svo var nú samt í tilviki bandaríska
bókasafnskattarins Dewey.
Dewey: Litli
bókasafnskött-
urinn sem sneri
öllu á hvolf eftir
Vicki Myron
ásamt Bret Wit-
ter kom nýlega út
í íslenskri þýð-
ingu Aldísar
Björnsdóttur. Í
henni segir frá
ævi Dewey sem
finnst sem lítill
kettlingur í skilalúgu almennings-
bókasafnsins í bænum Spencer í
Iowa árið 1988. Vicki Myron, sem
skrifar bókina, var þar bókavörður
og kom fyrst auga á kettlinginn. Þau
náðu strax einstökum tengslum sem
voru órjúfanleg í nítján ár, eða þar
til Dewey var allur.
Dewey hefur verið einstaklega fal-
legur köttur og hefði ég líklega fallið
kylliflöt fyrir honum ef ég hefði hitt
hann (því ég hata ekki ketti) en eftir
að hafa lesið 300 blaðsíður um ævi
hans og samferða-„manna“ var ég
komin með nóg. Vissulega hefur De-
wey verið skapgóður og ljúfur kisi
sem auðgaði líf margra en sögu hans
hefði verið hægt að segja á áhrifa-
meiri hátt í einni blaðagrein. Lopinn
er nefnilega teygður og teygður og
þegar maður er búinn að lesa kafla
eftir kafla um hægðir Dewey og
matvendni, hvar hann svaf og hvern-
ig hann smokraði sér á milli bóka-
hillnanna, var elskaður af safngest-
um og hataði dýralækninn þá fékk
ég nóg. Ég þakka samt fyrir og tel
höfundi þessarar bókar það til hróss
að hún skrifar ekki söguna frá sjón-
arhorni Dewey, þ.e. gerir honum
upp hugsanir og lætur hann „tala“.
Samband Dewey og bókavarð-
arins Vicki hefur verið einstakt og
auðskilið að hún hafi viljað deila
þessu fallega sambandi með öðrum
en henni tekst ekki vel til í því. Sag-
an er marflöt, skortir alla byggingu
og aga. Það er þá helst að það lifni
aðeins yfir henni þegar Vicki fer að
segja frá sinni eigin ævi en konan
hefur ekki átt sjö dagana sæla. Það
eru góðir sprettir í bókinni en Vicki
verður það á að treysta ekki lesand-
anum til að muna það sem á undan
fer og til að skynja hið ósagða. Hún
fer því út í of miklar lýsingar og
smáatriði sem draga máttinn úr sög-
unni. Það er eins og hún finni sig
knúna til að sannfæra lesandann um
að Spencer sé æðislegur bær, að De-
wey hafi ekki verið neinn venjulegur
köttur, að fólkið á bókasafninu eigi
engan sinn líka og lífið sé yndislegt
þrátt fyrir allt. Vicky hefði stundum
mátt láta vaða meira í staðinn fyrir
að hljóma eins og ferðamannabækl-
ingur fyrir Iowa. Það er einmitt í
þeim fáu köflum sem hún lætur vaða
sem sagan kemst á flug. Dewey:
Litli bókasafnskötturinn sem sneri
öllu á hvolf er falleg saga en dauf.
Dewey: Litli bókasafnskötturinn sem
sneri öllu á hvolf bbnnn
Eftir Vicki Myron ásamt Bret Witter.
Þýðing Aldís Björnsdóttir.
Salka 2011.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Dewey
Bókarkápa
Dewey Vicki Myron, höfundur bók-
arinnar um Dewey, fékk sér nýjan
kött þegar Dewey drapst. Ekki fer
frekari sögum af nýja kettinum sem
heitir Page.
Daufur Dewey
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 lokasýn
Tveggja tíma hláturskast...með hléi. Síðustu sýningar þessa leikárs
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Fös 10/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn
Lau 11/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn
Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega
Klúbburinn (Litla sviðið)
Fös 10/6 kl. 18:00 aukasýn
Á Listahátíð - Dansleikhús um karlmenn - allra síðustu sýningar
NEI RÁÐHERRA! – HHHH IB, Mbl
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Ferðasaga Guðríðar / The saga of Gudridur
Sun 19/6 kl. 20:00
sýnd á ensku /in english
Fös 24/6 kl. 20:00
Lau 25/6 kl. 16:00
Sun 26/6 kl. 20:00
sýnd á ensku / in english
Hetja / Hero
Sun 19/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english
Fös 24/6 kl. 18:00
Lau 25/6 kl. 20:00
Sun 26/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english