Morgunblaðið - 10.06.2011, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2011
Pólsk innrás í Bíó Paradís
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Um helgina verða Pólskir kvik-
myndadagar í Bíó Paradís. Sýndar
verða fjórar kvikmyndir frá sjötta
og sjöunda áratug síðustu aldar,
gullaldarskeiði pólskra kvikmynda
og er aðgangur ókeypis.
Óperusöngkonan Gabriela de
Silva, sem starfar með mörgum óp-
eruhúsum í Póllandi, kemur fram á
opnunarkvöldinu í Bíó Paradís í
dag kl. 19:00 og syngur verk sem
byggð eru á ýmsum lögum úr
pólskum kvikmyndum frá sjöunda
og áttunda áratug síðustu aldar.
Umgjörð tónleikanna er hönnuð af
pólskum listahóp sem heitir því
auðvelda nafni rzysztofjastrubc-
zakłukaszkaczmarek og þykir mik-
ilvægt að gleyma ekki framburði á
cz-inu fyrir miðju nafnsins svo það
skiljist sem sagt er.
Jastrubczak og Polanski
Lukasz Jastrubczak er einn upp-
hafsmanna þessa verkefnis en í
spjalli við Morgunblaðið segir hann
að þetta sé annars vegar sýningar-
ferð þeirra með þessar myndir og
hins vegar geri þeir heimild-
armynd um ferð sína sem er ein-
hverskonar gjörningur í leiðinni.
„Hugmyndin kviknaði hjá vini mín-
um Krzysztof sem langaði til að
gera heimildarmynd um ferð með
flutningaskipi frá Póllandi til Ís-
lands, en svo ákváðum við að
tvinna þá hugmynd saman við þá
að sýna þessa sýningarferð pólskra
mynda og gera hvorutveggja,“ seg-
ir Lukasz.
Margir þessara leikstjóra eru
þekktir, en þekktastur þeirra er án
vafa Roman Polanski. Þarna verð-
ur sýnd fyrsta bíómyndin hans,
Knife in a Water, sem er full af
þeirri spennu og því ofbeldi sem
átti eftir að finnast í mörgum
seinni mynda hans. Hún fjallar um
eldri mann og unga eiginkonu hans
sem eru á leið í siglingu á skútu
sinni. Þau pikka upp ungan mann á
leiðinni og hann slæst í för með
þeim. Hann laðast að eiginkonunni
og þá byrjar hrútalyktin að brjót-
ast fram í þeim báðum.
Myndin verður sýnd á sunnudag-
inn klukkan 20:00. Opnunarmyndin
í kvöld er myndin Næturlestin eft-
ir Jerzy Kawalerowics sem er
klastrófóbísk bíómynd frá komm-
úníska tímabili Póllands.
Pólskar myndir frá sjötta og sjöunda
áratugnum sýndar í Paradís
Gjörningur Pólverjarnir eru ekki bara hér til að sýna pólsku myndirnar,
heldur taka þeir myndir á leiðinni sem mynda orð sem er hluti af gjörningi
sem ferð þeirra gengur út á. Orðið byrjar á K.
Plata Metallica, Master of Pupp-
ets, kom út í mars fyrir 25 árum.
Af þessu tilefni heldur hljóm-
sveitin Orion veglega heiðrunar-
tónleika á Sódómu Reykjavík hinn
24. júní næstkomandi. Master of
Puppets verður flutt í heild sinni
ásamt nokkrum vel völdum auka-
lögum. Hljómsveitin Orion var
stofnuð sérstaklega af þessu til-
efni en hana skipa Björn Þór Jó-
hannsson, Kristján B. Heiðarsson,
Magni Ásgeirsson, Magnús Hall-
dór Pálsson og Rúnar Þór Þór-
arinsson. Þeir hafa getið sér gott
orð m.a. í hljómsveitunum Chan-
ger, Forgarði Helvítis, Trössum,
Á móti sól, In Memoriam, Shiva,
Potentiam, Dark Harvest og
Shape.
Magni syngur
Metallica!
Af Fésbókinni má sjá að hinn
mæti rithöfundur Guðmundur
Andri Thorsson er staddur í Vín,
þar sem hann bergir af alltumlykj-
andi menningunni af miklum
krafti. Guðmundur er vinmargur
og Egill Helgason, Þorvaldur
Gylfason og Jakob Frímann lið-
sinna sínum manni við að finna
sér eitthvað til dundurs. Einar
Örn Benediktsson, Ghostigital-
limur, stígur m.a. fram og bendir
honum á tónleika sveitarinnar í
Vín. Hinn tónvissi Guðmundur
stökk óðar til og verður því á hau-
saskakandi rafóhljóðaorgíu í kvöld
ef allt gengur upp.
Guðmundur og
Ghostigital
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Skjaldborg, hátíð íslenskra heim-
ildamynda, hefst í kvöld með sýningu
opnunarmyndarinnar Jón og séra
Jón. Hátíðin á fimm ára afmæli í ár
og eru yfir tuttugu íslenskar heimild-
armyndir frumsýndar á henni yfir
helgina. Einnig verða brot sýnd úr
verkum í vinnslu. Við setningu hátíð-
arinnar verður klukkan færð fram
um einn klukkutíma og tekinn upp
sumartími á Patreksfirði, Skjald-
borgartími. Þess má geta að með
þessu eru Skjaldborgarmenn að
blanda sér í langt og erfitt deilumál
Íslendinga sem sæmilegur friður
komst á um árið 1968 þegar fest var í
lög hvað klukkan væri á Íslandi og
skyldi haldast þannig allan ársins
hring. Síðan þá hafa sex tillögur verið
lagðar fram á Alþingi um að taka upp
sumartíma á Íslandi eins og hjá öðr-
um evrópskum þjóðum. Skjaldborg-
armenn taka nú upp sumartíma í
samræmi við þá hefð.
Opnunarmynd hátíðarinnar fjallar
um bónda og prest sem er þekktur
fyrir að fara sínar eigin leiðir. Hann
býr á gjöfulli jörð í krafti embættis
síns sem prestur á staðnum en fær
söfnuðinn upp á móti sér. Presturinn
lendir í átökum við kirkjuna, söfn-
uðinn og nánast alla í umhverfi sínu.
Þetta er bæði saga Jóns og séra Jóns.
Eftir myndina færist hátíðin í Sjó-
ræningjahúsið þar sem fólk skemmtir
sér með Bjarna massa fram á nótt.
Laugardagur
Um morguninn verða heimild-
armyndirnar Sá guli, Shamrock Inn
og Busca la vida sýndar en Sá guli
fjallar um þorskveiðar Íslendinga,
gull landsins – „the cod is god“ var
skrifað einhvers staðar. Shamrock
Inn fjallar um írska krá í Danmörku
og Busca la vida um götufólk í
Malaga.
Eftir hádegi verða sýndar mynd-
irnar Paradox, Lífsviljinn, Ge9n,
Freerun og Blikk áður en kemur að
heiðursgesti hátíðarinnar, Ómari
Ragnarssyni. Andri Freyr ræðir við
hann uppi á sviði og fer yfir feril hans
á meðan þeir sýna myndbrot úr verk-
um hans, birtum sem óbirtum.
Laugardagskveldinu lýkur síðan á
Matmanninum með uppistandi.
Sunnudagur
Þessi dagur gefur mest fyrirheit
þar sem frumsýndar verða myndir
sem mikil spenna er fyrir eins og Hú-
das Húdas, eftir hinn efnilega kvik-
myndagerðarmann Frosta Jón Run-
ólfsson. Mynd hans er tekin upp á
Filippseyjum og er um mann á ferða-
lagi ásamt dauðanum sjálfum um
frjósöm héruð Filippseyja. Þá verður
líka frumsýnd þennan dag myndin
Bakka-Baldur, sem Þorfinnur
Guðnason gerði, en hann er með
flekklausan kvikmyndaferil, alltaf
gert góðar myndir. Þá verður Land
míns föður sýnt eftir Ólaf de Fleur
eða Poppola sem hefur leikstýrt
fjölda kvikmynda, nú síðast Kurteisu
fólki sem var frumsýnd í vetur. Land
míns föður fjallar um þrjár kynslóðir
bænda sem reyna að þrauka við erf-
iðar aðstæður í Dölunum.
Aðrar heimildarmyndir þennan
daginn eru Oddi, Mótvægi, Earth to
Earth, Krossgötur, Skakkakrepes,
Morbid Summer of Laziness, Rang-
sælis, Hamarinn sem hæst af öllum
ber, Sudden Weather Change, Blue
Glossy Tiger, Aska og Anti-American
wins the Nobel prize þar sem rithöf-
undurinn Halldór Laxness er skoð-
aður í pólitísku ljósi og settur í al-
þjóðlegt samhengi.
Þennan daginn verða einnig pall-
borðsumræður um hvort það sé hægt
að fanga raunveruleikann, sem er sí-
ungt umræðuefni meðal heimild-
armyndagerðarmanna.
Um kvöldið verður síðan fiskiveisla
í Sjóræningjahúsinu og loks verða
veitt verðlaunin Einarinn fyrir bestu
heimildarmynd Skjaldborgar að mati
áhorfenda.
Skjaldborg heimilanna
og heimildarmyndanna
Heimilislegar
heimildarmyndir
frumsýndar á
Skjaldborg Há-
tíðin á Patreks-
firði hefst í dag
Framleiðandinn Kristín Andrea er búin að vinna sem framleiðandi bíómynda og heimildamynda í mörg ár og verð-
ur ein mynda hennar sýnd á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, á Patreksfirði.
Ísland er land mitt Heimildarmyndin Land míns föður segir frá þremur
kynslóðum bænda í baráttu við að halda búskapnum gangandi.