Morgunblaðið - 11.06.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Lilja Rafney Magnúsdóttir, formað-
ur sjávarútvegs- og landbúnaðar-
nefndar og liðsmaður Vinstri
grænna, var eini nefndarmaðurinn
af alls níu sem studdi án fyrirvara
svonefnt minna kvótafrumvarp
Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra þegar það
var afgreitt úr nefnd á Alþingi í
gærkvöldi.
Allir þrír fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar greiddu atkvæði gegn
frumvarpinu og einn af liðs-
mönnum stjórnarflokkanna, Björn
Valur Gíslason, skrifaði ekki undir
álit nefndarmeirihlutans. Þrír sam-
fylkingarmenn, Ólína Þorvarðar-
dóttir, Róbert Marshall og Helgi
Hjörvar, gerðu fyrirvara.
Talsverðar breytingar voru gerð-
ar á frumvarpinu frá því sem sam-
komulag varð um milli þingflokk-
anna á fimmtudagskvöld. Grein 2,
um að kvóti fyrirtækja í jafnt bol-
fiski sem uppsjávarfiski skyldi
skertur til að veiðiheimildir yrðu til
ráðstöfunar í pottana svonefndu,
var breytt að tillögu meirihlutans.
Verður fyrirkomulaginu ekki kom-
ið á strax í haust heldur smám sam-
an á þrem árum. Þegar var búið að
fleygja út ákvæði um sérstakan
strandveiðiflokk fyrir báta undir
þrem tonnum. Í gær var ákveðið að
hætta við ákvæði um að ráðherra
gæti ákveðið mismunandi veiði-
gjald eftir tegund útgerðarinnar.
En hver verður afstaða sjálfstæð-
ismanna þegar greidd verða at-
kvæði um frumvarpið?
Ólöf Nordal, varaformaður
flokksins, sagði ljóst að sjálfstæð-
ismenn væru á móti báðum kvóta-
frumvörpunum. Vissulega væri þó
búið að lagfæra ýmislegt og rétt að
reyna áfram að minnka skaðann.
Jón Gunnarsson á sæti í sjávar-
útvegs- og landbúnaðarnefnd og
segir ekki útilokað að menn styðji
sumar breytingatillögurnar. „En
við munum ekki styðja þetta frum-
varp í heild sinni, bendum á að það
hefur ekki farið fram nein skoðun á
heildaráhrifum þess.“
Gert var ráð fyrir að atkvæði
yrðu greidd um málið í dag, hugs-
anlegt að það yrði í gærkvöldi.
Mörg mál voru afgreidd í gær enda
stefnt að þingfrestun í dag.
Bullandi ósætti
stjórnarliða
Varaformaður sjávarútvegsnefndar
studdi ekki litla kvótafrumvarpið
Reglur um
kaupaukakerfi
fjármálafyrir-
tækja eru til
umfjöllunar í
stjórn
Fjármálaeftir-
litsins. Ekki er
ljóst hvenær
stjórnin lýkur
umfjöllun sinni
og enn hefur ekki verið tekin
ákvörðun um að gefa þær út og
birta. Þetta kemur fram í svari
efnahags- og viðskiptaráðherra við
fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur,
þingmanns Framsóknarflokks.
Einnig segir að við undirbúning
reglnanna hafi verið tekið mið af
erlendum reglum um sama efni,
einkum sænskum reglum.
Fjármálaeftirlitið
skoðar reglur um
kaupaukakerfi
Íslendingar hafa þrjá mánuði til að
greiða Bretum og Hollendingum
650 milljarða króna innistæðutrygg-
ingar vegna Icesave, að öðrum kosti
verður málinu vísað til EFTA-dóm-
stólsins. Þetta er niðurstaða Eftir-
litsstofnunar EFTA (ESA) sem
send var Íslendingum í gær. Í til-
kynningu ESA segir að fulltrúar
stofnunarinnar hafi „farið ýtarlega
yfir svarbréfið frá íslenskum stjórn-
völdum en geti ekki annað en haldið
sig við fyrri afstöðu sína“.
Fjallað var um málið á Alþingi í
gær og voru ræðumenn sammála
um að nú skipti öllu að samstaða
yrði um viðbrögðin. „Enginn getur
fullyrt um úrslit dómsmáls en Ís-
land hefur mikilvægan málstað að
verja,“ sagði Árni Páll Árnason,
efnahags- og viðskiptaráðherra. Í
fyrsta skipti í sögu Icesave-málsins
hefði náðst órofa samstaða allra
flokka á Alþingi um málsvörn Ís-
lands í málinu. Mikilvægi þessarar
samstöðu yrði ekki ofmetið. Afstaða
Íslands væri sú, að ekki væri rík-
isábyrgð á innistæðuskuldbinding-
unum og ekkert hefði komið fram í
rökstuddu áliti ESA sem breytti
þeirri afstöðu.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagðist geta
tekið undir það með Árna Páli að Ís-
lendingar teldu sig hafa sterkan
málstað að verja. Þá væri það um-
hugsunarefni að ESA skuli halda
áfram með málið undir forystu for-
seta sem hefði greinilega á fyrri
stigum málsins tekið afstöðu áður
en fyrstu viðbrögð Íslendinga voru
sett fram með formlegum hætti.
Full ástæða hefði verið til að gera
athugasemdir við að forsetinn viki
ekki sæti við afgreiðsluna.
Árni Þór Sigurðsson, formaður
utanríkismálanefndar, sagði að á
fundi nefndarinnar í gær hefði verið
góður samhljómur um að þingheim-
ur stæði saman um hvert skref sem
tekið yrði í framhaldinu. kjon@mbl.is
ESA ítrekar Icesave-kröfu
Samstaða um viðbrögð á Alþingi ef málið fer fyrir EFTA-dómstólinn
Sjálfstæðismenn segja forseta ESA hafa átt að víkja sæti vegna ummæla sinna
Þrotabú sagt duga
» Fram kom að þrotabú
Landsbankans gamla myndi
sennilega geta greitt nær all-
ar forgangskröfur vegna Ice-
save.
» Hæstiréttur mun að lík-
indum úrskurða í haust hvort
neyðarlögin standast. Geri
þau það verður fljótlega hægt
að byrja að greiða úr þrota-
búinu
Janus Arn Guðmundsson
janus@mbl.is
Friðrik Árni Friðriksson Hirst út-
skrifast með meistaragráðu í lög-
fræði í dag. Það væri ekki í frásög-
ur færandi nema fyrir þær sakir að
Friðrik er annar tveggja nemenda
við Háskóla Íslands sem fengið
hafa einkunnina 9,25 í meistara-
námi í lögfræði frá því að náminu
var breytt.
Friðrik er fæddur í Reykjavík 27.
október árið 1985. Foreldrar hans
eru Friðrik Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Skjás eins, og Elín
Hirst, fyrrv. fréttamaður. Friðrik
útskrifaðist frá fornmáladeild við
Menntaskólann í Reykjavík. Þaðan
lá leið hans í Háskóla Íslands þar
sem hann hóf nám í latínu og
grísku. Eftir skamma hríð ákvað
Friðrik hins vegar að hefja nám við
lagadeild skólans.
Frá því Friðrik hóf BA-nám í
lögfræði hefur hann sýnt afburða-
námsárangur og dúxaði til að
mynda á BA-prófinu. Þrátt fyr-
ir það hefur Friðrik ekki
látið sitt eftir liggja í
félagsstarfi og tók
meðal annars virkan
þátt í Orator. „Ég var
varaformaður Orators
síðasta skólaárið. Ég
lærði fljótt að greina aðalatriðin frá
aukaatriðunum. Ef mönnum tekst
það geta þeir gert margt annað
með náminu,“ segir Friðrik.
Óhefðbundin útskriftarveisla
Mastersritgerð Friðriks ber heit-
ið „Forræði aðila einkamáls á sönn-
unarfærslu“ og leitast hann við að
svara hversu ríkan rétt málsaðilar
hafa til þess að færa fram sönnun í
máli sínu, á þann hátt sem þeir
kjósa. „Í sumum tegundum mála er
það þannig að dómarinn hefur
meiri yfirráð yfir öflun sönn-
unargagna.“
Sjálfur ætlar Friðrik að eiga
notalega stund með fjölskyldunni í
kvöld og fara út að borða á góðan
stað. „Útskriftarveislan verður svo
með óhefðbundnu sniði að því leyti
að ég er að fara að skíra stelpuna
mína og verður skírnin 17. júní.“
Að lokum tekur hann fram að
mannlegi þátturinn sé ekki síður
mikilvægur en námsárangur.
Annar tveggja sem
fengið hafa 9,25
Dúxar í meistaranámi í lögfræði við Háskóla Íslands
Starfsferill Friðriks er mjög glæsilegur, en hann hefur nánast starfað við
lögfræðina frá því að hann hóf námið. „Ég byrjaði fyrst að vinna á lög-
mannsstofu Juris eftir annað árið mitt í lögfræði hjá Andra Árnasyni, um
svipað leyti var ég ráðinn framkvæmdastjóri Bókaútgáfunnar Codex, en
nú er ég að hætta þar og einbeiti mér eingöngu að starfinu hjá Jur-
is,“ segir Friðrik. Hann er nú kominn í fullt starf hjá Juris og starf-
ar að fullu við landsdómsmálið, en þar aðstoðar hann Andra
Árnason, verjanda Geirs. Friðrik er líklega yngsti lögfræðing-
urinn hér á landi sem fær vinnu við jafn viðamikið mál.
„Það er sannur heiður að fá að taka þátt í þessu sögu-
lega máli svona skömmu eftir útskrift. Við erum þessa
dagana að leggja drög að vörn Geirs,“ segir Friðrik að
lokum.
Vinnur með verjanda Geirs
LÍKLEGA YNGSTI LÖGFRÆÐINGURINN VIÐ LANDSDÓM
Morgunblaðið/Kristinn
Lögfræðingur Friðrik Árni Friðriksson Hirst segist fljótt hafa lært að greina aðalatriðin frá aukaatriðunum.
Byrjaðu góðan
dag vel
– Fáðu þér létta ab mjólk
á hverjum degi
Nú
fáanleg í
handhægum
½ líters
umbúðum
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Létta AB mjólkin er einhver
hollasti morgunverður sem
völ er á. AB mjólkin inni-
heldur milljarða gagnlegra
mjólkursýrugerla sem
valda því að óæskilegir
gerlar eiga erfitt uppdráttar
í meltingarveginum.
Regluleg neysla tryggir að
meltingarflóran er alltaf í
lagi og ónæmiskerfið
starfar með
hámarksafköstum.