Morgunblaðið - 11.06.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
HAUST 3
Í fögru umhverfi inn á milli fjalla í Þýskalandi, Sviss og hinu margrómaða Alsace héraði í
Frakklandi munum við dvelja í þessari rómantísku ferð. Flogið til München og þaðan
ekið til Füssen í Allgäu, líflegs bæjar á milli Ammergauer og Allgäuer Alpanna, þar sem
gist verður í 3 nætur. Við njótum tignar Alpanna, skoðum ævintýrahallirnar
Neuschwanstein og Hohenschwangau, sem hafa gert þetta að einu eftirsóttasta
ferðamannasvæði landsins. Þaðan verður ekið til Luzern við Luzernvatn í Sviss með
viðkomu í Lindau við Bodensee. Luzern er ein skemmtilegasta borg landsins og verður
gist þar í 5 nætur. Við förum í siglingu á Luzernvatni með viðkomu í litlum bæjum við
vatnið. Förum einnig með kláfi upp á fjallið Pilatus og komum til menningarborgarinnar
Zürich. Ljúkum ferðinni á að aka töfrandi leið um Alsace vínslóðina til Strasbourg, með
viðkomu í bænum Riquewihr, þar sem eru falleg bindingsverkshús. Gist í Strasbourg í 2
nætur og farið í skoðunarferð um borgina áður en flogið er heim á leið frá Frankfurt.
Fararstjóri: Jóhannes Örn Vigfússon
Verð: 235.500 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu,
sigling á Luzernvatni, Gullni hringurinn á Pilatus fjallinu og íslensk fararstjórn.
15. - 25. september
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Í hjarta Sviss
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hvort sem það hefur stafað af meira
úrvali, lægra vöruverði eða óná-
kvæmum verðsamanburði eiga
margir minningar um hagstæð sæl-
gætiskaup í Fríhöfninni.
Ef marka má lauslega úttekt
Morgunblaðsins borgar sig ekki
lengur að troða út verslunarpokann
af sælgæti við heimkomuna.
Þannig reyndist sælgætið dýrara í
Fríhöfninni í sjö tilvikum af ellefu.
Verðið var í einu tilviki það sama en
þrisvar bauð Fríhöfnin upp á betra
verð. Hægt er að nálgast verð í Frí-
höfninni á vefnum og geta við-
skiptavinir flugvallarins því gert
verðsamanburð áður en þeir leggja í
hann og þannig tryggt sér betra verð
á völdum vörum. Þá er valið handa-
hófskennt og kann því ekki að gefa
rétta heildarmynd, að teknu tilliti til
allra vöruliða.
Lágverðskeðjurnar ódýrari
Til samanburðar var valið verð í
lágverðsverslunum Krónunni og
Bónus. Miðast verð í Krónunni við
hilluverð í verslun keðjunnar í Ár-
bænum sl. fimmtudagskvöld. Verð í
Bónus byggist hins vegar á upplýs-
ingum frá afleysingamanni versl-
unarstjóra í verslun keðjunnar við
Hallveigarstíg í Reykjavík símleiðis í
gær. Skal tekið fram að allar villur
eru á ábyrgð blaðamanns.
Þá eru frekari gjöld umfram virð-
isaukaskatt ekki tilgreind í sælgæt-
isdæmunum og skýrist það af því að
starfsmaður tollstjóra treysti sér
ekki til að taka þau saman með litlum
fyrirvara síðdegis í gær. Einnig náð-
ist ekki í Ástu Dís Ólafsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Fríhafnarinnar, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Byggjast
tölur um skatta og gjöld á uppgefna
vöruflokka því á upplýsingum í
reiknivél sem er aðgengileg á vef
tollstjóra.
Annað sem vekur athygli er að
verð á ilmvötnum er í tveimur til-
fellum af fjórum nánast nákvæmlega
jafn miklu lægra í Fríhöfninni og í
verslunum Hagkaups og sem nemur
virðisaukaskattinum (25,5%). Nú eru
dæmin aðeins fjögur en fjögur dæmi
í viðbót veita frekari vísbendingu um
þetta. Þar er um að ræða ilmvötnin
Chanel Chance Eau Fraiche og Ver-
sace Bright Crystal en þau voru 36%
og 24% dýrari í Hagkaup.
Þá voru herrailmvötnin Jean Paul
Gaultier After Shave og Armani Atti-
tude Extreme 23% og 26% ódýrari í
Fríhöfninni. Þýðir það að verðmun-
urinn er í kringum virðis-
aukaskattinn (25,5%) í fimm tilvikum
af átta.
Ilmvötn og snyrtivörur Vsk: 25,5%, tollur: 10% (leggst ekki á vörur í Fríhöfninni)
Fríhöfn Hagkaup Verðmunur
Puma Jam 3.399 4.799 (60 ml) -41%
Jean Paul Gaultier After Shave 7.539 9.299 (125 ml) -23%
Armani Black Code 7.679 9.649 (50 ml) -26%
Armani Attitude Extreme 7.799 9.829 (50 ml) -26%
Christina Aquilera Royal Desire 3.399 4.799 (30 ml) -41%
Chanel Chance Eau Fraiche 8.799 11.969 (50 ml) -36%
Lancome Hypnose Senses 7.899 9.899 (50 ml) -25%
Versace Bright Crystal 5.599 6.939 (30 ml) -24%
Fríhöfn Vefsíða Bláa lónsins Verðmunur
Blue Lagoon/Algae & Mineral Shower Gel 2.320 2.900 -25%
2 Tubes Gift 8.925 11.900 -33%
Fríhöfnin – verðsamanburður
H
er
ra
D
öm
u
Ís
l.
Sælgæti Vsk: 7%. Auk þess eru lögð frekari gjöld á sælgæti sem ekki er tekið tillit til hér.
Fríhöfn Krónan/Bónus* Verðmunur
After Eight (200 grömm) 359 299 20%
Lindt Lindor Balls Milk (400 grömm) 1.999 1.898 (200 grömm á 949) 5%
Twix Twin Single (58 grömm) 99 99 (3 x 58 grömm á 299) Sama
TobleroneWhite Bar (100 grömm) 199 250 -26%
Freyju Draumur (50 grömm) 139 94 (2 x 50 grömm á 188) 48%
Mackintosh Quality Street (675 grömm) 1.799 1.599 13%
Nóa Lakkríssprengjur (500 grömm) 539 530 (159 kr. 150 grömm) 2%
Tópas risa saltlakkrís (60 grömm)* 149 114,5 (229 kr. tvöfaldur pakki) 30%
Góa rúsínur dökkar (500 grömm)* 349 397 -14%
Lindu Buff* 69 67 3%
ExtraWhite Sweet Fruit 145 159 -10%
S
æ
lg
æ
ti
Áfengi Vsk: 25,5%, áfengisgj.: Bjór: 86,9 kr./cl á vínanda umfram 2,25%.
Sterkt áfengi: 101,74 kr fyrir hvert % vínanda.
Fríhöfn ÁTVR Verðmunur
Egils Gull 5% (6x 500 ml) 999 1.974 -98%
Beck’s 5% (6 x 500 ml) 1.199 2.514 -110%
Víking Bjór 5,6% (6 x 500ml) 1.199 2.154 -80%
Absolut Vodka 40% 1 lítri 2.499 6.998 -180%
Captain Morgan Spiced Rum 35% 1 lítri 2.299 6.990 -204%
Beefeater 40% 1 lítri 1.999 7.099 -255%
B
jó
r
S
te
rk
t
Myndavélar og farsímar (Elko í Fríhöfninni) Vsk: 25,5%
Fríhöfn Elko í Reykjavík Verðmunur
Canon Ixus 210 SIL 39.999 47.995 -20%
Canon A 2200 SIL 19.999 24.995 -25%
Canon A 800 BLA 14.999 18.995 -27%
Nokia C2-01 15.599 19.495 -25%
Nokia N8 71.999 87.995 -22%
M
yn
da
v.
S
ím
ar
Sælgætið er
oft dýrara í
Fríhöfninni
Sú tíð er liðin að það borgi sig að
hamstra gotterí eftir utanferð
Ódýrari myndavélar
» Verðkönnunin bendir til að
talsvert hagstæðara sé að
kaupa myndavélar og farsíma í
verslun Elko á flugvellinum en í
búðum keðjunnar á höfuð-
borgarsvæðinu.
» Munurinn er á bilinu 20 til
27% í dæmunum þremur og
því ekki fjarri virðisaukaskatt-
inum sem er 25,5%, líkt og á
við um farsímana tvo.
Þær gríðarlegu álögur sem lagðar
eru á áfengi í verslunum ÁTVR
koma glöggt í ljós þegar verðið er
borið saman við uppgefið verð á vef-
síðu Fríhafnarinnar.
Þannig kostar
eins lítra flaska af
Beefeater-gini,
sem er 40% að
styrkleika, 1.999
krónur í Fríhöfn-
inni. Hjá toll-
stjóra fengust
þær upplýsingar
að áfengisgjald á
flöskuna væri
4.070 kr., eða ríf-
lega tvöfalt út-
söluverð í Fríhöfninni. Sama
áfengisgjald er lagt á Absolut vodka-
flöskuna sem hér er valin af handa-
hófi en í því tilviki er það 163% af út-
söluverðinu í Fríhöfninni.
Heimabrugg færist í vöxt
Jón Erling Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri heildsölunnar Mekka
Spirits & Wines, á bæði í viðskiptum
við Fríhöfnina og ÁTVR.
Hann fullyrðir að áfengisgjaldið
hafi þegar ýtt undir heimabrugg.
„Áfengisgjaldið er orðið það hátt
að heimabrugg og smygl er orðið
áberandi vandamál. Það þarf ekki
annað en að horfa á sölutölur hjá
ÁTVR en þær sýna að neysla á
vodka hefur hrunið og margfalt á við
aðra flokka. Það skýrist einfaldlega
af því að heimabruggið er sú vara
sem kemur í staðinn.“
Athygli vekur að í ársskýrslu
ÁTVR fyrir síðasta ár fjallar Ívar J.
Arndal, forstjóri ÁTVR, á opinskáan
hátt um áhrif áfengisgjaldsins.
„Fyrir hrunið voru Íslendingar
með fullar hendur fjár. Áfengisverð
fylgdi ekki verðlagsþróun, varð sí-
fellt ódýrara samhliða því að kaup-
máttur almennings jókst, enda jókst
salan hjá ÁTVR frá ári til árs. Góðu
fréttirnar voru þær að við þessar að-
stæður nenntu fáir að brugga og
landi var nánast ófáanlegur. Nú
virðist sem brugg og smygl sé farið
af stað aftur.
Við þurfum því að vera sérstak-
lega á varðbergi og passa upp á ung-
lingana okkar því unga fólkið er
markhópur bruggaranna. Sölumenn
þeirra spyrja ekki um lágmarks-
aldur,“ skrifar forstjórinn ÁTVR í
varnaðarorðum. baldura@mbl.is
Gífurlegur munur á verðinu
hjá Fríhöfninni og ÁTVR
Áfengisgjöld á Beefeater-gin tvöfalt hærri en útsöluverð
Jón Erling
Ragnarsson Morgunblaðið/Heiddi
Miklu dýrara Miklar álögur eru lagðar á sterkt áfengi í verslunum ÁTVR.