Morgunblaðið - 11.06.2011, Side 23

Morgunblaðið - 11.06.2011, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011 Karl Sig- urbjörnsson biskup ætti að segja af sér þar sem hann hefur ekki komið heið- arlega fram. Þetta sagði Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sem sakaði Ólaf Skúlason biskup um kynferð- isbrot gegn sér í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi. Í samtali við mbl.is sagðist Sigrún Pálína vera ánægð með niðurstöðu skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings. „Þetta er ákveðin viðurkenning á því sem við höfum verið að segja árum saman,“ segir Sigrún Pál- ína. Sigrún Pálína vísar þá til þess sem hún, Dagbjört Guðmunds- dóttir og Stefanía Þorgrímsdóttir hafa haldið fram árum saman varðandi Ólaf biskup. Hún vonast til að með skýrsl- unni verði hægt að setja punkt fyrir aftan málið. „Ég vona að kirkjuþing taki á þessu af ábyrgð og taki við ábyrgðinni á þessu máli,“ segir Sigrún Pálína. Það sé búið að taka yfir 32 ár að komast að niðurstöðu. Sigrún Pálína segir það þó mið- ur að ekki sé tekin ákveðnari af- staða varðandi hlutdeild Hjálmars Jónssonar dómkirkjuprests og Karls Sigurbjörnssonar biskups og vísar þar til viðbragða þeirra á sáttafundi sem var haldinn í Hall- grímskirkju í mars árið 1996. „Ég veit hvað gerðist frá mínum bæjardyrum séð. Og mér finnst þeir ekki hafa komið heiðarlega fram, hvorki þá né núna í dag,“ segir Sigrún Pálína. Atburðarásin skjalfest Aðspurð segist hún vera ánægð- ust með að þessi atburðarás skuli nú vera skjalfest. „Ég ætla að nota næstu daga til að fara yfir skýrsl- una og ég vonast til að þeir sem lesi um Hallgrímskirkjufundinn séu ekki í vafa um sannleikann.“ Sigrún Pálína segir að þrátt fyr- ir að hún hafi orðið að yfirgefa landið árið 1996 þá hafi hún aldrei gefist upp. Ástæðan sé sú að hún gat ekki sætt sig við það að það væri ekki hægt að koma fram með svona mál. Þá vonast hún til að málið hafi leitt til þess að þeim hafi nú tekist að sýna fram á að það sé hægt að láta réttlætið ná fram að ganga. „Ég hef aldrei getað sætt mig við það að ég skyldi þurfa að segja mig úr þjóðkirkjunni og vona að það komi sá dagur að ég geti gengið inn í hana aftur.“ jonpetur@mbl.is Biskup á að segja af sér Sigrún Pálína Ingvarsdóttir  Sigrún Pálína segist ánægð með niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar Þarna væri væntanlega vísað til þess að í kvöldfréttum ríkissjón- varpsins daginn eftir, 2. mars, hafi því verið komið á framfæri að beiðni kirkjuráðsmanna að líta bæri á yfirlýsinguna sem stuðn- ingsyfirlýsingu við Ólaf. „Ég hafði enga aðkomu að umræddri ábend- ingu til ríkissjónvarpsins og veit ekkert um uppruna hennar,“ sagði Karl í svari sínu til nefndarinnar. Um misskilning að ræða Rannsóknarnefnd kirkjuþings gerir einnig athugasemd við að- komu Karls að málinu þegar það kom aftur til kasta þjóðkirkjunnar á árunum 2008 til 2010, einkum hvað varðar erindi Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, dóttur Ólafs, til kirkjuráðs 27. mars 2009 vegna ásakana um kynferðisbrot hans gegn henni þegar hún var barn og unglingur, en Karl var þá sem biskup forseti ráðsins. Ekki hafi verið staðið rétt að móttöku erind- isins og því hafi í framhaldinu ekki verið svarað formlega eins og eðli- legt hafi verið. Í svarbréfi sínu til nefndarinnar hafnaði Karl því að um vanrækslu eða mistök hafi verið að ræða í þessum efnum af hans hálfu. Sagði hann að misskilningur hefði valdið rangri móttöku erindisins og að ástæða þess að því var ekki svarað formlega hafi meðal annars verið sú að skiptar skoðanir hafi verið innan kirkjuráðs hvort það væri rétti aðilinn til þess. unni þar sem lögð er áhersla á að yfirlýsingin feli ekki í sér úrskurð í málinu heldur aðeins ályktun. Karl sagði ljóst að Ólafur sjálfur hafi ekki litið á yfirlýsinguna sem stuðning við sig. Vitnaði hann í því sambandi í ævisögu hans þar sem kæmi fram að yfirlýsingin hafi verið „svo loðin að ekki var nokkur leið á því að átta sig á því í hvorn fótinn væri verið að stíga og þurfti að biðja um skýringu á samþykkt- inni sem var þá veitt og átti að skilja sem stuðning við biskup.“ Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Fram kemur í skýrslu rannsókn- arnefndar kirkjuþings að ekki hafi komið fram vísbendingar um að Karli Sigurbjörnssyni hafi gengið annað til en að verða við óskum Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur um að ná sáttum við kirkjuna þegar hann stóð að sáttafundum 2. mars 1996 með henni og Ólafi Skúlasyni sem hún hefur sakað um kynferð- isbrot gegn sér. Gerðar eru athugasemdir í skýrslunni við að Karl hafi daginn áður staðið að yfirlýsingu kirkju- ráðs þar sem lýst var stuðningi við Ólaf í málinu. Það hafi því verið yfirsjón og mistök hjá Karli að taka að sér slíkt sáttahlutverk í ljósi aðkomu sinnar að yfirlýsing- unni. Ekki um stuðning að ræða Í svarbréfi til rannsóknarnefnd- arinnar 13. maí 2011 sagði Karl að þegar yfirlýsing kirkjuráðs hafi verið samin hafi tveir kirkjuráðs- menn verið þeirrar skoðunar að lýsa ætti yfir eindregnum stuðn- ingi við Ólaf. „Ég var aldrei þeirr- ar skoðunar. Í mínum huga skipti meginmáli að yfirlýsingin væri hlutlæg, þannig að jafnt tillit yrði tekið til allra hlutaðeigandi. Þegar litið er til efnis yfirlýsingarinnar tel ég að það ætlunarverk hafi tek- ist.“ Það viðhorf hafi endurspegl- ast í aðfararorðum með yfirlýsing- Segist ekki hafa viljað lýsa yfir stuðningi  Segir Ólaf ekki hafa litið á yfirlýsinguna sem stuðning Morgunblaðið/Kristinn Kom að málum Karl Sigurbjörns- son, biskup Íslands. FERÐ ELDRI FÉLAGA SPENNU- GOLF Hin árlega ferð Rafiðnaðarsambands Íslands árið 2011 fyrir eldri félaga sambandsins verður farin þann 29. júní. kl. 13 frá Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin. Að þessu sinni verður farið í Árbæjarsafn og safnið skoðað og svo verður haldið í nýjan sal Rafiðnaðar- skólans að Stórhöfða 27 þar sem kaffiveitingar bíða þátttakenda. Nánari upplýsingar og skráning hjá Svövu í síma 580-5226 eða með rafpósti á svava@rafis.is. Spennugolfi 2011 verður haldið þann 24. júní á Strandarvelli á Hellu. Þátttökugjald er kr. 5.000.- Innifalið í gjaldinu er golf, matur og rúta. Rúta fer frá Stórhöfða 31, stundvíslega kl. 10:00. Áætlað er að hefja leik kl. 12:00. Þátttakendur vinsamlega skráið: Nafn, kennitölu, GSM, grunnforgjöf og hvort komið verði með rútunni. Sendið á: stefan@rafis.is eða í síma 580-5253 Nánari upplýsingar á www.rafis.is/golfrsi/ RAFIÐANAÐARSAMBAND ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.