Morgunblaðið - 11.06.2011, Page 24

Morgunblaðið - 11.06.2011, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011 María Elísabet Pallé mep@mbl.is „Bjarni Jónsson, fulltrúi meirihlut- ans í mannréttindaráði Reykjavíkur- borgar, segir berum orðum að til- gangurinn með tillögum ráðsins sé að gera hinn opinbera skóla hlutlaus- an. Engu að síður vill hann þvinga sinni lífssýn inn í skólana,“ segir Gísli Jónasson prófastur. Hann telur mannréttindaráð ekki hafa tekið þátt í efnislegri umræðu um lokatil- lögur að samskiptareglum leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila borgarinnar við trúar- og lífskoðun- arfélög. Gísli bendir á að upprunalegu til- lögunum hafi aðeins lítillega verið breytt og segir vinnubrögð mann- réttindaráðs með ólíkindum og að margar tillögur séu í trássi við Barnasattmála Sameinuðu þjóðanna og jafnræðisreglu stjórnarskrárinn- ar þegar félagslegt starf trúfélag- anna er túlkað sem trúboð og trú- ariðkun. Mannréttindi felast í þjónustu Gísli segir að það geti ekki talist mismunun að leyfa börnum að taka þátt í trúarlegu starfi á meðan önnur börn taki þátt í öðru félagsstarfi. Telur hann að mannréttindi barna felist í að öllum börnum sé sinnt með viðeigandi hætti. Verði trúarlegt starf bannað þurfi bannið að gilda um allar tegundir félagslegs starfs. Þá bendir hann á, að þó svo Nýja testamentið sé vissulega trúarrit þýði bann við dreifingu þess um leið bann við einni af meginstoðum og sterkasta áhrifavaldi evrópskar menningar. Þar á meðal séu bók- menntir, myndlist, tónlist og heim- speki. Samráð um samskiptareglur Gísli sendi ýtarlegar athugasemd- ir við lokatillögur mannréttindaráðs til borgarráðs og vonar að borgar- fulltrúar taki samskiptareglurnar til umfjöllunar í samráði við alla þá hópa samfélagsins sem eiga hlut að máli. Hvað varðar heimsóknir trúar- og lífskoðunarfélaga innan veggja leik- og grunnskóla og frístundaheimila segir hann þær hvorki brjóta í bága við grunnskólalög, aðalnámskrá leik- skóla eða ákvæði mannréttindasátt- mála Evrópu. „Verði slíkt bannað innan skólans hljóti það að leiða til þess að jafnframt verði að banna alla kynningu innan skólans á öðru fé- lagslegu starfi, hvaða tegund sem það svo er. Annað væri brot á jafn- ræðisreglu stjórnarskrárinnar og ýmsum mannréttindaákvæðum.“ Gísli ítrekar í sínum athugasemd- um að trúfrelsi sé fólgið í því að fá að velja og að Barnasáttmáli Samein- uðu þjóðanna eigi einmitt að tryggja rétt barna til að velja, félagslega og trúarlega. Gísli segir að brotið geti verið á foreldraréttinum, verði félagsleg starfsemi trúarfélaganna bönnuð í frístundaheimilum. Túlkar Gísli regluna svo að samkvæmt henni megi börn ekki taka þátt í kirkjulegu starfi á frístundaheimilum, jafnvel með leyfi foreldranna, en réttur for- eldra til að ala börn sín upp í sam- ræmi við eigin lífsskoðanir sé ótví- rætt tryggður í mannréttinda- sáttmála Evrópu. Fermingarfræðsla og barnastarf má ekki trufla lögbundið skólastarf sem geti leitt til mismununar nem- enda sem eru ekki í trúar- og lífs- skoðunarfélögum. Gísli segir það hins vegar vera rétt foreldra að biðja um frí fyrir börn sín. Engin efnisleg rök komin  Hefur ítrekað reynt að hafa samskipti við mannréttindaráð en engin svör fengið  Samskiptareglurnar ekki í samræmi við Barnasáttmálann og jafnræðisreglu Morgunblaðið/Ernir Mannréttindi Miklar deilur hafa verið um samskiptareglur við trúar- og líf- skoðunarfélög. Athugasemdir hafa verið sendar til borgarráðs. Lokatillögur mannréttindaráðs » Mannréttindastefna var samþykkt árið 2006. » Trúar- og lífsskoðunarfélög skulu ekki starfa innan leik-, grunnskóla né frístundaheim- ila. » Nemendur skulu ekki vera þátttakendur í helgisiðum og athöfnum. » Fermingarfræðsla skal ekki leiða til mismununar. » Helgistundir sem tengjast viðbrögðum við áfalli skulu fram fram utan skólatíma. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu Skarphéðins Bergs Stein- arssonar, fyrrverandi stjórnarfor- manns FL Group, um samtals tíu milljóna króna bætur vegna kyrr- setningar eigna hans á síðasta ári í tengslum við rannsókn skattrann- sóknarstjóra. Kyrrsetningin var síð- ar felld úr gildi þar sem ekki var tal- inn lagagrundvöllur fyrir henni. Skarphéðinn krafðist skaðabóta upp á fimm milljónir króna og ann- arra fimm milljóna króna í miska- bætur. Lögmaður hans sagði fyrir dómi, að skattrannsóknarstjóri og tollstjóri hefðu gert óvenju róttæka og ólögmæta aðför að Skarphéðni og fjárhagslegri afkomu fjölskyldu hans. Þessi aðför hafi vakið mikla at- hygli og fjölmiðlaumræðu um ein viðkvæmustu einkamál hvers manns; fjárhagslega stöðu hans. Frétt lekið til fjölmiðla Jafnframt hefði frétt um kyrrsetn- inguna verið lekið til fjölmiðla af hálfu embættanna en Skarphéðinn sagðist fyrst hafa frétt af málinu frá fjölmiðlum. Því verði ekki betur séð en að Skarphéðinn hafi verið gerður að blóraböggli í máli þar sem ætlun stofnananna virðist hafa verið að svara kalli í opinberri umræðu um kyrrsetningu á eignum auðmanna eftir bankahrunið haustið 2008. Á þeirri vegferð hafi öllum réttar- reglum verið vikið til hliðar, bæði stjórnsýslulögum en ekki síður skattalögunum sjálfum. Embættin bentu hins vegar á að Skarphéðinn Berg sæti rannsókn skattrannsóknarstjóra vegna meintra skattsvika Stoða hf., áður FL Group hf. sem hafi verið almenn- ingshlutafélag undir stjórnarfor- mennsku stefnanda. Hann hafi enn réttarstöðu sakbornings og sé rann- sóknin á lokastigi. Kyrrsetningin hafi verið þáttur í refsivörslu skatt- rannsóknarstjóra. Þá mótmæltu embættin því, að starfsmenn þeirra ættu einhvern þátt í því að frétt um kyrrsetninguna hefði borist til fjöl- miðla í aðdraganda hennar. Dómurinn féllst ekki á að í kyrr- setningu á eignum Skarphéðins Bergs hefði falist brot á skaðabóta- reglum eða í því hafi falist ólögmæt meingerð gegn persónu hans heldur hafi, þrátt fyrir niðurstöðu kyrrsetn- ingarmálsins, verið um að ræða eðli- legan þátt í þeirri skattrannsókn sem enn standi yfir. Þá sé með öllu ósannað að starfsmenn embættanna hafi lekið upplýsingum til fjölmiðla. Kröfu um bætur vegna kyrrsetn- ingar hafnað  Hefur enn réttarstöðu sakbornings Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hafnað Skarphéðinn Berg krafðist bóta vegna kyrrsetningar eigna. Langflestir þeirra sem töldu fram at- vinnuleysisbætur á skattframtali ársins 2010 voru búsettir á höfuð- borgarsvæðinu, rúmlega 15 þúsund manns. Hlutfallslega fengu þó flestir greiddar bætur á Reykjanesskaga en um tuttugu prósent íbúa sveitar- félaga þar töldu fram atvinnuleys- isbætur. Þetta kemur fram í grein Páls Kolbeins um mun á atvinnuleysi eftir sveitarfélögum í nýjasta hefti Tíundar, fréttablaðs ríkisskattstjóra. Alls töldu 10.546 manns fram at- vinnuleysisbætur í Reykjavík, 2.664 í Kópavogi og 2.379 í Hafnarfirði. Hlutfall íbúa sem töldu fram atvinnu- leysisbætur í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði var í takti við lands- meðaltal eða í kringum 11-12 pró- sent. Þrátt fyrir að vera með flesta íbúa á bótum var Reykjavík aðeins í 22. sæti yfir hlutfall íbúa á atvinnu- leysisbótum. Sandgerðisbær á toppnum Á Reykjanesi var sama hlutfall mun hærra. Þannig var fjöldi þeirra sem töldu fram bætur í Reykja- nesbæ sá fjórði mesti á landinu þó að sveitarfélagið sé það fimmta stærsta. Sandgerðisbær trónir á toppnum yf- ir hæst hlutfall framteljanda á at- vinnuleysisbótum en þar var það 20,3%. Í Reykjanesbæ var það 19,3%, í Vogum 18,2% og 17,2% í Garði. Þannig eru atvinnuleysisbætur mikilvægur hluti tekna sumra sveit- arfélaga á landinu. Þannig eru þær 5,9% tekna Helgafellsveitar þar sem 18,4% framteljenda gáfu upp at- vinnuleysisbætur. 20% íbúa Reykjaness fá bætur LEIKHÓPURINN LOTTA BÝÐUR ÁSKRIFENDUM MORGUNBLAÐSINS 2 FYRIR 1 Á SÝNINGUNA MJALLHVÍTI OG DVERGANA SJÖ GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1122 Leikhópurinn Lotta ferðast með sýningar sínar út um allt land og sýnir alltaf utandyra. Í sumar eru sýningarstaðir yfir 50 talsins. Næstu sýningar: 11. júní laugardagur 13:00 Grundarfjörður – Þríhyrningurinn 11. júní laugardagur 17:00 Stykkishólmur – Kvenfélagsgarðurinn 12. júní sunnudagur 13:00 Patreksfjörður – Á túninu við Albínu 12. júní sunnudagur 17:00 Tálknafjörður – Á túninu við Grunnskólann 13. júní mánudagur 18:00 Ísafjörður – Sjúkrahústúnið 14. júní þriðjudagur 18:00 Bolungarvík – Hátíðarsvæðið við grunnskólann KORTIÐ GILDIR TIL 30.09.2011 – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MOGGAKLÚBBURINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.